Íslendingur


Íslendingur - 18.01.1924, Side 1

Íslendingur - 18.01.1924, Side 1
 giT-r— ——-4 —l-1- ■ ? ■' ^ -- — X. árgangur. Akureyri, 18. janúar 1924. 3. tölub). Steinolíu- einkasalan. Pann 11. nóv. s.l. ritaði eg grein, sem birtist í 49. tbl. íslendings f. ár, með sömu yfirskrift og nú. Þar gerði eg samanburð á innkaups- verði galisiskrar gasolíu og útsölu- verði á gasolíu Landsverzlunar, sem raunar hafði áður verið birt hér, í fregnmiða, en misskilið, svo eg áleit þörf á, að birta þetta í opinberu blaði. Nú hefi eg séð afrit af steinolíu- samningnum, sem Landsverzlun gerði við British Petroleum Co., fremur einkennilegur verzlunarsamn- ingur þessarar aldar. Hann er gerð- ur 10. ágúst 1922 og gekk í gildi 6 mán. ?einna, eða 5 dögum áður en Alþing átti að koma saman. Hver skyldi vera orsök þess, að þessi þýðingarmikla ákvörðun þoldi ekki bið þangað til Alþing kom saman? Einkasölu- eða einokunarstarf- semin var búin að Iifa of lengi hér á landi til þess, að farið væri að endurnýja hana, eftir að lojóðin hefir fengið fullveldi sitt og verzlunin að mestu orðin innlend. Af því eg hefi ekki séð frumrit nefnds samnings, vil eg ekki að svo stöddu bera ábyrgð á því, er eg birti hér, en vona það verði til þess, að þjóðin fái að sjá samning þennan, sem ekki hefir fengist hing- að til. Eg gat þess í fyrri grein minni, að B. P. oil Co. væri söludeild frá Anglo Persian oil Co., sem jeg síðan hefi séð staðfest af Héðni Valdimarssyni í oSíupésa hans, bls. 24. Selji bæði þessi félög olíu í Engiandi, þá hljóta þau að liafa sama verðlag, þar sem þau hafa líka aðstöðu. Pað er eins og tíðkast alment, að útbú viðskifta- félaga, sem hafa líka aðstöðu, selja altaf með sama verðlagi. Lv. hefir samið þannig, að greiða fyrir olíuna jafnaðarlegt fob-verð olíunnar í »tank«-skip á flóahöfn í Bandaríkjunum, að viðbættum flutn- ings og öðrum kostnaði til London, ásamt aukakostnaði við að láta olí- una í tunnur kaupanda á stöð fé- Iagsins í London og keyra þeim þaðan fram að skipshlið. Olía sú, sem Lv. kaupir af félag- inu, þarf ekki að vera frá Ameríku, þótt verðið sé miðað* við hið amer- íska verð, þó líklegt sé, að Anglo Persian eigi þar olíulindir, eins og svo víða annarstaðar. Anglo Persian er því eiginlega rétti seljandi olí- unnar til Landsverzlunarinnar. Pað er framleiðslufyrirtæki, er selur eða lætur selja þessa frainleiðslu sína á opnum markaði. Einnig má geta þess, að upplýst er, að Anglo Persi- an, Standard oil og SÍiell oil höfðu sölusamband sín á milli undanfarið til að haida uppi olíuverðinu. Eg hefi enggi skýrslu um mark- aðsverð olíunnar fob Bandaríkin um það bil, er olíusamningurinn var gerður. En eg spurði í fyrri grein minni, hver væri til að »kon- trollera« kostnaðinn á olíunni frá U. S. A. til Bretlands. 7. grein olíu- samningsins heimilar Lv. að útnefna óháðan fulltrúa í London til þess, en hann skuli ekki vera viðriðinn neitt annað firma eða firmu, sem verzla með svipaðar vörur á Bret- lancLi. Enda er tæplega hægt að trúa því, að Lv. hafi haft fagmann til að rannsaka slíka kostnaðarliði, þegar sanlningurinn var gerður, sem eg vil leyfa rnjer að benda á síðar í grein þessari. Nú athugum við fyrst Mjölnir- olíuna (Standard white), miðað við verð pr. penny, pr. imperial gallon. Innkaupið fob U. S. A., að viðbættri sjóvátryggingu og lekatjóni á sjó til Bretiands, var samkv. samningnum 10/s 1922, 