Íslendingur


Íslendingur - 02.06.1939, Blaðsíða 3

Íslendingur - 02.06.1939, Blaðsíða 3
ÍSLENDÍNGUR 3 Vaglaskógur Sætaferöir um helgar í hinum vinsælu langferðabilum — — Bifreiðastöð Akureyrar Skrifstofa min er flutt í Skipagötu 2. Tónias Steingrímsson Umboðs- & heildverzlun. S í m i 3 3 3 S í m i 3 3 3 Frá Happdrættinu Til sjómanna og annara sem flytjast burt til atvinnu annars staðar. — Munið að endurnýja áður cn þér farifl, lielst fyrir allan (imann sem þér verðið f jarverandi. Atfiiugiil vel: Nú vaxa möguleikarnir fyrir vinn- ingum, stórum og smáum, með hverjum drætti. Að verða af drætti nú og síðar, getur valdið yður tapi svo þúsundum króna skipti. Komið sein fyrst wg gangið trygg'i- lega frá happdrættisiniðuin yðar. Bókaverzlun Þor§l. Tliorlacius Hraðferflir -- Steinflflrs eru Frá Akureyri: Alla mánudaga Alla fimmtudaga Alla laugardaga Frá Akranesi: Alla mánudaga Alla miðvikudaga Alla föstudaga Allt hraðierðir um Akranes. Sjóleiflina ann- ast ra.s. Fagranes. Aigreiðsla á Aknreyri Bifreiðastöð Oddeyrar. S TEINDÓR. Hjartans þakkir lil allra þeirra er auðsýndu samúð og hlut- tekuingu við andlát og jarðarför Jóhönnu Björnsdóttur. Börn og tengdabörn. Alliance francaise var stotnaö hér í bænum fyrir viku síðan meö 12 meölimum. Stjórn félagsins skipa; Rórarinn Björnsson forseti, Trausti Einarsson varafor- seti, Gunnar Schram, féhirðir og Friðrik Magnússon ritari. Forseti Alliance Francaise í Reykjavík, Pétur Gunnarsson, var þá staddur hér og átti frumkvæöi að stofnun félagsins. Bauð hann ýmsum bæjar- búum s. 1. föstudagskvöld á kvik- myndasýningu í Nýja-Bíó á vegum félagsins. Myndin var af vínyrkju í Frakklandi. Á undan sýninguoni íiutti Pétur erindi um félagshreyfing- una, Altiance francaise, og starfsemi hennar víðsvegar um heim. Samkvæmt samþykkt er gerð var á þingi Umda'misstúkunnai nr. 5, er haldið var á Siglutirði síðastl. haust, heíir það nú verið ákveðið fyrir nokkru, að bindindismannamót verði haldið að Laugaskóla, er hefj- ist 17, júní n, k. kl. 2 e. h, og standi til sunnudagskvölds 18. júní. Framkvæmdanefnd Umdæmisstúk- unnar undirbýr mót þetta, og hefir boöið ungmennafélögum á Norður- landi þátttöku, þannig, að þau sendi nokkra fulltrúa hvert. Einnig hefir bindindisfélögum skólanna verið boð- in þátttaka, og að sjálfsögðu taka allar stúkur í umdæminu þált í mótinu. þó ekki sé gert ráð fyriir sérstökum íulltrúum frá þeim, held- ur óskað eftir almennii þátttöku allra templara. Framkvæmdanefnd Stórstúkunnar ráðgerir að koma norður, og er þaö von allra templara að það bregðist eigi. Rædd verða ýms mál er snerta samstarf Bindindismanna og baráttu út á við og ályktanir gerðar. Verða í upphali hvers máls fluit framsögu- erindi af þar til kjörnum mönnum og málin síðan sett 1 nefndir, er skili tillögum og greinargerð síðar á fundinum. Bindindis- og ættjarðarljóð verða sungin, guösþjónusta haldin, ávörp liult og sérstakar kvöldskemmtaoir haldnar, þar sem fram fara stutt erindi, upplestur, söngur, dans o. fl. Dagskrá mótsins verður birt síðar, þegar hún er fullsamin. Norðlenzkir áhugamenn um bind- indismál gera sér miklar vonir um árangur þessa móts til samstarfs og kynningar, og að voröldur fagurra hugsjóna muni rísa og ryðja sér braut, svo að unnendur menningar og siðfágunar megi sjá góðan árang- ur af starfinu fyrir þessi vandasömu velferðarmál. St. A. ,K. 3ja herbergja íbúð mcð n}:tíz.ku þægindum, í nýju steinhúsi í útbænum, óskast til leigu frá 1. okt. nk. Fyiirfrain greiðsla fyrir allan veturinn getur komiðtilgreina. Upplysingar gefur Sig'urður O. Björnsson. Símar 45 og 370, Pmitamiðja Bjönu Jónesonar. Síídveiðarnar fara að byrja. Reir sem eiga eftir að fá sér nætur, net eða nótagarn, ættu að tala við Eggert Stetánsson. Reyaslan s. 1. ár sannaöi það. Stúlka óskast nú nokkurn tfma. Lilja Sólnes, Ránargötu 2. Til ferðalaga: Stormjakkar Stormblússur Sporthúfur Sportsokkar Sportskyrtur Peysur Bakpokar Hvílupokar Vattteppi Regnkápur Rykfrakkar Brauns Verzlún Páll Sigurgeirsson. Unglingspilí á[efr og siöprúðan, vantar mig nú þegar til afgreiðslustarfa og sendiferða. Meðmæli æskileg. Asgeir Matthíasson. OlGr Veniulegt gluggagler, þykkt frá 2 — 8 m/m. Bílagler og fl. glertegundir, útvegar ódýrast Eggert Stetánsson. Höfðingsskapur. Fyrir skömmu síðan gáfu hjónin Anna S. Adólfsdóttir og Jón Páls- son aðalféhirðir Landsbankans í Reykjavík, 20 þúsund krónur í rík- isskuldabréfum til stofnunar tírykkju- mannahælis. Er göf þessi gefin í minningu u.n foreldra getendanna, Þessi höíðinglvndu hjón liafa lengi haft brennandi áhuga fyrir því, að komið væri á fót hæli fyrir of- drylckjumenn, og má vænta þess, að gjöí þeirra greiði mjög fyrir framgangi málsins. Guðrún sál. Lárusdóttir alþ.m, barðist fyrir þvf á Alþingi, meðan hennar naut við, en síðan hefir þvi lítt verið hreyft. Eerðafélag Akui eyrar. N. k. sunnudag, 4. júní, Hríseyjarferð. — Ekið að Litla Árskógssandi, Paðan á bát yfir sandið til Ilríseyjar. Ný verzlun undir nafninu Vöru- hús Akureytar, verður opnuö í Hafn- arstræti 102 nú eítir helgina, þar sem áður var verzlun Eiriks Krist- jánssonar Eigandi hinnar nýju verzl- unar er Ásgeir Matthíasson. Hátt próf. Hæsta lögfræðipróf. sern tekið hefir verið við Háskóla íslands tók Ólafur Jóhannesson frá Stórholti í Fljófum nu í vor. Fékk hann 155 stig. Hæstá próf, sem áður haíði verið tekið í lögfræði hér, var 146 2/s stig. Rað próf tók Bjarni Benediktsson prófessor. — Ólaíur tók stúdentspróf frá Mennta- skólanum á Akureyri vorið 1935.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.