Íslendingur


Íslendingur - 13.05.1932, Blaðsíða 1

Íslendingur - 13.05.1932, Blaðsíða 1
XVIII. árgangur Akureyri, 13. maí 1932. 19. tölubl. Viðbótar tekju- og eignarskattur, Um l1/a milj. kr, álögur. Nýlega hafa tveir af auðsveipn- ustu vikapiltum dómsmálaráðherra á Alþingi, þeir Ingvar Pálmason og Páll Hermannsson, borið fram að hans tilhlutun í efri deiid, frum- varp um viðbótar tekju- og eignaskatt er þeir ætla^að muni nema að minsta kosti 1 milj. 330 þús. kr. — Til grundvallar íyrir þessari viðbótar-skaitaálagningu skulu lagðar skattskyldar tekjur ár- ið 1931 og 1932 og eignir í lok sömu ára. Á skatturinn þannig að ná til yfirstandandi árs. Jónas dómsmálaráðherra er þarna að framfylgja hótun peirri, er hann gerði í Ed.á dögunum.er stjórnarskrár- málið var þar til 3ju umræðu. Lýsti hann því yfir, að ef Sjálístæðismenn féllu ekki frá jafnréttisákvæðinu í stjómarskrármálinu, mundi hanu taka upp stefnu jafnaðarmanna í skattamálum og knýja hana fram á þinginu. Bjóst ráðnerrann við að jafnaðarmenn þingsins mundu þá ekki tregir að koma til liðs við sig, þegar gengið væri inn á þeirra stefnu, þó þeir vildu ekki veita stjórninni aðra tekjuauka svo sem verðtollinn og gengis-viðaukann. — Og Sjálfstæðismenn væru þá sviftir því vopni sem þeir hefðu á stjórn- ina — með aðstoð jafnaðarmanns- ins í Ed. — synjunarvaldinu, ef hann brygðist þeim. Skattaálagning sú, sem nú vofir yfir, er dauðahögg á atvinnuvegi þjóðarinnar, eins og nu er ástatt fyrir þeim. Samkvæmt greinargerð flutningsmanna nemur hœkkunin á tekjuskaitinum 160% og eignaskatt- urinn hcokkar um 100%. Væri full erfitt að bera slíka hækkun í ein- muna góðæri hvað þá nú í þeirri mestu kreppu, sem yfir landið hefir komið í manna minnum. Viðbótar-tekjuskatturinn reiknast af skattskyldum tekjum og er skatt- stíginn, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, sem hér segir : Af greiðist og af afgangi kr. kr. > að 2000 40 5 3000 3000 90 7 4000 4000 160 9 5000 5000 250 11 6000 6000 360 13 7000 7000 490 15 8000 8000 640 17 9000 9000 810 18 10000 10000 990 19 12000 12000 1370 20 14000 14000 1770 21 16000 16000 2190 22 18000 18000 2630 23 20000 20000 3090 24 25000 25000 4290 26 30000 30000 5590 28 35000 35000 6990 30 40000 40000 8490 32 45000 45000 10090 34 50000 50000 11790 36 af því, sem par er fram yfir. Menn athugi að þetta er viðbót við ntíverandi tekjuskatt. Frumvarpið er nú komið til 3ju umræðu í efri deild og hefir Jón Baldvinsson greitt því atkvæði þang- að. Hvort hann greiðir því atkv. upp úr deildinni, er enn á huldu, en á hans atkvæði veltur samþykkt þess þar. Jafnaðarmenn þingsins hafa áður lýst því yfir, að þeir ætluðu ekki að greiða atkvæði með [ neinum tekjuauka handa núverandi stjórn og Sjálfstæðismenn hafa, eins og áð- ur hefir verið sagt, lýst yfir, að þeir muni ekki samþykkja verðtollinn eða önnur skattafrumvörp, nema að viðunanleg lausn fáist á stjórnar- skrármálinu. Efjafnaðarmenn svíkj- ast ekki frá þessu heiti sínu, þá er stjórnin í sömu klípunni og áður, og hún verður þá fyr eða'síðarað láta að vilja andstæðinga sinna eða fara frá völdum. Takist stjórninni hinnsvegar að tæla jafnaðarmenn frá loforðum sínum og heitum, mun það koma þeim sjálfum í koll og þeir standa brenniinerktir frammi fyrir þjóðinni sern svikarar við mál- stað réttlætisins og drengskapar í stjórnmálum. Er flatsængin hjá Framsókn þess virði? Öskapleg meðferð á almenningsfé. Landsreikningurinn 1930 er ný- lega kominn út, með athugasemdum og tillögum yíirskoðunarmanna- og svörum stjórnarinnar. — Er nú nú- lega P/a ár liðið frú lokum þess reikningsárs sem landsreikningurinn nær yíir, svo að síðbúnari mátti hann vissulega ekki vera. Átelja yfir- skoðunarmenn ríkisstjórnina fyrir hve seint LR. sé tilbúinn írá hennar hendi og gera þá kröfu, að hann sé tilbúinn og' heftur inn fyrir 1, okt. ár hvert. Landsreikningurinn 1930, er og •verður sögulegt »plagg«. Hann er langhæzti landsreikningur, sem gef- inn hefir verið út á íslandi og þver- brýtur þær fjárlagaheimildir. sem átti að grundvallast á. — Samkvœmt fjdrlugum fyrir drið 1930 var heim- ilað að greiða úr rikissjóði 11,9 milj. kr. en landsreikningurinn sýnir