Íslendingur - 16.11.1928, Síða 1
ISLE NDINGUR
Talsími 105.
XIV. árgangur.
Ritstjóri: Gunnl. Tr. Jónsson.
Akureyri, 16. nóv. 1928.
Strandgata 29.
47. tölubl.
akureyrAr bio
Laugardags- og sunnudagskvöld kl. S1/2
Wínar-valsinn.
(An der schönen blauen Donau)
7 þátta þýsk kvikmynd. — Gerist hún í hinni glöðu Wínar-
borg; borg danslaganna við hina fögru Dóná. — Það er yfir
henni glæsilegur, Ijettur söngva-blær, og enginn, sem sjer hana,
gleymir henni nokkru sinni. — Aðsókn að myndinni hefir alstað-
ar verið afar-mikil — í Kaupmannahöfn sáu hana
tvö hundruð þúsund manns. — Aðalhlutverkin Ieika:
LYA MARA og HARRY LIEDTKE.
Sunnudaginn kl. 5 síðd: Alþýðusýning. Niðursett verð!
C I R K TJ-S.
NÝJASTA MEISTARAVERK CHARLIE CHAPLINS.
Kaupojaldssireitan
á togurunum.
Yfir 50% hækkunar krafist.
Tíðindin, sem berast frá höfuð-
staðnum, eru ískyggileg. Bendir
margt til, að togaraflotinn verði að
hætta veiðum á næstunni, vegna
þess, að samningar náist ekki milli
sjómanna og útgerðarmanna um
kaupgjaldið; að minsta kosti hefir
ekki byrlega blásið með samkomu-
lag við undanfarnar tilraunir.
Kaupgjaldssamningur Útgerðar-
manna- og Sjómannafjelagsins renna
út í lok desembermánaðar. Voru
þeir samningar gerðir fyrir þremur
árum síðan. Kaup háseta var þá
ákveðið 235 kr. um mánuðinn, en
færi hækkandi eða lækkandi eftir
því sem vísitala Hagstofunnar sýndi
dýrtíðina vera. Hefir dýrtíðin á
tímabilinu þverrað svo, að nú er
mánaðarkaup háseta kr. 196,70. —
Fyrir lifrarfat var samkomulag þá
um 28 krónur, en færi hækkandi
eða lækkandi eftir markaðsverði
lifrarinnar, og samkvæmt þvf hafa
sjómennirnir í ár fengið 23 krónur
fyrir lifrarfatið. — Samkvæmt á-
kvæðum samningsins skyldi hon-
um sagt upp með þriggja mánaða
fyrirvara fyrir árslok 1928, af öðr-
um hvorum aðila, ella hjeldist hann
óbreyttur næsta ár, Sjómannafjel-
agiö sagði honum upp á tilskyldum
tíma.
Síðan hefir stjórn Sjómannafje-
Iagsins og nefnd úr útgerðarmanna-
fjelaginu setið á rökstólum um
nýja samningsgerð, þar til fyrir
nokkrum dögum síðan að auðsætt
var, að ekkert samkomulag gat
náðst, svo mikið bar á milli. Fór
þá málið til hins lögskipaða sátta-
semjara, sem nú er Björn Pórðar-
son hæstarjettarritari. Vinnur hann
nú að því, að reyna að miðla mál-
um, en sem fiestir eru vantrúaðir á
að takist, vegna óbilgirni þeirra
manna, sem fara með málið fyrir
hönd sjómannanna.
Svo að mönnum verði Ijóst,
hvernig að málunum horfir við,
fer hjer á eftir núverandi kaupgjald,
kaupgjald það, sem útgerðarmenn
vilja greiða og kaupgjald það, sem
Sjómannafjelagsstjórnin krefst að
goldið sje:
Lágmarkskaup háseta um mánuð-
inn er nú kr. 196,70; útgerðarmenn
vilja greiða 200 kr„ Sjómannafje-
lagsstjórnin krefst 230 kr. — Lág-
markskaup matsveina er kr. 258,64;
útgerðarmeun vilja greiða kr. 263,-
00, Sjómannafjelagsstjórnin krefst
kr. 300,00. — Lágmarkskaup að-
stoðarmanna við vjelar er kr. 301,-
32; útgérðarmenn vilja greiða kr.
