Íslendingur - 02.06.1939, Side 2
2
ISLENDINGUR
skipti og hann skallar knöftinn, því
það getur kostað félag hans víta-
spyrnu og er auk þess ólöglegt.
í K. A.-liðinu léku bezt miðf.v.
Árni, sem einnig er foringi liðsins.
Hann er sterkut og traustur. En
fyrirskipunum sínum mætti hann
velja betri orð en hann gerði í
þessum leik. Hægri bakv. Kristján
Eiríksson er fljótur og skemmtileg-
ur leikmaður. Hann lék þarna í
fyrsta sinn sem bakvörður og tókst
vel. Hörður Ólafsson sparkar vel
og hefur mjög góða knattarmeð-
ferð, en hann er of hægur og hefir
ekki enn lagt niður þann barnasið
að leika sér svo lítið með knöttinn
áður en hann skilar honum frá sér.
Siðast en ekki sízt skal markvarð-
arins getið, Porgeirs Pálssonar, sem
varði mark sitt með prýði.
Að lokum nokkur orð til áhorf-
enda: Það er heilbrigt að halda
með öðru hvoru félaginu og hrópa
með því. Það setur iíf í leikinn
og kemur leikendum til að gera
sitt ýtrasta. En að hlæja að óhöpp-
um andstæðinga sinna, að uppnefna
leikmenn og hrópa að þeim ókvæð-
isorðum er skrílsháttur, sem verður
að leggjast niður sem fyrst
Plató.
Frá virkjuninni
Víð framkvæmdir rafveitunnar
eru um þessar mundir á annað
hundrað manna í vinnu og verður
fjölgað næstu daga. Kom efni í
innanbæjarkerfið með »Lagarfossi«
og verður þá einn vinnuhópur lát-
inn grafa niður jarðstrenginn í
bænum. Á virkjunarstaðnum vinna
um 60 manns, en milli 20 og 30
við stauralínuna. Hafa staurar
þegar verið reistir frá aðalspenni-
breytistöðinni ofan við bæinn og
að Eyjafjarðará að vestan og síð-
an í vestanverðri Vaðlaheiði upp
undir brún. Dregið verður að
leggja línuna yfir »hólmana« þar
til vorleysingum er lokið og um
ofanverða Vaðlaheiði þar til snjóa
hefir leyst af henni, en hqWið á-
fram að leggja línuna fyrir austan
heiði. Einn hópurinn vinnur við
aðal spennibreytistöðina og annar
er að byrja að byggja spennibreyti-
stöðvar víðsvegar um bæinn, Verða
alls 9 slíkar stöðvar byggðar í
sumar.
Sjáltstæðiskvennaté/. 'Vörn,
heldur fund í Skjaldborg þriðjudag-
inn 6, júní kl. 8,30 síðdegis, Fé-
lagskonur áminntar um að mæta
stundvíslega.
Þankabrot
/óns í Grófinni.
TV/Tálvöndun íslenzkra blaða, eink'
,LV'L um dagblaðanna, fer hnign-
andi, í hvert skipti og íslenzkunni
er á einhvern hátt opinberlega mis-
boðið fyllast unnendur hennar rétt-
látri gremju. Ástæðan til þessarar
hnignunar er að líkum sú, að með
vexti blaðanna vex annríki þeirra,
er að þeim vinna, og vandvirknin
þverr. En slíkt má ekki fyrir koma
Blöðin eiga einmitt að leggja á-
herzlu á vandað mál, því máttur
þeirra er oft mikill, — til að bæta
eða spilla, þ. e: blöðin hafa meiri
og minni áhrif á fólkið, og getur
því óvandað mál blaðanna spillt
tungunni eins og málvöndun þeirra
getur bætt hana og glætt tílfinning-
ar lesandans fyrir fegurð hennar
og ríkdómi.
