Íslendingur - 06.09.1929, Síða 2
2
ÍSLENDINGUR
Vjer höfum ákveðið að stofna til fegurðarsamkepni
fyrir stúlkur um land alt. Þær sem vilja taka þátt
í samkepni þessari, sendi fyrir 30. september
n. k., ljósmynd af sjer, ásamt nafni sínu, / S/er-
stöku, lokuðu umslagi. Nöfnunum verður
haldið leyndum, en hver mynd auðkend með tölu.
Eítir hverri.mynd verða gerðar að minsta kosti
1000 ljósmyndir. Myndunum verður síðan dreift út
með TEOFANI cigarettum, og sú mynd, sem llestir
kjósa, fær
500 krúna verðlaun
hinn 26. júní 1930 (á Alþingishátíðinni). Verð-
launin verða send þeirri stúlku, sem myndin cr af.
Fái margar jöfn atkvæði, verður hiutkesti látið ráða.
Árangurinn verður birtur opinberlega.
Sendið myndirnar strax og skrifið á umslagið:
T E OF A N I
Hafnarstræti 10. — Reykjavík.
ið 1919, 394 árið 1914, 260 árið
1903 og 206 árið 1874.
Tala kjósenda í hverju kjördæmi
er mjög misjöfn, enda kjósa sum
einn þingmann, önnur tvo og eitt
(Reykjavík) fjóra. En þó tillit sje
tekið til þingmannatölunnar í hverju
kjördæmi, verður samt mjög mishá
kjósendatala, sem kemur á hvern
þingmann. Að baki sjer höfðu þing-
mennirnir 1927
færri en 800 kjósendur 6 þingm.
800—1000 — 9 -
1000—1500 - 13 -
Yfir 1500 — 8 —
Minst kjósendatala á þingmann
kemur á Seyðisfirði, 449, og þar
næst í Austur-Skaftafellssýslu, 615.
Aftur á móti kemur hæst kjósenda-
tala á þingmann í Reykjavík, 2496
á hvern, eg þar næst í Suður-Þing-
eyjarsýslu, 1937. í Reykjavík eru
9985 kjósendur, sem senda 4 menn
á þing, en í 11 kjördæmum (Seyð-
isfirði, Austur-Skaftafellssýslu, Norð-
ur-Múlasýslu, Norður-ÍMngeyjarsýslu,
Strandasýslu, Vestur-Húnavatnssýslu,
Rangárvallasýslu, Dalasýslu, Vestur-
Skaftafellssýslu, Mýrasýslu og Isa-
firði) eru samtals 10,099 kjósendur,
sem senda 13 menn á þing.«
íhaldsflokkurinn fjekk við kosn-
ingarnar 1927 13616l/2 atkv. og 13
þingmenn kosna, Framsók,n 9532 '/2
atkv. og 17 þingmenn, Alþýðuflokk-
urinn 6097'/2 atkv. og 4 þingmenn,
Frjálsljmdi flokkurinn 1858 atkv.
og 1 þingmann og utanflokksmenn
904^/2 atkv. og 1 þingmann. — I
tvímenningskjördæmum er atkvæða-
tala hvers frambjóðanda helminguð.
fau atkvæði, sem fallið hafa á fram-
bjóöendur sinn úr hvorum flokki,
teljast því að hálfu til hvors flokks-
ins. — Af þessum 904‘/2 atkv. sem
utanflokkamönnum eru reiknuð, má
sennilega færa 520 til Framsóknar,
en það er atkvæðatala Gunnars á
Selalæk — eina utanflokka manns-
ins á þingi, en hann hefir stöðugt
fylgt Framsókn að málum og kos-
inn með stuðningi hennar, en 384V3
utanflokka atkvæði mega með svip-
uðum rjetti teljast til stjórnarand-
stæðinga — Sjálfstæðismanna. —
Stjórnarsinnar (Framsókn og Alþýðu-
flokkurinn) hafa til samans fengiö
15,888 atkvœöi, en stjórnarandstœð-
ingar 16,119 atkv. eða 231 atkvœöi
fleira.
Núverandi stjórn hefir því aldrei
stuðst viö meirihluta kjósenda.
Símskeyti.
(Frá Fróttasfofu íslands).
Rvfk 5. sept 1929.
Út/end:
Frá London: Óeirðir hafa brot-
ist út að nýju í Palestínu, einkum
norðurhlutanum. Breska stjórnin
hefir ákveðið að senda nefnd til að
rannsaka orsakir óeirðanna, en
kveðst ekki breyta uni stefúu.
Frá Berlín: Loftskipið »Zeppelin
greifi« lenti í Friderichshaven í gær-
morgun, að aflokhu flugi frá Lake-
hurst í Bandaríkjunum.
Frá Berlín: Haag fundinum er
slilið. Þjóðverjar fjeilust á breytta
Young-samþykt. — Samningar und-
irskrifaðir urn heimköllun setuliðs-
ins, sem verður lokið næsta sumar.
Innlend:
H.f. Hamar hefir farið fram á, að fá
ábyrgð bæjarstjórnarinnar fyrir 250
þús. kr. láni til þess að koma upp
dráttarbraut fyrir 600—800 smá-
lesta skip.
Þrír erlendir verkfræðingar komn-
ir hingað til þess að athuga stað-
háttu með tilliti til Sogsvirkjunar.
Fiskþurkun lokið hjer í Reykja-
vík, enda sífelt sólskinsdagar.
Pilsund ára ríkið.
(Framh.)
Jóhann Bockelson er venjulega
kallaður klæðskerinn, en í rauninni
var hann vefari og klæðiskaupmað-
ur. Um skeið hafði hann verið prje-
dikari í lærisveinshóp spámannsins
og endurskírandans Jóhanns Matthys
bakara. Pegar hann lcom til Mynster
árið 1534, var hann 25 ára að aldri,
glæsilegur í framgöngu, mælskur og
í alla staði álitlegur og talsvert
mentaður. Þar að auki var hann
bæði duglegur og sjeður, laginn að
afla sjer fylgis og mesta kvenna-
gull. Innan skamms vann hann
Rotmann á sitt band og Knipper-
dolling vefara, sem hann bjó hjá.
Var hann einn af ríkustu borgurun-
um í Mynster, átti gjafvaxta dóttur,
fríða og föngulega, sem hann gaf
Jóhanni fyrir konu. Hófust nú ákaf-
ar deilur milli endurskírenda og
mótmælenda og urðu mótmælendur
í minnihluta. Hrökluðust þeir þá
flestir úr bænum, en þar var stofn-
að guðveldi með Knipperdolling
„K 0 D A K“
IjosmyndavBrur eru pað sem við er miðað um allan heim.
,,VeIox“
Fyrsti gasljósapappírinn.
Aftan á hverju blaði er nafnið
»VeIox«. Hver einasta örk er reynd
til hlítar í Kodak-verksmiðjum.
I þremur gerðum, eftir því sem
á við um gagnsæi frumplötunnar (nega-
tívplötunnar.
„Kodak“ filma
Fyrsta spólufilman.
Um hverja einustu spólu er þannig
búið í lokuðum umbúðum, að hún
þoli loftslag hitabeltisins.
Biðjið um Kodak-filmu, í gulri
pappaöskju. Það er filman, sem þjer
getið treyst á.
Þjer getið reitt yður á Kodakvörur.
Orðstírinn, reynslan og bestu efnasmiðjur heimsins, þær er búa til Ijósmyndavörur, eru trygging fyrir því.
Miljónasægurinn, sem hefir notað þær, ber vitni um gæði þeirra.
Kodak Limited, Kingsway, London England.