Íslendingur - 06.09.1929, Qupperneq 4
i
ISLBNIDNOUR
þar hefði þó átt að vera rúm fyrir
veiði nokkurra skipa. — Þetta lætur
mjög sennilega í eyrum, en gallinn
er sá, að frystihúsið var ekki full-
bygt, eða svo að það gæti tekið á
móti síld til frystunar, fyr en að
komið var fram yíir miðjan ágúst.
Skatffrelsi sainvinnufjelaga.
Samvinnufjelög hafa verið skatt-
frjáls á Bretlandi til þessa, en nú
hafa komið háar raddir um að gera
þau skattskyld. Verslunarvelta þeirra
nemur um 400 miljónum sterlings-
punda og verslunarrekstur þeirra
er orðinn almennur, þ. e. fyrir ut-
anfjelagsmenn engu síður en fje-
lagsmenn. Eru því samvinnufjelögin
orðin almenn verslunarfyrirtæki.
Ef samvinnufjelögin væru ekki,
myndi velta þeirra skiftast milli kaup-
manna og með því móti gefa ríkinu
sem svaraði um 20 milj. sterlings-
pund í skatt á ári. — Sjóðir sam-
vinnufjelaganna nema um 12 milj.
sterlingspundum. — Almennir iðn-
rekar og kaupmenn vænta þess af
stjórninni, að tekið sje þegar fyrir
að samvinnufjelög keppi við þá í
skjóli skattfrelsis, sem þegar hafi
sýnt sig óverðskuldað og óþarft. —
Hið sama má segja hjer.
Björg Þorgeirsdóttir.
Peir sem ganga grýttar brautir,
gegnum jarðlífs djúpar þrautir,
strá þó geislum allar áttir,
eru lífsins byrðum sáttir.
Þeir eru ekki á meðalmannavegi.
— Margar vonir fölna á einum degi
Svo var mjer um Björgu borið,
að brosti henni æskuvorið.
Gefin var hún góðum maka.
Af gnægðum auðs þó mátii ei taka.
En drengir þrir við mildast móðurhjarta,
marga ljetu vonargeisla skarta.
Makinn var til moldar borinn,
mörg eru þyrnótt ekkjusporin.
Börnin voru yndið eina,
í Ægis grcipar vildu reyna,
að sækja björg og góðri móður gefa.
— En grimmar nornir örlög stundum vefa.
Sonu þrjá nam sjorinn taka.
Sárt er langar nætur vaka.
Sorgin myndi margan buga,
en móðurhjartað varð að duga.
Alfaðir í neyð og þungum þrautum,
þreyttum gefur styrk á lifsins brautum
Lifði ’ún hált til eiliára,
oft við þraut og liðan sára.
Þó var bros á brá og vörum,
bliða og gleði i hennar svörum.
Þökk sje Guði fyrir gjafir slíkar,
gjörast ekki margar henni líkar.
S. K.
:
K O L
i
í dag fæ jeg væntanlega farm af »YQRKSH1RE HARD« eim-
kolum og hnetukolum. Yorkshire-kolín þekkja flestir hjer nú
orðið, enda er það einhver jafn besta enska koiategundin, sem
: völ er á, bæði í eldavjelar og miðstöðvar, því þó að sú tegund
sje nokkuð dýrari en t. d. »DCB«-kol, þá gefa þau talsvert meiri
hita, og þó sjerstaklega mir.ni ösku. Aflur eru hneturnar nýjar
hjer. Pær eru JAFN HITAMIKLAR en alvég ryklausar og hreinar, !
því að þær eru þvegnar.
Yorkshire kolin kosta á
do hneturnar —
bryggju.................kr. 42 smál.
