Íslendingur


Íslendingur - 03.08.1945, Síða 3

Íslendingur - 03.08.1945, Síða 3
Föstudaginn 3. ágúst 1945 ÍSLENDINGUR 3 ÍSLENDINGUR Ritstjórar: Bárður Jakobsson og Jakob Ó. Pétursson. m Útgefandi: BlaSaútgáfufél. Akureyrar. Skrifstofa Hafnarstr. 101. Sími 354. Auglýsingar og afgreiðsla: Jakob Ó. Pétursson, Fjólugata 1. Sími 375. — Pósthólf 118. Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f. HEPPILEG SAMLÍKING í Degi birtist nýlega forustugrein, þar sem samvinnu núverandi stjórn- arflokka er líkt við „Kanabrúð- kaup“, og mun alþekkt biblíusaga hafa verið höfð fyrir augum. Sam- kvæmt sögunni virðist sérstök gifta liafa fylgt þessu brúðkaupi, og fór það hið bezta fram. Það er ekki alveg víst, að Dagur hafi viljandi verið að breiða blessun sína yfir stjórnarsamvinnuna með þessari samlíkingu sinni, en hvað sem því líður, getur íslendingur vel tekið undir þá ósk sem felst í þessari grein Dags, að jafn gæfusamlega takizt með stjórnarsamvinnuna og með brúðkaupið í Kana. Annars verður þessi umrædda grein í Degi ekki gerð hér að um- talsefni. Mikið af henni er persónu- legur skætingur í garð annars rit- stjóra íslendings, og munu þeir sem Dag rita nú og framvegis fá óáreittir að þjóna lund sinni á þann hátt, án þess að þeim verði svarað. Þó er rétt að geta hér um ályktun, sem dregin er af því, sem nefnt var í grein í íslendingi fyrir nokkru, að þar sem samvinnuhreyfingin hafi sérstaklega undirbúið jarðveginn fyrir sósialisma, þá hljóti kommún- istar að eiga aðalfylgi sitt og höfuð- vígi í sveitum landsins. Þessi álykt- un er frámunalega heimskuleg, því að þótt það sé rétt, að þeir, sem játa samvinnustefnunni óskorað fylgi, eigi tiltölulega auðvelt með að sætta sig við ýmis stefnumál sósial- ista, eins og margsinnis hefir komið í ljós, þá byggist ályktun Dags á þeirri röngu forsendu, að samvinnu- stefnan sé ráðandi meðal bænda yfirleitt. Þetta er eins og allir vita, engan veginn tilfellið, en þar sem samvinnustefnan hefir gripið mest um sig, þar hefir kommúnisminn siglt í kjölfarið. íslendingur hefir nefnt dæmi, sem sanna þetta, og Dagur gat ekki og reyndi ekki að hrekja þau. Dagur veit líka fullvel, að það er ekki ný kenning, að sam- vinnuhreyfingip sé spor í áttina til sósíalisma. í Alþýðublaðinu 1917 var það beinlínis tekið fram, að á- kveðinn maður — Jónas Jónsson frá F iflu — hefði verið valinn til þess aii kenna bændum landsins þá sér- stöku tegund sósíalismans, sem sam- vinnustefna nefndist.Síðan hefir sam vinnu-sósíalisminn birzt með ýmsu móti og margvíslegum afleiðingum. Degi þýðir ekki að neita þessu, enda má öllum vera í fersku minni hin Handknattleiksni ót Norðlendinga fór fram á Akureyri dagana 28. og 29. júlí. Keppt var bæði í I. flokki kvenna og karla. Þátttakendur voru frá Knattspyrnuféllagi Akureyrar, I- þróttafélaginu Þór, Akureyri og íþróttafélaginu Völsungum Húsavík. í karlaflokki vann K. A. Þór með 12 mörkum gegn 9 og urðu þar með Norðurlandsmeistarar. í kvennaflokki fóru leikar þannig: Völsungur vann Þór 5 : 0. K. A. og Þór jafntefli 2 : 2. K. A. vann Völsung 3 : 2. Þór hlaut 1 stig. Völsungar 2 og K. A. 3 stig og urðu Norðurlands- meistarar. Yfirleitt má segja um þessa leiki, að þeir fóru vel fram. Þó ber sér- staklega að nefna leikinn milli K.A. og V'ilsunga, sem var einn bezti leikur, sem hér hefir sézt. Mátti varla milli sjá hvor mundi sigra, enda þurftu Völsungar aðeins að gera jafntefli til að vinna mótið. Var leikurinn mjög harður og spennandi, og lauk eins og að ofan greinir með sigri K. A. 3 : 2. Keppt var um handknaltleiksbik- ar Norðlendinga, gefinn af Jóni Egils kaupmanni, Ak. Þetta er í 4. sinn, sem keppt er um grip þennan og hafa Völsungar unnið