Íslendingur


Íslendingur - 14.06.1935, Side 2

Íslendingur - 14.06.1935, Side 2
2 ISLENDlNGUR Veggfóður — fjölbreytt úrval — væntanlegt næstu daga. Tómas Björnsson. fyllsta skilningi. Framkoma og Iát- bragð söngvarans ber á sér öll hin sömu einkenni. Er þrí ekki að efa aö við íslendingar eigum í Stefáni einn okkar ágætasta listamann. Vona ég að þjóð vora beri gæfu til að skilja og hlynna að slíkum listamanni, sem Stefáni Guðmundssyni, og njóta þeirra menningarstrauma, sem fylgja honum. Gunnar Sigurgeirsson. Stefán endurtók söngskemmtun sína í gærkvöldi fyrir íullu húsi á- heyrenda og við fádæma hrifningu, — Kveðjukonsert heldur hann hér á þriðjudagskvöldið. Iðnsýningin á Akureyri. Hún verður opnuð á sunnudaginn kemur kl. 3 slðd. í barnaskólanum og stendur yfir fram í ágúst- mánuð. — f*að er Iðnaðarmannafélag A.kur- eyrar og íslenzka vikan á Norður- landi, sem gangast fyrir syningunni í félagi, og hefir 7 manna nefnd haft meö undirbúninginn að gera.— Sýningin veröur haldin í 6 kennslu- stofum barnaskólans og efri og neðri gangi. All flestar smærri og stærri verksmiðjur bæjarins taka .þátt í henni, einnig flest verkstæði handiðnaðarmanna hér og nokkrir einstaklingar þar fyrir utan. Hér er því gott tækifæri til aö fá yfirlit yfir starfsemi og framleiðslu í bæn- um, auk þess, sem þarna er hægt að kynnast smekkvísi, tækni og vandvirkni sýnendanna. Hér hefir ekki verið haldin iðn- sýning síðan 1906, er Iðnaöarmanna- félagið, sem þá var tveggja ára, gekkst fyrir. Þótti hún að ýinsu merkileg og sýnendum til sóma. — Til sýningarinnar nú, er stofnaö í tilefni af 30 ára starfsafmæli Iðnaö- armánnafélagsins og starfsemi ís- lenzku vikunnar á Norðurlandi, sem nú er 3ja ára. — Mun blaðið síðan skýra frá því helzta og merkilegasta, sem sýnt er. Eins og fyr er sagt verður sýn- ingin opnuð kl. 3 síðd. á sunnudag- inn, og verður það gert af bæjar- stjóra, er heldur ræðu við þaö tæki- færi. — Hornaflokkurinn leikur síðan nokkur lög og Geysir skemmtir með söng. — Mun vafalaust verða fjölmennt við opnunina og sýningin vel sótt þá dagana, sem hún Áendui yfir. Multifoto. 24 myndir á kr. 3,00. V. Sigurgeirsson. Yfirgangur Japana. Ráðast inn í Kína og leggja undir sig Norður Chihli. — Á hvítasunnumorgun réðust jap- anskar hersveitir inn yfir kínversku landamærin, suður af Mansjúríu, og lögðu undir sig héraðið Norður-Chihli með höfuðborginni Peking, án þess að Kínverjar veittu hið minnsta við- nám. — Dró kínverski herinn sig á brott úr héraðinu, samkvæmt skipun kínversku stjórnarinnar en heíir nú búist til varnarstöðu suð- ur af því og hefir kínverska stjórnin sent liðsauka þangað. Japanar hafa tekið við stjórn í Norður-Chihli og gert kröfu til kín- versku stjórnarinnar um að hún kalli alla kínverska embættismenn burt úr héraðinu, en þ\þ hefir kín- verska stjórnin neitað. En þá neitun er búist við að Japanir hafi að engu og reki alla kínverska embættismenn úr embættum og setji sína menn I þeirra stað, því ætlunin mun vera að sameina Norður-Chihli héraöið Mansjúrí, þar sem Japanar ráða lög- um og lofum, þó það eigi að heita sjálfstætt keisaradæmi — undir þeirra vernd. Kínverjar