Íslendingur


Íslendingur - 28.10.1938, Blaðsíða 1

Íslendingur - 28.10.1938, Blaðsíða 1
ÍSL Ritstjóri og aígreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118. XXIV. árgangut.j Akureyri, 28. október 1938 46. =tölubl. r Flokkur Héðins og istaflokkur Islands s a Kommún- m e i n a s t. S. I. fimmtudag 20. okt. kom 15. þing Alþýðusambands íslands sam- an í Reykjavfk. Aldrei áður hefir vetið beðið með jafn mikilli eftir- væntingu frétta af þeirri samkundu og að þessu sinni, því eftir brott- rekstur Héðins Valdimarssonar úr Alþýðuflokknum var vitað, að innan flokksins toguðust á tvær sveitir, annarsvegar »sanféiningarmennirnir« en hinsvegar þeir, er ekkert sam- neyti vildu eiga við kommúnista. Pegar fulltrúakosningar fóru fram í félögunum viðsvegar um landið skýrðu blöð Alþýðuflokksirs og . Kommúnistaflokksins jafnóðum frá úrslitum þeirra og gátu þess jafn- framt, hvort sá eða sú er kosningu náði var með eða á móti samein- ingu. Þótti af þeim upplýsingum mega ráða, að nokkur tvísýna væri á, hvor armurinn yrði yfirsterkari á þinginu. Litlu áður en þingsetning fór fram, söfnuðust jsameiningarmenn* saman í fylkingu niðri í Hafnar- stræti og gengu í hóp að þing- staðnum. En foringjar Alþýðu- flokksins hafa búizt við slíkri heim- sókn, því lögregluvörður var hafð- ur við húsið og aðaldyrnar lokað- ar. Fulltrúum þeim, sem teknir voru gildir, var hleypt inn um bakdyr. Ekki kom þó til neinna átaka milli þeirra, sem »útskúfaðir« voru og þeirra »útvöldu«, en nokkur vel valin orð Iétu þeir fjúka á milli. Pegar þingfundir hófust kom í Ijós, að sameiningarmenn voru í minnihluta á þinginu. Nokku olli þar um, að um eða yfir 20 full- trúar fengu ekki þingsetu, vegna þess að félög þeirra höfðu ekki greitt árgjald sitt til Alþýðusam- bandsins. Meðal þeirra voru 16 fulltrúar frá félaginu »Dagsbrún« í Reykjavík. En af þessum 16 reyndust 7 vera fylgjandi forinpj- unum, og var þeim þá leyfð þing- seta með málfrelsi og tillögu- rétti. - Peir, sem leyfi fengu til að sitja þingið sem fulltrúar, voru um 180 að tölu, en um 40 fulltrúar úr hópi »sameiningarmanna« sækja ekki þingfundi. Um 80 af þeim, sem kjörnir voru fulltiúar á þingið, sendu meirihluta Alþýðusambands- stjórnariunar og hægri armi þings- ins þegar á fyrsta þingdegi tilboð eða kröfur, þar sem þeir fara fram á, að Alþýðusambandið sé gert að óháðu fagsambandi allra verklýðs- félaga, og að allir kjörnir fulltiúar fái sæti á þinginu með fullum rétt- indum, án tillits til deilurnáia innan Alþýðusambandsins. Svars var óskað fyrir kl. 10 árdegis næsta dag. Sambandsstjórn svaraði bréfi þessu þegar í stað og sendi Héðni Valdimarssyni. Afrit af brtfinu sendi hún einnig 36 þeirra er undir tilboðið höfðu ritað, eða allra þeirra, er hún taldi eiga rétt til setu á þinginu. í svarinu fólst fullkomin neitun. Þegar hér var komið, néituðu flestir fulltrúar »sameiningarmanna«, sem eftir úr- skurði höfðu fulltrúaréttindi á þing- inu, að sitja það, þar eð þeir töldu það ólöglegt. Komu þeir því, ásamt þeim er útilokaðir voru, saman á ráðstefnu. Aðalhlutverk hennar var að undiibúa stofnun sameinaðs sósialistaflokks, þar sem Héðinsmenn og kommúnistar rugl- uðu reitum sínum saman. Meðal þeirra mála, er fyrst komu fram á Alþýðusambandsþinginu voru brottrekstur Héðins Valdi- marssonar og Jaínaðarmannafélags Reykjavíkur. Héðni var boðið að koma á þingfund og standa fyrir máli sínu. Tók hann boðinu og talaði nokkur orð, þar sem hann kvaðst ekki ætla að verja sig fyrir þessu þingi, því að hann viður- kenndi það ekki réttan dómstól í sínu máli, enda hefði það engan rétt til að kalla sig Alþýðusam- bandsþing. Að því mæltu vék hann af fundi. Brottvíking hans var síðan samþykkt með 124 atkv. gegn 7 og brottvíking