Íslendingur


Íslendingur - 14.07.1944, Blaðsíða 4

Íslendingur - 14.07.1944, Blaðsíða 4
DÖMUBLÚSSUR \ úr prjónasilki og ull (]ersey) nýkomnar Hannyrðaverzl. Ragnh. O. Björnsson STÚLKA , : && óskast í vist á heim'ili Jóns Sigtryggssonar, tannlæknis, Reykja- vík, 1. eða 15. sept. Kaup eftir samkomu- lagi. Upplýsingar hjá Rafveitustjóranum, A k. TIL SÖLU er bátur með 3 ha. Sólóvél. — Uppl. hjá vélstjórunum, frystihiísi Km E. A. Snemmbær kýr til sölu. Jón G. Jónsson Eiðsvallag. 20. íbúð óskast í haust. Mikil fyrir- framgreiðsla. R. v. á UNGUR MAÐUR óskar eftir litlu herbergi til leigu í sumar eða næ$ta ár. Það sé ekki mjög innarlega í bænum. Góð umgengni. R. v. á. Á It E I T á Elliheimilið Skjaldarvík gefast vel. Sjómenn og aðrir, minnist þess. ELLIHEIMILIÐ SKJALDARVÍK. JÖRÐ 2. hefti V. árg., komið í bókaverzl. Áskriftum veitt móttaka í HANNYRÐAVERZLUN RAGNH. 0. BJÖRNSSON Kaupum hreinar LÉREFTSTUSKUR Prentsmiðja Björns Jónssonar h. f. H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS AUKAFUNDUR Aukafundur í Hlutafélaginu Eimskipafélagi ís- lands, verður haldinn í Kaupþingssalnum í húsi fé- lagsins í Reykjavík, laugardaginn 18. nóv. 1944 og hefstkl 1 e. h. D AGS KRÁ: 4 1. Tillögur til lagabreytinga. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngu- miða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrif- stofu félagsins í Reykjavík, dagana 15. og 16. nóv- ember næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrif- stofu félagins í Reykjavík. Reykjavík, 9. júní 1944. r • STJORXIN KAUPTAXTI Trésmiðafélags Akureyrar. Dagvinna kr. 3.35 á klst., grunnkaup. Eftirvinna reiknast með 50% og nætur- og helgi- dagavinna með 100% álagi. Á allt grunnkaup komi full verðlagsuppbót. Dag- vinna hefst kl. 7.30, nema öðruvísi semjist og telst til kl. 17, þar í 1 % klst til matar og kaffis. Eftirvinna telst frá kl. 17 til 20, eftir það næturvinna til næsta vinnudags. Vinni félagsmenn utanbæjar, skulu þeir hafa frían ferðakostnað og kaup á leiðum. Ennfremur frítt uppi- hald í fjarveru frá heimili. Slasist maður við vinnu, svo , að hann verði óvinnufær, skal harin halda fullu kaupi í 6 daga frá því er slysið vildi til. Taxtinn gengur í gildi 15. júlí 1944. Stjórnin. S ADIE ■ KVIKMYNDASAGA Lauslega þýdd Framhald1 getur vopn konunnar í baráttunni fyrir því takmarki, er hún óskar að ná: að vekja eftirtekt og eftirspurn, vera hin dáða og þráða, er mennirnir krjúpa fyrir og biðja um náð. Dag nokkurn, þegar hún er að taka til í herbergi sínu, kemur Ameena inn til hennar. Þessi væna Suðurhafskona er áhyggjufull út af Sadie. Hún veit ekki, hvað um er að vera, en skilur, að Sadie líður ekki vel —, þó að það sýn- ist raunar óhugsandi að vera ekki hamingjusöm, þegar jafn indæll karlmaður og Tim O’Hara ann henni. Ameena reynir að hressa hana upp, en Sadie er frá- hrindandi. , Hún tínir skrautmuni sína saman og gefur Ameenu þá. Hvort þessi roskni kvenmannsbeljaki er