Íslendingur


Íslendingur - 13.04.1945, Blaðsíða 3

Íslendingur - 13.04.1945, Blaðsíða 3
ÍSLENDINGUR Föstudaginn 13. apríl 1945 ÍSLENDINGUR Útgeíandi: BLiSaútgáfufíl. Akurcyrar. Ritstjórax: Bártur Jakobsson og Jakob Ó. Pétursson. Skrífstofa Hafnantr. 101. Sími 354. Aoglýaingar og afgreiVala: Jakob Ó. Pétursson, Fjólugata 1. Sfmi 375. — Póathóli 118. Prentsmiðja Bjöms Jónssonar h.f. VIÐHORF Margt hefir tekið stakka- skiptum, síðan íslendingur lióf göngu sína fyrir 30 árum. Á sviði tækninnar hafa framfarir og hreytingar orðið nær ótrú- lega miklar á ekki lengri líma, og á sviði þjóðfélagsmála hafa orðið feikilegar byltingar. Hins- vegar er um hið síðarnefnda það að segja, að margar af þeim breytingum og umbótum, sem hafa átt sér stað, eru enn ekki fullreyndar. Er á , sviði þjóð- félagsmálanna margt það í deiglunni, sem erfitt eða óger- legt er að átta sig á, hvað úr verði. 1 stjórnmálunum hefir margt breytzt. Nýjar stefnur hafa kom- ið upp, þotið fram hjá eins og vígahnettir, leyst upp og horfið án þess að skilja eftir nokkur teljandi áhrif. Aftur hafa aðrar stefnur valdið straumhvörfum í lííi þjóðanna, og surnar haft geigvænlegar afleiðingar, eins og kunnugt er. Þrátt fyrir allt þetta umrót á stjórnmálasviðinu, hefir ein meginregla þó staðið af sér alla storma óhögguð, og stendur enn í fullu gildi. Þessi regla er ein af höfuðstefnumálum stjórn- málaflokka í mörgum löndum, m. a. Sjálfstæðisflokksins hér á landi, en hún er um athafna- frelsi einstaklingsins, rétt ein- staklinga til þess að ráða sjálf- um sér og sínum málefnum. Hugsjón þeirri, sem liggur til grundvallar kenningunni um frelsi einstaklingsins hefir auk- izt fylgi nú á síðustu árum. Um þáð bera greinilegan vott álykt- anir alþjóðaráðstefna, sem haldnar hafa verið, síðan núver- andi styrjöld liófst. Meira að segja þeir, sem fastast hafa sótt það að keyra allt í viðjar ríkis- valds og eftirlits, sósialistar, hafa látið lítið til sín taka í þessu efni. Ef til vill er þeim að verða, eða orðið Ijóst, að stefna þeirra hefir gleym) einu höfuðatriði í þjóðfélagsmálun- um, því mannlega í mönnunum. En það er einmitt þetta, sem stefna sú, er Sjálfstæðisflokkur- inn íslenzki aðhyllist, tekur hvað mest tillit til, hinni mann- legu þrá eftir að eignast eitt- hvað og mega njóta þess, hugsa, tala og rita frjálst og hindrunar- laust. Þessir eiginleikar manna munu verða uppi meðan mann- KIRKJAN. MessaS á Akureyri næstk. sunnudag kl. 2 e. h. Stúkan ísafolil-Fjallkonan heldur fund n. k. þriðjudag 17. apríl kl. 8,30 í Skjaldborg. Venjuleg fundar- störf. Inntaka. — Erindi: Pétur Sigurðs- son, erindreki, upplestur, framhaldssagan o. fl. — Félagar eru beðnir að fjölmenna. Leikfélag Akureyrar og karlakórinn Geysir hafa nú sýnt Gamla Heidelberg 10 sinnum, auk frumsýningar og sýningar fyrir menntaskólanemendur. Hefir leik- urinn yfirleitt tekizt prýðilega, enda