Íslendingur - 05.05.1954, Page 8
Me:saS í Akureyrarkirkju kl. 10 ár-
degis á sunnudaginn. — P. S.
Ferming i Lögmannshl.'ðarkirkju kl.
2 e. h. á sunnudaginn. — P. S.
Til Sólheimadrengsins, afhent blað-
inu kr. 100,00 frá M. 6.
Kaþólska kapellan (Eyrarlandsvcg
26). — Lágmessa kl. 10,30 árdegis á
sunnudaginn, sem er 3. sunnudagur eft-
ir páska. Ollum er heimill aðgangur
við messur.
Hjálprœðisherinn. í kvöld (miðviku-
dag) kl. 8,30 opinber sarakoma. Löti-
nant Jörundsson stjórnar. — Sunnudag
kl. 2 e. h. sunnudagaskóli, kl. 4 e. h.
útiramkoma og kl. 8,30 e. h. samkoma.
Allir velkomnir!
I.O.G.T. Stúkan Ísafold-Fjallkonan
heldur fund nœstk. mánudag á venju-
legum stað og tíma. Venjuleg fundar-
störf. Kosning fulltrúa á umdæmis-
stúkuþing og stórstúkuþing. — Kosið
í húsráð o. fl.
Húsmœðraskólajélag Akureyrar held-
ur aðalfund föstudagskvöld 7. maí kl.
8,30 í Húsmæðraskólanum. Venjuleg
aðalfundarstörf. — Kaffidrykkja eftir
fund. Stjórnin.
Hjónaband. Þann 1. maí sl. voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Johanna Birgitte Vinther og Karl
Fritjof Hovgaard skósmiður. Iljónin
voru gefin saman í Akureyrarkirkju.
Fimmtugur er í dag Hjálmar Hall-
dórsson sjómaður, Norðurgötu 12 hér
í bæ.
I.O.O.F. — 136578>/2 —
Eldri-dansa-klúbburinn lieldur síð-
asta dansleik sinn að þessu sinni laug-
ardaginn 8. þ. m. kl. 9 í Alþýðuhúsinu.
Frá Goljklúbbnum: Höggakeppni
með forgjöf var háð s. 1. laugardag. —
Keppendur voru 19. ELtir u.ðu: Agúst
Óiafsoon, m. 80 högg nettó, Jóh. Gauti
m. 81 högg og Jón Guðmundsson m. 81
högg.
„NÚ ER HLÁTUR
NÝVAKINN"
nefnist lítil bók, sem nýkomin
er út frá Bókaútgáfunni „Bloss-
inn‘ hér í bæ. Hefir hún inni að
halda nokkrar stuttar gamansög-
ur og kviðlinga, en flestar eru
sögurnar eða skrítlurnar ramm-
íslenzkar og sannar, að svo miklu
leyti sem sögur, er ganga manna
í milli, áður en þær eru skráðar,
gela talizt það.
Rósberg G. Snædal hefir 6afn-
að efninu, skráselt og búið undir
prentun. Getur hann þess í for-
málsorðum, að hér sé um að ræða
einskonar systurbók við gaman-
vísnakverið „Nú er ég kátur nafni
minn,“ cr út kom frá sama for-
lagi fyrir nokkrum árum og seld-
ist upp í 1. útgáfu á nokkrum vik-
um.
Bókin er prentuð í Prentsmiðju
Björns Jónssonar h.f. og er 4 ark-
ir að stærð.
Miðvikudagur 5. maí 1954
Annáll lslendings
APRÍL:
Samvaxnir tvíburar fæðast andvana
í Vestmannaeyjum.
*
Fjögurra ára telpa í Hafnarfi.’ði varð
undir olíubíl og fótbrotnaði illa.
ViciuiiskolB AkurcjTiir
tckur til starfa SO. iiiaí
Vinnuskóli Akureyrar starfar á fímabilinu fró 20.
maí til 20. sept. n.k. eða Í4 mónuði. Verkefni skól-
ans verður: Fiskþurrkun og garðrækt. Ákveðið er
að taka í skólann börn ó aldrinum 11, 12 og 13 óra
Tilhögun verður sú, að börnin
vinni annan daginn við fiskþurrk-
un, en hinn við garðrækt.
Garðræktin.
Skólinn leggur til ókeypis kenn-
ara, áhöld, útsæði og áburð. —
Verður börnunum grei't með
væntanlegri uppskeru, allt að 8-
faldri, en það sem fram yfir er,
gengur lil Vinnuskólans. Stjórn
skólans mun og aðstoða á allan
hátt við sölu jarðávaxtanna.
Börnunum verður úthlutaður
reitur til matjurlaræktar. Mun
skólinn sjá um útvegun á plönt-
um, en börnin greiði sjálf and-
virði þeirra.
Fiskverkunin.
Tekinn verður þveginn sallfisk-
ur til sólþurrkunar á fiskigrind-
um á svæði norðan Glerár. Börn-
in, sem þar vinna, mæti þann dag-
inn, sem ekki er unnið við garð-
ræktina, til vinnu við fiskinn. Á-
kveðið er að greiða börnunum
nokkra byrjunargreiðslu á klst.,
en endanlega greitt við skólasli',
eftir því sem -fiskverkunin gefur
af sér. Þau börn, sem óska eftir
vinnu í skólanum, eru skuldbund
in að vinna jöfnum höndum við
garðrækt og fiskþurrkun.
