Íslendingur


Íslendingur - 22.10.1926, Síða 2

Íslendingur - 22.10.1926, Síða 2
2 ÍSLENDINOUR liafa fyrirliggjandi: Kaffi Súkkulaði Fíkjur Kaffibætir Kaffibrauð Rúsinur Kakao Kex Sveskju H V E I T I margar teg. Libby’s mjólk. verður bætt úr því með ríkiseinka- sölu. Enda væri það harla einkenni- legt, ef það yrði til bóta, að þeir menn, sem mesta æfingu hafa í að reka sjávarútveg og stjórna afurðasölu hans, lélu af að sijórna honum og aðrir menn, lítt vanir eða óvanir þeim störfum, tækju við, jafnvel þó þeir hefðu áhuga og gáfur Einars Oigeirs- sonar til brunns að bera. Alþingi hefir hvað eftir annað svo að segja einhuga lýst sig mótfallið einkasölu sjávarafurðanna og þarmeð álifið söluna bezt komna í höndum framleiðenda, og svo n uti allur þorri þjóðarinnar Iíta á málin. C3 Hagsmunír kaupstaðarins. Kjósendur Akureyrarkaupstaðar! Áður en gengið er að kjörborðinu á morgun, ættuð þið að gera ykk- ur glögga grein fyrir því, hvers er að vænta af þingmannaefnunum fyrir áhugamál þessa bæjatfélags, — velferðamál sjálfra ykkar. Akureyrarbær lifir aðallega á sjáv- arútveg og verzlun. Velferð bæjar- ins í heild sinni er undir því kom- in, að þessir atvinnuvegir eigi sem öflugasta talsmenn á þingi þjóðar- innar. Nú er það vitanlegt, að efri mað- ur A-listans er beinlínis fjandsam- legur sjávarútveginum. Hann hefir ekkert dult með það farið. Hann vill þrengja að honum sem mest, bæði með sköttum og hömlum. Hann vill veikja svo aðstöðu hans, að hann geti ekki gefið fólki sæmi- lega atvinnu, svo að það sjái sig knúð til þess, að yfirgefa bæina og sjávarþorpin og flytja í sveitirnar og þiggja það kaup, sem bœndun- um þá þóknast að bjóða því. Fyrir sjávarútvegskjördæmi sem Akureyri, er það því beinlínis að ganga í berhögg við eigin hags- muni, að kjósa Jón í Yztafelli á þing. Jón í Yztafelli hefir lýst sig and- vígan frjálsri verzlun. Hann vill eina allsherjar samvinnufélagsverzl- un yfir alt landið, skattfrjálsa og fléttaða samábyrð. Kaupmanna- verzlanir þessa bæjar og útvegs- menn eru langhæstu skattgreiðend- ur bæjarins. Útvegsmenn lamaðir og kaupmannaverzlanir úr sögunni, yrði sköttum þeirra jafnað á al- menning. Skattabyrði verkafólksins ykist til stórra muna og þó kæmi kyrkingur í allar framkvæmdir bæj- arins og yfir hann kæmi hnignun og afturför, kæmist sú verzlunar- stefna, á sem Jón í Yztafelli berst fyrir. Að kjósa hann á þingið, er að ganga Tberhögg við hagsmuni bæjarbúa og bæjarfélagsins » heifd sinni. ________ ttgJSáláq Báðir frambjóðendur íhaldsflokks- ins eru í fullu samræmi við stefnu flokksins. Peim er það fyllilega Ijóst, að sjávarútvegurinn má ekki vera olnbogabarn þingsins. Þeir vilja létta honum byrðina, svo að framleiðslukostnaðurinn minki og atvinnan verði meiri og arðvænlegri. Peir vilja báðir efla lífsþrótt bæjanna með blómlegu atvinnulífi. Hags- munir kaupstaða og sjávarþorpa eru trygðir í þeirra höndum. Og Jónas læknir hefir ekki ausið svívirðingu yfir kaupstaðabúa og sjávarþorpafólk í fyrirlestrum sínum, eins og Jón í Yztafelli hefir gert. Kjósendur! Að kjósa B-Iistann, er að tryggja hagsmuni yðar og bæjarfélagsins, að kjósa A-listann, er að vinna á móti hagsmunum bæjarfélagsins. Hugleiðið þetta, áður en þið gangið að kjörborðinu. •• Eigym iú að breyta? Brot úr framfarasögu þjóðarinnar. Ef dæma má eítir ræðum og ritum Jafnaðarmanna og samherjum þeirra úr Framsóhnmni, eru hvorntveggju stóróánægðir með núverandi þjóð- skipulag, og vilja fá því gerbreylt hið allra fyrsta. íhaldsflokkurinn vill aftur á móti halda núverandi þjóðskipulagi með þeim breytitigum, er eðlileg ftamþróun krefst, eftir því sertj tímar líða. Og álítur að á þann hátt verði