hefir aðsókn verið góð og leikmim vel tekið af almenningi. I leikdómi um Gamla Heidelberg, er birtist í „Verkamanninum" kom fram sá misskilningur, að leikurinn væri styttnr og færri lög sungin, en verið hefði, þeg- ar leikurinn var sýndur hér fyrra sinnið. Leikurinn er sýndur óbreyttur að' efni til að þessu sinni og ekkert styttur. í fyrra skiptið þegar Gamla Heidelberg var leik- ið, voru sungin 7 lög alls, en nú eru lög- in 10, og eitt þeirra er tvítekið, og er því síður en svo að minna sé um söng nú, en áður var. * Gamla Heidelberg verður að þessu sinni sýnt í síðustu skiptin á laugardag og sunnudag, en kl. 3 á sunnudag verður leikurinn sýndur • fyrir börn. Er það því í síðustu forvöð fyrir bæjarbúa og nær- sveitamenn að sjá þennan létta og skemmtilega sjónleik. Frá MœSrastyrksnefnd. Mæðrastyrksnefnd Akureyrar opnaði skrifstofu mið'vikudaginn 11. þ. m. j Brekkugötu 1, uppi, (Pöntunarfélagshús1 inu), gengið upp að sunnan. — Viðtals- tími: Mánudaga, miðvikudaga og föstu- daga kl. 5—7 e. h. alla dagana. — Til- gangur skrifstofunnar er sá, að veita einstæðings mæðrum upplýsingar og að- stöð í ýmsum vandamálum þeirra, sera þær þurfa að fá leyst. ~~ Einnig um sum- ardvöl, sem nefndin annast, nú eins og að undanförnu, fyrir þreyttar konur. Við vonumst eftir því, að allar þær mæður og yfirleitt konur þessa bæjar, sem eitthvað þurfa á hjálp okkar að halda, snúi sér til okkar í fullu trausti. Virðingarfyllst. MœSrastyrksnefndin. Brynleifur Tobíasson hefir beðið blaðið fyrir eftirfarandi: Til viðbótar því, er ég sagði uin blöð á Akureyri í grein minni í afmælislilaði Islendings, skal þess getið, að „Norðri" kom út iil 7. júní 1916 (hóf göngu sína 1906), og var Björn Jónsson ritstjóri hans síðustu árin. Auk þess gaf Jón Stefáns- son út blað frá 1914—1916, er nefndist „Fréttablaðið". Flutti það einkum fregnir af ófriðnum. Bílferðir eru nú haínar milli Reykjavíkur og Akur- eyrar tvisvar í viku með pó,st og farþega. Snjór er óvenjulítill á fjallvegum. ára gamall. 10. þ. m. lé~t að heimili sonar sfns, Norðurgötu 35 hér í bæ. Friðrik Einars- son verkamaður, 75 ára að aldri. Konu sína missti Friðrik fyrir nokkrum vikum. 50 ára varð Bjarni Vilmundsson skip- stjóri, Fjólugötu 2 í fyrradag. Kvöldskemmtun heldur Svifflugfélag Akureyrar á Hótel Norðurland n. k. sunnudagskvöld. — Skemmtiatriði: Kvikmynd, gamanvísur, söngur (Smárakvartettinn), dans. Frá Iðnskólanum á Akureyri. Sýning á teikningum nemenda allra bekkja skólans verður opin fyrir almenn- ing í skólahúsinu næstk. sunnudag kl. 2—6 síðd. Sýndar verða fagteikningar hinum ýmsu iðngreinum, flatar- og rúm- teikningar og fríhendisteikning. Aðgangur ókeypis. Skólaslit fara fratn á santa stað sfðasta vetrardag kl. 5 síðdegis. Aðalfundur KEA á að hefjast hér í bænum miðvikudaginn 2. maí næstk., sbr. auglýsingu í blaðinu í dag. o—o Lðros Eggertsson (Stefánssonar