Íslendingur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - 28.05.1930, Qupperneq 2

Íslendingur - 28.05.1930, Qupperneq 2
4 ISLENDINOUR mælist vinsamlega til þess að búðum, bönkum og skrifstofum sje lokað á 50 ára afmæli skólans laugardaginn 31. maí 1930. Sigurður Guðmundsson. Páll V. G. Kolka, læknir flytur erindi um dr. Helga Tómasson og dómsmálaráðherrann í SamkomuhúsiDU fimiudaginn 29. maí ki. 5 síðdegis. Aðgöngumiðar á kr. 1,00, verða seldir í Söluturninum á Oddeyri, allan miðvikudaginn og við innganginn. til þesS að geta gengið af sjer póli- N Ý J A B I Ó Fimtudaginn kl. 5. Ný m}rnd! Einstæðingurinn. Ágæt þýzk kvikmynd í 6 löng- um þáttum. — Leikstjóri: Richard Loewenbein. Aðalhlutverkin leika: HANS BRAUSEWETTER, ANGELO FERRARI, VALA de LYS og GRETE MOSHEIM. Myndin hefir vakið mikla at- hygli erlendis, og það að verð- leikum, hvar sem hún hefir verið sýnd. Blöðin hafa ein- róma ílutt um hana lofgreinar. Aðalpersónan í myndinni er 16 ára gömul stúlka, Maria að nafni, sem leikin er af hinni fögru Grete Mosheim. i M i i ———— i ■ . .M.i heill, hefði hann vissulega þagað. — Þetta ætti jafnvel slefberum þeim að vera ljóst, sem dylgja um það, að hann hafi gert þetta í hagsmuna skyni. Að dómi dómsmálaráðherra á eng- in ærleg taug að vera til í dr. Helga. Hann á að vera heimskingi og heigull, og þegar hann heim- sækir ráðherrann, þetta eftirminnan- lega kvöld, er hann »svo hræddur og skjálfandi, svo aumur og niður- dreginn, að hann veit ekki sitt rjúk- andi ráð«y — Sem dæmi upp á þetta getur ráðherrann þess, að dr. Helgi hafi ekki veitt því eftirtekt að hann — J. J. — hafði »stórann ull- artrefil um hálsinn«. — En nú seg- ir dr, Helgi svo frá í skýrslu sinni: »Var hann — ráðherrann —- rneö' trefil eða klút um hálsinn.« — Sönnun dómsmálaráðherra gengur á móti honum sjálfum, en svo vill oít verða með ljúgvitni. — Og held- ur nú nokkur maður með viti, að ef dr. Helgi væri jafn aumur og J. J. er að reyna telja mönnum trú um — að hans »hágöfgi« haíi íarið að eyða um 40 dálkum af lesmáli frá sjálfum sjer, í Tímanuin og Degi, á slíkan ræfil. — Þaö er minsta kosti ekki lítil hræðsla, sem gripið hefir »hágöfgina« sjálfa úr því hún er enn þá skjálfandi eftir heim- sóknina. Dr. Helgi hefir skýrt frá því, að heimsóknin hafi verið gerð samkv. óskum tveggja flokksbræðra ráðherr- ans. Hefir annar þeirra, Bjarni Ás- geirsson, viðurkent þetta í Tímanum. — Feirri sök getur ráðherrann því ekki heldur komið á Sjálfstæðisflokk- inn. ÍM reynir J. J. að gera sjer sjerstaklega mikinn mat úr því, að dr, Helgi hafi ekki tilkynt sjer grun sinn á heilsufari hans, heldur konu sinni — og það í dimmu herbergi og í draugslegum róm. — Dr. Iíelgi segir svo í skýrslu sinni, að hann hafi tilkynt ráðherranum, að írúnni 'viðstaddri, og síðar hafi frúin og hann talað nánar um þetta í öðru herbergi. —' í svari við þessari skýrslú segir J, J. að dr. Helgi Dskrökvi /itlu« um það, sem þeim fór á milli »af því við hjónin erum bæði til vitnis«. — Nú var aðaler- indi dr. Helga að tilkynna ráðherr- anum frá áliti sínu og það segist hann hafa gert að frúnni viðstaddri, ográðherrann segir að hann »skrökvi litlu« af því er fram fór er þau hjónin voru bæði viðstödd. Með því játar hann óbeinlínis að dr. Helgi skýri rjett frá þessu atriði, því vafa- laust mun hvorki J. J. nje nokkur annar telja það að »skrökva