Íslendingur - 14.06.1935, Blaðsíða 4
4
ISLENDINGUR
Akureyri.
Þegar ég las grein »Borgara< í
íslendingi, 22. tbl., um útlit bæjarins,
rifjaðist upp fyrir mér samtal er ég
átti við vin minn í fyrrahaust, ferða-
mann, er víða hafði fariö, dvaldi
hér tímakorn og heimsótti mig einn
daginn út í sveitina,
Við ræddum um *landsins gagn
og nauðsynjar* og talið barst að
Akureyri. Ég heyri alla ferðamenn
dáðst að fegurð bæjarins* sagöi ég
í þeim tilgangi að fá að heyra álit
gestsins á höfuðstað okkar Norð-
lendinga.
»Jú, bæjarsvæðiö er að ýmsu leyti
fagurt* byrjaði hinn glöggskygni
ferðamaður. »En framkvæmdirnar í
bænum, gatnagerðin og húsabygg-
ingarnar eru ekki fagrar og því
síöur skipulegar«. Ég maldaði eitt-
hvað á móti þessari »krítik« vinar
míns, en hann varð því ákveðnari
og hélt langa ræðu, sem var eitt-
hvað á þessa leið:
aJÞegar maður leyfir sér að ympra
eitthvað á skipulagsleysinu, hroð-
virkninni, trassa- og sóðaskapnum,
sem ríkir hér á landi við sköpun
kaupstaðanna, komið þið altaf með
þessar sömu mótbárur: Ekkert fé,
enginn tími, slæm veörátta. En við
ferðamennirnir sjáum að fé er eytt
hér gffurlega til margs, sem einung-
is skaöar þjóðfélagið. Tímanum eytt
í fundahöld og »skröll« og auk þess
fjöldi fólks atvinnulaus, meö hendur
í vösum, langan tíma ársins. Veður-
athuganir og athafnir einstakra manna
og stofnana, sýna að hér getur
margskonar gróður vaxið til þæg-
inda eg fegurðarauka. Nei, það
vantar hvorki fé, tfma eða veður-
blíðu. Það vantar smekk, dugnað,
fórnfýsi og fyrst og fremst skiíning
á þessum málum — þaö vantar
menningu; Ég hefi sérstakan áhuga
á, að skoða byggingar þar sem að
ég kem, og það hefi ég einnig gert
á Akureyri. 1?að er nú svo með
þessi gömlu járnklæddu hús; þau til-
heyra gamla tímanum, og auðvitað
verður að halda þeim við. En að
byggja ný, járnklædd hús. _sem eiga
að vera til frambúðar, er synd gegn
fegurö Akureyrar. Ég er og mjög
forviða á hve illa er gengið frá mörg-
um nýjum steinhúsum á Akureyri
og þau illa hirt utan,
Við aðaltorg bæjarins, Ráðhústorg,
eru flest húsin hálfbyggðir óásjálegir
kumbaldar og torgið sjálft illa hirt
leirflag, sem rykstrókarnir standa
upp úr við hveru vindgust. Fyrstu
áhrif sem sjófarandi verður fyrir, er
hann gengur upp frá Torfunefs-
bryggjunni eru ekki notaleg: Riðgað
járnarusl og tunnubrot á vinstri hönd
og sundurtætt blikkhurð á þá hægri.
Sem dæmi uro frágang bygginganna
má nefna hið nýreista stórhýsi KEA,
sem þó ætti að mega gera kröfu til
að sómasamlega væri gengið frá. Ég
hefi séð af því margar laglegar
Ijósmyndir, meðal annars í riti því,
er ríkisstjórnin gaf út um árið, um
þetta fyrirtæki. Éessi bygging vakti
því sérstaka forvitni mína. En eftir
samanburð á myndunum og frágangi
hússins hlýt ég að draga þá álykt-
un að kaupfélagsstjórinn ykkar leggi
meiri áherzlu á það, að s}5nast en
að vera«. »Kaupfélagsstjórinn okkar
er stórhuga fjáraflamaður, sem-
—« flýtti ég mér að afsaka, »Já
kaupstaðirnir á íslandi eiga of mik-
ið af mönnum sem vilja vera fjár-
aflamenn, en of fáa hirðumenn og
smekkmenn. Og KEA-húsið á Akur-
eyri ber glöggt vitni um þetta. Stað-
urinn er ágætur. Stfll hússins og
samræmi gott, byggingareínið var-
anlegt og gluggasýningarnar aðlað-
andi og bera vott um að mikið eigi
að selja og mikið fé að græöa. En
svo eru búðarúðurnar samanbæklað-
ar, gluggakarmarnir ósmurðir og
með kíttisklessum, hálfreknum og
riðguðum nöglum. Búðarhurðirnar
eru rifnar þvers og langs og hand-
föngin brotin af. Þrephellur lausar
og liggja út á gangstétt. Flekkur
af bréfarusli liggur allt í kring um
bygginguna. Gangstéttin framan við,
steinótt leirflag á löngum parti. Lek-
andi kranar út á stéttina. — Mynd-
ir af bvggingunni sýna hana tfgu-
lega með nafni félagsins á horn-
fletinum og klukku í hornkvisti.