stórkaupmanns) sem dvelur nú í Ameríku við að nema björgun á mönnum og skipum hefir samkv. bréfum frá utanríkisráðuneytinu til föður hans fengið kennslu og reynslu í mörgum greinum björgunar- starfseminnar, og er svo að orði komizt í bréfi sendiherra Is- lands í Washington, að í skýrslu frá admiral Chalker til sendi- ráðsins sé „farið lofsamlegum orðum um framíarir Lárusar í náminu og sagt, að hann hafi þegar aflað sér víðtækrar þekk- ingar á sviði björgunarmál- anna.“ Skýrslur frá björgunarstöðv- unum, sem hann hefir dvalizt hjá, Jierma, að mönnum hafi geðjast vel að honum og verið ánægja að því að veita honum fræðslu. Lárus er eini íslendingurinn, sem stundar björgunarnám er- lendis. Hjúskapur. Ungfrú Guðrún 1. Björnsdóttir SauSárkróki og Tobias Jóhanries8on stjóri. frá bíl- Dánardœgur. A annan páskadag lézt að Tcigi í Eyja- íirði Pálnti Brynjójfsion, einkasonur hjón- anna Sigríðar Jóhannsdóttur og Bryn- jólfs Pálmasonar bónda þar, aðeins 14 kynið lifir, og sú stefna, sem tekur tillit til þeirra, hlýtur að lokum að bera sigur úr býtum,, hvernig sem allt annað fer. JÖ. NYJA-BIO Föstudaginn kl. 9: Elskliugi á leigu Laugardag kl. 6, Vér fjallamenn Laugaráa< kL 9: Vér fjallamenn Sunnudag kl. 3: Vér fjallamenn, Sunnudag kl. 5: Sjá götuaugl. X Suiuauáaf kL 9: 1 Elskliugi á leigu Maðurinn minn, Jón Guðmundsson, byggingameistari á Akureyri, andaðist miðvikudaginn 11. þ. m. — Jarðarförin ákveðin síðar. MARÍA HAFLIÐADÓTTIR. Maðurinn minn, Ólofur Jokobsson andaðist síðastliðinn sunnudag’á heimili sínu Brekku Glerár- ■ þorpi. — Jarðarförin ákveðin þriðjudaginn 17. þ. m. og hefst með húskveðju á heimili hins látna kl. 1 e. h. KRISTBJÖRG JÓNSDÓTTIR. TVÆR STULKUR óskast að KRISTNESHÆLI 14. maí n. k. eða fyrr. MJÖG GÓÐ KJÖR. — Upplýsingar gefur YFIRHJÚKRUNARKONAN p | * g 1 I m Vanti yður GÓÐA BÓK til FERMINGARGJAFA þá fæst hún hjá okkur. Skrautritum á bækur. Teiknibestikk, tungumálaplötur, skrifmöppur L úr leðri, seðlaveski, lindarpennar, kventöskur ' og myndaalbúm eru einnig prýðilegar ferm- , ingargjafir. B ó k a b ú ð A k u r e y r a r Fátt er betra til FERMINGARGJAFA en góður lindarpenni.g Vandinn er aðeins að velja og hafna. WATERMAN’S? EVERSHARP?! Hvor er mí betri? — Brúnn eða rauður? Um það getið þið bezt dærnt sjálf, ef þið lítið inn og reynið báðar tegundir. Það getið þér aðeins í BÓK Vönduð svefnherbergishúsgögn, borðstofuborð og 4 stólar, til sölu og sýnis á Eyrar- landsvegi 24 rnilli kl. 6—7 e. h. Póll Sigurgeirsson. Kirkjukór Akureyrar hélt hljómleika í Akureyrar- kirkju á Páskadagskvöld. Á söngskrá voru lög eítir Björgvin Guðntundsson, Sigfús Einars- son, Svl). Sveinbj.son, Hándel, Bach o. 11. Auk þess lék Jakob Tryggvason, stjórnandi kórsins, orgelsóló. Var góður rómur ger að hljómleikum þessum, enda hefir kirkjukórinn góðum söng- kröftum á að skipa.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.