að stjórninni hefir þóknasl aö greiða hvorki meira né minna en 25,7 milj kr. eöa meira en tvö- faldu pd upphceð er Alþingi heimil- aði henni. Eyðslusemin er gengdar- laus og er því skiljanlegt þó stjórn- in hafi sem lengst viljað fela lands- reikninginn fyrir þjóðinni. Yfirskoðunarmenn landsreikning- anna eru 3, og eru það þeir Pétur Þórðarson bóndi í Hjörsey, Hannes Jónsson alþm. og Magnús Guðmunds- son alþm. Eru þeir Pétur og Hann- es Framsóknarmenn og er því eng- NÝJA-BIO inn hætta á, að þeir hafi farið lengra í athugasemdum sínum og ádeilum á stjórnina, en brýn nauðsyn krafði — -en það eru hvorki ’ meira" né minna en 66 athuga.semdir, sem yfirskoðunarmennirnir gera við landsreikninginn og ganga þær nær allar út á að víta [ stjórnina, fyrir meðferð hennar á fé ríkisins. Hafa aldrei aðrar eins aðfinnslur komið við landsreikning, sem þénnan, enda á hann~engan sinn líka,*svo[afskap- legur er hann á öllum sviðum. Hér á eftir verða birtar nokkrar af athugasemdum*yiirskoðunarmanna við þennan landsreikning, sem fáein sýnishorn af meðferð stjórnarinnar á fé almennings árið 1930: Sjöunda athugasemd yfirskoðun- armanna er svohljóðandi: »Ógreiddar,æítirstöðvar af tekium ríkissjóðs í árslok 1930 eru rúmlega ’ 800,000 kr. eða um helmingi hærrij en í árslok 1929. Yfirskoðunar- menn beina því alvarlega til stjórn- arinnar að gera það, sem unnt er, til þess að slíkar eftirstöðvar verði sem minnstar«. Tuttugasta og fimmta athugaserr.d yfirskoðunarmanna er svohljóðandi: Fyrir aukavinnu í stjórnarráðinu hafa verið greiddar: a) Starfsmönnu m í stjórnarráðinu kr. 23,860.50 b) Öðrum mönnum — 40,808.45 ICr. 64,668.95 En-á árinu 1929 var þessi kostnaður (sb. aths. 12 við LR.) kr. 39,305.26 Mismunur kr. 25,363.69 Pessi aukning virðist yfirskoðunar- mönnum ákafiega mikil, ekki sízt þegar tekið er tillit til þess, að hin föstu laun starfsmanna stjórnarráðs- ins eru kr. 9,071.06 hærri en 1929. Fyrir störf í stjórnarráðinu hafa því verið greiddar kr, 34,435.38 meira 1930 en 1929 og nemur sú hækkun nærri 30%*- Tuttugasta og sjöunda athugasemd yfirskoðunarmannanna er svohljóð- andi: »Skrifstofukostnaður tollstjóra, lög- manns og lögreglustjóra í Reykja- vík er eins og hér segir: a) Tollstjóra . . kr. 109,015.42 b) Lögmanns . . — 32,744.48 c) Lögreglustjóra — 41,799.68 Kr. 182,559,58 Auk þess hefir tollstjóranum ver- ið greitt : a) Fyrir eftirlit með skipum, löggæsla kr. 52,579.23 b) Fyrir' álímingu tollmerkja . . — 22,695.52 Kr. 75,274.75 Starfræksla þessara embætta virð- ist því nokkuð dýr « — Kostnaður- inn hefir tvöfaldast á tveimur árum. Tuttugasta og dttunda athugasemd er svohljóðandi. »í 11. gr. A. eru færðar til gjalda kr. 10,320.00 til tollstjórans í Rvík, scm uppbót d laun hans árin 1925 — 1928. Hvernig stendur á þesSari greiðslu?* Tuttugasla og niunda athugasemd er svohljóðandi: »í 11. gr. A. 5 b. eru tilfærð ílaun 6 tollvarða í Reykjavík kr. |31,400.00 og í 11. gr. A. 13, eru 'meðal annars tilfærðar kr. 52,579,- 23 vegna tollgæzlu skipa í Rvík, og af fgskj. LR. sézt, að í þessari fjár- hæð eru talin laun 9 —10 eftirlits- manna. Tolleftirlitsmenn virðast því vera 15 —16 í Reykjavík og vilja yfirskoðunarmenn skjóta því til.stjón- arinnar, hvort ekki muni unnt að spara á þessum lið.« Svar stjórnarinnar við 28. aths. um uppbót á launum tollstjórans í Rvík — er á þá leið, að þetta sé dýrtíðaruppbót honum til handa, fyrir árin 1925—1928, er hann var lögreglustjóri. Yfirskoðunarmennirn- ir neita að fallast á þetta og segja í tillögum sínum til Alþingis: »Upp- hæðina kr. 10,320.00 ber að inn- heimta og greiða í ríkissjóð.« Pritugasta athugasemd er svo- hljóðandi: »í 11. gr. A. 12. eru veittar til vinnuhælisins á Litla-Hrauni 12,000 kr., en eyðst hafa 82,000 kr. Um leið og bent er á þessa umfram- greiðslu, þykir rétt að leiða athygli að því, aö hælið á útistandandi fyrir vinnu 18,992 40. Mikið af þessari upphæð er talin skuld hjá ríkissjóði, Árnesstfslu og ýmsum hreppsfélög- um, og undrast yfirskoðunatmenn, að slíkar skuldir skuli ekki vera innheimtar. Á hinn bóginn er hælið taiið skulda í árslok kr. 16,701.50, og er

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.