Íslendingur - 16.08.1929, Side 1
ér
Talsími 105.
Ritstjóri: Gunnl. Tr. jónsson. Strandgata 29.
XV. árgangur.
Akureyri, 16. ágúst 1929.
33. tölubl.
Kenslumálaráðherra víkur
skólastjóra barnaskóla
Akureyrar frá starf-
anum.
Skólanefnd vill nú „setja“ liann
kennara.
Loksins — eftir 6 mánaða tíma
— hefur fræðslumálastjórnin felt
úrskurð í skólastjóramálinu hjeðan
af Akureyri, er skotið var til henn-
ar í byrjun febrúar í vetur, og er
úrskurðurinn á þá leið, að Steinþór
Guðmundsson skóiastjóri skuli
missa starfa sinn frá sepíemberlok-
um að telja.
Öllum er í fersku minni tildrög-
in til þessa máls, og eins það, að
skólanefnd klofnaði um málið. Vildi
meirihlutinn, jafnaðarmennirnir 2 og
bæjarstjóri, sleppa skólastjóra við
áminningu og hótun þess, að ljeti
hann ekki skipast við hana, þá
mætti hann búast við því »að
verða sviftur starfinu.« — Minni-
hlutinn lagði aftur á móti til að
skólastjóra væri vikið frá, þar sem
fram hefði komið við rannsókn
málsins ýmislegt það, er sýndi »að
hann væri ekki til þess fallinn, að
hafa með höndum stjórn og um-
sjón barna sem skólastjóri* — og
»ástæða til að óttast um framtíð
skólans undir stjórn hans.« —
Voru það þeir Brynleifur Tobias-
son og Böðvar Bjarkan, sem þann-
ig litu á málið.
Málinu var síðan skotið til
fræðslumálastjórnarinnar. Fræðslu-
málastjóri mun hafa getað felt sig
við tillögu meirihlutans og afgreitt
málið til kenslumálaráðherra með
tillögu þar að lútandi, en ráðherr-
ann — Jónas Jónsson frá Hriflu —
leit öðruvísi á sakirnar, og feldi úr-
skurð í samræmi við tillögur minni-
hlutans — en 6 mánuði hjelt hann
málinu hjá sjer óafgreiddu.
Þó að fsl. sje samþykkur úrskurði
ráðherrans, getur hann ekki annað
en vítt þennan langa drátt, sem
orðið hefur á málinu í höndum
hans. Með honum hefur ráðherr-
ann gert það að verkum, að ógern-
ingur er að auglýsa skólastjóra-
stöðuna til umsóknar að þessu
sinni, og um Ieið útilokað hinn
frávikna skólastjóra frá möguleikum
til þess að geta náð sjer í stöðu
fyrir veturinn, því að úr þessu er
það aðeins tilviljun að staða losni,
sem við hans hæfi væri eða hann
gæti hrept. — Sex vikur hefði ver-
ið nægilega langur tími fyrir ráð-
herrann, til þess að geta tekið á-
kvörðun sína — sex mánuðir ó-
skiljanlegur og ranglátur dráttur.
Skólanefndin korn strax saman
og úrskurður ráðherrans kom að
sunnan. Var hún öll þeirrar skoð-
unar, að nú væri orðið svo áliðið,
að óráðlégt væri að auglýsa stöð-
una. Kom fram tillaga í nefndinni
um að leggja það til við fræðslu-
málastjórnina, að elsti kennari skól-
ans yrði setíur skólastjóri í vetur
og að frávikni skólastjórinn yrði
settur kennari við skólann yfir sama
tíma. Kann mörgum að þykja það
kynlegt, að sömu mennirnir og
vildu hann í vetur frá skólanum,
skuli nú samjaykkja þannig lagaða
tillögu, en ástæðuna mun að finna
í því, sem hjer að framan hefur
verið sagt: nefndarmönnum fundist
flest atvinnusund lokuð manninum,
þegar svona var áliðið sumars, —
og svo er nú það, að stjórn skól-
ans er úr höndum hans og hann
settur undir annara stjórn, ef að
þessu ráði verður horfið og breyt-
ir það miklu. En þó mundu ýms-
ir hafa kosið frekar að hinum frá-
vikna skólastjóra yrðu greidd full
kennaralaun til næsta vors og hann
kæmi hvergi nærri skólanum.
Alþýðublaðið gerir mikinn hvell
út af frávikning skólasljórans; kveð-
ur Jónas ráðherra hafa rekið þar
erindi íhaldsins, og það sje af
pólitískum ástæðum einvörðungu að
Steinþóri hafi verið vikið frá, til
saka hafi hann ekkert unnið. Mis-
jjyrmingasagan hafi verið blásin út,
til þess að vinna jafnaðarmönnum
ógagn við síðustu bæjarstjórnar-
kosningar, og til þess að ná sjer
niðri á verkiýðsforingja, sem íhald-
inu hafi sjerstaklega verið í nöp
við — og nú hafi ráðherrann kom-
ið því til hjálpar og framkvæmt
það, sem íhaldið hafi viljað koma í
kring en ekki megnað.