Umsóknir fyrir 12. maí.
Allar nánari upplýsingar gefui
Vinnuskólanefndin. Símar 1334
og 1645. Skriflegar umsóknir um
vinnu í skólanum þurfa að hafa
borizt fyrir 12. maí n. k. í Bóka-
verzl. Eddq h.f., Akureyri.
Vinnuskólanefndina skipa:
Árni Bjarnarson, formaður,
Guðmundur Jörundsson, útgerð-
armaður, frú Guðrún Guðvarðar-
dóltir og frú Hlín Jónsdóttir.
Jírti hvenféiaginu Hlíf
Kvenfélagið HJíf þakkar bæjarbúum
ágæla þátttöku í íjáröflun félagsins á
sumardaginn fyrsta, nú sem fyrr.
Þá vill félagið færa sérstakar þakkir
hinum mörgu, sem með beinu starfi
jða fyrirgreiðslu tóku virkan þátt í
fjáröflun dagsins, þar á meðal börnum
og fullorðnum, sem skemmtu eða að-
toðuðu á barnaskemmtununum í Sam-
komuhúsinu og önnuðust merkjasölu
dagsins, forstjórum kvikmyndahúsanna,
er gáfu aðgangseyri frá síðdegissýning
unum, stjórn Ifótels KEA fyrir frá
bæra lipurð í sambandi við kaffisöluna
og eiganda Brauðgerðarhúss Kristján-
ar leikskála til afnota fyrir börnin,
þegar veður leyfir ekki úlivi.t. Ýmis
lcgt fleira kemur til greina, sem gera
mætti dagheimilinu til bóta, en óvíst,
hvort fjárhagurinn leyfir meiri fram-
kvæmdir. Aðsókn að Pálmholti hefii
aldrei verið meiri en nú í vor, og sýnir
það ótvírætt, að stofnunin nýtur vin-
sælda bæjarbúa og kemur þeim í góð-
ar þarfir.
Kvenfélagið Hlíf óskar bæjarbúum
illum gleði og hagsældar á sumrinu.
F.h. Kvenfélagsins Hlífar.
Elinborg Jónsdóttir.
vegna t.'Sara og meira flugs, þá
er enn enginn hörgull á flug-
mönnum né flugvélavirkjum.
Flugskólinn Þytur í Reykjavík er
mjög sóttur, en auk þess er búið
að viðurkenna flugvirkjun sem
sérstaka iðngrein með iðnskóla-
námi.
Samtalið varð nú ekki öllu
lengra, en eftir því sem oss skild-
ist á fulltrúanum, geta Akureyr-
ingar skroppið lil Reykjavíkur
að morgni og verið komnir
þangað í miðdegisverð hjá kunn-
ingjum eða frændum og komiö
helm aftur að kveldi og hlýtt þar
á seinni fréttirnar í útvarpinu.
Eins og kunnugt er, hefir Flug-
élag íslands h.f, afgreiðslu hér í
bæ að Kaupvangsstræti 4, og veit-
r Kristinn Jónsson henni for-
slöðu.
TVEIR
SAMSÖNGVAR
Framh. af 1. síðu
ljósstafir logá), Ora pro nobis
eftir Piccalomini og þó einkum
tvö síðustu lögin eða verkin á
skránni: Þáttur úr oratóríinu
Árstíðirnar eftir Haydn og Hirð-
ingjar eftir Schumann, sem fór
kórnum einkar vel úr hendi. —
Sýndi kórinn, einkum er á söng-
skrána leið, að hann býr yfir all-
miklum þrótti, þólt ekki skipuðu
hann nema 26 manns. Þá er kórn-
um mikill styrkur að njóta aöstoö
ar hins mikilhæfa píanóleikara,
frú Margrétar Eiríksdóttur.
í helgitónverkinu Ora pro
uob.’s vakti einsöngur Kristins
Þorstoinssonar sérstaka ánægju
fyrir næma túlkun og hrífandi
ödd, er á'ti s:nn drjúga þátt í
Barn á fjórða ári verður undir bíl í
Hlíðarhverfi í Reykjavík og bíður
bana.
Um 70 manns á Seltjarnarnesi veik-
ist af svonefndum Taugaveikibróður
(paratyphus). Veikin rakin til kýr í
kúabúi á nesinu, er seldi ógerilsneydda
mjólk lil þeirra heimila, er veikin kom
upp á.
•
Skipvcrjar á Tungufossi bjarga tveim
mönnum af. sökkvandi flugvél í Rio-
liöfn í Brazilíu.
*
Leyfður innflutningur á 100 smálest-
um af nautgripa- og svínakjöti frá
Danmörku, samkvæmt heimild Alþing-
is vegna kjötskorts í landinu.
