Íslendingur - 25.05.1955, Qupperneq 2
2
ÍSLENDINGUR
Miðvikudagur 25. maí 1955
Sjötugur:
Nvelnn Bjariiason
Sveinn Bjarnason, framfærslu-
fulltrúi hér í bænum, varð sjö'.-
ugur þriðjudaginn 17. þ. m.
Sveinn er Húnvetningur að
ætt, fæddur að Illugastöðum í
Laxárdal, en fáðir hans var bóndi
þar. Fjögra ára gamall missti
hann föður sinn og ólst því að
mestu upp hjá vandalausum, var
í mörg ár hjá Guðmundi Frímann
Björnssyni, bónda í Hvammi í
Langadal. Sveinn var einn af 16
systkinum.
Liklegt er, að hugur Sveins
hafi snemma staðið til mennta, en
hann ekki átt kost á langri skóla-
göngu, sem þá var altítt um
marga efnilega unglinga. Hann
s'undaði nám við Gagnfræðaskól
ann hér á Akureyri og við Sam-
vinnuskólann. Hann var um tíma
starfsmaður hjá Sófusi Blöndal á
Siglufirði. Árið 1921 fluttist
Sveinn hingað til Akureyrar og
gegndi hér lengi margvíslegum
störfum fyrir Ásgeir heitinn Pét-
ursson, sem þá var einn af mes’u
athafnamönnum landsins. Um
tíma var Sveinn hjá Axel heitnum
Kristjánssyni, kaupm., sem rak
hér umfangsmikla verzlun. Auk
þess hefir Sveinn fengist við lög-
fræðistörf hér í hænum. Árið
1934 tók Sve'nn svo við embætti
framfærslufull'rúa, sem hann
gegnir enn. Af þessu stutta yfir-
liti sést, að Sveinn Bjarnason hef
ir fengist við margt um dagana
og haft með höndum verkefni,
sem bæði dugnað og góða mennt-
un þarf til að leysa.
Sveinn Bjarnason er myndar-
legur á velli og vekur athygli þar
sem hann kemur. Hann er einarð
ur í framkomu og segir hispurs-
og umbúðalaust álit sitt á mönn-
um og málefnum. Hann skiptir ó-
gjarnan um skoðun, og ver af
skapfestu og þrótti þann máls'að,
sem hann vill veita brautargengi.
Sveinn er vel máli farinn og oft
hnyttinn í ræðum sínum.
Ég held, að hreinskilnin og
samvizkusemin séu einna ríkustu
þæitirnir í skapgerð Sveins. Hann
kemur til dyranna eins og hann
er klæddur. Eftir framkomu hans
að dæma getur ókunnugum stund
um virst hann hrjúfur og kaldur,
en þegar betur er að gáð, og
kynni takast, verður vart við
hlýjuna og velviljann, sem er hans
innri maður.
Sveinn Bjarnason hefir jafnan
haft mikinn áhuga fyrir opinber-
um málum og fylgst með öllu,
sem er að gerast í þjóðlífinu..—
Hann gleðst yfir framförunum á
iviði atvinnumálanna, en er ekki
;ins ánægður yfir þróuninni á
iðrum sviðum þjóðfélagsins. —
Stjórnmálaskoðanir hans eru
East mótaðar, og fer Sveinn
Bjarnason í þeim efnum ekki eft-
!r annarri „línu“ en sinni eigln,
þegar því er að skipta. Hann hef-
ir tekið mjög virkan þátt í starf-
semi Sjálfstæð'sflokksins hér í
bænum, átt sæti í stjórn Sjálf-
stæðisfélagsins í mörg ár og látið
sérstaklega til sín taka bæjarmál
á fundum félagsins.
Sveinn Bjarnason er fróður um
marga hluti. Hann er vel að sér í
allri löggjöf, hefir töluvert feng-
ist við lögfræðistörf hér í bænum
og farnast vel. Sem embæt'ismað-
ur hefir hann reynzt vel. Starf
framfærslufulltrúa er vandasamt
og venjulega illa þakkað af sam-
borgurunum. Löngum hefir þótt
illt að þjóna tveimur herrum, en,
segja má, að það sé hlutskipli
framfærslufulltrúa. Hann verður
að gæta hagsmuna bæjarsjóðsins
en jafnframt sýna þeim skilning
og velvilja, er leita þuifa á náðir
bæjarfélagsins vegna erfiðleika.
Þetta vandasama s'arf hefir
Sveinn nú haft með höndum í
rúm tuttugu ár og skilað því af
sér með sóma. — Vegna
aldurs hættir hann sennilega
störfum hjá Akureyrarbæ um
næs'u áramót. Fylgja honuin þá
þakkir og hlýr hugur fjölda
margra bæjarbúa, sem meta störf
hans og skilja hina vandasömu
aðstöðu framfærslufulllrúa.
