Íslendingur


Íslendingur - 12.08.1927, Side 2

Íslendingur - 12.08.1927, Side 2
2 fSLENDINGUR Hveiti FyrFrliggjandi: Sveskjur Ávextir niöurs. Maísmjöl Döölur Bl. ávextir Matbaunir Fíkjur Apricosur Hafrar. Rúsínur Purk. Sardínur. eaanBBBBBHBBHSiaDBeB!!9S**' iDHBB B B F. H. Kjaríansson & Co, Híutafélag. Reykfavík' Síninifni: SUGAR. Sfmi 1520 STÆRSTU SYKURII NFLYTJENDUR Á ÍSLANDI. Selj..;n auk þessa: HVEITI, HAFRAMJÖL, HRÍSGRJÓN. ■BQBI N lánsfé. Þeirn ætti því að vera út- lálalaust að afsaia sér væntanlegurn gengishækkunargróða af útlánum sínum, gegn því að losna við til svarandi gengishækkunartap til inn- stæðueigenda. Eg tel meira að segja víst, að bankarriir mundu græða óbeinlínis á þessu: töp þeirra á lán- um yrðu minni að öðru jöfnu, því að það er auðsætt, bœði, að skuldu- nautum virtist það erfiðaraað standa í skilum, sem skuldabyrðin verður þyngri, og, að veð, sem var gott og gilt þegar skuld var stofnuð, er óvíst að sé nægilegt þegar hún er orðin fimtungi hærri raunverulega. Nú kann einhver að líta svo á í fljótu bragði, að þó að gróði og tap bankanna á gullskráningu geti vegið salt að svo miklu leyti sem þeir starfa með innlendu innlánsfé, þá muni vera öðru máli að gegna með fé, er þeir fá til láns erlendis til að starfa með hér. En þetta út- lenda fé er gullskráð, alveg eins og minst var á hér á undan um erlend lán ríkisins, svo að alt ber að sama brunni: Gullskráningin mundi að- eins svitta bankana óráttmætum gengishækkunargróða af útlánum með þessu fé, en á hinn bóginn fryggja þá að sama skapi gegn gengislækkunartapi. Pá er eftir að minnast á þá mót- báru, að gullskráning muni reynast erfið eða ómöguleg, og er hún að vísu lang-veigamest og í rauninni sú eina, sem er nokkurs verð. Skal það fúslega játað, að fyrirfram er erfitt að gera sér grein fyrir því, hve miklum erfiðleikum framkvæmd gullskráningar kann að verða bundin, en að þeir reynast ókleifir, ef viljinn er góður, því trúi eg ekki að óreyndu. Og ef við það er kann- ast: að æskilegt sé, að koma í veg fyrir að gengishækkun hafi raunveru- lega skuldahæk^un í för með sér, að gullskráning skuldaskifta komi í veg fyrir það, og muni skapa meiri festu og öryggi í viðskiftalífinu, en nú á sé stað. sem jeg ætla, að erfitt verði að neita, og að hún mundi koma í veg fyrir óeðlilegar gengisbreytingar af völdum erlendra gróðabralls- manna, þá ættu menn að geta orðið sam- mála um, að til svo mikils sé að vinna, að það borgi sig, þótt nokk- ur aukin fyrirhöfn leggist á láns- stofnanir, verzlanir og einstaklinga, sem skuldaskifti hafa. Ekkert gott og mikilsvert fæst án fyrirhafnar. Fyrirhöfnin yrði líka mest í byrjun, er allar skuldir og inneignir væru gullskráðar í einu. Eftir það mundi f.yrirhöfnin verða lítil, ef gengis- breytingar væru hægfara, en að vísu því meiri, sem gengissveiflur væru tíðari; en þá væri líka hagurinn af gullskráningunni að því skapi meiri. Hér á undan hefir verið gert ráð fyrir, að gullskráningin næði til allra bókfærðra skuldaskifta, en sumir þeir, sem annars er