Íslendingur


Íslendingur - 08.06.1923, Side 4

Íslendingur - 08.06.1923, Side 4
4 ISLENDINGUI?. Styðjið Heilsuhælissjóð Norðurlands! I sambandi við hátíðahald 17. júní n. k. hafa undirritaðar konur tekið að sér að standa fyrir veitingum til ágóða fyrir Heilsuhælissjóð Norðurlands. Vér væntum þess, að margir verði til að styrkja þetta velferðamál nú eins og áður, og biðjum þá, sem ætla að gefa eitthvað til veitinganna, að koma því til einhverrar okkar fyrir næstkomandi miðvikudag. Akureyri 7. júní 1923. Anna Magnúsdóttir. Laufey Pálsdóttir. Gunnhildur Ryel. Alma Thorarensen. Jóhanna Jónsdóttir. Soffía Sigurjónsdóttir. Jóninna Sigurðardóttir. Sigurlaug Sigurgeirsdóttir. KAOPIÐ NÝJAR KVÖLDVÓKDR! Lambskinn kaupir Haraldur Guðnason. Ostar nýkomnir í Verzlon Viltielms Hinrikssonar. i. S. I. H. U. *M. F. E. 1. S. I. íþróttamót verður haldið að tilhlutun U. M. F. A. 30. júní og 1. júlí n. k. Kept verður í eftirtöldum íþróttagreinum, ef þátttaka fæst: Stökk: Hástökk með atrennu. Langstökk með atrennu. Stangarstökk. Hlaup: 100 m. spretthlaup, fullorðnir og drengir. 800 m. spretthlaup. 5000 m. þolhlaup. Boðhlaup 4x50 metrar. Köst: Spjótkast, Kr inglukast, kúlukast. Sund: 50 m. hraðsund Sundleikni. Islenzk glíma. Kappganga, 2000 metrar. Reiptog, 8 manna sveitir. hátttakendur gefi sig frarn við einhvern af undirrituðum fyrir 24. þ. m. Akureyri 5. júní 1923. íþróttanefud U. M. F. A. Ole Hertervig. Magtiús Pétursson. Óskar Gíslason. Svanbj. Frímannsson. Gunnar Sigurgeirsson. Aðalfundur Ræktunarfélags Norðurlands verður haldinn í húsi félagsins í Gróðrarstöðinni föstudaginn og laugardaginn 22. og 23. þessa mánaðar. Hvert búnaðarfélag, sem er í Ræktunarfélaginu, hefir rétt til að senda einn fulltrúa á fundinn, og er helzt óskað eftir, að það sé formaðurinn. Stjórnin. Takið vel eftir! Enn þá er eftir óselt af heildsöluvörum mínum um 5000,00 króna virði. Fyrst um sinn verða vörur þessar seldar áfram í smásölu, með mínu afarnið- ursettu verði í Hafnarstræti 2, Schiöths verzlun. Mönnum niun fara að vera orðið töluvert kunnugt um verðið, og ættu því að nota tækifærið meðan það gefst, og birgja sig upp af þessurn ódýru vörum, áður en eg sendi þær burt úr bænum. Enn þá er til úrval af sjölum og sjalklútutn, kvenslifsum, kjólatauum, fataefnum, flauelum, flónelum, morgun- og dagkjólatauum, svuntuefnum o. fl. Ennfremur axlabönd, nankin, lasting, klartau, hvergarn, millifóður, moll, lakaléreft og ótal margt fleira. Það borgar sig núna að líta inn í S c h i ö t h s-v e r z 1 u n, því að þang. að er nýkomið mikið úrval af nýjum og afarfjölbreyttum vörum, sem hér verður of langt upp að telja, en athugið vel auglýsingaskápiun utan á búð' inni nú í næstu viku. Virðingarfylst. Akureyri 8. júní 1923. Charl F. Schiöth. Akureyrar-Bíó sýnir fyrst um sinn kvikmyndir í hinu nýja húsi sfnu á sunnudags-, miðviku- dags- og laugardagskvöldum kl. 9 síðdegis. Af því húsrými nú er svo mikið, verður hver mynd aðeins sýnd 3 sinnum, þannig að ný mynd verði á hverj- um miðvikudegi. Allir þeir, sem skulda Tuliníusarverzlun á Akureyri aðvarast hér með um, að hafa gert full skil, eða samið um greiðslu skulda sinna fyrir 15. júní næstkomandi. Að öðrum kosti verða skuld- irnar afhentar málaflutningsmanni til innheimtu. Akureyri 4. júní 1923. Tu li n i u sarverzl u n. Húsmæður! Þið skuluð biðja mennina ykkar um að gefa ykkur Therma- vatnshitunarbrúsa frá Elektro Co. Bókbandsvinnustofa. Undirritaður hefir ákveðið að opna bókbandsvinnustofu á Akureýri síðarj hluta þessa sumars í hinu nýja húsi timburmeistara Hjalta Sigurðssonar. Með því að eg hefi keypt öll bókbands- og gyllingartæki bóksala Sig. sál Sigurðssonar get eg boðið samskonar bar.d og gyllingu og hann hefir leyst af hendi; vænti eg að viðskiftamenn hans láti mig njóta sama trausts í við- skiftum og bann hefir notið. Virðingarfylst. Árni Árnason frá Kálfsstöðum í Hjaltadal. Prentsmiðja á Isaflrði. Ný, góð prentsmiðja með fullkomnum útbúnaði til leigu nú þegar. Miklar líkur til að prentsmiðjan fái strax, ank annars, vikublað til prentunar. Listhaf- endur snúi sér til bankabókara Jóns O. Maríussonar á ísafirði fyrir 30. júní. H. f. Prentfélag Vestfirðinga. Stjórnin. f sem keypt hefir einn árgang af Nýjurr m Kvöldvökum vil * eiga'alla árgangana fimtán að tölu. Fá eintök til frá byrjun. Seld hji Sveini Sigurjónssyni Hafnarstr. 103 Kaupið Nýjar Kvöldvökur. Tækifærið er nú. Góðum kaupum má ekki slá á frest. Gætið þess, að allir vilja eiga Nýj- ar Kvöldvökur, svo þær verða bráðum ófáanlegar. Fjármark Jóns Holms Friðrikssonar Efri-Vindheimum í Olæsibæjarhreppi er: Bragð fr. og gat hægra, sýlt vinslra. Brennimark: Jón H F. Fjallskilastjórar beðnir að skrifa markið inn í markaskrár sínar. 2 herbergi samliggjandi til leigu frá 15. júlf f Brekkugötu 2, uppi.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.