Íslendingur - 24.12.1941, Qupperneq 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118.
XXVII. árgangur
Akureyri,
24. desember 1941
tölubl.
Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf sinn
eingetinn son til jþess að hver sem á hann
trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft lif.
Jóh. III., 16.
"Sagt er að Marteinn Lúther hafi kallað þetta vers úr Jóhann-
esar guðspjalli »biblíuna í biblíunni*. Með því átti hann við,
að þetta eina vers innibindi í rauninni allt það, sem heiiög ritn-
ing hefir að færa mannkyninu, innihaldið úr allri opinberun Guðs.
Það er ekki langt mál, en það segir mikið. >Svo elskaði Guð
heiminn, að hann gaf sinn eingetinn son, til þess að hver sem
á hann trúir, glatist ekk», heldur hafi eilíft líf<.
Jólin eru að koma. Þó ekki sé jólalegt að líta yfir heiminn
eins og ástandið er. þá búumst við hér til þess að fagna enn á
ný þessar: ævagömlu hátíð kærleikans og friðarins. Víða um
heim verða lítil jól að þessu sinni, Við hugsum til þeirra millj-
óna ungra manna, sem yfir þessa hátíð verða að hafast við á
vígvöllunum. Við hugsum til sjómannanna, sem í myrkrum
skammdegis og nætur sigla heimshöfin á þessari hátíð Ijóssins,
í stöðugri hættu við ógnir sjávar og ófriðar. Við hugsum til
hinna mörgu heimila hinna stríðandi þjóða, þar sem heimilisfað-
irinn, sonurinn, unnustinn eða bróðirinn er fjarverandi og enginn
nánustu ástvinanna veit nema hann hvíli særður og helfrosinn á
sléttum Rússlands, sandorpinn á auðnum Lybiu eða orðinn bráð
gamma og villidýra í frumskógum Austurlanda. Það verða víða
döpur jól að þessu sinni. Tæplega verður talið að haldandi sé
hátíð friðar og Ijóss, gleði og kærleika eins og heimsmyndin nú
blasir við.
En einmitt þesssvegna, einmitt vegna hins yfirstandandi ástands
hefir heimurinn og mannkynið meiri þörf jólanna og boðskapar
þeirra en nokkru sinni fyrr. Hefir nokkru sinni fyrr verið boð-
aður velkomnari boðskapur í mannbeimum, heldur en hin fyrsta
jólakveðja Guðs var, sem hljómaði hirðunum á Betlehemsvöllum:
Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu með þeim mönn-
um, sem hann hefir velþóknun á? Hefir hið þjáða mannkyn
meiri þörf fyrir nokkurn boðskap á þessum dögum en þann, að
þrátt fyrir allt, þrátt fyrir alla villuna og vonzkuna sem birtist nú
svo víða, þá elskar Guð samt heiminn og vill enn á ný á hinum
nálægu jólum gefa sinn eingetinn son til þess að hver sem á
hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf? Nei, hari jólanna,
friðarins og velþóknunarboðunar Guðs, nokkurn tíma verið þörf, þá
er það nú. Og hafi nokkurn tíma verið tilefni til að heilsa jólum
með upphafi gamla íslenzka jólasálmsins: »Velkomin vertu,
vetrarperlan fríð«, þá er það nú.
Fögnum því heilögum jólum að þessu sinni með enn meiri
innileik en nokkru sinni fyrr. Þökkum Honum, sem enn elskar
heiminn, að hann enn lætur þau flytja mannkyninu boðskap
friðar og velþóknunar sinnar. Biðjum fyrir þeim sem sitfa í
myrkri og sorgum. Biðjum að jólin megi sem víðast verða há-
tíð gleði og fagnaðar, þrátt fyrir allar yfirstandandi ógnir. Biðjum
að mannkyninu aukist trú á Hann, sem því þá var gefinn, friðar-
höfðingjann.
(jgtediteg jóí!
=<a=sa
Á
9 síe nding ur
óskar öííum (esendum si'num gCeSi-
Legra jóta og góSs domandi drs.
Júlaþreytan.
Jólaösin og jólaannirnar eru nú
brátt á enda. Allir hafa haft mikið
að gera* í verzlununum hefir fólk-
ið orðið að brjóta allar venjur um
matmálstíma, kaffitíma og hvíldar-
tíma, — varla neytt svefns né mat-
ar vegna annríkis. Ekki komist til
máltíða á daginn fyrir ösinni, en
vakað síðan hálfar nætur við að
taka upp vörur, sem seldar eru dag-
inn eftir. Þessi saga hefir gerzt í
flestum búðum, því að peningavelt-
an er mikil, og margir viija gefa
jólagjafir.