íbúðarskáli í Reykjavík eyðilagðist
af eldi ásamt innanstokksmunum og
falnaði íbúanna. Tvær fjölskyldur
bjuggu í skálanum.
heildaráhrifum tónverksins. Hinn
ungi og óreyndi einsöngvari,
Guðmnndur Karl Óskarsson, lof-
ar góðu, en skortir að sjálfsögðu
enn innFfun og fullkomið öryggi.
Frú Matlhildur Sveinsdóttir tók
að sér erfitt einsöngshlutverk á
síðustu stundu í veikindaforföll-
um annarrar og skilaði því á við-
unandi há't, þrátt fyrir litla sem
enga æfingu. Hin fagra rödd
henraar naut sín þó betur í loka-
laginu Hirðingjar eftir Schu-
mann.
K.órnum var ágætlega vel tekið
og þakkaö með lófataki og blóm-
gj'öfum. Má telja Akureyri vel á
vegi stadda, að eiga þarna á að
skipa tveim blönduðum kórum,
sem með öllu eru hvor öðrum ó-
háðir með söngkrafta.
Eldivoði á Iljaltcyri
Mjölgeymsluhús síldarverksmiðjunnar brenn-
ur. Bíll, traktor, síldarnætur o.m.íl, eyöileggst
í eldinum.
Jón:sonar fyrir ómetanlega aðstoð við
brauðbaksturinn. Fleiri aðila, einstakl
inga og fyrirtæki, mætti áreiðanlego
nefna, þótt látlð verði ógert, en alúð
arþakkir til ykkar allra.
Fjársöfnunin á sumardaginn fyrsta
nam að þessu sinni brúttó kr. 19077.00
- að frádregnum ko:tnaði kr. 17302.00.
Rennur sú upphæð öll í sjóð Dagheim-
ilisins Pálmholts.
Sunnudaginn fyrstan í sumri hélt
danshljómsveit frá bandaríska flug-
hernum hljómleika við eundlaug bæj-
arins tíl ágóða fyrir Pálmholt, en þá
komu inn kr. 3040.00. Færir Hlíf
hljómsveitarstjóra og félögum lians
beztu jiakkir tyrir, og jafnframt vill
félagið þakka hr. Jóni Egilssyni, for-
stjóra ferðaskrifstofunnar. sem fyrir
hönd íslenzk-amcríska félagsins átti
sinn mdda þátt í því, að Pálmholt
varð þessa aðnjótandi.
I Illíf hefir í hyggju að byggja í sum-
NNANLANDSFLUG
1 SUMAR
Framliald a/ 1. síffu.
— Hefir flugdögum fjölgað
hjá ykkur síöustu árin?
— Já, sérstaklega hefir flug-
dögum fjölgað til Akureyrar og
yfirleitt til Norðurlandsins við
hið fullkomna vitakerfi, sem
komið var upp í fyrra. Það er nú
orðið sjaldgæft, að flugdagar
falli úr milli Reykjavíkur og Ak-
ureyrar. Og með hinum auknu
flugsamgöngum hefir ekki aöeins
fjölgað farþegum, heldur eru
vöruflutningar einnig mjög vax-
andi.
— Og hafið þið all'af nóga
sérmenntaða menn til slarfa?
—: Já, ennþá er það. Og þó að
við þurfurn að auka áhafnirnar
Um kl. 9 í gærmorgun urðu
Hjalteyringar varir við óeðlilegan
reyk frá mjölskemmu Síldarverk-
smiðju Kveldúlfs. Er komið var
inn í mjölgeymsluhúsið var það
nær alelda innan, en þó tókst að
bjarga út blfreiðum, er voru þar
inni. en brált varð að hverfa und-
an eldhafinu- Beðiö var um að-
stoð slökkviliðsins á Akureyri,
og var þegar sendur slökkvibíll út
eftir með dælur og slöngur en
síðan hópur manna til aðstoðar
við slökkvistarfið. Engin tiltök
voru að slökkva í mjölhúsinu og
var þar mestallt brunnið, sem
brunnið gat, og þak fallið inn
fyrir hádegi.
Vélasalur og tilraunastofa verk-
smiöjunnar er sambyggt mjöl-
skemmunni, og snerist slökkvi-
starfið einkum að því að verja
það hvorttveggja og tókst það.
Mjölskemman með viðbyggingum
s!endur syðst af byggingum
Kveldúlfsverksmiðjunnar, og þar
sem norðangola var á, lagði eld-
inn ekki yfir aðrar byggingar.
Létti það verulega starfið við að
hefta útbreiðslu eldsins.
Ekkert mjöl var geymt í mjöl-
skeinmíinni, en talsvert var þar af
síldarnótum, er allar brunnu.
Einnig brann þar inni bifreiö,
traktor og fleiri landbúnaðarvél-
ar. sem þar voru í geymslu, og
sitihvað fleira. Af skemmunni
standa aðeins eftir steinveggirnir.
Tjóniö af bruna þessum er gífur-
legt, en engar tölur hefir blaðið
heyrt nefndar í því sambandi.
Um upptök eldsins var ekkert
upplýst í gær, en þá munu réttar-
próf hafa byrjað út af eldsvoÖan-
um.
___