litlu« ef skrölcvað er upp hinu eina veru- lega atriði samtalsins. — Nú þykir ráðherranum hagkvæmlegra fyrir sig að láta annað uppi og reyna að slá á strengi tilfinninganna með því að lýsa framkomu dr. Iielga gagn- vart frúnni á sem hrottalegastann háit. — Alt er hey í haröindum. Dómbærustu mennirnir um dr. Helga, bæði sem læknir og mann, eru læknarnir í Reylqavík og Hafn- aríirði, sem allir hafa náin kynni af honum. — Eftir að ^stóra bomban« hans J. J. — sem hann telur hafa verið »grafskrift« dr. Iielga -— birt- ist, var á fundi Læknafjelagsins sam- þykt svolátandi yfirlýsing: Á fundi lækna í gærkvöldi var gerð svohljóðandi yfirlýsing, sem vjer að gefnu tilefni óskum að birta: Vjer undirritaðir læknar, lýsum því yfir, að dr. med. Helgi Tómas- son hefir aílað sjer þeirrar sjer- mentunar í sinni grein, sem íull- nægir ströngustu kröfum til geð- veikralæknis. Að vjer berum fult traust til hans sem manns og læknis. Að allar árásir, sem ganga í þá átt, að gera lítið úr þekkingu hans, drengskap og samviskusemi, eru að vorum dómi algerlega órjettmætar. Reykjavík, 1. mars 1930. Guðm. Hannesson. Matth. Einarsson. M. Júl. Magnússon. Ól. Þorsteinsson. Árni Pjetursson. Halldór Hansen. Valtýr Albertsson. Ólafur Jónsson. Niels Dungal. Hannes Guðmundsson. Sig. Magnússon. Jón Kristjánsson. Sæm. Bjarnhjeðinss. Kjartan Ólafss. D. V. Fjeldsted. Sveinn Gunnarss. Magnús Pjetursson. H. Ingvarsson. G. Einarsson. Þórður Sveinsson. Fr. Björnsson. Guðm. Thoroddsen. Bj. Snæbjörnsson. P. Edilonsson. Katrín Thoroddsen. Einar Ástráðss. B. Gunnlaugsson. Ól. Helgason. Undir yfirlýsinguna skrifa allir starfandi læknar höfuðstaðariu.s, sem í bænum voru, að tveimur undan- skildum, er ekki gátu sótt fundinn — ásamt báðum Hafnafjarðarlækn- unum, og yfirlýsingin er cininiit gefin meö tilliti til r>stóru bombunn- ar« og árása J. J. á heiður og lær- dóm dr. Helga, og sjeryfirlýsing Guðm. Thordddsen, (y siðar birtist, haggar þar engu um,vþar qír aðeins tekið fram að fyrir sjer hdfi ekki vakað að leggja^ , dóm á álit dr. Helga á heilsufari ^Ú41ler! raps. Ráð- herrann segir að yfirlya^gin hafi verið útveguð með blekkingum, og að hún sje markleysn ein. Það yrði honum huggun, ef einhver }rrði til þess að trúa þvi — en þeir verða áreiðanlega fáir, sem fást til að trúa því, að allir helsjjT læknar landsins hafi látið blekkjíist til að gefa íals- vottorð. En tilgangurinn með öllum slcrifum J. J. er auðsær. Stjórnarferill hans er þannig, að honum þykir vænleg- ast að leiða hugí kjósendanna frá honum og að öðru, og hvað getur verið vænlegra en það, að reyna að gera sig að píslarvætti í augum al- mennings, Þess vegna kom »stóra bomban«, — og öll skrif hans og tal um að pólitískir andstæðingar sínir væru að ljúga upp á sig geðveiki tískt dauðum. En þú nú almenning- ur sje brjóstgóður lætur hann ekki hafa sig að ginnigaríífli. IJví hvort sem J. J. er bilaður á geði eða ekki, veit almenningur það, að Sjálfstæ^r isflokkurinn á engan þátt í, að dr, 1 lelgi kom fram með álit sitt, engan þátt í heimför hans til j. j. og eng- an þátt í ncinu samsæri, er bruggað hafi honum pólitísk banaráð. Flokk- urinn vill aö kjósendurnir dæmiJ.J. af verkum hans — og þau nægja honum vissulega til dómsáíellis. Úr heimahðguin. Kirkjan. Messað kl. 12 á uppstigning- arda^. Altarisganga. Erindi dr. Guðmundar Finnbogasonar í Samkomuhiísi bæjarins