Íslendingur - 07.07.1954, Síða 4
ÍSLENDINGUR
Miðvikudagur 7. júlí 1954
Kcmar ót
hvern miðvikudag.
Útgefandi: Útgáfujélag íslendings.
Ritstjóri og ábyrgSarmaður:
Jakob Ó. Pétursson, Fjólugötu 1
Sími 1375.
Skrifstofa og afgreiðsla í Gránufélagsgötu 4, sími 1354.
Skrifstofutími:
Kl. 10—12, 1—3 og 4—6, á laugardögum aðeins 10—12.
Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f.
Bær álagnanna
Útsvörin eru nú aðalumræðuefni bæjarbúa, síðan niðurjöfnun-
arskráin var lögð fram fyrir viku síðan. Atburðirnir í Guatemala
og Viet-Nam, Genfarráðstefnan og sólmyrkvinn hafa þokast í
skuggann fyrir þessu árlega umrreðuefni. Og hví skyldi það ekki
vera'? Úlsvörin hér á Akureyri snerta efnalega afkomu borgarans
miklu meira en heimsviðburðir og nát’úruundur. Allir vita, að
útsvarsálögurnar á Akureyri eru þyngri en í flestum eða öllum
öðrum bæjum á land.nu, og heíir því Akureyri stundum verið
nefnd ,,bær álagnanna". Með útsvarsálögunum hér eru tekjurnar
kroppaðar af borgaranum með alltof litlu tilliti til þess, hvort hann
á eignir að bakhjarli eða er í sökkvandi skuldum. Hefir því sú
skoðun fest dýpri rætur, að á Akureyri sé EKKI UNNT AÐ
KOMAST ÚR SKULDUM. Þegar bæirnir eru orðnir svo s'órir,
að niðurjöfnunarnefndum er orðið ókleyft að fylgjast með „efn-
um og ástasðum" hvers gjaldanda, eru tekjur hans lagðar til grund-
vallar álagningunni yfirleitt, og þá verða þeir harðast úti, cem
laun taka hjá öðrum, að undanskildum illa stöddum fyrirtækjum,
6em veltuú.'svarið mæðir íillitslaust á.
Um ásíæðurnar fyrir hinum þungu ú'svarsálögum á Akureyri
hefir svo oft verið rætt, að þær eru öllum kunnar. Meðan auðugustu
og umfangsmestu verzlunar- og iðnaðarfyrirtækin á staðnum geta
velt af sér útsvarsþunganum á önnur minni fyrirtæki og einstaka
borgara í skjóli gamallar og úreltrar löggjafar, þarf enginn að bú-
ast við lækkuðum útsvörum.
Jafnað var niður að þessu sinni 9.59 millj. krónum, og er
það 950 þús. króna hækkun frá fyrra ári, eða um 11% (var þá
8.64 millj.). Hefði gjaldendafjölgun eða vöxtur bæjarins svarað
til þess, væri ekkert um að sakast, en því mun fjarri fara. Enn hefir
því orðið hækkun á útsvörum. ®
Oft hefir verið á það bent, að með hliðsjón af hinum mikla út-J
svarsþunga og háu niðurjöfnuarupphæð, væri hvorki æskilegt né
nauðsynlegt að bæta 10% ofan á útsvarsupphæðina fyrir van-
heimtu og lækkunum á útsvörunum eins og lögin heimila og hér
hefir tíðkazt að gera. Og nú í vor samþykkti bæjarstjórn þá til-
lögu bæjarráðs að beina því til niðurjöfnunarnefndar, að „vegna
vaninnheimtu útsvara verði ekki á lagt meira en 5%“. Þrátt fyrir
þessi íilmæli bæjarstjórnar hefir nefndin lagt full 10% ofan á út-
svörin fyrir vanheimtu.
Við höfum orðið að horfa upp á það undanfarin ár, að gegnir
og grónir borgarar hafa íekið sig upp og flutt til annarra staða á
landinu. Sumir gera það vegna betri atvinnuskilyrða annarsstaðar,
en dæmi mun mega finna þess, að hinar óvenju þungu útsvars-
álögur á Akureyri séu ýmist meðvirkar eða aðalorsök brottflutn-
ingsins úr bænum. Við þe'ta verðum við að kannast fyrir sjálfum
okkur og leita ráða til að stemma stigu fyrir því, að bærinn gangi
saman af þeim ástæðum.
Ef við veltum svo fyrir okkur þeirri spurningu, hvort von sé til,
að útsvarsálögurnar hafi nú náð hámarki og muni fara lækkandi
þegar á næsta ári, þá verður okkur tregt um svör. Og þegar við
jafnframt minnumst þess, að 1730 kjósendur á Akureyri báðu um
það við atkvæðagreiðslu í fyrra og fengu því ráðið, að ríkisverzl
un hér í bæ, sem gveitt heflr allt að 300 þús. kr. í útsvar af rekstr
sínum hér, yrði lögð niður, þá er ekki hægt að svara spurningunn
öðruvísi en neitandi. Þegar hinir miklu „máttarstólpar“ Akureyrar
bæjar, KEA, Útgerðaifélag KEA og SÍS greiða samanlagt 290 þús
kr. í ú'svar, æt'u fles'.ir að geta gert sér í hugarlund, hvaða auka
baggi hefir verið bundinn útsvarsgjaldendum á Akureyri með því
að belna áfengiskaupum bæjarbúa og nágrannahéraða til Siglu
íjarðar og Reykjavíkur. Þeim tekjum, sem útsala Áfengisverzlunar
innar gaf bæjarsjóði, hlýtur óhjákvæmilega að verða að ná hjá
borgurunuip með hækkuðum útsvörum. eða bærinn að öðrum
kosti að skera niður framkvæmdir, þótt aðkallandi séu.