ennþá fær um að endurvekja einu sinni bjarmann af dvínandi töframagni sínu, er meir en vafasamt, — en eigi að síður gengur hún ánægð á brott með forsmáð fegrunartæki Sadie. Sadie klæðir sig í síðan, pokalegan slopp, og hárið flæðir slétt niður um eyru hennar o'g háls. Hún er farin að líkjast hinni iðrunarfullu Magðalenu. Nærvera Ilamiltons rænir liana öllum mætti. Hann er sí- fellt á verði um hana. Dag nokkurn gefst hún upp á einstæð- ingsskapnum og þögninni og fer inn til Hamiltons. Það má lesa úrræðaleysið og óttann úr galopnum aug- um hennar. — Herra Hamilton, hjálpið mér, — ég er hrædd, — ég er hrædd. Hamilton má taka á öllu þreki sínu til að halda sér í skefjum. Hann hefir líka átt sínar andvökunætur. Hann hef- ir líka þessa dagana átt í harðri baráttu, þyngsta stríði við sjálfan sig. Nótt eftir nótt, þegar dyggðum prýdda konan hans er sofnuð, læðist liann brott úr lijónasænginni og trítl- ar eins og þjófur út í ævarandi rigningu hitabeltisnæturinn- ar til að staonæmast undir svefnherbergisglugga Sadie. Þar stendur liann og verður holdvotur, meðan augun skirna eftir ljósröndinni og hver hugsun hans snýst um hana, þá, sem þarna er inni, og liggur nú vafalaust vakandi á beðin- um. En um alll þetta má enginn maður fá nokkra vitneskju. Með hrollkenndri kvöl finnur presturinn, að hans eigið þrek er að fjara út í þessari ómannlegu baráttu. Eina leið hans til sjálfsstjórnar er sú, að vera stöðugt harðari í kröf- um við Sadie um afturhvarf og iðrun og reyna þannig að spara dvínandi mátt sinn. Nú, þegar Sadie situr þarna gegnt honum, áræðir hann varla að líta á liana. — Sadie, treystið á. mig, — þá þurfið þér ekki að vera hræddar. — En ég veit ekki, hvað ég á að gera. — Biðjið þann eina, sem getur hjálpað yður. Og Sadie spennir greipar í úrræðaleysi. Hamilton lítur snögglega á hana með ógnþrungnu augnaráði. — Sadie, þér hafið 1 ifað hneykslanlegu lífi. Þér hafið atað yður í eigin löstum. Aðeins með því að bæta fyrir syndir yöar, hafið þér von um frelsun. Framhald + KAUPTAXTI MÁLARASVEINAFÉL. AKUREYRAR Dagvinna kr. 3.35 á klst. Eflirvinna reiknast með 50% og nætur- og helgidagavinna með 100% álagi. — Á alll grunn- kaup komi full verðlagsuppbót. — Dagvinna liefst kl. 7.30, nema öðruvísi semjist og telst til kl. 17, þar í 1% klst. til matar og kaffis. Eftfrvinna telzt frá kl. 17—20, en næturvinna síðan til næsta vinnudags. Vinni félagsmaður utanbæjar, hafi hann frían ferðakostnað og kaup á leiðum. Ennfremur fæði og húsnæði ókeypis í fjarveru frá heimili. Taxtinn gildir frá og með 1. ágúst 1944. ] Stjórnin Fyrirliggjandi vörur frá Cliemia h. f. BETAMON í gl. og pijkkum PECTINAL í pökkum FLÖSKULAKK — VANILLETÖFLUR SALATOLÍA — SKILVINDUOLÍA REYKELSI — EFTIR RAKSTUR „ELITE“ o. fl. Vœntanlegt: SÓLBRUNAOLÍA------ SHAMPOON í gl. o. fl. vörur. — ULTRA SPORTCREM. Heildverzlun Yalg. Stefánssonar Sími 332 Akureyri

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.