Íslendingur


Íslendingur - 29.02.1924, Blaðsíða 3

Íslendingur - 29.02.1924, Blaðsíða 3
ÍSLENDINGUR. 3 Garðyrkjunámsskeið verður haldið í Gróðrarstöð Ræktunarfélags Norðurlands komandi vor og sumar, með svipuðu sniði og undanfarin ár (sjá auglýsing aftast á Ársriti félagsins 1921—22). Vornámsskeiðið stendur yfir frá 14. maí til 30. júní, en sumarnámsskeiðið frá 1. maí til 15. okt. Veitt bæði verkleg og bókleg fræðsla. Framkvæmdarstjóri félagsins og æfð garðyrkjukona annast kensluna. Piltar geta ef til vill fengið verklega æfingu við vatns- veitugerð á engi að vorinu. Umsóknir sendist formanni Ræktunarfélags- ins fyrir 1. apríl næstkomandi. Akureyri 27. febrúar 1924. Sig. E. H líðar (p. t. formaður Ræktunarfélags Norðurlands). Baktai Dags. „Veistu hvaða bein mér þykir bezt að bita? Pað er hryggj- arliðurinn." Þ. Þ. Síðan á frambjóðendafundiiuim síð- astl. haust hefir blaðið »Dagur« altaf ððru hvoru verið að veitast að ýmsum mætum borgurum bæjarins, einkum þeim, sem hafa verið fjarverandi þann tírna, sem síðan er liðinn. Árásir blaðs- ins hafa allar bygst á ummælum þess- ara manna um olíusamning og olíu- verð Landsverzlunarinnar, og ekki ein- asta á ummælum þeirra, heldur einnig á ýmsum fjarstæðum og öfg.’m, sem Dagur leggur þeim í munn. í næst- síðasta tbl. keyra fjarstæðurnar svo úr hófi, að það gegnir jafnvel furðu, að Dagur skyldi birta þær. Þannig segir blaðið t. d., að Ásgeir Pétursson hafi á áðurnefndum fundi sagt, »að hægt væri að fá olíuna 20 kr. lægri tunn- una en Landsverzlun borgaði fyrir hana á erlendum markaði*. Bersýnileg ósannindi og fjarstæður eru þessi um- mæli, eins og bezt sést á því, að inn- kanpsverð Landsverzlunar á hverri olíu- tunnu var mi|li 20 og 30 kr., og hefði þá Ásgeir með þessum ummælum átt að segja, að hann gæti keypt olíuna inn fyrir 5-10 kr. pr. tunnu. En auðvdað sagði Ásgeir aldrei neilt slíkt, svo þessi eftir höfðu, tilbúnu ummæli sanna aðeins raunalega heimsku og illkvittið skeytingarleysi á blaðið sjálft og ritstjórn þess. Svo maður sýni Degi þá ómaklegu virðingu, að hafa eftir rétt ummæli Ásgeirs, þá voru þau á þá leið, að mnkaupsverð Landsverzlunar á tilsvar- andi olíutegundum og hann keypti væri 20° o of hátt. Ýmsir valinltunnir skipstjórar og vélstjórar báru vitni um gæði olíu Ásgeirs, og verðsamanburð sinn bygði hann á innkaupsverði sínu (hann lagði fram kaupreikninga yfir olíuna á fundinum) og útsöluverði Landsverzlunar hér á sama tíma og hann hafði sína vöru til sölu. Hámarks- álagning Landsverzlunar er með lög- um ákveðin, svo að henni frádreginni °g með því sð reikna flulningskostn- að og önnur gjöld jöfn hjá báðum, þá var hægur vandi að sanna þennan mismun með óhrekjanlegum tölum, sem og Ásgeir gerði, og sannaði þar með jafnframt óhagkvæm innkanp Lv. samkv. brezka samningnum á olíu hennar. Pað verður ekki í fljótu biagði séð, hvað bændablaðinu Degi getur gengið tn að vera að sletta sér inn í mál, sem flokk þess varða nauðalítið, en sem er lifsspursmál fyrir útgerðarmenn að ráðist sem bezt til lykta. Pakklæti Dags mundi minsta kosti lítið, ef út- gerðarmenn færu að beita ’sér fýrir því, að neyða tipp á bændur einhverj- um lögskipuðum verzlunarstofnunum, sem sannanlégt væri, að færist verzl- umn ver úr hendi en þeim sjálfum. Vöm ritstj. Dags, með titsletni sinni til ser vaudaðri manna, fyrir ríkisveizl- un er því annaðhvort keypt eða þá