Íslendingur - 03.12.1926, Side 2
2
ÍSlENDINGUR
1) iteíHm IÖLSÍSNI((É
hafa fyrirliggjandi:
Rúgmjöl Kartöflumjöl
Hveiti og gerhveiti Maisnijöl
Hrísgrjón Hafra
Hrensafóður blandaö Sagogrjón
Bárujárn.
Melís
Strausykur
Kandis
Kaffi
er móðir óttans. Ávinninguiinn af
förinni, frelsi.
Pessi Hekiuför er einn merkasti
viðburður í sögu þjóðarinnar, því
að þá fæddust íslenzk náttúruvísindi
á Heklutindi. Hún er auk þess inn-
gangur að starfi Eggerts Ólafsson-
ar, að Iandnámi hans. Upp frá þessu
varði hann öllu starfi sínu til þess
að fara um Iandið eldi rannsókna
og svæla út hindurvitni og hleypi-
dóma. Hann gekk á Geitlandsjökul
og ætlaði að leita að Þórisdal eða
Áradal, sem þá var talinn höfuðból
útilegumanna. Hann kannaði Surts-
helli, sem var talinn bústaður illra
vætta. Hann gekk á Snæfelisjökul,
sem þá var álitið hæsta fjall lands-
ins og alsendis ógengur og hann
reið á Mýrdalsjökul til að Ieita að
Kötlugjá. Altaf reyndi hjátrúin og
heigulshátturinn að aftra honum,
en altaf fór hann leiðar sinnar til
síðasta dags, er hann lagði frá Skor
út á Breiðafjörð. Breiðafjörð, sem
gaf hann og tók.
Það yrði oflangt mál að rekja
hér rqnnsóknaferil Eggerts, en þó
skal þess getið, að þeir Bjarni og
hann ferðuðust um landið í 5 ár
samfleytt, frá 1752—1757. Þeir rann-
sökuðu flestar bygðir landsins og
söfnuðu nátiúrugripum og allskon-
ar fróðleik. Um þessar ferðir og
rannsóknir ritaði Eggert bók í 2
bindum, og er það skemst að segja,
að hún er hið bezta rit, sem um
ísland hefir verið ritað, er tillit er
tekið til tíma og þekkingar. Meira
en nokkuð annað jók hún þekkingu
erlendra manna á landi og þjóð og
eyddi ósönnum sögum um land
og lýð.
Það, sem fremur öllu öðru ein-
kennir Eggert Ólafsson, er karl-
menska hans. Karlmannlegt er líf
hans og dauði, og karlmannleg er
ást hans á landinu og traustið á
framtíð þjóðarinnar. Hann er ekki
náttúrufræðingur á borð við Svein
Pálsson og ýmsir hafa verið gáf-
aðri en hann og margir meira skáld,
en hann er karlmannlegri en þeir
allir. Skoðanir hans eru karlmann-
legar. Þess vegna eru þær furðu-
lega heilbrigðar; en fyrir heilbrigð-
ina og þróttinn í skoðunum og starfi
er Eggert mikilmenni; þess vegna
er hann einn hinn besti, einn hinn
mesti og einn hinn þarfasti íslend-
ingur, sem lifað hefir.
Skoðanir Eggerts á landi og þjóð
koma skýrt fram í Búnaðarbálki;
þetta mikla kvæði er í þrem þátt-
um og heitir sá fyrsti »Eymdaróð-
ur«. Þar lýsir hann eymd þjóðar-
innar og heldur því fram, að hún
stafi aðeins af hleypidómum, secn
liggi hér í landi. Þjóðin trúir ekki
á landið og er blind á fegurð og
auðæfi þess og dáðlaus og sljó
í öllu lífi sínu. Hún trúir á drauga
og forynjur, en ekki guð, og þó er
öll náttúran full af gjöfum hans.
Annar þáttur kvæðisins: ^Náttúru-
list«, segir frá ungum manni, sem
um kyrláta nótC.reikar með sævi
frani og hugsar um framlíð sína.
Hann töfrast af fegurð náttúrunnar
og reisir glaður bú í grænurn dali.
Síðasti þátturinn: »Munaðardæla«,
lýsir unaði og hagsæld sveitalífs-
ins, ef menn kunna að nota gæði
náttúrunnar, njóta hennar og una
glaðir við sitt.
