Íslendingur - 05.04.1944, Page 4
*
tóLENpteíCtÍít
Heggur sá, er hlífa
skjldi.
Framhald af 1. síðu.
það öðruvísi eii greiða því hærra
kaup en það hefir haft »á möl-
inni«?
Þó að framannefnd lýsing á
sveilalífinu sé skrifuð að öðruni
þræði í spaugi, þá er hún ekki
heppileg til að bæta úr fólksekl-
unni við landbúnaðinn. Æskulýð
bæjarina, sem hollt va>ri aö kynn-
ast framleiðslustörfum úti um
byggðir landsins með því að vinna
að þeim um lcngri eða skcmmii
tíina, er nauðsynlegt að fá sem
sannnsta lýsingu al' þeim, eins og
þau eru rekin n.ú orðið. Allt of
margt fólk er enn á þeirri skoðun,
að vinnudagurinn við beyskapinn
úti,í sveitunum sé 12—14 stundir,
þó að hann sé nú mjög víða um
10 stundir (að þurrkdögum und-
anskildum). Einn bóndi hefir
meira að segja sagt þeim, er þetta
ritar, að hann láti ekki vinna
nema, 8 stundir á dag á sumrin,
nema þerridaga. Þá er og rétt að
vekja athygli á því, að mjög víða
hefir tækni við heyöflun fléygt
svo fram, að karlmenn þurfa lít-
ið sem ekkert að handleika orf og
]já og ekki binda einn einasta
bagga. Allt mesta erfiðiö er lagt
á hestinn. Hann dregur sláttuvél-
ina, rakstrarvélina og snúnings-
vélina, og þegar heyið er þurrt
orðið og komið í stakka, dregur
hann þá í heilu lagi heim í hlöðu.
Viðurgerningur við fólk er einnig
víðast batnandi, og þó að »soðn-
ingin« sé stundum vond, þá staf-
ar það einkum af því, að bændur
gera of mikið að því að kaupa ö-
slægöan fisk, sem er fljótur að
versna í löngum flutningum, f
stað {iess að kaupa hann hausað-
an og slægðan. Munurinn á »soðn-
ingunnk í sveit og bæjum annars-
vegar og mjólkinni hinsvegar er
þð hverfandi. Engum dettur í
hug, að injólk, sem búin er að
hristast í brúsum í löngum flutn-
ingum og blandast síðan misjafn-
lega kældri og meðfarinni mjólk
frá fjölda heimila sé jafngóð og
nýmjólldn, sem borin er fjrrir
kaupafólkið í sveitinni. FjósalykL
mun sízt óhollari en lyktin frá
sorp- og öskuhaugunum, sem oft
leggur fyrir vit »malarbúans« á
göngu hans gegnum rykmökkinn
á götunum, og rykið, seni vindur-
inn þyrlar upp í vit hans al' göt-
um og gangstéttuin er sjálfsagt
engu hollara en heyryk. Gegning-
ar að vetri eru. vissulega bindandi
og gcta eigi fallið niður á hátíð-
uni. En í hæjumini c'r líka margt
fólk, scm verður að sitja eða
standa við störf sín, jafnt helgi-
daga sem aðra daga. Mætti þar m.
a. nefna starfsfólk símans, starfs-
fójk veitingahúsa, lögregluþjóna,
mjólkurfiutningamenn, afgr.stúlk-
ur brauðsölubúða, starfsmenn út-
varps o. fl. o. fl.
Eins og það er talið heilsusam-
legt og þroskandi fyrir kaup-
staðahörnin að dveljast í sveit yf-
ir sumarið, gildir hið sama um
þau, þegar þau komast á legg.
Landbúnaðarstörf, einkum hey-
yinna og jarðrækt, eru heilsusam-
]eg og sltemmtilég, og áreiðanlega
meira þroskandi fyrir unga ínenn
en hin svonefnda »Bretavinna«,
sem var á sínutn tíma eftirsótt af
ungum mönnum, Þess vegna er
það lítt skiljanlegt, að imgir
menn, sem FA NOKKURN VEG-
INN RETTAR upplýsingar um
störfin í sveitinni, eins og' þau ei'U'
yfirleitt rekin nú orðið, skuli ekki
viija við þeim líta fyrir sama
kaup og' greitt er í bæjunum.
Sveitaheimilin. eru að vísu iriis-
jöfn. Á inörginn þeivra eru ný-
tízku húsakynni, rafsuða og raf-
lýsing, útvarp og sími og mikil
vélanotkun við búskapinn. Önnur
eru og mörg, er skortir allt þelta.
En bændurnir, sem liúa í nýju hús-
iiinim með ölluin nýlízku þægind-
unum kvarta engu síður en hinir
undan fólksskorti,
Gæii ekki verið, aö »barlómur-
inn« og" hinar ömurlegu lýsingar
sumra blaöa á sveitalífinu eigi
liöfuðsökina á þeim skorti? Að
unga fólkið í bæjunum álíti land-
Jiúnaðinn ennþá búa við sömu
skilyrði og á dögum afa þeirra og
ömmu, sem það hefir e.t.v. kynnst
af frásögn gamla fólksins eða les-
io um í bókum? Ef sú er ein aðal-
ástæðan, má segja, að þar »hegg-
ur sá er hlífa skyldi«.
J.
Skýrsla Mæötasívrksfieínd-
ar Mureyrar árið 1943.