En ös og annir er líka i algleym-
ingi á pósthúsinu, snyrtistofum,
saumastofum og húsgagnavinnu-
stofum. Og í heimahúsum er líka
mikið um að vera. Þar er vakað
fram á nætur við að baka kökur,
ræsta og fíga, búa um jólagjafir o>
s. frv„ en á daginn er hlaupið f
búðirnar til að kaupa. Það lætur
nærri að húsmóðirin örvænti um
að geta lokið öllum jólaundir-
búningnum áður en helgin hefst,
og þá fer hún kannske á fætur fyr-
ir dögun á aðfangadaginn eftir
tveggja til þriggja stunda hvíld.
Og líklega verður aðfangadagurinn
erfiðastur. En einhvernveginn kem-
ur hún þessu af í tæka tíð. Ef til
vill má það ekki tæpara standa, ef
börnin eru mörg, sem klæða þarf
í jólafötin og bera þarf á borð fyrir
marga-
En er ekki jólaundirbúningurinn
orðinn of mikill, þegar fólkið er
orðið svo örþreytt og svefnvana, er
það loks fær að njóta jólsgleðínnar
á heimilum sínum, að það þráir
ekkert fremur en að mega ganga
til hvílu og helzt sofa hátíðardag-
ana til að safna aftur eyddu þreki
og vinna upp aftur tapaðan svefn?
Eða það brestur eðlilega matarlyst
á frambornar jólakræsingar? Gerir
það nokkuð betur en að jóladag-
arnir endist til að sigra þreytuna,
er lagst heflr yfir þá, er undirbún-
ingurinn mæðir mest á?
Jólatilhlökkunin er gömul, og
flestir þekkja hana. En þá er und-
irbúningur jólanna orðinn of mikill,
ef í stað þeirrar tilhlökkunar kemur
kvíði, — kvíðinn fyrir hóflausu ann-
ríki, erfiði og of naumum svefni,
Væri ekki betra, að hafa ekki
meiri viðbúnað til að taka á móti
jólunum en svo, að allir geti notið
þeirra hressir og óþreyttir, — hús-
mæðurnar jafnt sem aðrir?
/Örð II. árg. 4, hefti,
er nýlega komin út. Er þetta hefti
aö öllu leyti helgaö Noregi og Norö-
mönnum, Meðsl þeirra er í heftiö
rita má nefna Sig, Nordal, Stefán
Jóh. Stefánsson, Arnór Sigurjónsson,
Ragnar Ásgeirsson, Skúla Skúlason,
Jóhann Kúld og Kristmann Guð-
mundsson. Pá eru þar greinar og
frásagnir eftir Norðmenn, m. a.
Halvdan Koht utanríkismálaráöherra
og Esmarch, sendiherra Norömanna
á íslandi. Fallegur myndaflokkur
frá Noregi prýðir heftið, og er það
á allan hátt hið myndarlegasta
iitlits.
Rit fóns Dúasonar
»Landkönnun og landnám íslend-
inga í Vesturheimi* 3. og 4. hefti
I. bindis eru nýlega komin út.
Áskriftasöfnun er enn haldiö áfram,
og geta menn snúiö sér tU ritstjóra
þessa blaðs, ef þeir óska að gerast
áskrifendur að þessu merkilega rit-
verki.
Þjóðin, 4. árg, 4. hefti
er nýkomin út. Hefst það á erindi,
er Gísli Sveinsson alþm. flutti á
héraösmóti Sjálfstæðismanna að
Egilsstöðum 24. ágúst s. 1., og nefn-
ir hanu það »Stjórnmál og lýð-
frelsi«.
Þá ritar dr. phil Einar Ól. Sveins-
son um Snorra Sturluson, Sig,
Bjarnason frá Vigur um Rjóöarmetn-
að íslendinga og Axel Thorsteinsson
um Styrjaldar- og alþjóðamál í
nóvember, Enn eru þar þýddar
greinar og framhaldssaga og um-
sagnir um bækur.
Fjóðin fæst hér á Akureyri hjá
Benedikt Benediktssyni kaupmanni.
JÓLAMESSUR í AKUREYR-
ARPRESTAKALLI:
Aðfangadagskvöld kl. 6: Akureyrl.
Jóladag kl. 2: Akureyri.
Jóladag kl. 5: Akureyri (barna-
guðsþjónusta).
2. jóladag kl. 12: Lögmannshlíð.
2. jóladag kl. 5: Akureyri
Sunnud. milli jóla og nýárs kl. 2:
Glerárþorpi (barhaguðsþjónusta).