Íslendingur - 03.08.1923, Page 2
2
ÍSLENDINGUR.
HÉR MEÐ tilkynnist vinum og vandamönnum, að
kaupm. Eggert Laxdal
andaðist að heimili sínu aðfaranótt þ. 1. þ. m. Jarðarförin
fer fram, að forfallalausu, þriðjudaginn 7. þ. m. kl. 3. e. h.
frá kirkjunni.
Eggert M. Laxdal. fón Laxdal.
Fjárhagurinn.
Ríkisskuldir íslands eru um I6V2
milj. krónur. í eignum, sem hugsan-
legt er og forsvaranlegt að telja upp
í greiðslu á skuldunum, eigum við
í hæsta lagi 6 miljónir og eru þá
eftir IOV2 milj. kr. af skuldunum,
sem við eigum eignir fyrir að vísu,
en sem ekki eru arðberandi, svo að
þær geti afborgað skuldirnar. F*ess-
ar IOV2 milj. verður því að borga
af tekjum komandi ára. Fjárhagur
ríhisins er því að eins í réttuhorfi,
að tekjur og gjöld standist á, þótt
þessar afborganir séu taldar með
gjöldunum.
Fjárlagafrumvarpið fyrir 1924, eins
og stjórnin lagði það fyrir þingið,
var í réttu horfi. Rar var meira að
segja gert ráð fyrir dálitlum tekju-
afgangi eftir að áætlað hafði verið
fyrir öllum afborgunum af lánum.
En þingið skyldi þannig við frum-
varpið, að það var afgreitt sem
lög með nærfelt 200 þús. kr.
tekjuhalla. F»ar var aftur stefnt úr
réttu horfi.
Stjórnin gerði í upphafi ráð fyrir,
að leggja ekki fyrir þingið frumv.
til fjáraukalaga fyrir yfirstandandi
fjárhagsár. Kvað þess ekki þörf,
fjárlögin nægðu til nauðsynlegra
framkvæmda á árinu. En ýmsir
þingmenn, einkum stuðningsmenn
stjórnarinnar, voru annarar skoðun-
ar. Kváðu fjárlögin 1923 mjög skor-
in við nögl og nauðsyn að heimila
dálitla viðbót við gjöldin, sem þar
voru áætluð. Stjórnin varð svo við
tilmælum þessara þingmanna og
lagði fjáraukafrumv. fyrir þingið, þar
serh gert var ráð fyrir aukafjárveit-
ingum, er námu kr. 52.000,00. Var
þar fremur hóflega farið, en þegar
þingið svo afgreiddi frumvarp þetta
sem lög, voru fjárveitingarnar orðn-
ar nærfelt 380.000 kr. og mikið af
því styrkveitingar til einstakra manna
og fjöldamargar aðrar fjárveitingar,
sem vel gátu beðið betri tíma. Nú
er það vitanlegt, að stjórnin verð-
ur að inna af hendi alla nafnbundna
styrki, og afleiðing fjáraukalaganna
verður sú, að ríkissjóður verður að
greiða óþörfu gjöldin, en þörfu gjöld-
in, sem fjárlagaheimildirnar voru
fyrir, verða að sitja á hakanum.
F’etta er nú þegar komið á dag-
inn. Stjórnin hefir þegar gefið skip-
anir um, að hætta vegagerðum og
ýmsum nauðsynlegum framkvæmd-
um, vegna þess að peningar væru
ekki lengur til í ríkissjóði, og ein-
stökurn fyrirtækjum, er ekki gátu
þolað bið, hvað vera haldið áfram
með nýjum lánum. Svo altaf miðar
lengra og lengra úr réttu horfi. Síð-
asta þing hefir fært fjárhaginn um
600 þús. kr. lengra út af réttri Ieið
en hann áður var. Sýnist það í
meira lagi gálauslega að verið á
þessum alvörutímum.
Stjórnin á hér talsverða sök að
máli. F*ótt hún í þingbyrjun sýndi
ótvíræðilega hina einu réttu leið,
sem fara bæri, vék hún sjálf út frá
henni síðar á þinginu og margar
aukafjárveitingarnar eru beinlínis frá
henni runnar. En langsamlega flest-
ar aukafjárveitingarnar eru komnar
í gegnum þingið fyrir tilstyrk Fram-
sóknarflokksins og tveggja eða
þriggja Sjálfstæðismanna. Atkvæða-
greiðslurnar, þar sem nafnakall hefir
verið viðhaft, sýna. þetta berlega, og
þar sem nafnakail hefir ekki farið
fram, má ráða af því, hverjir voru
flutningsmenn að fjárveitingartillög-
unum um aðstöðu þingmannanna.
Eins bera þingtíðindin þess óhrekj-
andi vitni, að það er Framsóknar-
flokkurinn og nokkir hluti Sjálfstæð-
ismanna, sem mesta hlutdeild eiga
í tekjuhallanum í fjárlögunum fyrir
næstkomandi ár.