Menn geta ekki annað en bros-
að, þótt raunalegt mál sje á ferð-
inni, þegar því er haldið fram að
Jónas frá Hriflu reki erindi íhalds-
ins og láti sjer sjerstaklega hugar-
haldið að gera því til geðs. Annars
er þetta íhalds-hjal blaðsins all-kyn-
legt, þegar þess er gætt, að »borg-
arafIokkurinn« í bæjarsíjórninni —
en honum hafa verklýðsblöðin jafn-
an valið íhaldsnafnið — átti aðeins
einn fulltrúa í skólanefnd, og hann
greiddi atkvæði á móti því að
skólastjóra væri vikið frá, fylgdi þar
jafnaðarmönnum að málum. Afíur
voru það Framsóknarmennirnir í
nefndinni, þeir Bjarkan og Brynleif-
ur, sem vildu burtvikningu, og er
því nær sanni að segja að kenslu-
málaráðherrann hafi gengið erinda
Framsóknar — flokksmanna sinna
— heldur en íhaldsins, ef annað
hefur komið til greina en dóm-
greind hans sjálfs. Þá eru það ó-
sannindi hjá Alþýðublaðinu aö má!-
ið hafi verið notað í síðustu bæjar-
stjórnarkosningum gegn jafnaðar-
mönnum. Ekkert af andstæðinga-
blöðum þeirra mintist á málið fyr
en að kosningunum afstöðnum. —
En Verkamaðurinn, blað skóla-
stjórans sjálfs, gerir það, eða at-
AKUREYRAR BIO
N Ý MYND!
Laugardagskvöldið kl. :
IHJÓNABANDS-ÓHAMINGJA
Kvikmyndasjónleikur tekin af A. Gainsborough Picture Co..
Aðalhlutverkin leika: (
Alice Joyce, Clive Brook og Marjorié Daw.
Tessi mynd sýnir, að hjónaband getur verið óhí mingjusamt, þó
nógur sje auðurinn. Ungu hjónin haía liðið skipsbrot. En styrjöld-
in mikla kemur og bjargar lííi þeirra. Myndin er áhrifarík og eft-
irminnileg.
Sunnudaginn kl. 5: Alþýðusýning. Niðursett verð!
Hjáip! - !e§ nr
hin afarskemtilega gamanmynd um fátæka manninn sem átti að
ej^ða 600 þús. frönkum á einuíh mánuði.
N Ý M Y N D !
Sunnudagskvöldið kl. 8^/2:
HEILÖG LÝ GI.
Kvikmynd í 7 þáttum tekin eftir hinu heimsfræga leikriti dönsku
skáldkonunnar: Knvin Michaelis. — Aðathlutverkið leikur:
Margarethe Schlegel.
Sjaldan hefir sjest hjer áhrifameiri nje listríkari ni}rnd en þetta,
þar sem blinda móðirin og ekkjan trúir því, að börn hennar lifi í
auði og allsnægtum í Ameríku, þó þau hafi naumast málungi mat-
ar. — Þcssi mynd er hverjum, sem sjer hana ógleymanleg.
burðinn, er leiddi til þess, að um-
talsefni kvöldið fyrir kosningarnar,
og á þann hátt, að faðir barnsins,
er hlut átti að máli, fann sig knúð-
ann til að birta yfiriýsingu næsta
dag til leiðrjettingar á frásögn
Vkm. —
Alþýðublaðið segir, að Steinþór
Guðmundsson hafi ekkert til sakar
unnið, málið hafi verið hafið sem
pólitísk ofsókn gegn honum. í því
sambandi nægir að benda á niður-
lagsorðin í tillögu meirihluta skóla-
nefndar, er samþykt var á fundi
hennar 9. febrúar síðastl. — Eru
þau svohljóðandi:
»------Því leyfir skólanefnd sjer
að gefa skólastjóra, Steinþóri Guð-
mundssyni, áminningu fyrir að hafa
beitt of harðri líkamlegri refsingu
við barnið Guðbrand Hlíðar í
kenslustund í 6. bekk barnaskólans,
16. f. m. Jafnframt átelur hún skóla-
stjóra og bendir honum á, að hann
verði að leggja niður ávana þann,
er hann hefur, að taka í eyru
skólabarna og því um líkt. Loks
bendir skólanefnd skólastjóra á það,
að hann megi búast við, ef hann
lætur ekki skipast við þá áminn-
ingu nefndarinnar, að verða sviftur
starfinu.«
Það eru fulltrúar jafnaðarmanna í
nefndinni, flokks-systkini skólastjór-
ans, sem bera fram þessa tillögu.
Þau halda því vissulega ekki fram,
að hann hafi ekkert til saka unnið.
Bæði meiri- og minnihluti nefndar-
innar voru sammála um sekt skóla-
stjórans, en það sem bar á milli
var, að minnihlutinn taldi hana
sjálfsagða frávikningarsök, en meiri-
hlutinn taldi áminningu nægja, í
þeirri von, að skólastjórinn sæi að
sjer við hana og bætti ráð sitt í
framtíðinni, fengi hann haldið stöð-
unni. -- Kenslumálaráðherra hefur
verið vantrúaður á þá betrunarvon
og ekkert viljað á hana hætta.
NÝJA BÍÓ
Laugardagskvöld kl. 8V2:
(Manden uden Fædreland).
Sjónleikur í 12 þáttum eftir
sögu Rupert Huges.
í aðalhlutverkunum:
Richard Barihelmess og
Molly O’Day.
Sagan gerist á tímum síðustu
styrjaldar. Ungur hnefaleikari
leggur út í lífið og gerist her-
maður. Æfintýri á æfintýr of-
an, ástir og ættjarðarást. Þessi
mynd er ein þeirra, er sigurför
hafa farið, og verið sýnd við
fádæma aðsókn alstaðar erlend-
-is, enda þykir leikur Barlhelm-
ess snild.
Sunnudagskvöldið kl. 8V2:
Kappreiðar.
Fox-mynd.
Aðalhlutverk: Tom Mix,
Helene Chadwich og undra
hesturinn TONY.
Þessi mynd er full af fjöri og
1 Hfi og afarspennandi frá upp-
hafi til enda.