306,00, Sjómannafjelagsstjórninkrefst
kr. 360,00. — Lágmarkskaup kynd-
ara er kr. 281,24; útgerðarmenn
vilja greiða kr. 285,00, Sjómannafje-
Iagsstjórnin krefst kr. 380,00. —
Lágmarkskaup óvanra kyndara er
251,10; útgerðarmenn vilja greiða
kr. 255,00, en Sjómannafjelagsstjórn-
in krefst kr. 320,00.
Ennfremur gerir Sjómannafjelags-
stjórnin þær kröfur, að bátsmenn
fái kr. 325,00 á mánuði, aðstoðar-
bátsmenn kr. 290,00, 1. fl. netamenn
kr. 290,00, 2. fl. netamenn kr. 265,00
og lifrarbræðslumenn kr. 265,00, en
áður hafa menn þessir verið taldir
í flokki háseta, en fengið aukaþókn-
un fyrir sjerstarfa sinri. Þess er
ennfremur krafist, að lifrarbræðslu-
menn fái 5 kr. fyrir hver 105 kg. af
1. fl. lýsi og 3 kr. fyrir sama þunga
af 2. fl. lýsi, en áður hefir sú þókn-
un numið kr. 3,00 og 1,50. — Peg-
ar skip stundar ísfiskveiðar, skal
skipverjum, öðrum en yfírmönnum,
greitt hverjum um sig V*9/o af
brúttó-sölu aflans, í stað ‘A0/# sem
nú er. Ennfremur helmingur þess
andvirðis, sem fæst fyrir gotu og
úrgang. Af lifrarfati greiðist 40 kr.
í stað 23. kr. sem nú er.
Þá er síldveiðin. Eftir núgildandi
samningi fengu hásetar 3 aura
premíu af máli af fyrstu 2000 mál-
unum er veiddust í bræðslu, 4 aura
af máli af næstu 2000 málunum og
5 aura af hverju máli úr því. —
Nú krefst Sjómannafjelagsstjórnin
5 aura premíu af máli upp að 5000
málum og 6 aura premíu af öllu,
sem þar yfir veiðist. Sje síldin sölt-
uð, þá 6 aura premíu af hverri tn„
hvort sem að veiðist mikið eða
lítið.
Heildarhækkun á kaup
gjaldinu, eftir kröfum þeim, sem
stjórn Sjómannafjeíagsins gerir,
nemur 57'/2°/o að því er útgerð-
armenn staðhæfa, og telja þeir það
meiri hækkun en útvegurinn geti
borið, — og sjeu hjer fjörráð á
ferðinni við togaraútgerðina.
Svo mun og fleirum sýnast.
Hvert, sem litið er um heiminn,
eru þess hvergi dæmi, að kaupgjald
fari hækkandi; það lækkar alstaðar
eða stendur í stað, eftir því sem
nálgast meir »normal«-ástand ílönd-
unum. — Hjá okkur sem annarstað-
ar, þverrar dýrtíðin heldur en hitt;
kaupgjaldið ætti að fylgja í hennar
spor. — Kjör þau, sem goldin hafa
verið sjómönnum á íslensku togur-
unum eru talin þau bestu, sem
greidd eru á nokkrum togurum. Þó
eru útgerðarmenn viljugir að bæta
þau að nokkru. Togarahásetarnir
íslensku hafa haft 2 síðustu árin
4—6 þús. kr. um árið og er það
yfirleitt helmingi meira en verkafólk
og aðrir sjómenn hafa hjer á landi
fyrir ársatvinnu sína.
