Íslendingur - 10.05.1935, Page 2
2
ÍSLENDINGUR
Girðinganet og gaddavír
hjá ■
Tómasi Björnssyni. I
lifanda og einmitt það, að þú ert
kallaður burtu í blóma lífsins, þegar
kraftar þínir og starfshæfni eru að
ná fullum þroska, er vísbending um
það, að til sé annað líf »handan við
gröf og dauða*. Þar veit ég að þú
lifir og starfar undir breyttum og
fullkomnari skilyrðum. Því hversu
tilgangslaust væri ekki líf okkar hér
á jörðunni, ef það væri ekki undir-
búningur undir annað æðra og full-
komnara. Ef til vill hefir vera þín
hér á jörðunni ekki verið ákveðin
lengri en raun varð á, og vafalaust
hefir þú ekki þurft lengri undir-
búningstíma undir starf þitt handan
við hafið, sem þú vafalaust nú ert
tekinn við.
Farðu heill og þökk fyrir sam-
veruna- SkólabróÖir.
Nýjar einokunar
ráðstafanir.
Konungur gefur út
bráðabirgðalög, er
heiinila ríkisstjórn-
inni einokuná Iýsi,
síldarmjöli, bein-
um o. 11.
Samkvæmt ósk atvinnumálaráð-
herra, Haraldar Guðmundssonar,
hefir konungur gefið út bráðabirgða-
lög, er heimila ríkisstjórninni að
taka í sinar hendur útflutning og
sölu á lýsi, sildarmjöli, beinum,
hrognum o. fl. sjávarafuröum, líkt
og nú á sér stað með fiskinn og
kjötið, og aö heita má einnig um
síldina. — Fer þá að nálgast það,
að mest öll útflutningsvara lands-
manna verði einokuð og framleið-
endur sviftir umráðaréttinum yfir
heniii, utanlands og innan,
Ekki þarf að efa, að ríkissjórnin
ætlar, þegar á þessu sumri, að not-
færa þessa nyfengnu einokunar-
heimild, því annars hefði ekki verið
gripið til bráðabirgðarlaganna, held-
ur beðið til þingsins í haust. Má
því gera ráð fyrir að á næstunni
verði nýrri nefnd, hálaunaðri, hrund-
ið af stokkunum til þess að annast
þessa nýju einokun, er setja á —
eins og systur hennar — til höíuðs
frjálsum atvinnurekstri í landinu.
En mesta hættan af þessari fyrir-
huguðu einokun er fyrir súdarút-
veginn og atvinnulíf hér nyrðra, því
telja má nokkurn vegiim víst. að
Krossanesverksmiðjan starfi ekki
verði hún svift umráðaretti frain-
leiðslu sir.nar. Og uridanþága fyrir
hana mundi mælast illa fyrir hjá
öðrum framleiðendum, sem læstir
yrðu í greipar einokunarinnar, svo
tæplega mundi að því horfiö.
Hefir stjórnin hér, eir.s og svo
oft og mörgum sinnum áður, anað
í blindni sinni, og illvilja til frjáls
atvinnurekstrar, út í ráöleysu, sem
telja má víst að verði þjóðinni til
tjóns og vandræða.
Hefir og flfcst hnigið í þá átt, sem
óhappamennirnir, er nú fara með
stjórn landsins, hafa hrundið í fram-
kvæmd. —
Magnús Torfason
skilur við Bændaflokkmn.
Magnús Torfason, annar uppbót-
arþingmaður Bændafl,okksins, hefir
tilkynnt miðstjórninni að hann segi
skilið við flokkinn að fullu og öllu,
og ber það fyrir, sem ástæðu, að
sér hafi verið misboðið af flokks-
bræðrum sírum. Þau eru þó sann-
indin í þessu máli, að Magnus sveik
flokk sinn á þingi svo blygðunar-
laust, að hann fylgdi honum sjaldn-
ast að máluni, en dindlaðist aftan i
stjórnarfylkingunni við öll tækifæri
í fullri óþökk flokks síns, Mátti svo
heita að ríkisstjórnin hefði ekki þæg-
ari vikapilt í öllu þinginu en þennan
Bændaflokksmann. Mun miðstjórn
flokksins ekki hafa unað þessu
framferði Magnúsar, sem varla var
heldur von, og hann fengið ávítur
nokkrar, ásamt þeirri ósk að hann
legði þingmennsku niður, svo að
annar maður gæti komið í hans
stað, er væri meira í samræmi við
stefnu og starfsemi flokksins. Mun
þetta hafa leitt til þeirrar ákvörð-
unar Magnúsar, að segja formlega
skilið við flokkinn.
En verður Magnús þingmaður
áfram?
Að réttu lagi ætti hann ekki að
vera það, óg ef hann hefði nokkra
velsæmistilfinningu, Iegði hann þegar
niður þingmennsku. Þvf í raun og
veru eru það flokkarnir, sem eiga
sín uppbótarsæti, frekar en menn-
irnir, er skipa þau. Gildir allt annað
um þau en kjördæmaþingsætin.
ÍPessvegna liggur það f hlutarins
eðli, að þegar uppbótarþingmaður
bregst flokki Sínum og yfirgefur
hann, hvort heldur af fúsum vilja
eða nauðugur, á hann ekki lengur
tilverurétt á þingi; þingsætið er
flokksins, ekki hans.
1. varaþingmaður Bændaflokksins
er Stefán Stefánsson í Fagraskógi
og kemur hann þá á þing, hverfi
Magnús þaðan. — 2. varaþingmaður
flokksins er Jón í Stóradal.