Meðan þau rlsafyrirtæki bæjarins, sem í skjóli 33 ára gamallar
sérrétlindalöggjafar búa við miklu lægri ú’svarsálögur en aðrir
gjaldendur bæjarins, hafa ekki þá hátlvlsi til að bera að gangast
sjálf fyrir því, að Jrau sitji við sama borð og hverjir aðrir í því
að halda uppi rekstri bæja- og sveilafélaga, þurfum við varla að
Útsvörin oriin 9,5 illjóiiir
Hækkun frá fyrra ári nálgast
milljónina
Samkvæmt fjárhagsáæ'.lun bæj-
arins fyrir árið 1954 skyldi jafna
útsvörum niður á bæjarbúa á
þessu vori að upphæð 8.711.350
krónum.
Niðurjöfnunarnefnd hefir ný-
lega lokið störfum sínum og skrá-
In verið lögð fram um útsvörin,
og nema þau 9.590 millj. krónum,
en í fyrra voru þau 8.641 rnillj.
kr. Nemur hækkunin því um 950
þús. krónum.
Við álagningu útsvaranna var
farið eftir fyrirfram gerðum
„stiga“, og útreikningur Skatt-
stofunnar á nettótekjum gjald-
enda lagður til grundvallar álagn-
ingunni. Ekki var þó lagt á minni
nettótekjur en 1300 kr. og stund-
um vikið frá stiganum til lækkun-
ar, þar sem nefndinni var kunn-
ugt um erflðar heimilisástæður
(veikindi) eða mikinn kostnað
við nám viðkomandi eða barna
hans erlendis. Persónufrádráttur
/ar gefinn kr. 4500 fyrir konu og
hvern ómaga. Rekstursútsvör eru
1.75% af smásölu, olíusölu, hótel-
rekstri og kvikmyndarekstri,
).5% af iðju og iðnaði, flutning-
im og afgreiðslu og 0.4% af
reildsölu, útgerð, kaffibrennslu,
'rolasölu og síldarsöltun. Við á-
'agningu eignaútsvars var fast-
úgnamat fjórfaldað.
Er útsvörin höfðu verið á lögð
'ftir stiganum varð að hækka þau
ill um 10% til að ná tilskilinni
ipphæð.
Hér fara á eftir ú'svör þeirra
Eyrirtækja og einstaklinga, sem
'rafa yfir 10 þúsund krónur:
FYRIRTÆKI:
Kr.
Kaupfélag Eyfirðinga 205930
Útg.fél. Akureyringa h.f. 133980
Samb. ísl. samvinnufélaga 64850
Amaro h.f. 48010
Kaffibr. Akureyrar h.f. 39660
Súkkulaðiv. Linda h.f. 38180
Byggingav.verzl. T. Bj. h.f. 37870
Grótta h.f. 29450
Valhöll h.f. 29160
Axel Kristjánsson h.f. 24290
Olíuverzl. íslands h.f. 20900
Útgerðarfélag KEA 19000
Byggingavöruv. Ak. h.f. 18770
Smjörlikisgerð Ak. h.f. 17580
Atli h.f. 17090
Marz h.f. 17060
Slippstöðin h.f. 16470
Brauðg. Kr. Jónss. & Có. 16420
Nýja kjöibúðin h.f. 15950
Verzl. Eyjafjörður h.f. 15820
Hvannbergsbr., skóverzl. 15570
I. Brynjólfsson & Kvaran 15520
Prentverk. O. Bj. h.f. 15190
Ragnar Ólafsson h.f. 14860
Shell á íslandi h.f. 14570
Hafnarbúðin h.f. 13440
Bílasalan h.f. 12440
BSA verkstæði h.f. 12430
Steinsteypuv. Ak. s.f. 12320
Oddi h.f. 12260
Vöruhúsið h.f. 11070
Bifreiðastöð Ak. h.f. 11040
Þórshamar h.f. 10930
Electro Co. 10680
Ólafur Ágústsson h.f. 10620
Ásbyrgi h.f. 10270
EINSTAKLINGAR:
Kr.
