Íslendingur - 12.10.1928, Page 1
XIV. árgangur.
Akureyri, 12. okt. 1928.
42. tölubl.
Talsími 105.
Strandgata 29.
Ritstjóri: Gunnl. Tr. Jónsson.
Hinir 9 liðir.
Ritstjóri Dags er að burðast með
»9 liði« í blaði sínu, sem eiga að
sýna vinarhug Framsóknarflokksins
til landbúnaðarins og bænda, en
jafnframt óvildarhug og jafnvel
fjandskap íhaldsmanna. — Eins og
vænta mátti af ritstj. Ðags, eru það
falskar myndir, sem hann bregður
upp í liðum þessum og fjarri sann-
leikanum í flestum greinum. Verður
reynt að hreinsa þær, svo að þær
sjáist í sínu rjetta Ijósi.
í fyrsta liðnum segir ritstjórinn,
að Tryggvi Pórhallsson og aðrir
Framsóknarmenn hafi viljað láta
bændur njóta betri vaxtakjara við
Ræktunarsjóðinn en orðið hafi; jafn-
vel svo góðum, að vextirnir væru
aðeins 21/■->%. En íhaldsmenn hafi
barist á móti þessu cg getað af-
stýrt því. Ftjer er eklci alt ósatt.
íhaidsmenn hjeldu því frarn, að
vextirnir gætu ekki verið Iægri ,en
þeir vextir, sem ríkið sjálft greiddi
af lánum sínum. Lægri vextir væru
beinlínis gjöf, sem aðrir yrðu að
bera byrðirnar af. Og þann metn-
að áiitu þeir að íslenskir bændur
hefðu, að þeir kærðu sig ekki um
ölmusugjaíir. — Sveitastyrkur er t.
d. ekkert annað en vaxtalaus lán.
— Pætti bændum sæmandi, að vera
settir á líkan bekk rneð lánskjör
sín? — En annars sýnir sig best,
hversu hugur hefir fylgt máli hjá
Framsóknarhöfðingjunum, að á síð-
asta þingi, er þeir höfðu völdin til
að gera sern þeini sýndist í þessum
efnum, var engin tilraun gerð af
þeirra hálfu til þess að koma breyt-
ingum á, svo að bændur yrðu aö-
njótandi betri vaxtakjara. Orð þeirra
reyndust þannig marklaust glamur,
og framkoma þeirra viðurkendi, að
íhaldsmenn höfðu valið hina einu
heilbrigðu leið.
Um Búnaðarlánadeiidina við
Landsbankann og Ræktunarsjóðinn
eru 3 liðir, og verður þeim öllum
gerð skil hjer í einu. Það er rjett,
að Jón Þorláksson greiddi atkvæði
móti lánadeildarfrumvarpinu, er það
var fyrir þinginu, en það var fyrir
þá sök, að honum fanst hin fyrir-
hugaða lánsstofnun næsta ófull-
komin og kæmi ekki að því haidi,
er til var ætlast. Gaf jafnframt
fyrirheit unr, að leggja fyrir næsta
fund frumvarp um stofnun fuli-
komnari lánsstofnunar fyrir landbún-
aðinn. Saml náði iánadeildarfrum-
varpið að komast gegnum þingið
og verða að lögum, en ekkert vaið
úr frekari framkvæmdum sakirþéss,
að stjórn Landsbankans kvað þá
svo mikla þröng í búi hjá bankan-
um, að hann gæti ekki iagt deiid-
inni til fje. Þó nú að ríklsstjórnin
gæti sett lánadeiidina á stofn samkv.
lögunum, þá gat húri ekki neytt
Landsbankann til að leggja meira
fje fram til hennar en honum sýnd-
ist. Mæltu lögin svo fyrir, að fram-
lag bankans til deildarinnar á stofn-
árinu skyldu nema »alt að 250 þús.
kr.« Það var hámarkið; lágmarkið
hvergi nefnt. Landsbankinn gat
því Iátið sjer nægja, að leggja einar
1000 kr. til lánadeiidarinnar og hlýtt
þó fyrirmælum laganna. Að koma
á fót kák-stofnun viidi J. Þorl. ekki
og fór að undirbúa grundvöllinn að
lánstofnun, er að haldi mætti koma,
og er Rækíunarsjóðurinn árangur-
inn af verkum hans. Tillögur sín-
ar um lánsstofnun handa landbún-
aðinum sendi J. Þorl. Búnaðarfjelagi
Islands til umsagnar, og fyrir for-
göngu Sigurðar búnaðarrnálastjóra
var nefnd kosin íil að athuga þær.