eru illa undir styrjöld búnir, sakir langvarandi borgara- styrjaldar og hungursneyð og munu lapanir þvf telja sér alla vegi færa við þá og geti boðið þeim þá afar- kosti er þeim sýnist Laval myndar stjórn í Frakk- landi. — Fær einræði í fjármálum til hausts- ins, — Sú lausn fékkst að lokum úr stjórnaröngþveitinu í Frakklandi, að Laval fyrv. utanríkisráðherra tókst að mynda stjórn um síðustu helgi. Er hún skipuð mönnum úr vinstri flokkunum og miðflokkttnum og eiga bæði Herriot og Fla^din sæti í henni. — Á laugardagskvöldið sam- þykkú svo fulltrúadeild þingsins, eftir að Laval hafði gert henni grein fyrir steínuskrá sinni, með 324 atkv. gegn aðeins 160, að veita hinni nýju stjórn ótakmarkað um- boð, þangað til í október í haust, til þess að gera hverjar þær ráð- stafanir, sem hún teldi nauðsynlegar til þess að stöðva gullflóttann úr landinu og rétta við fjárhag ríkis- ins. Jafnaðarmenn greiddu atkvæði á móti stjórninni. Samkv. kröfu Laval’s fór atkvæöagreiðslan fram áður en nokkrar umræður höfðu farið fram um stefnuskrá stjórnar- innar. — Lað vakti mjög mikla eftirtekt, hve mikill meiri hluti greiddi at- kvæði með því, að veita stjórn Lavals’s slíkt einræðisvald, sem Bouisson var neitað um fyrir aðeins tveim dögum áður. 1?að þykir benda á það, aö hægri flokkarnir, sem eru í andstöðu við stjórnina, hafi ekki þorað að taka á ábyrgð- ina á nýjum stjórnarskiptum, sem eflaust hefðu leitt til hinna alvarleg- ustu viðburða, sennilega blóðugrar borgarastyrjaldar í landinu. Laval sýndi þinginu líka fram á það, að áframhaldandi gullflótti út úr landinu, sem væri óhjákvæmi- legur, ef ekki væru gerðar róttæk- ar ráðstafanir strax til þess að stöðva hann, hlyti að leiða af sér gengis- hrun jog algert öngþveiti í fjármól- um ríkisins, en tekjuhallinn á fjár- lögunum nemur nú 10 þúsund milj. franka. — Úrslit atkvæðagreiðslunnar hafa þegar að mestu gert euda á þeim æsingum, sem verið hafa 1 París undanfarna daga. Og á kauphöll- inni virðast menn vera ánægðir með þau málalok, sem orðin eru. — Almennt er ekki gert ráð fyrir nein- um frekari óeirðum í nánustu fram- tíð, - Stjórn Laval’s er 100, stjórnin, sem franska lýðveldiö hefir haft, sfðan þaö var stofnað 1871. \ Á hvaða leið er þjóðin? Úr því aö ég læt hér f ljósi í stuttu máli skoðun mína á íslenzku innanlandsmáli, leyfi ég mér að nota tækifæriö til að leiðrétta misskilning, sem ég hefi nær daglega orðið var síðan ég kom til landsins fyrir nokkrum dögum. Úó að ég hati enga sterka til- hneigingu til að blanda mér inn í sérstök deilumál stjórnmálaflokkanna hér á landi, þykist ég samt, þrátt fyrir nokkurra ára búsetu mína í öðru landi, hafa fullan rétt sem ís- lendingur til að láta mig skifta öll málefni íslands, einnig almenn stjórn- mál þjóðarinnar. Úetta verð ég að taka fram hér á undan, vegna þess, að ég hefi orðið þeirrar skoðunar var hjá nokkrum vinum mfnum, að ég væri orðinn þýzkur ríkisborgari. Það er mikill misskilningur og mér hefir enn ekki komið til hugar, að ég mundi nokkurntíma sækja um ríkisliorgararétt í öðru landi, því aö af því mundi leiða slit á þióðernis- böndunum, sem fyrst og fremst tengja mann við