Kröfur forkólfanna í Sjómanna-
fjelaginu, sem vitanlega eru gerðar
í fullu samræmi við vilja leiðtoga
Alþýðuflokksins, keyra fram úr öllu
hófi, og þeim er það sjálfum manna
best ljóst. En þeir hafa ákveðið
markmið framundan herrarnir, og
það er þjóðnýting togaranna. Tak-
ist þeim að eyðileggja útgerðina t
hinni núverandi mynd sinni, liggur
ekki annað fyrir, ef hún á ekki
alveg að leggjast niður.
Og blöð þeirra hafa verið látin
tilkynna gleiðletrað, að baráttan
væri hafin og tfmi átakanna væri
kominn; og stæðu sjómenn út um
landið að baki stjettarbræðra sinna
syðra, væri sigrinum náð. Að at-
vinnuleysi og örbyrgð yrði það,
sem aðallega af baráttunni leiddi,
þegja blöðin um, en öllum ætti að
vera það auðsætt að svo verður,
verði togarat'lotinn frá veiðum
meirihluta vetrarvertíðarinnar eða
lengur, en ekkert er sennilegra en
svo yrði, haldi leiðtogarnir fast við
kröfur sínar og sjómennirnir taka
ekki af þeim ráðin.
Þjóðarheildinni skiftir það miklu,
að giftusamlega ráðist fram úr deil-
unum. Væri óskandi, að sáttasemj-
ari bæri gæfu til þess. En það
mun þjóðin aldrei láta viðgangast,
þó að hart sverfi að henni, að bylt-
ing verði knúð fram á þeim vett-
vang, sem nú er stefnt að, meðan
eins er í pottinn búið og nú er.
Og þjóðnýting togaranna mundi
aldrei bæta kjör sjómanna, en for-
ingjarnir og fínni dátarnir úr póli-
tísku fylkingunni mundu vafalaust
fá þægilegar og vel launaðar stöður
upp úr krafsinu, — líkt og hann
Einar okkar við Síldareinkasöluna;
— og að því takmarki er í raun-
inni stefnt.
■■
Skipsstrand.
í aftakaveðri á sunnudaginn strandaði
togari fra Orimsby á Mýrdalssandi.
Skipsmenn komust á land og náðu bygð-
um, en urðu f>ó að skilja einn eftir, sem
dó úr vosbúð.
Boðorð bolsanna/
Marx, faðir kommúnistastefnunn-
ar, sendi lærisveinum sínum svo-
látandi boðskap:
»FjöIgið öreigunum, fækkið borg-
urunum, æsið, tryllið, hatið, svo að
byltingin komist sem fyrst á. Augu
lýðsins opnast ekki fyrir eymd hans
og þrælkun, nema að atvinnnleysi
og örbyrgð þrengi fast að honum.
Stundarþjáning eru smámunir, hún
leiðir öreiganna til framtíðarsælu.
— Aukið fjárhagslegt öngþveiti á
opinberum sviðum. Ef ríkis- og
bæiarfjelagsskuldir vaxa, þá þrengir
að borgurunutn og þeir verða óá-
nægðir með núverandi þjóðskipu-
lag.«
Og lærisveinarnir gera sitt ítrasta
til þess að breyta eftir boðorðum
meistarans, — íslensku larisvein-
arnir ekki hvað síst.
!■■■■■ Nýja Bíó ■■■■■■
Laugardagskvöldið kl. 81/*!
RÝTINGURINN.
Sjónleikur í 8 þáttum.
Aðalhlutverkið leikur:
M 1 L T O N S ILLS.
Stórfengleg og spennandi mynd.
Sunnudag kl. 5 og 8'/*!
VEFARARNIR.
Sjónleikur í 7 þáttum.
Leikurinn gerist á fyrri hluta
19. aldar í Prússlandi og sýnir
baráttu hinna fátæku vefara við
verksmiðjueigendur ogauðvald.
— Myndin fjallar um það mál,
sem efst er á dagskrá meðal
þjóðanna, og hefir vakið feikna
athygli alstaðar, þar sem hún
hefir verið sýnd.
Allir þurfa að sjá þessa
mynd !