Íslendingur - 27.10.1954, Page 2
2
ÍSLENDINGUR
Miðvikudajrur 27. október 1954
• f r •• i
»mirsoiniin s
oð toho til storfo
Nefnd sú, sem unnið hefir í
suniai að und.ibúni.ngi sparifjár-
söfnunar skólabarna hef.r sent
frá sér frétlatilkynningu um
söfnunma, sem hófst með þessari
viku. Segist nefndinni meðal ann-
ars svo frá:
GJAFABÓKTN.
Landsbanki íslands gefur nú í
haust öllum börnum í landinu á
barnaskólaaldri, 7—12 (eða 13)
ára, 10 krónur lil stofnunar
sparisjóðsbókoi, en foreldrar
barnanna velja þá innlánsstofnun
(banka, sparisjóð eða innláns-
deild kaupfélags), þar sem bókin
á að vera. Jafnframt er það for-
eldranna að velja fyrir sín börn,
hvort gjafabókin á að vera 10 ára
sparisjóðsbók, sem nú er með
7% ársvöx’um, eða bók bundin
af 6 mánaða uppsagnarfresti, sem
nú er með 6% ársvöxtum, en um
þessar tvær tegundir bóka er að
ræða ,sem gjafaféð fer í. Ef börn-
in eiga slíkar bækur fyrir, má
leggja 10 krónurnar frá Lands-
bankanum inn á þær.
Aðferðln við stofnun gjafabók-
anna er sú, að börnunum verður
afhent í skólunum sérstakar ávis-
anir. Ber að framvísa þeim í
þeirri innlánsslofnun, sem við-
komandi óskar að skipta við,
gegn afhendingu gjafabókarinnar
eða gegn innborgun inn á þá
sparisjóðsbók, sem barnið hefir
átt fyrir. En áður en ávísuninni
er framvísað í innlánsstofnun,
verðu'r foreldri eða forráðamaður
ba;ns að hafa kvittað á þær, og
afnframt gefið þar til kynna,
hvora tegund sparisjóðsbókar
Irarnið eigi að fá með því að
s ika undir U' eða 6 á ávísun-
nni. Sé þetta gert rétt á heimil-
um mega börnin sjálf fara ein í
sína innlánsstofnun og sækja
gafabókina.
dARIMEIlKIN.
Sparimerkjunum hefir verið
dreif'. til flestallra innlánsstofnana
í kaupstöðum landsins og getur
almenningur keypt þau þar frá 1.
vetrardegi. Það verða hins vegar
fyrst og fremsi kennarar, sem
munu annast dreifingu spari-
merkjanna íil skólabarna. Höfum
vér reynt að gera þeim það sem
auðveldast. Fá þeir inerki að láni,
auk þess sein þeir fá sérstaka pen-
ingakassa til geymslu á merkjum
og andvirði þc-irra. Eru kassarnir
með merkjum og peningum vá-
tryggðir af í andsbankanum.
Keypt sparimerki á að líma inn
í sérs'akar sparimerkj abækur,
sem börnin fá ókeypis í skólun-
um. Þegar hæfilegur fjöldi
merkja er kominn í sparimerkja-
bækurnar getur barnið lagt þau
inn í sparisjóðinn í ])á bók, sem
foreldri kýs, og er alls ekki ætlast
til þess, að gjafasparisjóðsbókin
verði ein noiuð til þess. Merkin
má því leggja inn í hvaða spari-
sjóðsbók sem vera vill.
Að lokum skal þess getið, að
með Sparifjársöfnun skóiabarna
er tilgangur.nn að skapa æskunni
tækiíæri og aðstöðu til þess að
sjá í reynd gildi ráðdeildar og
sparnaðar. Bcrnin verða að fá
tæk.færi til þess að sjá sjálf árang
urinn. En til þess að slíkt megi
takast, verða allir að leggja s.g
fram. Mest mun þetta hvíla á
skólastjórum og kennurum barna
skólanna. Muri árangur mjög
undir þeim kominn. Og að sjálf-
sögðu er það mjög á vildi foreldr-
anan, hvernig þessi viðleitni
tekst. Þeir verða að vera í góðri
samvlnnu við skólana, ræða við
börnin um gildi sparnaðar, vera
síhvetjandi að.lar og fylgjast vel
með þessari starfsemi á alla lund,
og svo að sjálfsögðu taka ákvörð-
un með barninu um það, hvenær
hið sparaða íé eigi að falla til út-
borgunar o. s. frv.
Það skal svo að lokum tekið
f.am, sem margoft hef.r verið
) flr lýst, að starfsemi þessi er
fyrst og fremst og eingöngu ætl-
að að hafa uppeldlslegt gildi fyrir
æsku landsins.
#
Ijöhitt hrútasýning i fljótum
September eindæma illviðrasamur
Saurbæ í Fljótum
10. október.