Jafnaðar- mannafélagsins með 98 atkv. gegn 9. Pá var Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur samþykkt í sambandið með 115 atkv. gegn 8. Á mánudaginn hófst stofnþing hins nýja sameinaða flokks Héðins og kommúnista í Oamla-Bíó í Reykjavík. Var húsið troðfullt. Að undangengnum hatíðlegum hornablæstri ték Héðinn til máls og tilkynnti, að vinstri menn Al- þýðuflokksins hefðu ákveðið að stofna nýjan flokk til baráttu fyrir sameiningu verkaiýðsins. Pví næst tók Einar Olgeirsson til máls og tilkynnti, að 5. þing Kommúnista- flokksins heíði ákveðið að vera með í að stofna þenns sameining- arflokk og þar með lagt sinn eigin flokk niður. Er Alþýðuflokkurinn þar með formlega klofnaður og vinstri armur hans sameinaður kommúnistum, en Kommúnistaflokkur lslands lagð- ur á hilluna í bilr'. Engin vissa er þó fyrir því, hvor flokkurinn verður fjölmennari í landinu í nán- ustu framtíð. NYJÁ-BIO Föstudagskv, kl. 9: Frá því var sagt í síðasta blaði, að vegna þrengsla í húsakynnum Gagnfræðaskóta Akureyrar, hefði í vetur orðið að leigja kennslustofu handa 3, bekk í Verzlunarmanna- húsinu, Eins og kunnugt er, hefir Gagn- fræðaskólinn síðan hann var stofn- aður haft húsnæði í skólahúsi Iðn- aðarmanna á Oddeyri. Var það húsrými nægilegt fyrstu árin. En síðan núverandi skólastjóri koin að skólanutn hefir aðsókn að honum þrefaldast, og því er svo komið, að útvega varð húsnæði annarsstaðar í haust fyrir einn bekk skólans. E£ skólinn heldur áfram að vaxa, sem vet má gera ráð Eyrir. dylst engum það, að komið er í mesta ó- efni með skólahúsnæði. í bænum er hvergi fáonlegt nægilegt húsrúm fyrir skólann á einum stað, en að dreifa honum út um allun bæ, er Hiísnæðisskortnr Gagnfræðaskólans í sjöunda himni Niðursett verð. Sýnd í síðasta sinn Laugardags- og sunnudagskvöld kl. 9: Lista- mannalíf „Bohémeliv“ Pýzk söngmynd í 10 þáttum. Aðalhlutverkin leika og syngja hin heimsfrægu Jan Kiepura og Martha Eggerth Ennfremur skemmtilegustu leik- arar Jpýzkalands þeir Paul Kemp, Theo Lingen og Oscar Sime, Myndin gerist í París og syng- ur hinn glæsilegi söngvari meðal annars hlutverk Rudolphs í »Bohéme« eftir Puccine og í lok myndarinnar syngur Martha Eggerth í hlutverki Mimi ein- hverri fegurstu og áhrifaríkustu sýningu óperunnar, Myndin er annars fult af skemmtilegum atburðum eins og auðvitað er, þar sem þeir eru Paul Kemp og Theo Lingen, og útlend blöð eru sammála um, að hér sé á ferðinni langbezta Iviepura mynd, sem enn hafi sézt. I frágangssök. Er því ekki nema um tvær leiðir að velja. Að takmarka nemendafjöldann eða bvggja nýtt skölahús. Takmörkun nemendafjölda mundi mælast illa fyrir og með tilliti til hinna rýru atvinnumöguleika ung- linga hér í bænum, væri hún mjög óheppileg. Margir unglingai' hafa ekki aðgang að nokkru staifi að vetrinum og eiga því ekki nema tveggja úrkosta völ, annaðhvort að stunda nám eöa hafast eklcert að. En fátt er æskunni hættnlegra en athafnaleysið. Pað á ekki ósjaldan drýgsta þáttinn í því, er unglingarn- ir leiðast afvega, venjast á götulif eða kaffihúsasetur, jafnvel siðíerði- leg afbrot. Skólarnir hafa því ekki aðeins þá þýðingu að veita ungling- unutn bóklega fræðslu, heldur og forða þeim frá óhollustu þess lífern- is, er iðjulaus æskulýður .getur van- Sunnudaqinn kl. 5: «3 Rex og Rin- sn-Tin sigra (Framh. af myndinni, »Tar sein hnefarétturinn ræður«.) ist í baijum og borgum. Menning- ailegi st'ð væri það því óráð að hefta vöxt skólans. Bygging skólahúss er óumflýjan- leg, og nauðsynlegt að hrinda benni í framkvæmd þegar á næsta sumri, Er þá sjálfsagt fið byggja í einu lagi yfir Gagnfræðaskólann, Iðnskól- ann og væntanlegan Húsmæðraskóla. Iðnskólinn er þegar vaJtinn upp úr

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.