Ef haldið verður mikið lengra út
í þessar fjárhagsógöngur er gjald-
þrot fyrirsjáanlegt. Að bæta tekju-
halla ofan á tekjuhalla getur ekki
haft nema þann eina endir. Hér
verður því að grípa í taumana áð-
ur en það er um seinan. F*að kem-
ur nú til þjóðarinnar kasta að taka
til sinna ráða.
Kosningar eru fyrir dyrum!
Ot)
Innflutnings-
höft.
Ríkisstjórnin tilkynnir:
»Með því að reglugerð 31. marz
1921 um bann gegn innflutningi
óþörfum varningi er enn í gildi,
auglýsist hérmeð, að ráðuneytið
samþykkir eigi framvegis innflutn-
ing á varningi þeim, sem ræðir
um í reglugerðinni, eftir á, held-
ur verða menn að beiðast inn-
flutningsleyfis áður en þeir panta
vörurnar frá útlöndum.«
f*essi tilkynning stjórnarinnar
mun koma mörgum all-einkennilega
fyrir sjónir. Sé það ætlun stjórn-
arinnar að banna með öllu innflutn-
ing á óþarfa varningi, því segir hún
það þá ekki ótvírætt, með því gerði
hún hreint fyrir sínum dyrum og
sparaði mönnum með því óþarfa
fyrirhöfn að sækja um leyfin. Sé á
hinn bóginn aðeins ætlað að tak-
marka innflutninginn, verður þetta
aðeins fálm-ráðstöfun, sem að engu
haldi kemur, en leiðir aðeins til þess,
að vekja óánægju, því að ekki mun
stjórnin verða svo sanngjörn í leyf-
isveitingum sínura, að öllum finnist
sér gert jafnt undir höfði.
F’að munu flestir játa, að eina
leiðin til þess að hækka gengi ísl.
krónunnar sé með því að flytja meira
át af vörum að verðmagrw til en
inn í landið. Með algerðu banni
á einstökum vörutegundum, er menn
geta helzt án verið, hefði gengið
kanske lagast að nokkru, en mála-
mynda innflutningshöft bæta ekkert
úr skák. Óþarfinn nær inn í Iand-
íð engu að síður, og eftirspurnin
eftir erlendum gjaldeyri minkar ekki
að heldur. En það sem kæmi að
mestu haldi væri, að þjóðin af sjálfs-
dáðum og þvingunarlaust reyndi að
spara við sig seni mest af út-
lendum varningi og notaði innlend-
an, þar sem því yrði við komið,
og neitaði sér sem rnest um óþarfa
og munað. Fyndi þjóðin köllun hjá
sér til að haga ráði sínu þannig,
mundi ffjótlega rakna fram úr vand-
ræðunum. Fús og frjáls sparnaðar-
viðleitni vinnur margfalt á við bann
og hömlur.
cc
Uppog niður.
Franiboð.
Hér í sýslunni bjóða götnlu þing-
mennirnir báðir sig fram aflur. En
nú er fullyrt, að miðstjóm Framsókn-
arflokksins ætli sér að spaika Steíáui
í Fagraskógi, þykir hann ekki nógu
auðsveipur og hlýðinn flokksmaður.
Hefir heyrst, að Bernharð bóndi Stef-
ánsson á F'verá í Öxnadal muni eiga
að verða meðkandidat Einars á Eyr-
arlandi. Einnig hefir heyrst, að Klem-
ens Jónsson ráðherra eigi að verða
fyrir náðinni, og er sagt, að nieiii-
hluti miðstjórnar flokksins sé honum
hlyntur, en i henni eiga sæti Jónas
frá Hriflu, Magnús J. Kristjánsson og
Tryggvi ritstjóri Þórhallsson, tengda-
sonur Klemensar, og kváðu það vera
hinir tveir síðartöldu, er honum fylgi
að málum. Klemens mun þó ennþá
ekki heyra Framsókmuflokknum til. Óaf-
ráðið er ennþá um frambjóðendur af
hálfu stjóinarandstæðinga. Hér á Akur-
eyri eru allar líkur til að verði í kjöri
Magnús J. Krisfjánsson og Björn Lín-
dal lögmaður. Á Seyðisfiiði býður
Jóhannes Jóhannesson bæjarfógeti sig
fram að nýju og á móti honum er
sagt að verði Vilmundur Jónsson læknir
á Ísafírði; er hann jafnaðarmaður. Á
ísafirði hafa Framsókuarflokkurinn og
jafnaðarmenn sameinsst um Harald
Guðmundsson bankagjaldkera sem
frambjóðanda, hantr er jafnaðarmaður,
og í Vestur-ísafjarðarsýslu gerir sama
bandalagið Kristinn Guðlaugsson á
Núpi út af örkinni. U111 mótkandídata
hefir ekki frézt í þessum kjördæmum.