31U d. gallonið, eða ísl. kr. 13,38 (gengið þá, 10ls ’22, ísl. kr. 25,80 pr. sterlingspund) inni- hald hvers fats (40 gallon). Fragt- in fyrir gallonið er ákveðin 1,100 d. eða kr. 4,73 pr. fat. Sanikvæmt »L’ Exportateur francaise« var fragtin pr. tonn á steinolíu skráð á 17 shillings pr. tonn (1016 kíló) frá U. S. A. til Bretlands, er gerir kr. 3,23 pr. fat. Parna virðist manni koma *nærri 50°/o álagning hjá olíufélag- inu á sjálfa fragtina. Svo þarf Lv. að greiða '/a d. pr. gallon = 20 d. pr. fat fyrir að láta olíuna í hvert fat kaupanda og 'A d. pr. gallon = 10 d. pr. fat fyrir keyrslu á því, frá stöð félagsins að skipshlið. Hefir þá Lv. greitt félaginu kr. 1,50 of mikið í fragt og kr. 3,23 fyrir ílátn- ingu og keyrslu, samtals kr. 4,73 pr. fat. Nú skal lesandinn reikna út, hve mörgum °/o (prócentum) þetta nem- ur, sem félagið tekur = kr. 4,73 á móti innkaupsverðinu, kr. 16,61. Enn eru ekkikomin öll kurl til graf- ar; eftir er einn kostnaðarliðurinn, e- liður, sem heitir: »Álagning seljanda Vh d. (hálft annað penny) pr. gallon«. Gat nú nokkrum komið þetta til hugar? Hann var kr. 6,45' pr: fat, eftir þáverandi gengi. Pá var kostnaðurinn orðinn kr. 11,18 af fob-verðinu, kr. 27,79 pr. innihald (c. 40 gallon) fats kaupandans. Hér á eg bágt með að trúa mínum eig- in augum: Að olíufélagið lætur Islendinga greiða sér slíka álagn- ingu á sína eigin framleiðslu og verzlunarvöru fram yfir fylsta markaðsverð olíunnar, að viðbætt- um ríflega* reiknuðum flutnings og öðrum kostnaði við að koma olíunni í okkar eigin olíuföt, að skipshlið í London. Eg hefði vel getað áttað mig á þessum lið, en þó tæplega eins háum, — þegar um jafn trygg og langvarandi við- skifti væri að ræða — ef samið hefði verið við eitthvert enskt um- boðssölufirma, sem litfði þurft að kaupa olíuna af olíufélagi. Vafa- laust hefði slíkt firina getað fengið svona samninga án hinnar tilteknu álagningar olíufélagsins, og þótst vel sæmt af þeini viðskiftum fyrir Landsverzlunarinnar hönd með því að fá l°/o (eitt prócent) í umboðs- laun hjá Lv. Nú vil eg gera samanburð á þessu og dæmi hér heima. Hugsum okk- ur t. d., að landsstjórinn í Grímsey gæfij eða seldi Akureyrarútbúi Mjólk- urframleiðendafélags Eyfirðinga, leyfi til einkasölu á allri mjólk, er Gríms- eyingar þarfnast í þrjú ár. Verð það, er kaupandi greiðir seljanda fyrir mjólkina, sé tíðkanlegt útsölu- verð hennar fram í Saurbæjarþorpi. Kaupandi greiði seljanda auk þess: 1) ríflega reiknað flutningsgjald etc. á mjólkinni, miðað frá Saurbæ (þó ef til vill minst af mjólkinni væri tekið svo framarlega, eins og mað- ur getur frekar hugsað sér, að Anglo Persian selji okkur olíu úr olíulind- um sínum í Evrópu) til Akureyrar- útbúsins, sem einnig afhendir alla mjólk, er félagið selur hér og í ná- grenninu. 2) ennfremur vel í lagt gjald fyrir að fylla ílát Grímseying- anna með mjólk og keyra þáu fram? á bryggju. Maður hugsar sér, að mjólkurfélagið þættist hafa orðið fyrir miklu happi með slíkum samn- ing. Og margur bóndinn, sem sjálf- ur annast sölu á mjólk sinni, mundi hreykinn af líkum samningi og trygt þessa framleiðslu sína afbragðsvel með því að selja [aannig alla mjólk sína í þrjú ár, án nokkurrar »extra« álagningar. Hefði nú einhver forsfjórinn verið landsstjóri í Grímsey, þá getur mað- ur hugsað sér, að hann kendi sárt í brjósti um mjólkurframleiðendurna, ef það væru t. d. gamlir