þjóðarbú- sk^pnum og velferð landsmanna bezt borgið. Um þessar tvæt sfefnur snúast kosn- ingarnar, sem nú standa fyrir dyrum, og kosningarnar að hausti komandi. Mér virðist óviðeigandi og alrangt að gera ráð fyrir öðru, en að leið- togar þjóðarinnar, hvort heldur það eru þingmenn, blaðstjórar, eða aðrir þeir, sem hafa afskifti af opinberum málum, hafi annað fyrir augum sem takmark að keppa að, en heill og vel- ferð lands og þjóðar, skoða eg það því markmiðið, sem að er stefnt, þó ágreiningur sé um leiðirnar — en hættulegt er það líka, að taka skakka leið og fara villur vegar, og hættan er þá vitanlega mest, þegar stefnt er inn á ókunnugar brautir og áltavitinn er enginn eða slæmur. íslenzka þjóðin hefir jafnan verið talin fróðleiksfús og sögufróð, sérstak- lega fróð um sína eigin sögu, lifskjör og lifnaðarhætti. Allir skynsamir menn telja það 'Sjálfsagt, að taka mikið tillit til undangenginnar reynslu, þegar til orða kemur að breyta til frá fornum venjum. Nú, þegar er á dagskránni, að velja á milli þess þjóðskipulags, sem hefir ríkt um lengri tíma og ríkir enn og annars nýs og lítt kunns, og óreyndu af okkar þjóðfjelagi, þá virð- ist ekki úr. vegi að rifja upp fyrir sér þær breytingar, sem orðið hafa á þjóðarbúskapnum, síðan þjóðin fékk siálfforræðið og þær framfarir, sem orðið hafa á þessu tímabili — og draga^svo ályktanir af því: hvort nú- ___________■ verandi þjóðskipulag sé líklegt til þess, að hifta eðlilegan vöxt og framfarir þjóðarinnar á nokkurn hátt. Pað eru ekki nema rúm 50 ár síð- an íslenzka þjóðin fékk fjárforræð< — varð myndug. — Til þess að fá það frelsi, höfðu margir af brztu og vitrustu mönnum hennar lagt svo að segja alla starfskrafta sína franr, um tugi ára, til þess að vinna það úr höndum Dana. Pegar frelsið var fengið, kom til framkvæmdanna. En sökum fátæktar og fákunnáttu á mörgum sviðum, urðu þær smávægilegar í fyrstu. En með sterkum vílja, tiú á landið, þjóðina og sjálfa sig, tókst framtaksömustu mönnunum að yfirvinna örðugleikana hvein á fætur öðrum, eftir því sem árin liðu. Fimtán árum eftir að við fengutn fjárforræði, eða um 1890, voru þó allar útfluttar afurðir landsins ekki nema um 5 miljón króna virði og all- ar tekjur landsjóðsins aðeins um hálf miljón krónur. Fyrstu 15 árin er tæp- lega hægt að segja, að um miklar veiklegar framkvæmdir hafi verið að ræða. En aftur á móti hefir á þeim tíma verið mikið um þær hugsað og þráin eftir þeim verið sterk og knýj- andi. Þeir, sem stunduðu fiskiveiðar á ís- lenzkum fiskiskipum um og eftir 1890' og enn eru á lífi, vita það af reynslu, hvernig allur aðbúnaður var á skip- unum í þá daga. Flest voru skipin smá, 15 — 30 smáiestir að stærð. Peir sem vilja grenslast eftir því, hvernig fæði átti að vera á fiskisk'pi á þeim tíma, geta lesið um það í Stjórnar- tiðindunum frá 1890, Menn, sem sóttu atvinnu langt að, vita einnig, hvaða erfiðleikum það var bundið, að komast til atvinnunnar og aftur til heimilanna, með þeim samgöngum og samgöngutækjum, sem almennfligur varð þá við að búa. Vinnutíminn var ekki nema 5 — 6 mánuðir af ávinu og meðalkaup manna um 3 — 4 hundr- uð krónur yf r allan tímann. Þegar farið var að kaupa kútterana, breyttist töluvert til batnaðar, bæði hvað allan aðbúnað snerti, fæði og kaupgjald, enda var það eftirsóknarvert, að kom- ast á kútter í þá daga; vinnutíminn lengdist um einn mánuð og tekjurnar uxu, þénusta háseta mun almennast hafa verið 5 — 8 hundruð krónur, yfir útgerðar-tímabilið, stýrimanna lítið eitt meira og skipstjóra 1500 — 2500 kr. Skömmu eítir aldamótin byrjuðu landsmenn á síldveiðum með reknet- um og snurpunótum. í stað seglskip- anna komu nú fyrsta flokks