í Skagafjarðarsýslu bjóða báðir gömlu
þingmennirnir sig fram aftur, þeir
Magnús Guðmundsson og Jón á Reyni-
,stað, en frambjóðeudur á móti þeim
hefir Framsóknarflokknum ekki tekist
að fá ennþá.
»Brjóstheilindi«.
Ritstj. »Vm.« segir, að ritstj. ísl. sé
brjóstheill maður með afbrigðum, og
vitnar í því sambandi til frásagnar
ísl. af kaupdeilunum síðustu. í þeirri
frásögn er satt og rétt skýrt frá, en
iil þess þarf brjóstheilindi að dómi
ritstj. »V/w.«. Hann er því ekki vanur
maðurinn!
Hrossakaup.
»Stefnan« segist hafa frétt, að eftir-
fylgjandi »hrossakaup« eigi að gerast
á næsta þingi:
»Norðlendingar fá menlaskóla með
tilstyrk Suunlendinga, en Sunnlending-
ar fá járnbraut með hjálp Norðlend-
inga.«
Andbanninga sigur,
í fylkinu Maniloba í Cauada hefir
algert víubann veiið í giidi uokkur
ár, en gefist illa svo sem viðast vill
verða, og fór óánægja með það dag-
vaxandi. Komu víðtækar raddir fram
Innileg þökk fyrir auðsýnda
samúð og hluttekningu við and-
Iát og jarðarför móður og tengda-
móður okkar, Sigurbjargar Krist-
jánsdóttur.
Akureyri. 2. ágúst 1923.
Kristjana Hallgrímsdóttir.
Rorvaldur Helgason.
um það, að breyta bannlögunum þann-
ig, að leyfa mætti sölu vína og öl-
fanga og að vínsölustöðum yrði kom-
ið á fót. Lét stjómin tilleiðast samkv.
ósk þingsins að bera þetta undir at-
kvæði fylkisbúa og fór sú atkvæða-
greiðsla fram seint í juníniánuði, og
urðu úrslitin þau, að sainþykt var þessi
týmkun á bannlögunutn með 40 þús.
atkv, meirihluta. Fjórum árum áður
bafði álíka inikill meirihluti krafist al-
gers vínbanns. Reynsfan hefir kent
mönnum að skiíta um skoðun — og
liúri er ólýgnust!
»Ónafngreindar konur*.
»Dagur« segir, að 6 inenn hafi sótt
vísnakvöld Jótis S. Bergmnnns — þrír
karlmenn, sem blaðið nafngreinir —
þó ranglega eitm þeirra, og þrjár ö-
nafngreindar konur. í kvetmahópnum
hefir þá Böðvar J. Bjarkan lögmaður
verið, því að hann var einn þeirra,
sem komu til að hlusta á skáldið.
OO
Símfréttir frá útlöndum.
Rvlk i gœr.
Járnbrautarslys vildi nýlega til ná-
lœgt Klausenburg i Rúmeniu, biðu 65
manns þar bana og margir meiddust.
Annað járnbrautarslys vildi til skamt
frá Kassel á Pýzkalandi, fórust þar
29 manns og tim 50 slösuðust.
Jardskjálftar miklir hafa orðið á
Spáni ■ kringum Saragossa. Mikið
landflœmi breyttist i siöðuvatn og mörg
hús hrundu til grunna i ýmsum bæj-
um.
Danir og Norðmenn kornnir i hár
saman út af Grœnlandi. Einnig eru
Fœreyjar orðnar þrœtuefni þeirra t
millum. Hefir Joannes Paturson, leið-
togi fœreyska Sjálfstœðisflokksinsgef-
ið tilefnið með skrifum i norsk blöð,
með því að segja það ekki fjarri huga
Fœreyinga að sameinast Noregi, fengju
þeir við það sjálfstceði. Dönsk blöð
kalla hann föðurlandssvikara.
Harding forseti Bandaríkjanna er
hœttulega veikur. Var nýkominn úr
kynnisferð frá Alaska.
Frakkar farnir að vœgja til fyrir
Pjöðverjum i Ruhr. Samgöngubann-
inu á herteknu svœðunum létt af, og
Pjóðverjar aftur fengið yfirráðin yfir
borginni Essen. Ástandlð i Pýzka-
landi mjög alvarlegt. Hungursneyð
viða. Blöðin i Berlin heirnta að mat-
vœlaskömtun verði aflur upptekin.
Stjórninni hallmœlt fyrir afskifta- og
aðgerðaleysi. Vilja að einhverjum
eiriitm manni verði fengið alrœðisvald.
Markið fer stöðugt lœkkandi. Dollar
er nú 1 100,000 mörk, sœnsk króna
176,000 mörk og sterlingspund 5
miljönir marka virði. Tilraunir Rlkis-
bankans að jafna muninn á gengi
marksins utan latids og innan hafa
orðið árangurslausar. Rikisþingið
kallað saman í nœstu viku. Stjórnar-
skiftum spáð.
Friður er kominn á milli Tyrkja