Íslendingur - 02.06.1939, Side 1
Sjómannadaguriiin
Sunnudaginn 4. júní verður hald-
inn Sjómannadagur hér á Akureyri.
Fara þá fram hálíðahöld, sem aug-
lýst eru á öðrum stað hér í blað-
inu. Petta er í fyrsta skipti, sem
slík hátíðahöld fara hér fram, en
áður hefir Sjómannadagur verið
haldinn hátíðlegur í Reykjavík af
miklum myndarskap.
Sjómannastéttin íslenzka er svo
þýðingarmikil stétt í þjóðfélaginu,
að það má teljast vonum seinna,
að hún fær nú einn dag á árinu
sérstaklega helgaðan sér. Verka-
mannastéttin og verzlunarmanna-
stéttin hafa áður fengið sína daga,
1. maí og fyrsta mánudag í ágúst.
Sjómannastéltin ætti því að fá ein-
hvern ákveðinn dag á árinu, t. d.
sunnudaginn næsta fyrir eða næst-
an eftir hvítasunnu.
í engu landi Evrópu hefir sjó-
maðurinn meiri þýðingu en hcr á
íslandi. Stafar það fyrst og fremst
af því, að útgerðin er aðalatvinnu-
vegur þjóðarinnar hina síðustu ára-
tugi og ein auðugustu fiskimið
heimsins liggja utan við landstein-
ana, og í öðru lagi er hafíð —
eða hefir a- m. k. verið allt til þessa
dags — eina samgönguleiðin er
liggur til umheimsins,
íslenzkir sjómenn, — eða fslands
Hrafnistumenn, eins og skáldið
nefnir þá. hafa á undanförnum ár-
urn og ö'.dum lagt líf sitt í hættu
við að afla þjóðinni verðmæta úr
skauti Ránar, til að gjalda með
þær nauðsynjar, er þjóðin þarf að
sækja til 2nnarra, — og íslenzkir
siglingamenn hafa flult þau verð-
mæti á erlendán markað og önnur
heim í staðinn. I viðurkenningu á
því starfi er ekkert vanmat fólgið á
starfi arinarra siétta í landinu, er
vintia að framleiðslustörfum. En
munurfnn á starfi sjómannsins og
jarðyrkjumannsins er sá, að jaið-
yrkjumaðurinn hefir fast land undir
fótum, en sjómaðutinn hið óræða,
duttlungafulla haf. Pað er hin full-
komna óvissa sjómannsins um að
ná heill í höfn, er hann fer á
»vinnustaðinn«, sem gerir starf
hans lítt eftirsóknaivert,- þótt oft
sé sjórinn lokkandi og fagur.
Pótt tækni núlímans hafi náð til
útbúnaðar veiðiskipa sem annars
og »vé!knúin skeið* sé komin í
sfað seglskipa og súðbyrðinga, er
fjatri því, að íakist hafi að gera
starf sjómannsins hætlulaust. Eng-
in vélaorka getur haldið öldum út-
hafsins í skefjum. Engiiin máttur
yfirbugað átök þ:ss, er það fer
hamíörum.
Pví er líf farmannsins enn fullt
af hættum, og þess vegna á sjó-
mannskonan enn sínat' andvöku-
nætur, þegar maður hennar, faðir
eða bræður »ganga á orustuvöllinn*
yfir >stórsjó og holskeflufö)!«.
Við eigum engar tölur yfir þá
mörgu, hraustu íslendinga, sem
hafið umhveifis hólmann okkar
hefir hrifið í fang sér og aldrei
látið Iausa^ Á hverju ári heimtar
það af okkur nýjar fórnir. Og á
hveiju ári verða margar konur
ekkjur og mörg börn föðurlaus,
vegna hinna dýru mannfórna.
Á Sjómannadaginn er okkur skylt
að heiðra þær stéttir þjóðar vorrar,
er sífelt eru að hætta lífi sínu við
að draga björg í bú hennar. Við
gerum það bezt rneð því að vinna,
eftir því sem í okkar valdi stendur,
að auknu öryggi á sjónum. Við
eigum að vinna að því, að eignast
sem flest björgunarskip og björg-
unartæki, traust veiðiskip, stranga
skipaskoðun, ströng fyrirmæli um
hleðslu veiðiskipa o. s, frv.
Á Sjómannadaginn 4. júní, verð-
ur aflað fjár hér á Akuréyri, með
hátíðahöldum og merkjasölu, til
björgunaiskútu Norðurlands. Pá
eiga bæjarbúar kost á að sýna,
hvað þeir vilja a? mörkum leggja
til að auka öryggi norðlenzkra sjó-
manna. Pátltaka þeirra í Sjómanna-
deginum mun bezt vitna um hug
þeirra til sjómannastéttarinnar.
Verðlaun
veitt iyrir sjómannaljóð
og iag við þau.
Sjómannaráðið efndi til sam-
keppni um sjómannaljóð meðal ís-
lenzkra Ijóðskálda nú í vor. All-
mörg kvæði bárust dómnefnd þeirri,
er skera átti úr um, hv;r verðlaun
skyidi hljóta. Fyrstu ve ðlaun
hlaut Magnús Stefánsson í Hafr.-
arfirði (er þekktastur er undir gervi
nafninu Ö.n Arnarson), og eru ijóð
hans birt hér í blaðinu á öðium
stað. Ö.mur veiðiaun hiaut Jón
Magnússon ská/d.