Hér í Fljótum hefir september-
mánuður verið með einsdæmum
illviðrasamur. Um miðjan mán-
uðinn gerði hér hríðarveður, sem
héldust með litlum undantekning-
um mánuðinn út og oft með frost
hörkum sem á þorra væri. Fyrri
leitir gengu hér vel, þrátt fyrir
illviðri á sumum leitarsvæðum.
Seinni leitir urðu víðast hvar
mjög ófullkomnar, enda þá nær
stórhríð seinni leitardag. Heimt-
ur eru góðar á íullorðnu fé en
vantar talsvert af lömbum.
Slátrun er nú lokið. Vænleiki
sláturfjár með lakara móti. Var
fé aflagt orðið í hinum stöðugu
illviðrum fyrir slátrun. Og þvælt
úr fönn allt þsð fé. sem slátrað
var síðustu viku sláturtíðar. Hey
eru óvlða úti hér og heyfengur í
rífu meðallagi.
Hrúlasýning fyrir Holtshrepp
var haldin að Skeiðsfossi 4. októ-
ber s.l. Þar var mættur saijðfjár-
ræktarráðunaul urinn, dr. Hall-
dór Pálsson. Einnig héraðsráðu-
naulurinn í búíjárrækt, Haraldur
Árnason.
Nálega hve: bóndi í Holts-
hreppi var þar mættur með hrúta
sína. Hefir aldiei fyrr verið jafn
almenn þátttaka í sýningu hér.
Má óefað þakka það því, að odd-
vili Hollshrepps, Jón Gunnlaugs-
son á Mjóafelli, lét aka hrútunum
að og frá sýningarstað. Er slíkt
spor í rétta átt, því sumir þeir
hrútar, sem sýndir voru, hefðu
ekki gengið til sýningarstaðar og
þar með ekki komið til sýningar.
Flestir voru hrúLarnir aflagðir og
hraktir eftir liinn langa illviðra-
kafla. Af þeirn 53 hrútum, er
sýndir voru, hlutu 17 fyrstu verð-
laun, 19 önnur og 10 þriðju verð-
laun. 7 voru dæmdir ónothæfir.
1 dómnefnd með dr. Halldóri
Pálssyni voru Hartmann Gúð-
mundsson bóndi Þrasastöðum og
Jón Guðbrandsson bóndi Saurbæ.
Þessi sýningar- og bændadagur
með ráðunautunum var hinn á-
nægjulegasti eg má teljast góð
uppbót á hinu skemmtanasnauða
og illviðrasama hausti, enda ó-
venjulega gott veður hér sýning-
ardaginn, 4. oklóber.
I sumar og haust hefir gengið
hér í Fljótum kikhósti og í kjöl-
far hans mislingar. Hafa þau
veikindi valdið miklum erfiðleik-
um á mörgum heimilum.
J. G.
Bœndashólinn oð iium
Bændaskólinn á Hólum í Hjalta-
dal var settur laugardaginn 16.
október slðastliðinn af skólastjór-
anum Kristjáni Karlssyni, að við-
stöddum óvanalega miklu fjöl-
menni. Er þetta í 20 skipti, er
hann setur Hólaskóla. í ræðu
sinni lét skólasljóri þess getið, að
íslenzku búnaðarskólarnir hefðu
verið stofnaðir í þessari röð: Ól-
afsdalsskóli 1880, Hólaskóli 1882
og Hvanneyrarskóli 1889. Hlut-
verk búnaðarskóla væri tvíþætt:
að kenna hagkvæm búfræði, bók-
leg og verkleg og að þroska per-
sónuleika nemenda, eigi sízt fé-
lagsþroska þeirra, og gjöra þá
færa og fúsa til þess að fylgjast
sem bezt með öllum nýjungum, er
að landbúnaði lúta. Benti hann
þá nemendum á reglur skólans,
eftir hverjum þeim ber fram að
ganga um námið, og um daglega
umgengni, reglusemi og háttvísi
alla. Gat þess að lokum, að nú
færi fram höfuðaðgerð og viðbót
á húsnæði skólans fyrir leikfimis-
iðkanir og smíðastörf.
Búnaðarmálastjóri, Páll Zop-
honiasson, fyrrverandi skólastjóri
á Hólum, flutti þá ræðu. Rakti
hann helztu æviatriði Hermanns
Jónassonar, er var skólas'jóri á
Hólum 1888—1896. Benti til af-
stöðu hans ýmsrar til skólans, og
margra meiriháttar einkenna hans
og kosta og mikilla starfa hans og
skólastjórnar. Afhjúpaði þá vand-
að málverk af Hermanni, gjört af
Gunnlaugi Scheving og nú af-
hent Hólaskóla til eignar. Benti
að lokum nemendum á, hve mik-
ið þeir gætu lært af lífi og starfi
hans og hinna tveggja annarra
skólastjóra, sem nú eru einnig
liðnir fram (Jósef Björnsson og
Sigurður Siguiðsson).
Landbúuaðarráðherra Steingr.
Steinþórsson, einnig íyrrv. skóla-
stjóri á Hólum, flulti þá ræðu.