vesældarleg ástríða til að bakbíta fjar- verandi menn. Hvortveggju er trúandi upp á blaðið. j OO Til leigu frá 14. maí í innbænum 2 sainliggj- andi herbergi. R. v. á. t Zophonías Guðmundsson f. 19. ág. 1900 — d. 3 sept. 1923. (Undir nafni nióður hans) Eg forðast vildi fegin að festa mína sjón á gljúpa græðis veginn, sem geymir slys og tjón. Og hroll að huga setur, ef heyri eg stormsins lag, því aldrei gleymst mér getur, hve grimt hann söng einn dag. Eitt fley á ferðastími með fjórum sveinum var, þá ölyggur rauk og Gými, í grimmar sviftingar. Mín veiktist 'dýrsta vonin, þó viðkvæm lifði þrá: að heilan heimti’ eg soninn úr heljar greipum þá. Minn btjúgi bænaróður á böli vann ei frest. Peir fórust. Ouð minn góður! Pín gæzka sá það bpzt, hann framar mig ei fyndi og feldist minni sýn, sem var mitt elsku yndi og eliistoðin mín. Hans líf var kuntiugt lýði, sem lýsti jafnan sér með dygð og dagfarsprýði, er dýrast mat hann hér. Pví lofstír fagur lifir, og Ijósi halda kanti þe m horfna ávalt yfir, svo aldrei gleymist hann. Minri hefnir hugum kæri, sem hrannar gistir beð, þér fagra kveðju færi, , og fórn þakklætis með af heittelskandi hjarta, sem huggasl við þá trú: á landi Ijóssins bjarta að lifi alsæll þú. OO Úr heimahögum. Kappskdk. Á laugardagskvöldið og sunnudagsnóttina háðu Skákfélag Akur- eyrar og Taflfélag Reykjavíkur hina ár- legu kappskák sína og sendu leikina sím- leiðis eins og venjan hefir verið. Alls tefldu 11 hvoru megin, 5 úr fyrsta flokki og 6 úr öðrum, beztu mennirnir úr hvor- um flokki. Úrslitin urðu þau, að Akur- eyringar unnu að þessu sinni giæsilegan sigur, höfðu 7 vinninga á móti 4, tefldi skákkóngur íslands, Stefán Ólafsson, nú þeirra megin. Leikendur voru sem hér greinir, og sýna tölurnar vinningana. Fyrsti flokkur. Akureyringar: Reykvikingar: v. v. Ari Guðmundss. 0 Egg. Guðmundss. 1 Jón Sigurðsson '/» Sigurður Jóiisson ’/» Stefán Ólafsson 1 Lúðv, Guðmundss. 0 Haltdór Arnórss. 1 Pori. Ófeigsson 0 Þ. Þorsteinsson 1 Stefán Kristinsson 0 Annar flókkur. Sig. Hlíðar 0 Ein. Arnórsson 1 Jóh. Havsteen 1 S. Féldsted 0 O. Gunnlaugss. 0 Ágúst Pálmason 1 A. Bjarnason ■/> Ein. Porvaldsson ‘/» Þ. Gíslason 1 Br. Jónsson 0 St. Sveinsson 1 A. Árnason 0 Vinningar 7 i Vinningar 4 tiriðarveður gerði í gærdag og var biindbylur lengstaf kvöldsitis og fram eftir nóttu. Sama veður í dag. A Siglufirði var stórhríð og ofsaveður. Látin er hér á Oddeyri, ekkjan Elín Guðmundsdóttir, móðirjóns Baidvinsson- ar og þeirra systkina. Taugaveikin. Úr henni andaðist á sótt- varnarhúsinu hér í bænum í fyrrinótt Lúðvík Sveinsson, ungur maður, er var í vetrarvist á Hótel Goðafoss, hinir sjúk- lingarnir liggja allir þungt haldnir. Veikin hefir ekki breiðst frekar út í bænum. 00 I Vínbannið í Bandaríkjunum. í fiéttagrein í danska blaðinu »Ber- linske Tidende* rétt fyrir síðastl. jól, stóð iýsing á því, hverjum firnum á- fengisvínsmyglarar koma inn fyrir landaniæri Bandaríkjanna. Utan við strendur landsins, einkum hjá New Jersey, liggur heill floti (22 skip) með hleðslu, sem nemur 5 miljónum doll- ara. Segja tollþjónarnir, að flest þess- ara skipa sigli undir brezku flaggi. Yfir Kanada vellur áfengisstraumur, inn í víkur og þá helst norðausturhér- uð New-York-ríkisins. Landamærin eru þar 160 mílur, en aðeins 58 verðir; jafnvel þótt lögreglan hafi bifreiðar og mótorhjól, og þjóti á þessum far- artækjum með