Íslendingur


Íslendingur - 14.07.1944, Side 1

Íslendingur - 14.07.1944, Side 1
i ISLENDINGUR Útgefsundi: Blaðaútgáfufélag Akureyrar. Ritntjóri og afgreiðslum.: JAKOB Ö. PÉTURSSON Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118 Verð árg. 12 ki*. 1 lausasölu 35 au. eint. Prentsmiðja Björns Jönssonar h. f. Verður verkíall í bæiarvinnunni ? Á fundi bæjarstjórnar 30. maí sl. var kosin nefnd til að semja um kaup og kjör í bæjar- vinnu við nefnd frá Verka- mannafélagi ' Akureyrarkaup- staðar. Gerðu nefndir þessar uppkast að samningi, er var til umræðu á fundi bæjarstjórnar 4. þ. m. Er uppkastið í 11 grein- um, og féllst bæjarstjórn á all- ar greinarnar nema hina 10., sem er svoldjóðandi: „Meðlimir Verkamannafé- lags Akureyrarkaupstaðar * og annarra þeirra stéttarfélaga í bænum, sem eru meðlimir Al- þýðusambands lslands, og aðr- ir þeir, sem stjórri félagsins veilir vinnurétfindi, skulu sitja fyrir þeirri verkamannavinnu, sem framkvæmd er, enda séu þeir hæfir til vinnunnar að mati verkstjóra og trúnaðarmanns og sanni réttindi sín með fé- lagsskírteini. Allir verkaménn, sem búsettir eru á félagssvæð- inu, eiga rétt á að ganga í V erbamannaf élag Akureyrar- kaupstaðar. Ákvæði þessarar greinar gilda þó ekki, ef um framfærsluráðstöfun er að ræða“. Þar sem grein þessi heggur mjög nærri almennum mann- réttindum, vildi meiri bluti bæj- arstjórnar íella bana úr samn- ingunum, áður en þeir væru undirritaðir. Hinn 10. þ. m. sendir svo stjórn Verkam.fél. bæjarstjórn bréf, þar sem henni er tilkynnt, ,að trúnaðarmannaráð félagsins hafi einróma ályktað að félag- ið fyrirskipi vinnustöðvun í allri verkamannavinnu, er bær- inn bafi með höndum frá og með 19. þ. m., ef samningar hafi þá ekki tekizt, enda líti það svo á, að bæjarstjórnin hafi hafnað samningstilboði félags* ins með því að fella eina grein þess. í fyrradag var haldinn auka- fundur í bæjarstjórn Vegna þessa eriudis og þar samþykkt að kjósa nýja samninganefnd til viðræðna við Verkamanna- félagið, Kosningu hlutu: Helgi Pálsson, Jakob Frímannsson og Áskell Snorrason. Um úrslit þessa máls skal engu spáð. Verkfallsboðunin stafar ekki af ágreiningi um kaup og kjör, beldur um það á- kvæði, að Verkamannafélagið geti þrýst mönnum inn í félag- ið með því að hafa á valdi sínu að útiloka þá frá vinnu, ef þeir standa utan félagsskaparins. Til þessara kúgunarbragða vill félagið Má samþykki bæjar- stjórnar. SLYSFARIR Um kl. 9 sl. föstudagskvöld varð slys á gatnamótum Krabba- stígs og Oddeyrargötu. Er bif- reiðin A 277 kom ofan Odd- eyrargötu og ók fram hjá Krabbastíg, kom drengur á reið- hjóli ofan stíginn, beygði fram bjá bifreiðinni, en rakst á bana og féll í götuna. Meiddist liann albmikið, og fór bílstjórinn þegar með hann í sjúkrahúsið. Drengurinn heitir Sigtryggur Sigtryggsson (Þorsteinssonar) á Þrúðvangi, Akureyri. Um kl. 10 sl. laugardags- kvöld var lögreglunni tilkynnt, að maður lægi mikið slasaður skammt austan við veginn norð- ur af Gróðrarstöðinni. Fór lög- reglan með héraðslækni á vett- vang, og var maðurinn þegar fluttur í sjúkrahúsið, en lézt þar skömmu síðar. Maðurinn var Guðmundur Halldórsson Hafnarstræti 2 hér í bæ. Var bann ríðandi á ferð, og þykja líkur benda til, að hann hafi lent á vírstagi úr símastaur, fallið við það af baki og lent með höfuðið á steini. Guðmund- ur var kvæntur og átti 1 barn. JÖRÐ, 1. h. V. árg. flytur greinar um þjóðfélags- mál og stjórnmál e. ritstjórann og Pétur Sigurðssoni, grein um ísfirzka blaðamennsku e. Krist- ján frá Garðsstöðum, Um tón- listarlíf í Rvík 1943 e, Baldur Andrésson, leikdóm um Vopn guðanna e, ritstj. o, m. m, fl. Bílaárekstur Sl. laugardag varð bifreiða- árekstur í Brekkugötu. Bifreið- in A 276 var á leið út á bíla- verkst. „Hamarinn Mjölni“, þar sem gera átti við hemla hennar. Mætti hún þá annarri vörubifreið, rakst á hana, en ók síðan á símastaur vestan göt- unnar. Við áreksturinn rakst hin bifreiðin á barnakerru og velti henni lit af götunni, en stúlkan, sem kerrunni ók, hafði í tæka tíð bjargað barninu úr kerrunni. Þegar bílstjórinn á A 276 