Minntist hann tveggja samstarfs-
manna Hermanns á Hólastað,
Stefáns Slefárissonar frá Varð-1
gjá, er var r.emandi Hermanns.
og Sigurlaugar Jónasdóttur íra
Hróarsdal, er var starfsstúlka á
Ilólum í Hermanns líð. Voru þau
bæði viðstödd þessa alhöfn. Sæf- ^
án og Sigurlaug og tóku síðar lil ^
máls. Mlnnlist ráðherra þá 50 ára
afmælishálíðar Hólaskóla 1932,
er haldin var við mikið fjölmenni.
Þá benti hanri á, hve þýð.ngar-
mikið það hefði verið út af fyrir ^
sig, að búnaðarskólarnir risu
hver af öðrum á þessum áratug
aldarinnar, er þjóðin bjó við svo
kröpp kjör fyrir óáran að ýmsu
leyti, að óhugni og vonleysi hafði
griplð svo marga, sem Ameríku-
ferðirnar bera ljóst vitni um. Þá
minntist hann að lokum mjög lof-
samlega starfs núverandi skóla-
stjóra, er nú þegar hefði starfað
lengur en nokkur af fyrirrennur-
um hans. Ræðu sína endaði ráð-
herrann með hlýrri þökk til stað-
ar og s'arfsmanna, og með hvatn-
ingarorðum almermt og til nem-
dndanna. Þá talað'i langt og gott.
erindi gamall Hólasveinn, Kol-
beinn Kristinsson á Skriðulandi.
Einnig tóku til máls Gunnlaugur
Björnsson í Brimnesi, Olafur Sig-
urðsson á IJellulandi, Ilafstelnn
Pélursson, Gunnsteinsslöðum,
Jón á Hofi, Jón á Bakka o. fl. —
Friðbjörn Traus'ason, oddviti,
stjórnaði söng á milli ræðuhalda.
Fór allt hið bezta fram. Errdaði
svo þessi fróðlega og virðulega
samkoma með raiusnarlegu kaffi-
samsæti, er fru Sigrún Ingólfs-
| dóttir og Ki istján skólastjóri
buðu til öllum viðslöddum. En
það munu hafa verið fullt hundr-
að manns. Sérstaklega má benda
á það, sem aftur sy'nir lilýhug og
rækl þeirra, er við Hólastað hafa
einhvern tírna verið bundnir, að
þarna voru m.ættir allir þrír núlif-
andi skólastiórar Ilólaskóla. Og
liinir þrír, sem dánir eru og
minnst er Inér að framan, kunna
að hafa ver ið staddir nær á þess-
ari hátíðlefju stundu, en margan
„viðstaddai i“ máske hefir grun-
að.
]. Þ. B.
SKEMMTIKLÚBBUR
TEMPLARA
byrjar hin vinsælu skemmtikvöld
að Varðborg föstud. 29. okt. kl.
8,30. Til skemm'unar fé'.agsvist
og dans. — Aðgangskort á kr.
30,00, er gilda að þrem skemmti-
kvöldum, verða seld kl. 8 e. h.
sama dag.
Útlendar scpur
frá 1 kr. til 7,50.
Efni serrt bíður
vegna þrengsla: Frá starfsemi
Fegrunarfélags Aknreyrar, hús-
næðisþcirf Jjarnaskólans og fleira.
JVýi Solutucninri %
Hjr.y'/IKSTRÆr/ /00 S/M/ H70
N ý k o m i n
haglashot
Haglastærðir: 1, 3, 4, 5.
Lengd: 65 og 70 mm.
Brvnj. Sveinsson h.f.
Sími 1580 . Pós hólf 225
Nýjuslu
dægurlögin:
Frá ORIOL:
Anna — Richard Ilaymann
Love Mood — Richard Haymann
Ruby — Vic Damone
Ebb Tide — Vic Damone
Simon etta — Vic Damone
Eternally — Vic Damone
Frá AUSTROTON:
Siboney
Ja Ja du Miidchen von Mexico.
Das Gluliwiirmechen
Dreimal taglich
Mambo — Jarnbo
Creola
Idaho
Einsamer fVeg
Frá PHILIFS:
Secret Love — Doris Day
The Deadwond stance —
Doris Day
Two Easler Sunday Siveethearts
Jimmy Boyd
My Bunny and, my sister Sue
Jimmy Boyd
Swedish Rhapsody
Moulin Rouge
Allar plötur frá TONIKA
Nýjustu plölurnar með
Hauk Mortens
A fœðingiirslofnuninni:
Hjúkruna.rkonan: Jceja, þér er-
uð búnir að eignast son.
Faðirinn: Nei, var það slróih-
ur? Þá vei rð ég að halda upp á
daginn. Ei gið þér frí í kvöld, ung-
frú?
___*_____
Vœn'anlegt síðar í vikunni,
mikið úrval af nýjustu
amerísku dægurlögunum.
Bókaverzlun
Axels Kristjónssonar h.f.
Sími 1325.