Nafnið er ekki til á húsinu, en í
þess stað mikið af sótflekkjum og
skítarákum. Og þar sem tfmateljar-
inn er sýndur að vera, sem tákn
stundvísi og reglusemi utanhúss og
innan er bara gat. Inn í stigagöng-
unum tekur ekki betra við. Fyrir-
komulagið virðist vera prýöilegt og
veggirnir »marmaramálaðir«. En svo
eru ómálaðir, skítugir bekkir skildir
eftir niður við gúmmídúkinn; gólf-
dúkurinn sumstaðar rifinn af, hurðir
óbónaðar, óvíða leiösögn á þeim, og
ein þeirra með brotnu handfangi —
og það af sjálfum Búnaðarbankanum.
Já, leiðandi menn ykkar bænd-
anna í Eyjafirði eru sjálfsagt fjár-
aflamenn — en ekki hirðumenn,
Gg byggingameistarinn ykkar hlýtur
að hafa verið hroðvirkur. Mér er
sagt að á Akureyri sé fastlaunaður
byggingafulltrúi — skiftir hann sér
af engu?
Mér er sagt að KEA græði mörg
hundruð þúsundir króna árlega og
haíi á annað hundrað starfsmenn í
þjónustu sinni. Ekki vantar það fé
eða íólk til að láta eignir sínar og
umhverfi líta sómasamlega út.«
Ræða gestsins var mikið lengri
og barst meðal annars að því, hvernig
strit og elja okkar sveitafólksins
í landinu verður að mislukkuðum
og oft menningarsnauðum fram-
kvæmdum f kaupstöðunum. Og því
hvernig við hér í Eyjafirði stritum
og stríðum við búskaparbasl og
höldum uppi stórbyggingum á Ak:
ureyri og stórum flokk hálaunaðra
verzlunarmanna, sem búa í »lúxus«
íbúðum og aka í »lúxus» bifreiðum
en við sjálfir reknir í skuldir og
armóö, og margir hverjir komnir
»á fandið«, En frá þeim hluta ræð-
uonnar vil ég ekki skýra að þessu
sinni. —
Næst þegar ég fór í kaupstað,
leitaðist ég viö að rannsaka sann-
leiksgildi allra þessara orða vinar
míns og varö að minnast gamla máls-
háttarins: »Glöggt er gests augað«
Ég hefi verið stoltur af »höfuðstað
Norðurlands« og »r(kasta kaupfélagi
Iandsins«, en ég verð að segja þaö
að augu mín opnuðust fyrir ýmsu,
sem full vanvirða er að í útliti Ak-
ureyrar og umgenginni þar.
Sveitamaður.
At/is ritstf.:
Þessi grein átti að birtast í síðasta
blaði en varð að bíða sökum þrengsla.
— Síðan hefir hvítasunnuhreingern-
ing verið gerð í bænum, — að KEA
meðtöldu — og gætir þess enn að
nokkru.
ByggingarvOruverzlnn
Akureyrar h.f.
Trjáviðurinn og sementið er
komið. Tjörupappi, tvær þykkt-
ir, fyrirliggjandi. — Gler vænt-
anlegt með næstu skipum. —
Afgreiðsla í Gránu. — Sími 2.
#■
Askorun.
Hér með er skorað á lóðareigendur að græða upp brekkur
bak við hús sín, þar sem það hefir eigi verið gert, enr.fremur
að ganga frá girðingum kringum lóðir.
Jafnframt skal bent á, að samkvæmt byggingarsamþykkt
bæjarins, skal senda byggingarnefnd til samþykktar teikningar
að girðingum, áður en þær eru gerðar. Að fengnu samþykki
byggingarnefndar skulu þær settar niður eftir opinberum mælingum.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 11. júní 1935
Steinn Steinsen.
Héraðslæknirinn.
í fjarveru minni gegnir Ártii Guðmundsson læknir
störfum mínum.
Akureyri, 14. júní 1935.
Steingr. Matthíasson.
Frá Akureyri til Reykjavíkur
alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
Frá Reykjavík til Akureyrar
sömu daga.
Burtfarartími kl. 8 árdegis.
Bifreiðastöð Steindórs.
Afgreiðsla á Akureyri á Bifreiðastöð Oddeyrar. — Sími 260.
Verzlunin EyjafjiÉr.
Verkstæðispláss
til leigu r.ú þegar.
fóhanna Sigurðardóttir,
Brekkugötu 7.
Síidarstnikur
þær, sem ætla að íá pláss
hjá okkur í sumar tali við
mig fyrir 17. júní næstk.
Kvenfólk af Akureyri verður
látið sitja fyrir vinnunni. —
Anton Ásgrímsson,
F j ó 1 u g ö t u 8.
Nýkomið:
Alexandra hveitið góða. —
Bankabygg — hænsna- og
kjuklingafóður margar teg.