Íslendingur


Íslendingur - 27.06.1924, Qupperneq 3

Íslendingur - 27.06.1924, Qupperneq 3
ÍSLENDINGUR. VERZLUNIN PARÍS — AKUREYRI. SIGV. E. S. THORSTEINSSÓN SÍMÍ 36. N Ý K O M I Ð : Jarðepli, Rúgmjöl, Hrísgrjón, Maís (heill), Hafragrjón, Bankabygg, Kaffi, brent og mal- að, Natron, Skipsbrauð og ótal margt fleira, svo sem: Sjóklæði, Línuverk, Önglar, Málningavörur, margar teg. í HEILDS0LU; >Every D a y « mjólkin (sú bezta sem hingað flytst). Ný brauð eru seld daglega frá brauðgerðarhúsi Brynjólfs Hrútfjörðs. KOL. Vegna sílækkandi kolaverðs á Englandi lækkar kolaverðið hjá mér frá 1. júlí n. k. niður í 85 kr. tonnið. Ragnar Ólafsson. Símskeyti. (Frá Fréttaatofu (slands.) Rvík 24. júní. Stjórnin í Mexícó hefír gert erind- reka ensku stjórnarinnar, Gummins, rækan úr landi og sakar hann um makk við uppreistarmenn. Bretar hafa krafist yfirbóta fyrir burtrekst- urinn og að fenginni synjun slitu þeir stjórnmálasambandi við Mexico. Franski forsætisráðherrann nýi, Herriot, er kominn í heimsókn til Ramsey Macdonalds, breska for- sætisráðherrans. Hlutaútboð norska bankans 2 til ö miljónir, birt í Lögbirtingarblaðinu. Utanríkisráðuneytið tilkynnir, að Norðmenn hafi Iækkað íslenzka kjöttollinn um 25 norska aura, nið- ur í 38 frá 20. þ. m. að telja. Samkomulag hefir orðið milli Sjómannafélagsins og útgerðarmanna um kaup yfir síldarvertíðina og er um þrennskonar taxta að velja á mótorskipum: a) ’/s af afla, er skiftistí 16 staði. Sölusamningurlagður til grundvallar. b) 260 krónur á mánuði og 6 aurar af hverri tunnu síldar er veiðist. c) 200 krónur á mánuði, og 10 aurar af hverri tunnu síldar. Frí matreiðsla og salt f fisk, sem hásetar draga, fylgir öllum kjörunum. Á minni gufuskipum (línuveiður- um) eru kjörin 30% af andvirði afla, skiftist í 16—17 staði, en á togur- um 250 krónur á mánuði, frítt fæði og 5 aurar af hverri tunnu síldar. Rvík 25. júní. Fundur forsætisráðherranna, Mac- donalds og Herriots, talinn mjög þýðingarmikill. Fullyrt að vináttu- bandalag Frakka og Breta sé end- urnýjað. Nýr fundur boðaður 16. júlí milli forsætisráðherranna og sér- fræðinga skaðabótanefndarinnar. Er verkefni hans að ræða um að hve miklu leyti að bandamenn gangi að tillögum sérfræðinganna. Sérstak- ur fundur boðaður til að ræða skuldaskifti bandamanna innbyrðis. Ennfremur kalla Frakkar alla Iána- drotna Rússa á fund í haust með fulltrúum sovjetstjórnarinnar til ráða- gerða um þau skuldaskifti. Morðingjar ítalska jafnaðarforingj- ans Matteotte handsamaðir og hafa meðgengið glæp sinn. Búist við miklum uppljóstrunum um stjórnar- far Mussoline. Gullstraumur svo mikill til Banda- ríkjanna, að fjármálamenn þeirra ráð- leggja að slaka til á innflutnings- tollum. Danir hafa viðurkent sovjetstjórn- ina á Rússlandi. Ólafía Jóhannesdóttir lést í Krist- janíu á föstudaginn var. Sigurður Greipsson úr Haukadal hefir unnið Íslandsglímuna í þriðja sinn. Rvík 27. júní. Prófum lokið við við háskólann, tóku 5 próf í lögum, 4 í læknis- fræði og þrír í guðfræði. Lögfræðis- prófið tóku: Jón Eyjólfsson I. eink. 138 stig, Stefán Þorvarðarson 1. eink. 1193/3, Ásþór Matthíasson I. eink. llö'Á, Gústaf