Fyrstu verðlaun voru 150 kr. og
önnur verðlaun 50 krónur. Dóm-
nefnd skipuðu : Quðm. Finnboga-
son, Sig. Nordal og Geir Sigurðsson
skipstjóri.
Þá lét sama ráð fara fram sam-
keppni um lag við Ijóð Magnúsar
Stefánssonar. Alls bárust 27 tón-
smíðar, Ein verðlaun, 300 krónur
voru veitt. Hlaut þau Emil Thor-
oddsen píanóleikari. Dómr.eínd
skipuðu: Árni Kiisljánsson píanó-
Ieikari, Jón Halldórsson söngstjóri
og Halldór Jónasson cand, phil.
B. S. A. Sími 9.
Sjómannaljóð
Magnúsar Stefánssonar
er hlutu I. verðlaun í
samkeppninni.
Islands Hrafnistumenn
lifðu tímamót tvenn,
þó að töf yrði á framsóknarleið,
eftir súðbyrðings-för
kom hinn seglprúði knör
eftir seglskipið vélknúin skeið.
En þótt tækjum sé breytt,
þá er eðlið samt eitt,
eins og ætlunarverkið,
er sjómannsins beið.
Hvort sem fleytan er smá
eða seglprúð að sjá
og hvort súðin er tré eða stál,
hvert sem knýr hana ár
eða reiði og rár
eða rammaukin vél yfir ál,
hvert eitt fljótandi skip
ber þó farmannsins svip,
hann er ferjunnar andi
og hafskipsins sál.
Hvort með heimalands strönd
eða langt út í lönd
á hann leið yfir ólgandi flóð,
gegnum vöku og draum
fléttar tryggðin þann taum,
sem hann tengir við iand
sitt og þjóð,
þegar hætt reynist för,
þegar kröpp reynast kjör,
verpur karlmennskan íslenzka
bjarma á hans s!óð.
Islands Hrafnistumenn
eru hafsæknir enn,
ganga hiklaust á orustuvöll •
út í stormviðrin höst,
móti straumþungri röst,
yfir stórsjó og holskefluföll,
flytja þjóðinni auð,
sækja barninu brauð,
færa björgin í grunn
undir framtíðarhöll.
Framboð í Austur-
Skaftafellssýsla.
Annað kvöld er framboðsfrestur út-
runninn í Austur-Skaftafellssýslu,
Þessir hafa sent framboð;
Jón ívarsson, kaupfélagsstjóri, utan
flokka.
Páll Þorsteinsson kennari, a£ hálfu
Framsóknarflokksins.
Arnór Sigurjónsson ritstjóri, af
hálfu Sósialistaflokksins.
Ekki er búist við fleiri framboð-
um.
NYJA-BIO
Föstudags- laugardags- og
sunnudagskvöld:
Sænsk tal- og hljómmynd í 10
þáttum, — Aðalhlutverkið leik-
ur vinsælasti gamanleikari Svia;
Adolf Jahr.
Efni þessa skemmtilega drauma-
æfintýrs er það, að nýbakaður
doktor sofnar undir miðdegis-
veizlunni og dreymir að hann
er langt aftur i fornöld í >Róm-
antík riddaratímabilsins* og
berst þar eins og hetja við
sömu persónur í riddaralíki og
hann áður var nýbúinn að berj-
ast við, við doktorsvörn sína,
— Og hver er svo sem betur
fallinn til þess, að koma fóiki
í gou skap heldur en þetta
eftirlætisgoð Svía, Adolí sterki
Jahr,
1,0.0 F, s 1-1629 =
Hitaveitan í Rvík.
S. 1. þriðjudag var samþykkt á fundi
bæjarstjórnar Revkjavíkur með 14
samhl. atkvæðum, að taka titboði
firmans Höjgaard & Schultz um
hitaveitu frá Reykjum í Mosfellssveit
til Reykjavíkur. Var borgarstjóra
falið að ganga frá samningum við
verktaka.
Eru þeir borgarstjóri, bæjarverk-
fræðingur og fjármálaráðberra lagð-
ir af stað til Danmerkur til að
ganga frá samningunum og mun
Magnús Sigurðsson bankastjóri, er
áður var farinn utan, taka þátt í
þeim samningagerðum fyrir hönd
Landsbankans.
Slys. S. 1. taugardag hrapaði
Kristinn Sigurðsson frá Eyri í Siglu-
firði, er hann var í eggjaleit ásarr.t
íleiri mönnum í Hestfjalli austan við
Héðinsfjörð. Handleggsbrotnaði hann
og rifbrotnaði, og hlaut íleiri meiðsh
Var hann íluttur í Sjukrahúsið í
Siglufirði.
Nú í vikunni hrapaði til bana
í Vestmannaeyjum unglingspiltur,
norskur að ætt,
Hjónaeini: Ungfrú Guðfinna
Bjarnadóttir (lónssonar f. v. bankastj)
og Björn Ólafs lögfræðingur.
ZION. Næstkomandi sunnudag
8.30 e. h. almenn samkoma, allir
velkomnir.