landamærunum, og nái á þann þátt mörgum, kernst þó fjöidi smyglara undan og inn í landiö. í bæn- um Malone náði t. d. lögreglan í yfir 100 vagna, sem smyglarar áttu; þó eru þessi gæzlutæki ekki einhlýt, því stnyglararnir aka á fljúgandi ferð yfir landamærin í bifreiðum sínum þannig, að lögreglan getur ekki haft hendur í hári þeirra. Sagt er að Indíánarnir aðstoði smygl- arana eftir mætti. Sigla þeir á nóttunni bátum sínum hlððnum vínföngum upp eftir St. Lawrencefljótinu, og af- henda vínbirgðirnar hér og þar eftir fyrirskipunum eigendanna. Og yfir landamærin er smygluninni svo hag- lega fyrir komið, að heita má að eitt smyglunarkerfi sé fiá Kanada gegnum Adisondachsfjöllin til Hudsonfljótsins, með fylgsnum og geymslustöðum á fárra mílna millibili, þar sem verkfæri og benzin m. a. er geymt til þess að auðvelt sé að dytta að bifreiðunum og flutningsvögnum, sem hafa þenna verð- mæta farm að flytja hinum þostlátu sálum hinnar voldugu Bandaríkja- þjóðar. OC Bókafregn. Vísnakver Fornólfs. Með myndum eftir Björn Björnsson. Bóka- verzlun Ársæls Árna- sonar. Rvík 1923. Petta er tvímælalaust einkennilegasta og merkasta Ijóðabókin, sem komið hefir á íslenzka bókamarkaðinn á seinni árum. Nýtt skáld kemur fram fyrir þjóðina, en ineð engum viðvanings brag, heldur heilsteypt og frumlegt skáld, er vekur aðdáun og hrifning með Ijóðum sínum. Meginhluti þessarar fágætu Ijóða- bókar eru söguleg kvæði, hvert öðru ágætara að rímsnild, sögulegum blæ og þrótti — kvæði, sem öllum hljóta að verða hugþekk og ógleymanleg. Lengst af kvæðum þessum er »Man- söngur Svarts á Hofstöðum um Ólöfu Loftsdóttur«, rúmar 40 bls. Hin kvæð- iri í þessum flokki eru: »Björn Guðna- son og Stefán biskup«, »Ögmundur biskup á Britnara Samson* og »Vísur Kvæða-Önnu«. Af þessum snildar- kvæðum eru þó líklegast »Vísur Kvæða- Önnu« beztar, —• þær eru perlur, sem maður dáist því meir að, sem þær eru oftar lesnar. »Forspjallsorð II.« er lýsing á höf- undinum, kærleika hans á hinum fornu yrkisefnum og æfistarfi hans, afbragðs- kvæði og santiort. Höf. segir um sig m. a.: » — — eg hefi morrað mest við það, að marka’ og draga’ í land og koma því undan kólgu, svo það kefði’ ekki’ alt í sand«. Pá eru í bókínni nokkur ættjarðar- kvæði, ort þegar baráttan stóð sem hæst um sjálfstæðismálin, hvatninga- kvæði, kveðin af eldmóð og kyngi- krafti. Par má Iesa: »Standi fyrri í einum eldi allur barmur þessa lands en það lúli annars veldi eða kúgun harðstjórans; fyrr skal hyrr um rjáfrin rjúka og rofin hrynja’ í tóítirnar, brend til ösku fjðllin fjúka og flæða yfir rústirnar*. Kvæðið »Yfirlit« í þessum flokki ber þó af hinum. Af öðrum kvæðum bókarinnar má sérstaklega nefna »Vopna-Teitur«, »Ein- ar sjór« og hin gullfögru eftirmæli Ólafs Davíðssonar frá Hofi. Að Fornólfur er dr. phil. Jón Por- kelsson landskjalavörður, sem nú er nýlátinn, mun á flestra vitorði, og ekki lýgur afkvæmið föðurinn. Myndir eða pennateikningar Björns Björnssonar eru hinar prýðilegustu og auka mjög á fegurð bókarinnar og öll er útgáfan hin vandaðasta. OC Bruni. Símað er frá Borðeyrf í morg- un, að fangahúsið á lsafirði hafi brunnið í nótt og unglingsmað- ur inni. Einnig kviknaði í símastöðinni þar, en tókst að slökkva eidinn. B O L L 1) R eru viðurkendar beztar frá Olgeir Júlíussyni. Fást í Havsteens-bakaríi og hjá Sveini Sigurjónssyni.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.