Aðólf Jónasson II. betri eink. 101 V8, Jón S. Thorodd- sen II. betri lOO'/s stig. Læknisfræði: Jóh. J. Kristjánsson I. eink. 173 stig, Haraldur Jónsson I. eink. 167^/s, Bjarni Guðmundsson II. betri 143 og Árni Pétursson II. eink. betri 134 stig. Guðfræði: Þorsteinn Jóhannesson I. eink. 114’/a stig, Jón Skagan I. eink. 1101/8 og Sig. Þórðarson I. eink. 105% stig. Ágætur afli á togara og er nú meiri lifur á land en nokkru sinni áður. oo Úr heimahögum. Jóti Sveinsson bæjarstjóri hefir fengtð 2000 kr. styrk úr Sáttmálasjóði til þess að fara utan og kynna sér sveitastjórna- og kaupstaðalöggjöf. Mun hann sigla í haust. Húsavikurför. íþróttafél. »f>ór« fór á laugardaginn, nteð m. k. »Reginn«, til Húsavíkur, til þess að þreyta knattspyrnu við Knattspyrnufélag Húsvíkinga. Fór knattspyrnan fratn á sunnudaginn og urðu úrslitin þau, að »Þór« vann 6 leiki en Húsvíkingar engan. Hingað komu kapp- arnir aftur á mánudagsmorguninn og létu hið kezta yfir förinni og viðtökunr á Húsavík. Leiðrétiing. í nokkrum hluta af upplagi síðasta blaðs misprentaðist fyrirsögnin á fyrstn greininni, stóð Þúfnabanninn, en átti auðvitað að vera: Þúfnabaninn. Skipakomur. Esja, Díana, Lagarfoss og Granheim hafa öll verið hér í einni bendu. Með Esju kotnu að sunnan Erlingur Frið- jónsson kaupfélagsstjóri, Ingimar Eydal kennari og frú og Halldór Guðmundsson útgerðarmaður. Frá Blönduós kom frú Sigríður Davíðsson, Með Díönu komu frá útlöndum Tönnes Wathne og frú, A. Gottfredsen útgerðarmaður og Kristján Þorvaldsson verzlunarmaður. Aðalfundur Ræktunarfél. NI. var haldinn á Hólum í Hjaltadal 20. og 21. þ. m. lsl. hefir ekki frétl annað af honum en það, að Guðm. G. Bárðarson kennari sagði sig úr stjórninni, og að Stefán Stefánsson á Varðgjá var kosinn í hans stað, Sig. Ein. Hlíðar endurkosinn í stjórnina og einnig á Búnaðarþingið ásamt Sig. Baldvinssyni á Kornsá. Landveg frá Reykjavík komu á þriðju- daginn Vilhj. Þór kaupíélagsstjóri, Jónas Þorbergsson ritstjóri, Kristján Karlsson bankaritari, Steindór Steindórsson stúd. art og Þorsteinn Davíðsson sútari. „Ferð til Kcvlar“ heitir 5 þátta kvik- mynd, sem sýnd verður í Akureyrar-Bíó á laugardags- og sunnudagskvöldið. Er myndin áhrifamikil og ágællega Ieikin. Gengi peninga hjá bönkum í dag. Sterlingspund . . kr. 32,00 Dollar . . . . — 7,40 Svensk króna . . — 196,68 Norsk króna . . — 100,18 Dönsk króna . . — 123,00 Franskir frankar , — 40,45 Ká I r æ kt. Þar eð menn hafa lagt þá spurn- ingu fyrir mig, hvort ekki mundi vera hægt að rækta hér ýmsar þær kálteg- undir, sem flytjast hingað frá útland- inu, vil eg biðja íslending fyrir eftir- farandi: Til eru margar káltegundir og all- brytilegar, en tilheyra þó allar kross- blómaættinni, og eru ræktaðar vegna yfirvaxtarins, sem aðallega eru blöð, en þó stundum stöngulhlutar. Blómkál. Það er fenginn full sönnun fyrir þvf, að blómkál nær hér fullum þroska, ef rétt er að farið með ræktun þess. Því skal sáð t vermireiti, eða jafnvel jurtapotta eða kassa í húsum inni, og síðan flytja það úr þeim í vermireit- ina. Þegar líður á sumarið fara »höfuð« að myndast í blaðhvirfing- unni efst á