En þeir, sem þekkja innræti
Magnúsar Torfasonar, eru f litlum
efa um það, að hann muni streitast
við að sitja á þingi eins lengi og
þess er nokkur kostur — og ekki
mun stjórnarfylkingin reynast honum
öndverð í þeirri viðleitni, ef hún er
sjálfri sér Iík.
Sólríkt herbergi
til leigu frá 14. maí n. k,
Jón lngitnarsson, Klapparstíg 3.
iuiidur Bryniðlfsson
skipaður eftirlitsmaður
með sparisjóðum.
Svo sem kunnugt er, var það eitt
af fyrstu verkum Eysteins Jónssonar
í fjármálaráðherraembættinu, að
vikja Jakob Möller frá starfi sínu,
eftirliti með bönkum og sparisjóð-
um. — Töldu stjórnarblöðin þetta
alóþarft embætti og ætti með þessu
að spara ríkissjóði og bönkunum
þessa launagreiðslu.
Grunur flestra mun þó hafa verið
sá, að þetta myndi ekki gert af
sparnaðarástæðurp, og styrktist sá
grunur við það, að stjórnin gerði
enga tilraun um að fella lögin um
eftirlitið úr gildi á þinginu, er kom
litlu seinna saman. — Á þinginu,
sem nýlega var frestað, kom aftur
frumvarp frá stjórninni um breyting
á sparisjóðslögum, og var það keyrt
f gegnum þingið með harðfylgi af
stjórninni. Par er eftirlitið með
sparisjóðum tekið upp að nýju, að-.
eins í lítið eitt breyttri mynd. —
Segir þar:
»Fjóirmáaráðuneyiið annast eftir-
lit með öllum sparisjóðum í land-
inu«. —
Þarna sjáið þið, sögðu fylgismenn
stjórnarinnar, f jái málaráðuneytið
ætlar að annast eftirlitið, án aukins
lilkostnaðar; það ætlar að láta ein-
hvern af hinum föstu starfsmönnum
sfnum gera það.
Ekki aldeilis.
Sparisjóðslögin höfðu ekki fyr
hlotið konungsstaðfestingu, en sú til-
kynning kemur frá fjarmálaráðherra,
að hann hafi skipaö Jörund alþingis-
mann Brynjólfsson eftirlitsmann
sparisjóða, með sömu launum, að
fulljrrt er, og Jakob Möller hafði.
Embættið, sem stjórnin taldi al-
óþarft, er þannig endurreist, með
þeirri einu breytingu að nýr maður
skipar það — en það er stjórnar-
sinni.
Það gerir allan muninn.
Um Akureyri.
Laugardaginn 11, maí flyt ég fyrir-
lestur í Samkomuhúsi bæjarins kl. 9
e.h., um útlit Akureyrar árið 1872,
og hið innra líf Akureyrar á næstu
árum þar á eftir. — Aðgöngumiðar
verða seldir í Samkomuhúsinu frá
kl. 2-4 e.h. sama dag og við inn-
ganginn og kosta kr. 1,00.
Húsið opnað kl. 8,30.
Lárus Thorarensen.
Gott orgel
til sölu. — EbÉnharð lónsson.
ISaömasíoíul
= =3
— S3
§ opna ég undirrituð í dag, g
1 í »PARÍS« (gengið upp á I
loft að norðan). j
1 Sauma kjóla, kápur, dragtir 1
§ og annað, sem viðkemur jg
i fatnaði kvenna. — Einnig 1
fatnað barna. i
~ ~
| Nýjasta tízka. Vönduð vinna 1
l Lunda Jóbannsddttir. 1
Maðurinn minn, Due Benediktsson
fyrv. lögregluþjónn, verður jarðaður
föstudaginn 17. maí n. k. — Jaröar-
förin hefst með húskveðju a0 heim-
ilinu Brekkugötu 29, kl, 1 e.h.
Aldís Jónsdóttir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda
samúð og virðingu allra fjær og
nær, við andlát og jarðarför Oddnýar
í’orkelsdðttur frá Syðra-Hvarfi.
Aðstandendur.
Ignaz Friedman,
pólski pianosnillingurinn heimsfrægi,
hélt hér tvo konserta í vikunni. —
Urðu áheyrendur stórhrifnir af snilld
hans. —
Z/O N, sunnudaginn 12. maí: —
Sunnudagaskóli kl. 10 f. h., síðasta
skipti á þessu starfsári. — Börnin
beðin að fjölmenna. — Almenn sam-
koma kl. 8,30. — Allir velkomnir.
K.F.U.M.:U-D-fundur á mánud. kl 8,30
Símanúmer bóka-
búðarinnar er:
Gunnl. Tr. Jónsson.
•rermiiigarkort#
nýkomin.
Bókav.Gunnl.Tr.Jónssonar
Kaupum þurkuð
fiskibein.
Ari & Helgi.
Peir sjsmenn á Alrureyri,
sem vilja f4 pláss hjá mér
á e. s. »farlinn« tali við
mig fyrir 15 þ.m.
Helgi Pálsson.
Kaupendur
»íslendings«, sem hafa bústaða-i
skipti í vor, eru beðnir að til-
kynna það afgreiðslunni eða
þeim, sem bera blaðið út um
bæinn. —
Gíervörudeildin;
Tækifærisöjafir
góðar —
ódýrar.
BRA UNS- VERZL UN.
Páll Sigurgeirsson.