renndi bifreiðinni aftur á bak frá símastaurnum, lenti hún fram af veginum. Bílstjór- inn hafði ekki ökuleyfi og við- urkenndi að liafa neytt áfengis skömmu áður en áreksturinn varð. Iiestur fellur fram af Goðafossi óskaddaður Fyrir nokkrum dögum sást hestur í gljúfrunum við Skjálf- andafljót, undir Goðafossi. Klöngruðust menn niður til hans, komu á hann böndum og teymdu hann niður fljótið, þangað sem unnt var að ná hon- um upp. Hesturinn var lítillega fleiðraður. Um 150 metrum fyr- ir ofan Goðafoss sást slóð eftir hest út í fljótið, og er talið full- víst, að hann hafi lagt þar út í til stroks, en borizt frarn af foss- inum og komið niður í hyl þar undir. , • Kaffitímar ekki greiddir. * ____. . -.- Frásögn af launasamningum í síðasta blaði hefir valdið mis- skilningi hjá sumum mönnum, þar sein sagt er, að kaffitímar komi ekki til frádráttar. Var þar átt við, að þeir fengjust ekki dregnir frá 8 stunda vinnudegi, þannig að verkamenn verða nú að vinna raunverulega 8 stuncí- ir á dag samkvæmt samningun- um. Kaffitímar eru því ekki greiddir. Gj alddagi blaðsins # var 15, júní, YMSAR FREGNIR Vísitalan fyrir júlí hefir ver- ið reiknuð ilt og reynst 266 stig. ¥ Jón Bergsveinsson erindreki Slysavarnafél. Islands er nú í lningferð kringum land til at- hugunar á slysavarnastöðum í tilefni af gagnrýni þeirri, er fram kom við Laxfoss-strandið í vetur. ★ Útför Guðmundar skálds á Sandi fór fram 6. þ. m. að við- slöddu miklu fjölmenni. Auk húskveðju og líkræðu voru fluttar kveðjuræður og kvæði í heimahúsum og kirkju. Var at- höfnin öll hin virðulegasta. ¥ Nýlega er látinn í Reykjavík Emil Thoroddsen tónskáld, að- eins 46 ára gamall. Hann var óvenjulega fjölhæfur listamað- ur og löngu þjóðkunnur fyrir tónlistarstörf sín. ¥ Sigurður Þórarinsson jarð- fræðingur hefir nýlega varið doktorsritgerð um eyðingu Þjórsárdals við háskólann í Stokkhólmi. ¥ Húsaleiguvísitalan fyrir tímabilið 1. júlí—1. okt. 1944 er 137 stig. ★ Jónas Jónsson alþ.m. hefir hafið útgáfu á þjóðmálatíma- riti, er hann nefnir „Ófeig“. ¥ A stórstúkuþinginu, sem haldið var hér á Ak. síðustu viku voru 20 karlar og konur kjörnir heiðursfélagar í tilefni af 60 ára afmæli reglunnar. Meðal þeirra voru Akureyr- ingarnir: Lárus Thorarensen, Sigurgeir Jónsson söngkennari og Hallgr. Jónsson járnsmiður. ¥ Stofnað hefir verið fyrsta kvikmyndafélag á íslandi, er nefnist Saga h. f. Tilgangur fél. §r að taka kvikmyndir af landi og þjóð og ísl. atvinnuháttum til kynningar erlendis og flytja inn fræðslu- og kennslukvik- myndir. Stjórn fél. skipa: Helgi Elíasson fræðslumálastjóri, Há- kon Bjarnason skógræktarstj., Haraldur Á. Sigurðsson leikari, Jónas B. Jónsson fræðslufull- trúi og Sören Sörensen lyfsölu- stjóri, sem jafnframt er fram- kvæmdastjóri þess. A fundi í ríkisráði 28. f. m. voru 14 refsifangar náðaðir skilorðsbundið af óútteknum hluta refsinga, 76 menn náðað- ir skilorðsbundið af ídæmdum refsingum, mildaðar sektir á 8 landhelgisbrjótum, 6 menn náð- aðir skilorðsbundið af óúttek- inni refsivist og refsingum 56 manna vegna ölvunar við akst- ur breytt í 1000 króna sekt. Tóku náðanir þessar til 160 manna. AKUREYRI 1872 Þ Æ T T I R UR ENDURMINNINGUM LÁRUSAR THORARENSEN. Framh. Mig minnir, að fyrir neðan þetta hús stæði annað hús, ekki í réttri línu. Hygg það hafa staðið í trjágarði þeim, sem nú er bak við hús Jóns Geirssonar. í þessu húsi bjó Kristján amt- maður og síðar Þorgrímur Johnsen læknir. Þá kemur nr. 7 við Lækjar- götu. Það var lítið hús, og áttu það tveir menn: Sigvaldi, faðir Ágústar Sigvaldasonar og Hall- grímur Davíðsson, faðir Okta- víu, konu Jóns Steingrímssonar fiskimatsmanns, sem hefir stækkað húsið og býr þar nú. Fyrir ofan brúna var hús. Ekki man ég, hvort það var með torfþaki eða ekki. í því húsi bjó Jóbannes, faðir Jóns Jó- hannessonar og frú Dómhildar. Nú býr Jón á þessum stað í húsi því, er hann lét byggja á rúst- um hins, og er það nr. 9 í Lækj* argötu. Rétt sunnan við nr. 9 stóð hús með torfþaki. í því bjó Haf* i Framh. á 3. síðu.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.