Nefni ég hér dæmi um málspjöll.
sem komu fyrir í íslenzku blaði
fyrir skömmu:
» — Bcrðstofuborðið stendur með
tvœr Jœtur1) í borðstofunni og tvœr
í eldhúsinu . . .«
Og 11 dögum síðar í sama blaði:
» . . . ég hefi svo stórar fœtur,
að ég rek þær í manninn . . .«
Þarna er karlkyns orði tvívegis
snúið í kvenkyn, og má óhætt full-
yrða, .að fyrr megi misþyrma mál-
inu, en svo langt sé gengið.
Þá er ekki óalgengt, að rangar
beygingar og röng föll orða komi
fyrir í blöðunum, fyrir utan öll
málskrípi og dönskuslettur, t. d.
'burtséð frá því,« eins og nú er
farið að nota.
Það ætti að vera metnaður ís-
lenzkra blaða að skara fram úr
öðrum um málvöndun. Hirðuleysi
um meðferð móðurmálsins rýrir
hinsvegar virðingu þeirra.
D RÉFARUSLIÐ á götum bæj-
arins fer vaxandi með degj
hverjum. Bréfpokar undan sementi
og allskonar umbúðapappír vefst
um fætur vegfarenda, og hversu
vandlega, sem hinir þrifnari borg-
arar hreinsa umhverfis hús sín,
fyllist þar allt af slíku rusli jafn-
óðum. Það fólk, sem leggur í
vana sinn að rífa umbúðir á göt-
um úti utan af vörum, er það
kaupir, ætti að spara afgreiðslu-
fólkinu allan slíkan umbúnað, og
afþakka því pappírinn, þegar það
kaupir vörur sínar í búðunum.
l) L, br. hér.
IÝKOMÍÐ:
Gúmmíbryddingar á stiga
Gúmmíslöngur
Gúmmípakkning,
Tóinas Björnsson, Akureyri
LÁTIÐ O. J. & K.-KAFFI
VEKJA YÐURÁMORGNANA
EKKERT ER EINS HRESSANDI ÁRLA
MORGUNS OG GÓÐUR KAFFtSOPl.
Hraðferðir B. S. A.
Alla daga nema mánudaga um
Akranes og Borgarnes. M. s.
Laxfoss annast sjóleiðina Ferð-
ist eingöngu með bifreiðum vorum
BIFREIÐA ST0Ð AKUREVRAR.
Útsvörin I Rvík
Niðurjöfn'anarskrá Reykjavíkur er
nýlega komin út, Ilæst útsvör bera
þessir gjaldendur:
66000 kr. Olíuverzlun íslands h/f
5ð000 — Samb. ísl- samvinnufélaga
44000 — Shell á íslandi h/f
41800 — O. Johnson & Kaaber
39600 — Völundur timburverzlun
35200 — lóh. Ólafsson & Co.
33000 — P. Petersen bíóstjóri
27500 — Ölgerðin Egill Skallagr.
25850 — Edinborg, verzlun
24200 — ]ón Björnsson kanpm,
24200 — Skógeröin h/f.
23650 — Haraldur Árnason kaupm.
23650 — Lárus G. Lúðvíkss, verzl,
23100 - Nýja Bíó h/f.
22000 — Edda h/f. umboðs- og
heildverzlun
22000 — Geysir, veiðarfæraverzlun
22000 — Steindór Einarsson
bifreiðaeigandi
21450 — Efnagerð Reylqavíkur
20900 — Síefán Thorarensen lyfs.
Hjónaband; Llngfrú iíakel Jó-
hannsdóttir og Pálmar Guðnason
sjómaður.
Innflutningurinn
íyrstu 3 mánuði yíirstandandi árs
var nokkru hærri en yfir sama tfma-
bil í fyrra, eða 10,4 milj. kr. nú á
móti 9,8 milj. kr. í fyrra. Innílutn-
ingur var nú til muna meiri á sem-
enti, salti, sykurvörum, kolum og
olíu, áburði og flutningstækjum, en
miklum mun minni á rafmagnsvél-
um og áhöldum, skófatnaði, álna-
vöru, tóbaki og drykkjarvörum.
(Samkv. Hagtíðindum.)
B. S. A. Sími 9.
I. BBYNJÓLFSSON * KVA15AN