— ................— 45 —
En jeg hefi eina tegund ennþá, n.l. »PÓLSKU KOLIN*. — Pau
gefa enn meiri hita, og hafa eftir rannsóknum ekki nema um
þriðja part af ösku á móti Yorkshire-kolunum. Pau kosta kr. 45
í porti. — Meðan jeg hefi þessar 3 kolategundir, býst jeg við
að geta uppfylt allar kröfur vandlátustu húsmæðra, með tillifi til
hitamikilla en öskulítilla kola, í hverskonar eldstæði sem er.
AXEL KRISTJÁNSSON.
„S UCC ES“
dósamjólkin er besta, fitumesta og þar af leiðandi ódýrasta niðursoðna
mjólkin sem til landsins flyst. Peir, sem einu sinni hafa reynt
»Succes« dósamjólkina, kaupa hana áfram og vilja ekki aðra.
»Succes« dósamjólkin er búin til hjá:
The Coöperatiéve Condensfabriek
»Friesland«
Leewarden — Holland.
Umboðsmenn fyrir ísland og Færeyjar:
A.s. Norsk Islandsk Handelskompani
O S L O.
D.C.B.-kolin koma í dag. — Seljast næstu
daga á bryggju fyrir kr. 41,00 smálestin.
Kolaverslun Ragnars Ölafssonar.
Iðnskóli Akureyrar
verður settur 15. okt. n. k. Samkvæmt lögum ber öllum iðnaðarmönnum
í bænum, sem nemendur hafa til kenslu, að senda þá í skólann.
Eins og s.l. vetur starfar A/þýðudeild í sambándi við skólann með
kenslu í íslensku, dönsku, ensku, reikningi, bókfærslu o. li. Áhersla lögð
á hagnýta kenslu. Deildin er m. a. góður undirbúningur undir gagnfræða-
nám. Kent að kveldinu í 6 mánuði. Skólagjald 60 kr. fyrir allan tímann.
Alþýðunemar frá í fyrra geta fengið framhaldsnám í tungumálum og reikn-
ingi í efri bekkjum iðndeildar, meðan rúm leyfir.
Umsækjendur snúi sjer til Jóhanns Frímann, slcólastjóra, Staðarhóli
(nýr sími), sem veitir allar nánari upplýsingar um skólann.
Skólanefndin.
TILKYNNING.
Alllr [isir, sem ætla að koma skólaskyldum börn-
um sínum (innan 10 ára) í Barnaskóla Aknreyrar
næsta vetur, verða aS gera aBvart um [iaí eigi slð-
ar en 14. |i. m. Fyrir sama tíma sknlu og fram
koma umsóknir um undanþágur frá skóiaveru fyrir
skólaskyld kðrn í kænum.
Akureyri, 2. september 1929.
Ingimar Eydal,
(settur skólastjóri).
fæst í dag- og morgun. — Ódýrara en
annarstaðar.
H.f. C. HGepfners-verslun.
nOýíaYh
of Qualibf
Firestone’s 68 og 80 cm,, egta svört og
rauð sjóstígvjel, eru sjerstaklega þykk með
knje-slithlíf og hvítum sólum.
Aðalumboðsmaður á íslandi :
Ó. Benjamínsson Pósthússt. 7, Reykjavik
Birgðir í Kaupmannahöfn hjá
Bernhard Kjær, Goihersgade 49
Möntergaarden,
Köbenhavn K. Símn: llolmstroin
Unga og góða kú,
sem á að bera hálfum mánuði
fyrir vetur vil jeg selja.
Sigfús E. Axfjörð.
1—2 hesta kaupi jeg laugar-
daginn 21. sept n. k. kl. 1 e.
h. á Karólínu Rest, Akureyri.
Baldvin Sigvaldason.
Afsláttarhestar.
Góða afsláttarhesta úr Húna-
vatnssýslu, hefi jeg til sölu
frá 10—15 okt. n. k. Reynslan
hefur sínt að bestu kaupin gera
menn hjá mjer.
Baldvin Sigvaldason.
Prentsmiðjn Björns Jónssonar.