Páll Sigurgeirsson 27980
Kristján Kristjánsson 27860
O. C. Thorarensen 25340
Sæmundur Auðunsson 22450
Sverrir Ragnars 22240
Helgi Skúlason 22000
Guðm. Jörundsson útg.m. 21340
Tómas Steingrímsson 21310
Tómas Björnsson 20550
Jakob Frímannsson 18530
Bernharð Stefánsson 18310
Bernharð Laxdal 18010
Gunnar Auðunsson 17820
Anna Laxdal 17630
Guðm. K. Pétursson 17290
Gísli M. Kristinsson 16240
Brynj. Sveinsson kennari 15400
Ólafur Jónsson Munk. 21 15120
Bergur Þ. Sveinsson 15070
Jónas Þorsteinsson 14990
Valgarður Stefánsson 14920
Friðjón Skarphéðinsson 14880
Hallur Helgason 14690
Kristján N. Jónsson 14660
Bjarni Jóh. Hms'r. 44 14640
Þorst. M. Jónsson 14340
Ásgeir Árnason 13950
Finnur Daníelsson * 13570
Steindór J. Steindórsson 13040
Haraldur Halldórsson 13000
Alfreð Finnbogason 12830
Jón E. Sigurðsson 12820
Stefán Ág. Kristjánsson 12410
Sigurður Kr. Árnason 12190
Stelnn Steinsen 12070
Jónas Snæbjörnsson 12060
Þorsteinn Auðunsson 12050
Baldvin Þorsteinsson 12000
Árni M. Ingólfsson 11850
Rud-Petersen, Ove 11770
Guðjón Sigurjónsson 11480
Ólafur Thorarensen 11290
Valtýr Þorsteinsson 11060
Ottó Ryel 11000
S'efán Guðnason 11000
Knut Otterstedt rafv.stj. 10960
Bjargey Pétursdóttir 10910
Pétur Jónsson læknir 10890
Sigríður H. Aðalsteinsd. 10870
Evþór H. Tómasson 10860
Friðþjófur Gunnlaugsson 10790
Baldvin Ryel 10730
Jóhannes Sigurðsson 10680
Bergsveinn Guðmundsson 10590
Friðrik Magnússon 10530
Björn Baldvinsson 10500
Haukur Jónsson Hólabr. 10400
Guðrún Ólafsson 10250
Ilám. E. Björnsson 10230
Skarphéðinn Ásgeirsson 10210
Óli P. Kristjánsson 10160
Sveinn Bjarnason 10140
Lárus Björnsson 10130
Þórður Snæbjörnsson ♦ 10080
Vísnabálknr
Bragi frá Hoftúnum kveður
sér enn hljóðs í dag:
Ást.
Ast er löngum lífs á stig
lýða bezti auður.
Þegar enginn elskar þig
ertu verra en clauður.
Kveðið í Svínadal í Borgarfirði.
Frjáls er vist og fáum dauf
fjalls við nyrsta salinn.
Þegar á kvistum lifna lauf
og lóur glsta dalinn.
Kveðið í Vatnaskógi.
Ef ég þarf að yrkja ljóð
eða þraulum lóga,
hefir áhrif á mig góð
ilmur grænna skóga.
Kveðið um sjálfan sig.
Sporin þungu þekkja má
þyrnum stunginn rekkur,
- leið cem ungur lagði á
lífsins klungurbreklcur.
láta okkur dreyma um eðlilegan vöxt og þróun Akureyrar. Meðan
aðrir bæir steypa og malbika nýju göturnar jafnóðum og þær eru
lagðar, höldum við áfram að hnjóta um stelnnibburnar og s'íga of-
an í holurnar á götum höfuðborgar Norðurlands, unz íólkið er
farið þangað, sem sléttara er undir fæti í tvennskonar skilningi.
fjáriiiÉriöOöi úr-
skurðor i cnsHi »@stur-
inn« sé ctti ostur
Nýlega hefir fjármálaráðuneyt-
ið kveðið upp úrskurð sinn um
að varan „Cheese Spread“, sem
vér fluttum inn í s. 1. desember-
mánuði, heyri ekki undir toll-
flokk fyrir osta (kafli 4) í toll-
skránni, heldur kafla 21, eins og
varan var afgreidd eftir, og þar
með er æðsti dómari í þessum
málum, fjármálaráðuneytið, bú-
inn að staðfesta það, er vér ávallt
höfum haldið fram, að „Cheese
Spread“ sé ekki ostur.
Margir inuna enn eftir hinum
feitle'ruðu gífuryrðum dagblað-
anna „TImans“ og „Alþýðublaðs-
ins“, þar sem Jressi innflutningur
vor á 238 kg. „Cheese Spread“
var talinn ganga hneyksli næst,
væri óhugnanlegar aðfarir gegn
íslenzkum mjólkuriðnaði,og beint
tilræði við bændastéttina, að ó-
gleymdum stóryrðunum í vorn
garð og verzlunarstéttarinnar um
óþjóðholla kaupahéðna, braskara,
mangara o. s. frv.
Vér teljum ré'.t, að þeir sem
fylgdust með þessu „furðulega
fyrirbæri“, eins og það var orðað
í nefndum dagblöðum, fái að vita
hið rétta í þessu máli.
Þökkum birlingu þessa.
Reykjavík, 3. júní 1954.
Magnús Th. S. Blöndal h.f.
G. Jóhannesson.