vélskip með öllum nýtízku útbúnaði, sem beztur þektist hjá mestu menningar- þjóðum erlendis. Að miklu leyti fyrir nýtízku útbún- að fiskiskipanna og með endurbættum veiðarfærum hefir landsmönnum tekist að 12-falda verðrnæti íslenzku útflutn- ingsvaranna og um 20-falda tekjur rík- issjóðsins á rúmum 30 árum. Kaup- gjald hefir farið stórum hækkandi hér á Iandi; ekki aðeins þeirra, sem vinna að framleiðslu sjávarafurðanna, heldur einnig annara. Sem dæmi má nefna, að ef tekið er meðaltal af árunum 1924 og 1925, mun láta nærri, að kaup háseta á togurum hafi þá verið 5 — 6 falt á við það, sem hásetar höfðu á kútferunum fyrir 30 árum. Laun þess manns, sem 1896 var skipstjóri á kútter, en nú er skipstjóri á togara, hafa nálægt því 15-faldast, Iaun þess, sem þá var stýrimaður á kútter en nú er skipstjóri á togara, hefir um 30- faldast og Iaun manns, sem 1896 var háseti á kúlter, en nú er skipstjóri á Jarðarför Sigurmundu Sig- mundsdóttur húsfreyju að Helg- árseli, er ákveðin að Munkaþverá þriðjudaginn 26. okt. kl. 1 e. h. Börn hinnar látnu. togara, hefir um 50 faldast. Með hin- um auknu tekjum ríkissjóðsins hefir verið hægt að sjá sjúkum betur borg- ið en var fyrir 30 árum; með þeim hefir verið hægt að auka til stórra muna alla fræðslu í landinu, veita þeim, sem af eigin rammleik ekki geta aflað sér nægilegs brauðs, klæðnaðar og búsaskjóls, meiri og meiri hjálp i þeim efuum en áður var kostur á. Leggja vegi og byggja brýr, lýsa upp strendurnar og rækta jörðina betur o. s. frv. Atvinnuvegirnir eru miklu fjölbreytt- ari nú en þeir voru fyrir 30 — 40 ár- um og möguleikarnir fyrir einstaklinga þjóðfélagsins á því að bjarga sér og fá atvinnu við það, sem hverjum og einum fellur bezt í geð að vinna að, eða að gera að lífsstarfi sínu, eru miklu fleiri en þá þektust í landinu. Núverandl þjóðskipulag leggur ekki hindranir í veginn fyrir, að einstakling- arnir geti unnið sig upp í hæstu stöð- ur sem þjóðfélag okkar hefir upp á að bjóða. Reynslan hefir sýnt þetta. M klum meiri hluta af stærstu út- gerðar- og framleiðslufyrirtækjum lands- manna er nú stjórnað af mönnum, sem fyrir nokkrum árum voru óbreyttir verkamenn, algerlega févana. Nútíma-menning íslenzku þjóðarinn- ar og þjóðarauður hefir að miklu leyti verið skapaður af útgerðar- og fiskimönnum þessa lands á síðastliðn- um 30 — 40 árum. Mönnunum, sem einn af leiðtogum þjóðarinnar — að lítt atnuguðu máli (?) — hefir í óvirð- ingarskyni kallað »Grímsby-lýð«. Andstæðingar íhaldsmanria — jafu- aðar- og Framsóknarmennirnir — eru óánægðir yfir því, að veltufé landsins — séistaklega fé bankanna, sé um of lánað til verzlunar og útgerðar í bæj- um og sjóþorpum landsins, og vilja að því sé veitt meira í aðrar áttir, til landbúnaðar og einhvers annars. Eg ætla ekki að deila um það, hvort þessi óánægja er á nægilegum rökum bygð eða ekki. í fljótu bragði virðist það ekki óeðlilegt, að þeir, sem safnað hafa fénu, fái að njóta þess öðium fremur. — Pað mun vera til eitt hérað á landinu, þar sem lán hafa verið veitt^bændum og öðrum, er í sveit búa, að líkum hlutföllum og lán hafa verið veitt til útgerðar og verzl- unar, en hvort þau lán hafa orðið viðkomandi héraði til verulegra hags- bóta telja margir miklum efa bundið. Jafnaðarmeiin og Framsóknar telja atvinnufyrirtækjum útgerðarmanna yfir- leitt iMa stjórnað og með lítilli fyrir- hyggju °S lelja auðvelt að gera það betur. Petta má vel vera að sé rétt. En af hverju vilja ekki pcssir menn sýna það sjálfir i verkinu, að þeir geti gert það betur? Hafa þeir ekki <rú á, að þeir geti gert það betur? Finst þeim aðstaðan til umbóta og

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.