hann tvisv- ar og K. A. tvisvar. Knattspyrnufélag Akureyrar sá um mótið. Stormjakkar Reiðhuxur BRAUNS-VERZLUN Páll Sigurgeirsson. |DE LAVAL Skilvindur •komnar aftur VERZL. EYJAFJÖRÐUR h.f. Atnerlskir leðurjakkarj nýkoranir Verzlunin Eyjafjörður h. f. Kappreiðar Hestamannafél. Léttis Hinar síðari kappreiðar Hesta- mannafélagsins Léttis fóru fram á skeiðvelli félagsins sunnudaginn 22. júlí s. 1. Veður var óhagstætt, norð- ankaldi og regn, og dró það úr að- sókn og ánægju áhorfenda. Reyndir voru 19 gæðingar á 3 spreltfærum og urðu úrslit þessi: 350 melra stökk: I. verlaun: Stjarna, eigandi Bjarni Kristinsson Ak., hlauptími 27,9 sek. II. verðl.: Stjarni, eig. Þorvaldur Pétursson Ak. — 28,0 sek. III. verðl.: Fálki, eig. Jón Heiðar Möðrufelli. 300 m. stökk: II. verðl.: Gráni, eig. Magnús Aðalsteinsson Grund, tími 24,7 sek. III. verðl.: Funi, eig. Kristinn Kjartansson Miklagarði, tími 24,7 sek. (sjónarmunur). Enginn hest- anna náði tilskildum tíma til I. verð- launa. 250 m. folahlaup: I. verðl.: Bóatír, eig. Gunnbjörn Arnljótsson Akureyri, tími 21,5 sek. II. verðk: Roði, eig. Mikael Jó- hannesson Ak., tími 21,7 sek. III. verðl.: Hrani, eig. Þorvaldur Jónsson Ak., tími 21,9 sek. Býlið Staðárlióll við Akureyri er til sölu. — Sér sala á íbúðarhúsinu á- samt eignarlóð gæti komið til greina. Ragnar Brynjólfsson Staðarhóli. í B Ú Ð 3ja herbergja íbúð óskast 1. okt. n. k. Uppl. í síma 491. Til sölu 2 armstólar, borð, dívan og skápur, — allt nýtt og rnjög ódýrt. Uppl. í síma 485. — Kafíikvarnir nýkomnar. Vöruhúsið h.f. rauðskj öldótta framsóknarpólitík, sem ríkti hér á landi um langt skeið. Kommúnisminn er sá mistilteinn, sem vaxið hefir^ á hinum pólitíska stofni samvinnuhreyfingarinnar, og nú er að verða svo komið, að mistil- teinninn er að ganga af móðurtrénu dauðu, enda hafa kommúnislar leynl og ljóst hælt sér af þeirri þróun. Við þessar staðreyndir getur Dag- ur bitizt, en þeim verður ekki breytt með skapvonzku og útúrsnúningi, eins og helzt virðist vera hugmynd- in hjá Degi, ef litið er á áðurnefnda forustugrein í því sambandi, sem skrifuð er af uppstökkum barna- skap, er allir brosa að, efi enginn tekur alvarlega. /*• BORÐBÚNAÐUR: Skeiöar — Gafflar Teskeiðar — Kaffiskeiðar „Nickel-Silver" nýkomið ÁSBYRGI Skipagötu 2. Sölut'urninn v. Hamarsfíg Fólkshíll Chevrolet ’30 til sölu. — Er til sýnis í kvöld kl. 8—9 og á morgun kl. 1—2 hjá timb- urhúsi K. E. A. / ATVINNA! Ungur — áhugasamur reglu- 1 maður með málakunnáttu og helzt eitthvað vanun bó'd:aldi getur fengið atvinnn fiá 1. september eða 1. októbei n.k. Bifreiðastöð Akureyrar h. f. Skrá yfir gjaldendur í Akureyrarkaup- stað til Lífeyrissjóðs Islands, fyrir árið 1945, liggur frammi til sýnis í skriístofu bæjarfógetans á Akur- eyri dagana 2. til 15. ágúst. Kærum út af skránni sé skilað til skattstofunnar innan sama tíma. — Akureyri, 2. ágúst 1945. Skattstjóri. ÍBÚÐ Ung hjón með eitt barn óska eftir íbúð 1. okt. n. k. — A. v. á. Sjómannapokar Olíusvuntur Vöruhúsið h.f. STÁLULL fæst í Verzl. ESJU. Samlagningarvél „Victor“ til sölu. — Verz!. Konráðs Kristjánssonar. EKKO CREM NIVEA CREM ARMBANDSÚR! Nýkomin vatns- og högg- held armbandsúr með 17 steina verki. —- Verð kr. 229,00. »— Brynj. Sveinss. h.f. Blettavatn • Kvillajabörkur Klórkalk Vandglas Brennisteinn iNYKOMIÐ: AXLABÖND og| BELTI sérlega vönduð. Leikfimiskór, Inniskór (léttir) Barnaskór, Karlmannasokkar, mikið úrval. ÁSBYRGI h.f. Utibú: Söluturninn v. Hamarstíg Sólbirtu- gleraugu lianda börnum og full- orðnum fást í Nokkrir barnavagnar seldir með niðursettu verði. Vöruhúsið h.f. NÝKOMIÐ: Olíusvuntur Sjópokar mjög ódýrt. Verzl ESJA.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.