ljóst, hver hagur væri að gullskráningunni, telja tor- merki á, að hún gæti náð til venju- legra verzlunarviðskifla, það yrðí of eríitt í framkvæmdinni. Vera má, að svo yrði, ef skráningunni væri hagað alveg eins og yrði að vera við peningalánstofnanir, svo að hvert innlegg og hver úttekt væri skráð um Ieið með gullverði dags- ins. En þar mætti þá ef til vill haga gullskráningunni á nokkuð annan hátt, gera t. d. upp viðskift- in á 3 mánaða fresti og gullskrá þá mismuninn eftir því gengi, sem þá væri, eða jafnvel aðeins einu sinni á ári, um leið og reikningar væru gerðir upp um áramót. Að vísu mundi þetta geta skakkað nokkru frá réttu, ef gengisbreyting- ar hefðu orðið til muna á tímabil- inu, en væri samt til bóta í sanian- burði við það, sem nú á sér stað. En þó að ekki þætti ráðlegt, að láta gullskráningu í neinu formi ná til verzlunarviðskifta til að bvrja með, þá rýrði það ekki þann hag, sem gullskráning allra verðbréfa (að und- anskildum hlutabréfum náttúrlega) og viðskifta banka og sparisjóða hefði í för með sér, og þó að gulll- skráningunni væri ekki ætlað að vera víðtækari í fyrstu, mundi hitt sennilega koma á eftir, er menn hefðu vanist henni á þessum sviðum- Leiöréttingar. Pessar prentvillur eru í fyrri hluta greinar minnar: 1. dálk 5. 1. a. n.: þeim, les: peirra. 2. -- 16. 1. a. o.: 60, les: 50. 2. — 19. ). a. o: semur, les: keniur. 2. — 34. 1. a. o.: alt i einu, les: alt að einu. 2. — 34:—35. I. a. o.: verðhækkunin, les: verðlækkunin.- 3. — 15. !. a. o.: sér í óréttmæta, les: sér: óréttniæta. 3. — 41. I. a. o.: er, les: eru. 3. — 42. 1. a. o.: á, les: i. 3. — neðanmáls næst neðstu línu: þeim hafi, les: þessu hefði. 4. — 6. 1. a. o.: inngeign, les : inn- eign. 4. — 8. 1. a. o.: bókfærðar, les: bók- færö. 4. — 13. 1. a. o.: á, !es : í. 5. — 15. 1. a. o.: reiknast, les: reiknist. 5. — 25. 1. a. o.: seðlar, les: seðlakr. 5. — 28. 1. a. o.: greiði, Ies: greiðir. 5. — 25. I. a. n.: greiði, les: greiðir. 5. — 8. 1. a. n.: er, les: eru. 6. — 3. 1. a. n.: Festingin, les: Freistingin. Á g æ 11 Orgel-Harmonium til sölu með tækifærisverði. R. v. á. í b ú ð mín í Aðalstræti 10 er til leigu frá 10. okt. n. k. Freymóður Jóhannsson málari. fbuð óskast til leigu frá 1, sept., helzí í mið-bænum. R. v. á. Símskeyti. (Frá Frétt«sfofu Islands.) Rvík 11. ágúst 192T Skáldið Stephan G, Stephansson lézt að heimili sínu, Markerville í Canada, í gærkvöldi. Útfluttar vörur á tímabilinu jatiú- ar—júlímánaðar 17,558,200 gullkrón- ur, en samtímis í fyrra 16,509,130 og 1925 námu þær 20,788,130 gull- krónum. Aflinn upp til 1. ágúst 259,944 þurr skpd. Fiskbirgðir í landinu 157,363 skpd. Smásöluverð í Reykjavík hækkaði um 3°/o í júní, en er 6°/o lægra en í júlí í fyrra. Á innlendum vörum er 12% lækkun móts við 4°/o lækk- un á útlendum vörum. 