Íslendingur - 05.05.1954, Page 1
XL. árgangur Miðvikudagur 5. maí 1954 20. tbl.
Stórankið innanlandsflug í sumar
Flugvélar F. í. fara þrjár ferðir milli
Akureyrar og Reykjavíkur
4 daga vikunnar
„Reynum að koma íil móts við óskir fólksins," segir
Hilmar Sigurðsson, fulltrúi F. í.
í vikunni sem leið hitti tíðindamað'ur blaðsins að máli Hilmar
Sigurðsso;i fulltrúa hjá Flugfélagi íslands h.f., er var s'addur hér í
bænum. Bar þá meðal annars á góma starfsemi flugfélagsins og
fyrirætlanir, svo og flugmál íslendinga yfirleitt. Báðum vér Hilmar
að skýra lesendum blaðsins eitthvað frá starfsemi félagsins og ferða-
áætlunum i nánustu framtíð og brást hann vel við.
— Við höfum nú nýverið geng-
ið frá sumaráætlun félagsins um
flug innanlands og til útlanda,
segir Hilmar, — og gekk sú áætl-
un í gildi 1. maí. Verður áætlun-
arflugferðum haldið uppi til 22ja
staða hér innanlands í sumar, og
verða samgöngur miklum mun
tíðari við ýmsa staði en verið
hefir, svo sem Akureyri, Egils-
staði, ísafjörð og Vestmannaeyj-
ar.
— Hvernig verður flugsam-
göngum háttað við Akureyri?
— Um mánaðamótin var ferð-
um hingað fjölgað í tvær á dag,
en frá og með 1. júní verða farn-
ar 3 ferðir daglega 4 daga vik-
unnar eða alls 18 ferðir á viku.
Þá verður flogið tvisvar í viku
milli Akureyrar og Egilsstaða og
Akureyrar og Kópaskers.
— Og til annarra staða?
— Til ísafjarðar verða flug-
ferðir frá Reykjavík alla daga
vikunnar nema sunnudaga, en
auk þess verða flugferðir til 5
annarra staða á Vestfjörðum:
Bíldudals, Flateyrar, Hólmavíkur,
Patreksfjarðar og Þingeyrar. Þá
er áætlað að fljúga til Egilsstaða
4 sinnum í viku, og til Fáskrúðs-
fjarðar og Neskaupstaðar verða
vikulegar flugferðir. Fjölgað
verður flugferðum milli Reykja-
víkur og Vestmannaeyja. Verða
farnar tvær ferðir á dag alla daga
vikunnar að sunnudögum midan-
skildum, en þá verður ein ferð.
Ennfremur verður flogið tvisvar
milli Vestmannaeyja og Skóga-
sands og einu sinni milli Vest-
mannaeyja og Hellu.
Þrjár flugferðir verða í viku
hverri til Sauðárkróks, tvær til
Blönduóss, Siglufjarðar, Fagur-
hólsmýrar og Kirkjubæjar-
klausturs. Til Hornafjarðar verð-
ur flogið þrisvar í viku og einu
sinni í viku til Hellisands. Með
,f
því að fjölga flugferðum milli
Reykjavíkur og nokkurra fjöl-
byggðustu héraða landsins, vill
Flugfélag íslands reyna að koma
til móts við óskir margra um
bættar samgöngur við þessa staði.
— En hvernig verður utan-
landsflugi hagað í sumar?
— Gullfaxi fer einu sinni í
viku frá Refkjavík til Prestwick
og London. Fer liann á mánudög-
um og kemur til baka sömu leið
daginn eftir. Á laugardögum fer
liann til Osló og Kaupmannahafn-
ar og til baka á sunnudögum, og
frá 15. júní fer hann alla mið-
vikudaga til Kaupmannahafnar
og heim aftur samdægurs.
— Og innanlandsflugið vax-
andi að sjálfsögðu?
— Já, og það mjög ört. Flug-
félag íslands hefir haldið uppi á-
ællunarflugi milli Akureyrar og
Reykjavíkur síðan í maí 1938.