á laugardagskv. — um vestrænu skáldin — var ver sótt en skyldi — Var það sem vænta mátti hið skemtilegasta. Sjerstakiega var getður góður rómur að kviðlingum og stökum K. N. Fimmtugsafmœli átti M. H. Lyngdal kaupmaður í gær. Páll G. V. Kolka, læknir úr Vestmanna- eyjum, flytur erlndi í Samkotnuhúsinu kl. 5 síðd. á morgun, utn dr. Helga Tómas- son og dómsmálaráðherra. Erindi þetta varð hann að tvítaka í Reykjavík, svo mikil var aðsóknin. Harmonikumeistararnir Gellin og Borg- ström halda.hljómleíka í Nýja Bíó annað kvöid og á föstudagskvöldið. Látin er á Seyðisfirði frú Valgerður Jóusdóttir, ekkja Jóns í Múla og móðir Árna ritstjóra. Var hún hin mesta merk- iskona. — Varð 81 árs gömul. Skólahátiðin hefst á Möðruvöllum kl. 11 á laugardaginn kemur og verður hún selt af Jónasi Jónssyni dóms- og kenslu- máraráðherra, sem er gamall gagnfræðing- ur. Þar verða stúdentar og gagnfræðing- ar útskrifaðir og skólanum sagt upp. Par fer fram guðsþjónusta og ræðuhöld..— Á Akureyri hefst hátíðin næsta dag kl. 9 —9'/í upp í skóla, og verðurþaðan geng- ið í skrúðgöngu suður í kirkjugarð og lagðir sveigir á leiði skólameistaranna, Hjaltalíns og Stefáns Stefánssonar. Þaðan aftur til skólans og sest að morgunverði og nrun hátíðin halda slitalaust áfram úr því fram á nótt. Leiðrjetting. í síðasta blaði voru í helm- ingi upplagsins þrjár töluvillur. Verð flygelsins átti að vera 4500 kr. en ekki 45000 kr. og málning barnaskólans 9500 kr. en ekki 950 og hæsta tilboð var 12000 en ekki 1200 kr. AÐALFUNDUR í jarðræktarfjelagi Akureyrar verður haldinn á morgun kl. 5 e. h. í bæj- arstjórnarsalnum. — Dagskrá sam- kvæmt fjelagslögum. Stjórnin. Fundahöldin. Ðómsmálaráöherra hjelt fund á Siglufirði á mánudagskvöldið — ný- kominn úr fundahöldum í Fingeyjar- sýslu. — En nú fjekk hann sjer liðs- auka. — Ljet hann gera boð eftir Einari ráðh., Bernharð og Brynleifi og kvaðst mundu sækja sækja þá til Hjalteyrar með Óðni — og Erlingur og Einar Olgeirsson mættu fijóta með. — Fetta varð, og fóru þeir allir fimm lijeðan móts við ráðherr- ann. En Siglufjarðarfundurinn varð ráðherranum til lítillar gleði. Fanst honum hann ekki mæta í upphafi þeirri samúð, er hann þóttist eiga heimtingu á og varð fokvondur. Taldi hann það ósvífni að menn skyldu dirfast að vera með aðfinslur í sinn garð, eftir annað eins og hann væri búinn að gera fyrir land og þjóð. — Hreitli hann úr sjer ýms- um fúkyrðum til Sjálfstæðismanna, eftir að Jón Gíslason bæjarfulltrúi hafði gefið honum nokkrgr »pillur«, er »hágöfginni« geðjaðist ekki að. — Höfðu flokksmenn ráðherrans hina mestu raun af framkomu hans. — í gær hjelt ráðherrann fund á Sauðár- krók, og fór þá eins með skaps- munina eftir fyrstu ræðu hans. — l ’ar ljet Brynleifur Ijós sitt skína — en glapti fáum sýn. Á eign Ólafs Thors. Er Óðinn kom til Hjalteyrar á mánudaginn, lagðist hann við bryggju Kveldúlfsfjelagsins. — Steig dóms- málaráðherra af skipsfjöl og »spáss- eraði« nokkra stund um bryggjuna. — Vcrður Ólafur Thors sennilega glaður er hann frjettir að ráðherr- ann — sem neitaði honum um far með varðskipunum — hefir á þenn- án hátt getað notað eign hans fyrir varðskipið og sig. Eldur kom upp í fyrrinótt í eldhúsinu á Hótel Borg — í Reykjavík. Fljót- lega slökkt, en talsverðar skemdir urðu af reyk. Prentsmiðja Björns Jónssonar.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.