03 Rússneska stjórnin hefir tilkynt sendiráðsskrifstofu sinni i Kaup- mannahöfn, að hún lrafi afráðið að kaupa íslenzka síld. Hefir skrif- stofan tilkynt íslenzka sendiherran- um þetta og óskað eftir tilboðum: hvaða tunnufjöldi sé framboðin, um verð og söluskilmála. Hefir sendi- herrann tilkynt íslenzku stjórninni þetta og hefir hún þegar sett sig í samband við útgerðarmenn. Hafa þeir þegar myndað með sér félags- skap og mun næstu daga koma frá þeim sölutilboð, er ísl. stjórnin lætur svo sendiherra sinn flytja rússneska sendiráðinu. Söluhorfar mega því teljasi alL- ■ góðar. €>• Síldveiðin. Vkm. síðasti er að álasa úfgerðar- mönnum fyrir að »hafa ekki trygt sér markað fyrir þá síld, sem skip þeirra afla« og sé afkomu sjómanna, sem upp á hlut eru, stefnt í hættu með þessu »fyrirhyggjuleysi.« — Er hér ómaklega og af engri sanngirni að útgerðarmönnum veizt. þeir munu flestir hafa gert fyrirframsölu fyrir alt að meðalafla, og er það meira en venjan hefir verið. þeim verður ekki um það kent þó svo mikii uppgrip hafi orðið af síldinni, það sem af er veitíðar, að allar bræðslustöðvar eru yfiifullar, og að síldarkaupmenn hafa fylzt ótta yfir að markaðurinn yrði yfirfyltur, ef likri veiði héldi áfram mikið Iengur, og tregðast af þeim ástæðum við að kaupa og salta. Og það er ógerningur, að tryggja sölu á meiri veiði en markaðurinn er líkleg- ur að geta tekið við. En þó nú að fyrirframsala í míklu afla-ári reynist sjómönnum arðvænleg, þá reynist hún þeim jafn óhagstæð í meðal eða litlu afla-ári. þess eru mörg dæmin, að útgerðarmenn hafa gert sölusamning í i. I ' byrjun vertíðar uni meirihlutann eða jafnvel allan aflann. Er komið hefir fram á vertíðina og það hefir sýnt sig, að ekki mundi um mikla veiði að ræða, þá hefir síldarverðið þotið langt upp fyiir fyrirframsöluverðið. í út- gerðarlok hafa svo hlutarmenn, er voru á samningsbundnum skipum, unað stórilla við þá útkomu, er þeim hlut- að?st; hinir, er voru á ósamnings- bundnu skipurium, báru meira fiá borði. — Þannig liiýtur það altaf að ganga upp og niður eftir því sem veiðin reynist. — Vkm. getur þess, að á þingmálafundi hér á Akureyri hafi fyrir þremur árum verið feld til- laga um, að ríkið kæmi upp síldar- bræðslustöð hér við Eyjafjörð og starfrækti hana, — og það hafi verið þáv. þingmaður kjördæmisins, sem hafi mest beitt sér á móti tillögunni. — Nú segir blaðið, að það sýni sig bezt, hvort slík verksmiðja hefði ekki komið í góðar þarfir eins og riú sé ástatt. — Jú, eitis og nú er ástatt, en óþörf nema í uppgripa ári, og hversu mörg eru þau að jafnaði? Eitt eða tvö á áratug. — Það eru nú 6 síldar- bræðsluverksmiðjur á landinu, sem geta tekið á móti ca. 300 þus. mál- um fyrirstöðulítið og alt að 500 þús. mál yfir vertíðina. Flversu mörg ár færa okkur slíka veiði, og þegar nú að veiðin er undir 100 þús. málum, eins og hún var í fyrra, þá er það sýnilegt, hversu arðvænt það hefði verið fyrir ríkið að eiga þá og starf- rækja stóra síldarbræðsluverksmiðju. Nei, við höfum enga sérlega þörf á nýrri síldarbræðslu. Það sem við þurfum, er að losa okkur við norsku síldveiðarana, sem veiða nú i bræðsl- urnar, eða að takmarka að minsta kosti undanþigurnar, svo að íslenzku

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.