Samdi nefnd sú síðan Ræktunar-
sjóðsfrumvarpið og bygði aðaliega
á tillögum J. Þorl. Er á þing kom,
var það íhaldsmaðurinn Árni Jóns-
son frá Múla, sem mestan veg og
vanda hafði af frumvarpinu. Þess
vegna verður því ekki neilað, að
það er íhaldsflokkurinn, sem hefir
haft forgöngu þessa nráis og ber
aðallega heiðurinn af framgangi
þess.
Þá er tilbúni áburðurinn. Lætur
Dagur mikið yfir því, hversu mikið
þarfaverk Tiyggvi Þórhallsson Irafi
unnið bændum með frumvarpi sínu
um einkasölu ribuiðarins og flutn-
ingshlunnindum, sem þar eru ákveð-
in. Segir jafnframt, að íhaldinu
hafi verið meinilla við frumvarpið.
Það er rjett, að íhaldinu er iila við (
einkasölur, og er það vegna þess,
að það áiítur að verðiag verði veira
með þeim móli en ef verslunin
væri frjáls. Hefir og reynslan sýnt,
að svo er. Og um flulningshlunn-
indin er það að segja, að eftir lög-
unum þá eiga þeir, seni í lcaup-
stöðum búa eða nálægt þeim, að
fá allan flutningskostnað greiddan,
en því fjær sem menn búa kaup-
stöðum og eiga erfiðara með að-
drætti, því minna eiga menn að fá,
og þeir, sern fjærst búa og örðug-
ast eiga, fá nrinst eða ekki nema
örlítinn hundraðshiuta. — Slík er
umhyggja Tryggva Þóihallsonar
fyrir bændunum, sem helst þyiftu
lrennar með. íhaldsmemr vildu haga
flutningshlunnindunum þaiinig, að
þau kæmust sem jafnast niður, en
fengu því ekki ráðið. Umiiyggja
Framsóknarmanna suerist aðallega
um kaupstaðina og nágremri þeirra.
Er ástæða fyrir bændur að flylja
þeim þakkarfórnir fyrir framkom-
una ?
síhaldsmenn börðust með húum
og hnefutn rrióli stofnun Bygginga-
og Iandnámssjóðs«, — segir Dagur.
Rjett er það, að þeir börðust á
nióti fruinvarpsóskapiiaði þeim, sem
Jónas Jónsson frá Hiiflu bar frain
í þinginu í tvígang, en þeir eiga
sinn liluta í þeirri sjóðstofnun, sem
nú er að lcomast á legg og ber
þetta nafn. Eru það íhaldsmaður-
inn Jón Ólafsson 3. þm. Rvíkur og
Famsóknarinaðui iun Halldór Stefáns-
son 1. þm. N.-Múlasýslu, sem mest
ber að þakka sú tilhögun, sem nú
hefir fengist. — Jónas á ekkert í
lögunum nema sjóðsnafnið og 9.
AKUREYRAR BIO
I kvöld kl. 81/?,:
BLÁU GIMSTEIN ARNIK
Glæpamálamynd í 6 þáttum, spennandi og vel leikin.
Laugardagskvöld kl. S1/2
M a c i s t e í
Sunnudaginn kl, 5:
C i r c u s
snillingurinn MACISTl
hefir ekki verið sýnd f
Alþýðusýning! Niðursett verð!
Stórkostleg 7 pátta kvikmynd, þar sem snillingurinn MACISTE leikur
aðalhlutverkið. Jafn-spennandi mynd hefir ekki verið sýnd hjer.
Sunnudagskvöldið kl. 8'/2:
Bardaginn við Rauðskinna.