stöngulendanum, og verð- ur að hlífa því fyrir sól, annars verð- ur höfuðið hart (trénað) og ramt, og þá jafnframt meira eða minna græn- leitt. Þegar að því líður, að kálið er fullþroskað, losnar höfuðið í sundur, og verður þá að taka það upp áðttr en það verður til muna. Bezt þrífst blómkál í leirkendri mold, sem ekki er of þur. Það þarf mikinn áburð, og gildir það fyrir allar káltegundir, helst nýjan húsdýraáburð og þegar, kálið er nokkuð farið að vaxa, þykir gott að vökva það með áburðarlegi. Blómkálið skal tekið upp úr vermreit- inum og gróðursett á bersvæði þegar nokkurn veginn er víst að ekki sé von mikilla kulda. Það skal sett niður í 4 feta breið beð, með 17 þuml. milli raða og 12 þuml. millib. í röðunum. Káltegund þessi er mjög ljúffeng og er notuð með kjötmeti. Það er talið að í því sé um 5°/o eggjahv. 6°/o kolvetni og geri 35 hitaeiningar 100 gr. Blótnkál skal geymt á dimmum rökum stað, Hvítkál er ræktað eingöngu vegna blaðanna. Seinni part sumars vefjast þau saman líkt og hjá laukum og mynda oft stór kálhöfuð. Það þarf lengri vaxtartíma en blómkál, en hefir þó náð sæmileg- unt þroska hér á landi. Engrar sér- stakrar aðgæzlu þarf við hvítkálshöfuð Hveiti, Strausykur, Melís, Rúsínur, Sveskjur, Epli ný og þurkuð, Makaroni, Kex í pökkum, Laukur, Kartöflur. Verð hvergi lægra. Með næstu skipum kemur mikið af matvöru sem seld verður afaródýrt í heildsölu. Verzl. BRATTAHLÍÐ. Islenzk frímerki brúkuð, kaupir undirritaður háu verði. Innkaupsverðlisti sendist ef um er beðið. Kr. S. Nielsson, Abel Kathrinesgade 25 Köbenhavn B. Húsgagnaáburðurinn Liquid Veneer, gerir gamla hluti sem nýja. Er kom- inn aftur. Verzl. P. Pjeturssonar. eins og blótnkálshöfuð, og má segja að ræktunaraðferðin sé að öðru leyti sú sama. í því er talið 3% eggjahv. 5°/o kolvetni og 30 hitaeiningcr í 100 gr. Rauðkál. Það líkjist mjög hvítkáli að öðru leyti en litnum. Ræktað og notað á sama hátt, hefir sama næringargildi, en er öllu fljótvaxriara. Blöðrukál og Toppkál. Þessar káltegundir hafa náð hér góðum þroska. Bezt er að sá þeim í vermireiti í lok apríl og gróðursetja á bersvæði í byrjun júní. Káltegundir þessar geta haldið áfram að vaxa fram í október ef tíðatfar leyfir. Aðurnefnd- ar ræktunaraðferðir gilda. Grænkál. Það er lang harðgerðast allra kál- tegunda og svo fljótvaxið, að það nær hér á landi, í hvaða árferði sem er fullum þroska fái það nógan áburð. Það myndar engin höfuð. Blöðin eru stór, dökkgræn og eins og krækluð eða krulluð. Betra er að sá því í vermireiti, því þess fyr er hægt að nola það. En góðum þroska nær það án þess. Grænkál er mest notað í súpur. Það þolir að standa úti fram á vetur. Geymast skal það á rörkum stað, einnig má salta það niður til geymslu. í þvt eru talin 4% eggjahv. 13°/o kolvetni og 70 hitaeiningar í 100 gr. slagar það því hátt upp í jarðepli. Rósakál. Það þykir standa grænkáli næst að harðgerfi, en hefir þó gengið hálf iila að rækta það hér. Það myndar höf- uð og er ræktað á sama hátt og hvítkál. G. J. Húsmæður! Prófið brenda og malaða kaffið frá kaffibrenslu Akureyrar Strandgötu 11.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.