sína eigin þjóð, hvar sem maður dvelur sem útlend- ingur í öðru landi. I þessu sambandi get ég ekki annað en minnst á hið hróplega ranglæti, sem ísland beitir barn- fædda íslendinga, sem dvelja fjar- vistum í öðrum löndum, oft fyrst og fremst f þjónustu íslenzkra hags- muna. Það er ekki nóg með það, að meðan þeir dvelja erlendis hafa þeir engin ríkisborgaraleg réttindi, (kosn- ingarrétt) hcldur verða þeir að bíða eftir þeim í 5 ár, er þeir koma heim aftur! Það er nóg að bæta því við til skýringar, að þetta einkennilega ákvæði í íslenzkri löggjöf á rót. sína að rekja til dansk-íslenzka samnings- ins, sem hefir innsiglað nokkiar leyfar af íslenzkri niðurlægingu, að minnsta kosti íram til ársins 1943, hvað sem íslenaingar kunna að telja sér samboðiö eítir þann tíma. f*að, sem mest áhrif hefir á að- Innilegar hjartans þakkir viljum við hér með votta ö'.lum þeim mörgu, sem auðsýndu okkur samúð og vin- áttu, við andlát og jarðarför Alfreðs sál, Jónassonar frá Hróarsdal. Aðstandendur. Lökkum innilega auösýnda samúö og hluttekningu við andlát og jarð- arför litla drengsins okkar. Ákureyri, 12. júní 1935. Signý Stefánsdóttir. Þóröur Jóhannsson. Hér með tilkynnist vinum og vandamönnum, að Rannveig Stefáns- dóttir frá Hrauni andaðist 8. þ. m. Jarðarför hennar fer fram frá heim- ili hinnar látnu, Hrauni f Öxnadal, miðrikudaginn 18. júní og hefst kl. 11 f. m. P. t. Akureyri 11. júní 1934. Aðstandendur. JARÐARFÖR Lilju Kristjánsdótt- ur fer fram Priðjudaginn 18- þ. m. kl. 2 e. h. frá Góðtemplarahúsinu »Skjaldborg«. Nokkur reglusystkini hitinar látnu. komumanninn hér á landi, að því er snertir þjóðina sjálfa, er hið almenna vonleysi og úrræðaleysi á öllum sviðum. Einkum er þetta sálarástand þjóðarinnar áberandi, þegar maður kemur hingað frá Pýzkalandi. Hér blasa við afleiðingarnar af langvar- andi og áframhaldandi stéttahatri og hinni lamandi niðurrifsstarfsemi marxista hér á landi, eins og hún er kunn í flestum Iöndum. Menn kvarta almennt um niður- drep atvinnulífsins, getuleysi til alls, skort á nauðsynlegum vörum og fæðutegundum, sem eru nauðsyn- legar til heilsuverndar þjóðarinnar (ávöxtum og annari jurtafæðu). Ilins- vegar enginn hörgull á peningum til þess að flytja inn skaðlegan eitur- varning, svo sem: allskonar áfengi, tóbak í öllurn myndum, kaffi o. fl. Birtist ekki einmitt í þessu hin sára eymd þjóðarinnar? Er hægt að hugsa sér sorglegri niðurlægingu (svokall- aðrar) sjálfstæðrar þjóðar en þá, að ríkið eða m.ö.o. stjórnin lifi á verstu löstum þjóðarinnar, eins og telja má drykkju- skapinn hér á landi, á sama hátt og var hér á eymdartímum einokunar- verzlunar Dana? En menn fullyrða, að svo sé nú og að andstæðingar stjórnarinnar hafi ekki meiri »kar- akter* en svo, að þeir sé með beztu stuðningsmönnum hennar á þennan hátt 1! Hvenær opnast augu þjóðarinnar fyrir því, að hún er á leið til glöt- unar? Hvenær þora hinir ráðandi menn að horfast í augu við sann- leikann? p.t. Akureyri, 13. júní '35. Björn Kristjánsson. po^foto 11 • 1111, i. ..111111111 Virka daga kl 1 —7 e.h. Helga daga kl. 1—4 e.h, mmammmá,

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.