Petta er afarspennandi 9 pátta kvikmynd með'bardögum, svikum, brögöuni
og allskonar eltingaleik við Rauðskinna.
greinina, sem hamr þrörtgvaði inn
í frumvatpið á síðasta þingi og
sem er einasta skaðsemdarákvæðið
í lögunum. Er ákvæði hennar: að
aldrei megi selja eign, sem fengið
h'efir lán úr sjóðnum, hærra verði
en síðasta fasteignamat sýnir, en
með því er gengið í berhögg við
þá viðleitni síðusiu þinga, að auka
arðsvon jarðanna og verðmæti með
bættum samgöngum, símum, veg-
um og aukinni ræktun á ýmsan
hátt. Ekki má heldur leigja eign-
ina hærra verði en nemur4°/o lands-
verðs, rniðað við fasíeignamat, að
viðbættum 2°/° af verði húsanna.
Eigendumir eru þannig gerðir ó-
frjálsir eigna sinna. Það er innlegg
Jónasar í málið. — En þrátt fyrir
þessa galla er sjóðsstofnunin þýð-
ingarmikil. Og er forsætisriðheira-
Tryggvi Þórhallsson þakkar land-
búnaðarnefnd starf hennar, mælir
hann svoíeidum orðum til fram-
sögumanns hennar í málinu, íhalds-
mannsins Jóns Ólafssonar:
»Sjerstaklega finn jeg þó ástæðu
tii að beina þakklæti mínu til hv.
frstn. Hann er sá eini, seni ekki
hefir persónulega aðstöðu íil þess
að láta mál iandbúnaðarins sjer-
staklega til sín taka, þar sem hann
er sá eini í nefndinni, sem ekki er
bóndi, og síundar auk þess annan
atvinnuveg. Þó hefir hann slaðið
í fremstu röð manna í því, að
styðja landbúnaðinn og gekk fram
fyrir skjöldu á þinginu í fyrra nieð
því að sýna áhuga og rjettan skiln-
ing á því þjóðþrifa'máli, sem hjer
er um að ræða. Þess vegna vil
jeg, sem sjálfkjörinn formaður Bún-
aðarfjelags íslands, og fer nú sein
stendur með æðstu stjórn land-
búnaðarmála, þakka háttv. 3. þm.
Rvíkur fyrir lians góðu tillögur,
ekki einasta í þessu máli, heldur
og öðrtun málum, sem landbúnað-
inn varða og hanu lrefir látið íil
sín taka á þessu þingi.« — (Alþt.
1928 B. ö. h. 1810).
Þessi orð eru mælt til eins úr
miðstjórn íhaldsflokksins.
Þá er kjöttolismálið. Segir ritstj.
að Tryggvi Þórhallsson hafi harð'
lega verið víttur af íhaldsmönnum
fyrir baráttu sína fyrir að firra
bændur Ö00 þús. kr. tapi vegna
hækkunar kjöitollsins. Barátta Tr.
Þ. lá í því, að hann vildi bjóða
Norðmönnum landhelgina í skift-
um fyrir lækkun kjöttollsins. Hefði
hann féngið þá ráðið, væri landið
okkar riú orðið norsk verstöð.
íhaldsstjórnin gat leitt kjöttolls-
málið farsællega til lykta, án þess
að bjóða nokkur fríðindi á móti, en
í skýrslu, sem sendiherrann íslenski
gaf um kjöttollsmálið, er þess get-
ið, að skrif Tryggva Þórhallssonar
hafi stórum spilt fyrir við samn-
ingstilraunirnar. Þannig var hjálp
hans í því máli.
I næstsíðasta liðnum er Jón Þor-
láksson vittur fyrir stefnu sína í
gengismálinu. Það er sania stefn-
an og núverandi fjármálaráðherra
Framsóknarflokksins hefir verið
fylgjandi; sama stefnan, sem stjórn-
ir bæði Dana og Norðmanna hafa
naaaaHH Nýja Bió
® Laugardagskvöldið kl. 8'/a:
g AUar peir, sem gaman hafa af að
a sjá afburða ípróttamann, sem lælur
| engar hættur eða torfærur hamla
n för sinni, purfa að sjá Ilarry Piel
i pessari spennandi mytid.
a
a Sutinudag kl. 5 e. h.
| Maðurinn, sem ekki
kunni að hræðast.
NIÐURSETT VERD.
la
B“----—-----------------.
u
a Sunnudagskvöldið kl. 81/*: .
I Parísaræfintýri.
® Spennandi ástaræfintýri i 7 páttum.
H Aðalhlutverkið: BEBE DANIELS.
B