Það ár flutti félagið samtals 770
farþega innanlands, en árið 1953
voru fluttir 41928 farþegar, þar
af 35431 innanlands. Á flugleið-
inni Akureyri—Reykjavík—Ak-
ureyri hafa verið sívaxandi flutn-
ingar frá ári til árs, og fullvíst
má telja, að ennþá muni verða
slórauknir flutningar á þessari
lelð, og þá einkum, er hinn nýi
Akureyrarflugvöllur verður tek-
inn í notkun, en þá munu öll af-
greiðsluskilyrði stórbatna til
þæginda fyrir farþega.
-— En flugvélaeignin?
— Já, hún er nú þegar orðin
of lítil vegna sívaxandi flugsam-
gangna hér innanlands, en vonir
standa til að úr rætist á næstunni.
Mun ný Douglasflugvél bætast í
flugflotann, væntanlega snemma í
sumar, og verða þá fjórar Dougl-
as-flugvélar í ferðum innanlands
auk tveggja Katalínubáta, er
fljúga til þeirra s'aða, er ekki
hafa flugvelli, svo sem ísafjarðar
og Austfjarðahafna, en Douglas-
vélarnar taka 28 farþega.
Yfirleitt eru allir loftflutningar
stórvaxandi á flestum leiðum,
ekki aðeins farþegaflutningar,
heldur einnig póstflutningar og
vöruflutningar. Frá og með 1.
okt. í fyrra tók Flugfélag íslands
að sér alla póstflutninga með
samningi við Póst- og símamála-
stjórnina, og þykir mörgum íbú-
um Vestfjarða og Auslfjarða a.
m. k. hafa skipt um til hins betra
að fá dagblöðin í Reykjavik sam-
dægurs og þau koma út í stað
þess að fá heilan vikuforða eða
meira í einu eins og áður var.
— Hve margir starfa hjá fé-
laginu?
— Alls munu vera starfandi
hjá félaginu nú um 150 manns,
að með töldum afgreiðslu- og
umboðsmönnum á 25 stöðum á
landinu. En með því að við reikn-
um með lengdum flugtíma, hlýtur
starfsfólki að fjölga enn, a. m. k.
áhöfnum flugvéla.
Framh. á 8. síðu
Fdgaett btyMw)
var framið hér í bænum aðfara-
nótt s. I. mánudags 3. þ. m. —
Vörubifreiðin A 991, sem stóð
læst upp við Setberg, var tekin
og farið með hana langt suður
og upp fyrir bæ, upp að Miðhúsa-
klöppum, og þar var stolið úr
henni vatnskælinum, dynamó -og
framljósakúplum. Framrúður bif-
reiðarinnar voru rústmölvaðar,
1 og fleira var átt við farartæki
þetta, sem er dökk-græn G.M.C.-
I vörubifreið.
| Skorað er hér með á hvern
þann, sem séð hefði til nefndrar
bifreiðar umrædda nótt eða gæti
að öðru leyti gefið einhverjar
upplýs’ngar um mál þetta, að
hafa strax samband við lögregl-
una.
___,
Afgreiðsla Loftleiða h.f.
á Ferðaskrifstofunni.
Lofieiðir h.f. auglýsa hér í
blaðinu í dag sumaráætlun um
flugferðir frá Reykjavík til Staf-
angurs, Oslóar, Kaupmannahafn-
ar, Gautaborgar, Hamborgar og
New-York, ásamt fargjaldi frá
Reykjavík til allra áætlunarstaða.
Allar upplýsingar aðrar og af-
greiðslu hér á Akureyri annast
Ferðaskrifstofan við Strandgötu.
____*___
1-óreönsk móðir með barn sitt að baki tekur við rísi og niður-
soðinni vöru hjá borgarahjálpinni í Seoul í Kóreu, en hana
skipulögðu Bandaríkjamenn þegar í Kóren eftir vopnahléð og
vörðu til hennar allt að 200.000.000 dollara.