Eins og að undanförnu starfaði
Mæðrastyrksnefndin að því, að
koma þreyttum mæðrum á hvíld-
arheimili yfir stuttan tíma að
sumrinu, ásamt ungum börnum
þeirra, sem þær óska að hafa með
sér, bæði þeim til heilsubótar og
einnig af því, að án þess kæmust
þær alls ekki að heiman. Að þessu
sinni fékk nefndin stað fý-rir kon-
urnar og börn þeirra á sumargisti-
liúsinu að Laugum í Reykjadal.
Reyndist það mjög hentugur stað-
ur, að flestu leyti, og voru kon-
urnar mjög ánægðar. Viljiim við
liér með votta þakklæti okkar lil
hlutaðeigenda (forstÖðumanns og
starfsfólks gistihússins). — AO
sirini hafði nefndin á sínurn veg-
um 19 konur og 11 börn. Hverri
konu voru ætlaðir 7—J.4 dagar eft-
ir vilja þeirra og þöri'. Beinn
kostnaður við dvöl þeirra á heim-
iltnu var 3051.00 kr. og ferða-
kostnaður 311.25. Vorn þó nokkr-
ar konur, sem borguðu lítilshátt-
ar upp í ferðakostnað. — Auk þess
styrks, sem nefndinni hel'ir verið
veittur, bæði frá bæ og ríki, er
einn dagur á ári sérstaklega fjár-
öflunardagur fyrir mæðrastyrk-
inn, það er »mæðradagurinn«, sem
er 4. sunnudagurinn í maí ár
hvert. Nú í ár ber þessi dagur upp
á hvítasunnudag, svo að fjáröflun-
iu verður að fai'a fram einhvern
annan dag, sem tilkynntur verður
síðar. En hvenær, san fjársöfnun-
in fer frain, treyslum við bæjar-
húum til þess að sýna skilning og
góðvilja og rétta hjálparhönd.
Sjálfstæðisfélag
Akureyrar
heldur fund í Verzlunar-
mannahúsinu (uppi) þriðiu-
daginn 11. apríl kl. 8.30 síð-
degis. Nánar í fundarboöi.
STJÖRNIN.
Athugið!
VEGGFÓÐUR og
MALNINGU
er bezt að kanpa hjá
BENEDIKT J. ÖLAFSSYNI,
Skipagötu 3.
Barnaskór,
í mörgum litmn, verða
seldir á laugardaginn fyr-
ir páska í
LÚFFU- ogi
HANZKAGERÐINNI
Hafnarstr. 88 (suðurdyr).
u-1 —■■■!'■ ■■■uin i iwwwm—w—
Krakkakotin
Ný gerð komin.
VERZL. LONDON.
Hús mitt
við Eyrarveg' 35 er til
leigu frá 14. maí.
Akureyri 4. apríl 1944.
ÞÖRHALLUR GUÐMUNDSSON.
PENINGABUDDA, með pening-
um í fundin á Gilsbakkaveg. —
Geymd í Gránufélagsgi. 5 uppi.
ISLENDING
vanlar nú þegar mann
eða iingling til að ,bera
blaðið út á Oddeyr'i.
ISLENDINGUR
fæst í lausasölu í Bókaverzlun
Gunnl. Tr. Jónssonar, Bókaverzl.
Eddu, Bókabúð Akureyrar og
Verzl. Baldurshagi.
Starfssvið nefndarinnar þarf að
stækka. Verkefnin eru mörg. Eng-
inn þjóðfélagsþegn á betra skilið
en mæðurnar og enginn þjóðfé-
lagsþegn þarfnast meir skilnings.
nærgætni og aðstoðar en mæðurn-
ar. Styrkið okkur því í starfinu.
Nefndln,
Eins og að
undanföniu
höfum við úrvalskjöt til pásk-
anna; t
SVINAKJÖT
DILKAKJÖT
NAUTAKJÖT
HANGIKJÖT
ALLSKONAR
ÁLEGG OG SALÖT
Pantið í kvöld.
NÝJA KJÖTRÐÐIN.
Nýjar bækur:
Vopn guðanua, leikrit Davíðs
Stefánssonar.
Heilsufræði lianda liúsmæðr-
um, e. Kristínu ölafsdóttur.
Guö er oss hæli, e. sr. Friði’ik
Friðriksson.
Vörðubrot, e. Jónas Guð-
mundsson.
Með tvær hendur tómar, saga
e. Ronald Fangen.
Ævisaga Bjarna Pálssonar
landlæknis.
Rauðar stjörnur, e. Jónas Jóns-
son.
Um ókunna stigu, ferðasög'ur.
Gróður og sandfok, e. Guðm.
G. Hagalín.
Undir gimnfána lífsins.
York liðþjálfi.
Gríma 19. árg.
Svarti Pétur og Sara.
Bláskjár.
Bambi;
Tíu þulur.
Duglegur drengur.
BÖKAVERZL.
GUNNL. TR. JÓNSSONAR.
fþrðttablaðið,
1. og 2. hefti 8. árg. er ný-
komið út.
Nýir áskrifendur geta ennþa
1 fengið 7. árg., en birgðir eru
mjög takmarkaðar. Gerist
því áskrifendur í tíma.
Haraldur Sigurgeirsson.
KAUPAKONUR
KAUPAMENN
STARFSSTtJLKUR
LINUSTOLKUR
vantar í sumar.
VINNUMIÐLUNAR-
SKRIFSTOFAN.
í l taaunitya Ijðnji Jrtowwur kX