Skoðanir Eggerts eru þá þessar:
Landið er auðugt, en þjóðin fáfróð
og tómlát og kann ekki að hagnýta
sér gæði landsins. Undirstaða far-
sældarinnar er ást og þekking og
þekkingin fæst aðeins fyrir rann-
sókn. Eru þetta ekki heilbrigðar og
'fagrar hugsjónir? Hugsjónir Egg-
erts urðu ekki til í ljóðum, en Ijóðin
fyrir hugsjónir hans. ÖIlu lífi sínu
varði hann til þess, að koma hug-
sjónum sínum í framkvæmd. Þess
vegna er hann mikilmenni, því að
enginn er mikiimenni nema hann
eigi fagrar hugsjónir og berjist
fyrir þeim.
Að rannsókn sé undirstaða allrar
þekkingar er boðskapur vísindanna.
Þetta voru skoðanir Eggerts og hin
miklu nýmæli, sem hann flutti þjóð-
inni. Með sigurhljómi hefir þessi
boðskapur farið um öll lönd og
öðlast ævarandi gildi, og alstaðar,
þar sem honum hefir verið hlýtt,
hefir vel farnast. Lítum á allar fram-
farir, öll stórfyrirtæki, alt er þetta
orðið til fyrir þennan boðskap, og
alstaðar, þar sem vísindin hafa verið'
kvödd til aðstoðar framkvæmdum,
hafa þær aukist og blómgast. Lít-
um á eitt dæmi: ölgerð Dana. Fyrir
hundrað árum var hún í mikilli nið-
urlægingu, alt til þess að þcobsen
bruggari kvaddi vísindin til hjálpar.
Síðan hefir henni fleygt fram á
skömmum tíma, svo að nú er hún
ein hin fullkomnasta ölgerð í heimi
og Jacobsen gat gefið stórfé til vís-
inda og lista. Þetta er aðeins eitt
dæmi af fjölda mórgum.
Hér á iandi þykir rannsókn á nátt-
úru landsins lítils virði og fáir hafa
ástundan á, að kynnast þessu und-
ursamlega landi, sem við köllum
vort. Margir segjast unna landinu,
en fáir þekkja það. Þó er þekking-
in undirstaða ástarinnar. Önnur ást
er tekin úr bókum og ærið þróttlítil.
Hér gera menn tilraunir og lesa
sér til í útlendum bókum, en menn
rannsaka lítið og því fer margt í
handaskolum. Vér Islendingar er-
um eftirbátar annara þjóða um margt,
en mest um þekkinguna á voru
eigin landi. Geta menn þá ekki
skilið, að ísland er merkilegasta land
jarðarinnar og næsta frábrugðið öðr-
um, og að vér þess vegna verðum
að eignast eigin vísindi, þekkja land
vort út í ystu æsar.
Ef Eggert Ólafsson væri uppi nú
og mitt á meðal vor, mundi hann
enn undrast dugleysi og fáfræði
þjóðarinnar. Honum mundi enn
finnast landið gagnauðugt, en fólkið
furðu tómlátt að hagnýta auðæfi
þess. Hann mundi enn reyna að
rannsaka og fræða. Ekki er ólík-
legt, að hann rhundi hefja rannsókn-
irnar með Hekluför með vaxandi
vori, og er hann liti yfir landið,
mundi blasa við honum hin sama
sýn og 1750. Enn eru býlin smá
og húsin lág, enn er hjátrú til dala
og voga og vantrú á landið ótta-
blandin og lítilsigld. Hrópa ekki
íslenzk fjöll enn þá á rannsókn og
íslenzk mold á ræktun? Og enn
heyra merin ekki, enn þá skilja menn
ekki tungur fjallanna. Og.enn mundu
menn telja rannsóknir hans lítils-
virði og fjármálaskörungarnir telja
sæmre, að verja fjenu til annars
þarfara en þess.
En blessuð sé minning Eggerfs,
blessað sé staif hans og stríð, líf
hans og dauði. Blessaður sé hann
fyrir boðskap vísindanna, sem hann
bar oss, karlmensku sína, bjartsýr.i
og hugsjónir. Hver veit, hvort ís-
lendingar væru til nú, ef Eggert
Ólafsson hefði ekki verið til? Hver
veit, hvort þjóðin hefði ekki dáið
eftir móðuharðindin, ef hann hefði
ekki gengið upp á Heklufjall þann
19. júní 1750? — Blessuð sé minn-
ing sveinsins frá Svefneyjum.
Landskjörið.
Listi íhaldsflokksins vinnur
glæsilegan sigur.
Talning landskjörsatkvæðanna fór
fram í Reykjavík í gærdag og urðu
úrslitin þessi:
A-listinn 6,940 atkv.
B-listinn 8,514 atkv.