Tveir samsöngTar
Það virðist hafa komið fjörkippur í sönglíf bœjarins með sumar-
komunni, og er þar nú, skammt stórra höggva á milli. Um síðast-
liðna helgi héldu tveir blandaðir kórar opinbera samsöngva fyrir
bœjarbúa, og hefir heyrzt, að innan fárra daga eigum vér að fá að
heyra til fleiri kóra, auk þess sem Guðrún Á. Símonar syngur hér
annað kvöld á vegum Tónlistarfélagsins.
Kantötukór Akureyrar
reið á vaðið með samsöng í Nýja
Bíó s. I. föstudag. Hið góðkunna
tónskáld, Björgvin Guðmundsson,
stjórnaði kórnum nú sem fyrr af
sinni alþekktu snilli og þrótti.
Segja má, að nokkurt hlé hafi orð
ið á starfsemi kórsins eftir hina
velheppnuðu Norðurlandaför fyr-
ir þremur árum. Að þessu sinni
sýndi hann mörg ný andlit, sem
ekki hafa sézt í röðum hans áður,
en jafnframt söknuðu menn þar
gamalkunnra söngvara. Áberandi
var, hve margt ungt söngfólk skip-
ar nú kórinn, og er ánægjulegt að
sjá, að æskufólk skuli vilja taka
upp merki hinna eldri við að
halda uppi sönglífi bæjarins, og
það einmitt nú, þegar sönn ís-
lenzk tónmenning á í vök að verj-
ast fánýtri dægurlaga-tízku, inn-
lendri og erlendri.. Margir biðu
því þessa samsöngs með ærinni
eftirvæntingu, þar sem kórinn
hlaut nú að teljast nokkuð óráðin
gáta. En það má með sanni cegja,
að engir haía orðið fyrir von-
brigðum, svo óskipta a'.hygli og
aðdáun átti kórinn þetta kvöld.
Kórinn flutti lög eftir Björgvin
Guðmundsson, Jóhann Ó. Har-
aldsson, Sveinbj. Sveinbjörnsson,
Jónas Pálsson, Möhring, Wetter-
ling og Marschner, og var söng-
skráin að yfirgnæfandi meirihluta
ÍSLENZK eins og jafnan áður.
Einsöngvari með kórnum var frú
Helga Sigvaldadóttir, er söng sóló
í laginu „í rökkursölum sefur'*
og dúett með Hallfríði Árnadótt-
ur í „Nú enn er kominn aftan-
stund“ eftir söngstjórann. Hefir
frúin ljúfa rödd og ræður yfir
talsverðri söngtækni. Er hún að
heita má nýr söngkraftur í þess-
um bæ, og sama má segja um
Hallfríði, er gaman væri að heyra
í einsöngshlutverki. Undirleik
annaðist Árni Ingimundarson
söngstj óri.
Sérsaka ánægju vöktu tvö lög
á söngskránni: Frjálst er í fjalla-
sal eftir Kuhlau í raddsetningu
Björgvins Guðmundssonar, sem
er einkar skemmtileg, — og Deeár
sandur, glæsilegt lag eftir söng-
stjórann.
\Kórinn varð að tvítaka sum
lögin, og bárust söngstjóranum
blómvendir.
Kirkjukór Akureyrar
undir stjórn Jakobs Tryggvason-
ar, hélt samsöng í Nýja Bíó s. I.
sunnudag við góða aðsókn og
viðtökur. Á söngskrá voru 12
sönglög og tónverk eftir Karl Ó.
Runólfsson, Hallgrím Helgason,
Sigurð Þórðarson, Mozart, Beet-
hoven, Brahms, Haydn, Schu-
mann o. fl. Undirleikari með
kórnum var frú Margrét Eiríks-
dóltir en söngvarar Guðmundur
Karl Óskarsson, Kristinn Þor-
steinsson og frú Matthildur
Sveinsdóttir. Mörg laganna varð
kórinn að endurtaka. Meðal
þeirra laga, sem vöktu sérstaka
athygli á söngskránni, má telja
sænskt þjóðlag (í tæras'a kristalli
Framh. á 8. síðu