sveitungar hans, fyrirað selja Grímseyingum alla mjólk, er þeir þarfnist í þrjú ár, fyrir sama verð eða líklega heldur hærra — í samanburði við olíu- kostnaðinn — en aðrir mjólkurfram- leiðendur fá fyrir jafngóða vöru hér á Akureyri, svo hann miskunni sig yfir þá með því að bæta þeim upp liðlega 25°/o (tuttugu og fimm pró- cent) sem álagningu á mjólkurverð- ið fram yfir tíðkanlegt útsöluverð. Maður gæti hugsað sér, að mjólk- urframleiðendafélagið mundi — ef það hefði ráð á — krossa hann ær- lega, þennan landsstjóra Grímsey- inganna, en tæplega að hann yrði fyrir slíkri virðingu af þegnum sín- um (Grímseyingunum). Ennfremur mætti minna á, að gas- olía Lv. kostaði, þegar samningur- inn var gerður 1922, 5,405 d. pr. gallon (þar inn í falin álagning selj- anda, sem er ekki nema 1 d. pr. gallon af þeirri olíutegund), eða hver 40 gallon kr. 23,24. Dragi maður frá þessu álagningu seljandans á hverju fati hráolíunnar, kr. 4,30, þá kostar innihaldið kr. 18,94, eða hvert kíló 11,8 aura f. a. s. London í tunnum kaupanda. Til samanburð- ar má geta þess, að galisisk gasolía var seld í smá-»partium« í Kaup- mannahöfn í jan. 1923 fr. 10 d, Alúðar þakkir fyrlr sýnda sam- úð vlð andlát og jarðarför Bald- vins Gunnarssonar í Höfða. Höfða 13. janúar 1924. Fjölskyldan. aura kílóið fob Kbhn í tunnum kaupanda. Hver og einn getur feng- ið upplýsingar um þetta hjáGlahn- sons Efterfölger í Kbhn. Olíu þessa hefði eflaust mátt fá ódýrari, ef um stærri kaup — heila farma — hefði verið að ræða. Þó er hún (olían) með hér tilfærðu verði heldur ó- dýrari en hráolía Lv. var í London, áður en verð hennar er smurt með hinni margumgetnu álagningu stein- olíufélagsiúis. Hér er líklega bezta sönnun þess, hve óþarfur skattur hefir verið lagður á þjóðina með þessum (e)-lið einokunarsamnings- ins. Ef til íslands.eru fluttt árlega frá 35—40 þús. föt af olíu, þar af c. 5000 föt af hráolíu, þá nemur sá skattur (eftir núverandi gengi, kr. 30,00 pr. sterlingspund) kr. 7,50 pr. fat af »water white« og »Stand- ard white« olíutegundunum, en kr. 5,00 pr. fat af gasolíunni, árlega frá 250—289 þús. krónum, eða 750 til 868 þúsund krónum í þau þrjú ár, ^em samningurinn á að gilda. En Landsverzlunin má ekki leggja nema 4 kr. pr. fat. Nú getur hver dæmt fyrir sig: Hvort steinolíu- einkasalan með núverapdi fyrirkomu- lagi er frekar til hagsmuna fyrir ís- lendinga eða British Petroleum Company. 8. gr. samningsins tiltekur, að selj- endur skuli leggja fyrir sinn reikn- ing inn í Landsbanka íslands Rvík £ 5000 (fimm þúsund), og skal féð vera því til tryggingar, að þeir upp- fylli sem vera ber skuldbindingar sínar og skyldur samkvæmt þess- um samningi. Pað er sennilegt, að Landsv.forstjóranum hafi dottið í hug einhver Iéleg braskarasál, þegar hann lýsti því yfir hér á þingmála- fundi, að þessi upphæð væri fjór- um sinnum hærri, n.l. 20 þúsund. Akureyri 15. janúar 1924. Axel Kristjánsson. QO Bæjarstjórnarkosningar eru nýlega um garð gengnar á ísa- firði og Seyðisfirði, á þrem fulltrúum á hvorum stað. — Á ísafirði voru kosnir: Magnús Ólafsson og Jón H. Sigmundsson af verkamannalistanum, °g Sig Kristjánsson ritstj. af borgara- listanum. Á Seyðisfirði: Sig. Baldvinsson póst- meistari og Gunnlaugur Jónsson af bandalagi samvinnu- og verkamanna, og Sig. Arngrímsson ritstj. af borgara- listanum. OO \

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.