Ógiid voru 96 atkv. og 157 seðl-
ar auðir. Alls voru greidd 15,707
atkvæði. — Er Jónas læknir Krist-
jánsson þannig kosinn í sæti Jóns
heitins Magnússonar með yfir 1500
atkvæðum fram yfir gagnsækjanda
sinn, Jón Sigurðsson frá Yztafelli.
Sigur íhaldsflokksins er hinn
glæsilegasti. Við landskjörið í sum-
ar fékk listi flokksins 5501, af 14,097
atkv., er þá voru greidd, en listar
bandamanna, Framsóknar og jafn-
aðarmanna, fengu til samans 6,645
atkv. Nú fær bandalagið samanlagt
aðeins tæpum 300 atkv. meira en
þá, þótt rúm 1600 fleiri atkvæði
væru greidd nú en þá var, en Iisti
íhaldsflokksins rúmum 3000 atkvœð-
um fleira. — Kvennalistinn og listi
frjálslynda flokksins fengu í sumar
samanlagt 1801 atkv., en nú komu
þeir ekki til greina.
Bandalagið eykur atkvæðamagn
sitt um 300 atkvæði, íhaldið um
3000 atkvæði.
Þjóðarviljinn hefir talað, ótvírætt
og eindregið. Traustsyfirlýsingin
til stjórnarinnar og íhaldsflokksins
er ákveðin og lýsandi.
%
□o
Símskeyti.
(Frá Fröttastofu fslands.)
, Rvík 3. des.
Útlend:
Frá Khöfn: Kosningarnar til
Þjóðþingsins, er fram fóru í gær,
féllu þannig: Jafnaðarmenn 53, áð-
ur 55, Radikalar 16, áður 22, Vinstri
menn 46, áður 44, Hægri menn 30,
áður 28, Stésvíkurflokkurinn *1, áð-
ur 1, og »Rets-partiet« 2, áður eng-
an. Ófrétt utn Færeyja-þingmanninn.
Búist við, að Vinstri menn myndi
stjórn með tilstyrk Hægri manna.
Ölluin þeim, sem heiðruðu jarð-
arför Jónasar Gunniaugssonar
dbrm. frá Þrastarhóli með nær-
veru sinni eða á annan hátt, vott-
um við okkar innilegasta þakklæti.
Aðstandendurnir.
Hér ineð' tilkynnist vinum og
vandamönnum, að Níels Jóhanns-
son andaðist á Sjúkrahúsinu hér
í bænum þriðjudaginn 30. f. m.
— Jarðarförin fer fram föstudag-
inn 10. þ. m. og hefst kl. 1 e. h.
frá kirkjunni.
Aðstandendurnir.
Frá París er símað, að Austin
Chamberlain leggi til, að ítalir fái
Keney-nýlendu í Afríku. Tilgangur
hans með þessari tillögu talinn vera
tvöfaldur: að efla ítalsk-enska vin-
áttu og snúa hugum ítala frá ný-
lendum Frakka í Afríku.
Innlend.
Vélbátinn »Baldur« með 4 mönn-
um vantar héðan. Fór á veiðar á
mánudaginn. »Nonni« hefir leitað
árangurslaust. »Suðurlandið« er
enn þá að leita.
Strandmennirnir af norska kola-
skipinu »Nystrand«, er strandaði við
Skaftárós, komnir hingað. Búist er
við, að engu verði bjargað úr skip-
inu. Það sökkvi þá og þegar í
sand og sjó.
»Þór« tók nýlega þýzkan togara
í landhelgi og fór með hann til
ísafjarðar. Var hann sektaður um
2000 gullkrónur fyrir ólöglegan
hleraumbúiiað.
®<§>
KolamkfalliRii lokið.
Samkvæmt einkaskeyti,
er hingað barst í morgun,
er kolaverkfallinu í Eng-
landi lokið og útflutningur
á kolum leyfður.
Kvöldskemtun
heldur kvenfélagið F r a m t í ð i n ti|
arðs fyrir gamalmennahælissjóð sinn
í Samkomuhúsi bæjarins sunnudags-
kvöldið n.k. kl.8. Til skemtunar verður:
Gamanleikur, sem aldrei hefir ver-
ið sýndur hér áður.
Fyrirlestur.
Söngur. Blandað kór undir stjórn
íngimundar Árnasonar.
Dans.
Aðgangur kostar kr. 1.50. — Fjöl-
mennið og styðjið þarft fyrirtæki.
Nefndin.
Unglingsstúlka
óskast til að gæta barna.
Eiríkur Kristjánsson.