Sveinn Bjarnason kvæntist ár-
ið 1925 Björgu Jóhönnu Vigfús-
j dóttur frá Grímsstöðum í Þis'il-
^ firði, hinni mætustu konu. Hafa
þau hjónin eignast þrjú myndar-
leg börn, en þau eru: Bjarni,
múrari hér í bænum, Sólveig
Ingibjörg, gift í Reykjavík, og
Árni. Þau hjónin eiga gott og
hlýleg' heimili. Það er alltaf gam-
an að heimsækja húsráðendur í
Brekkugötu 3 og gott að njóta
gestrisni þeirra.
Vinir Sveins Bjarnasonar óska
honum sjötugum allra heilla og
langra 1 fdaga við góða heilsu.
Fylgi gæfan heimili hans.
Jónas G. Rafnar.
Innanlandsflug aukið verulega
Sumaráaetlun Flugfél. íslands á innanlandsleiðum
Sumaráætlun Flugfélags íslands
á innanlandsflugleiðum gengur í
gildi 25. maí. Verður hún með
svipuðu sniði og í fvrra nema
hvað flugferðum til Egilsstaða
verður fjölgað til muna. Er ráð-
gert að fljúga þangað alla virka
daga. Þá verða í fyrsta skipti í
sumar hafnar reglubundnar flug-
ferðir milli Reykjavíkur og
Grímseyjar með viðkomu á Ak-
ureyri í báðum leiðum. Hefjast
þessar ferðir um miðjan júní, og
er ráðgert að fljúga á sunnudög-
um. Verður fjögurra tíma við-
staða í Grímsey, og gerir það
mönnum kleift að skoða sig um
á eynni og njóta náttúrufegurðar
norðan við heimskautsbaug.
Milli Akureyrar og Reykjavlk-
ur verða farnar 18 ferðir í viku;
morgun-, síðdegis- og kvöldferð
ir fjóra daga vikunnar og morg-
un- og kvöldferðir þrjá daga. —
Vestmannaeyjaferðir verða tvær
alla virka daga en ein ferð á
sunnudögum. Eins og áður er
getið verða flugferðir til Egils-
staða alla virka daga, og verða
tvær þeirra um Akureyri og ein
um Hornafjörð. Þá verður flogið
til ísafjarðar alla daga að sunnu-
dögum undanskildum.
Til Hornafjarðar og Sauðár-
króks verða þrjár ferðir í viku
hverri og tvær ferðir til eftir-
taldra staða: Flateyrar, Þingeyr-
ar, Palreksfjarðar, Blönduóss,
Kópaskers, Siglufjarðar og Fag-
urhólsmýrar. Vikulegar ferðir
verða farnar til Bíldudals, Hólma
|víkur, Sands, Kirkjubæjarklaust-
urs, Skógasands (um Vestmanna-
eyjar) og Hellu (um Vestmanna-
eyjar).
Flugvélar Flugfélags íslands
munu halda uppi áællunarflugi til
20 staða utan Reykjavíkur í sum-
ar, og munu þær verða á flugi
142 klukkustundir að jafnaði á
viku.
Fargjöld hækka.
Sökum síaukins kostnaðar við
allan rekstur flugvéla félagsins
hefir orðið að hækka fargjöld á
innanlandsflugleiðum, en þau
hafa haldizt svo til óbreytt und-
anfarin fimm ár. Gengur far-
gjaldahækkunin í gildi 25. maí.
Sá háttur verður jafnframt upp
tekinn að veita 10% afslátt af
farmiðum séu þeir keyptir fram
og aftur samtímis. Áður var að-
eins veittur slíkur afsláttur á leið-
inni Reykjavik—Vestmannaeyjar
— Reykjavík. Flugfarmgjöld hjá
Flugfélagi íslands munu hins
vegar haldast óbreytt.
F. I. B. MÓTMÆLIR
SAKARUPPGJÖF
Aðalfundur Fél. ísl. bifreiða-
eigenda, sem nýlega var haldinn
í Reykjavík, mótmælti því harð-
lega, að sakborningum væru
gefnar upp sakir fyrir ýms afbrot
í sambandi við verkfallið í vor.
Taldi fundurinn, að með þvíj
Leikfélag Akureyrar:
»Mi fvrir shattareiiendar«
franskur gamanleikur í 3 þátt-
um, eftir Verneuil og Berr, í ís-
lenzkri þýðingu Páls Skúlasonar
ritstjóra, var frumsýndur í Sam-
komuhúsinu á uppstigningardag.
Eins og nafnið gefur til kynna,
fjallar efnið um skattamál, þ. e.
skat'heimtu ríkisins og baráttu
skattborgarans fyrir því að vera
ekki rúinn inn að skyrtunni mcð
opinberum álögum, en inn í það
efni fléttað hæf.leguin ástarævin-
týrum.
Aðalhlutverk leiksins eru From
en'el yfirskattstjóri, dóttir lians
og tengdasonur. Dóttirin er mjög
frönsk að upplagi, gefin fyrir að
klæða sig um efni fram, en mað-
ur hennar iðjuleysingi, sem ekk-
ert starf hefir með höndum. Til
þess að koma efnahag sínum í
lag og haldast á ás'.um konu slnn-
ar s'ofnar hann „skóla“ fyrir
skat’grelðendur, en það er skrif-
stofa, sem annast um að hagræða
skattframlölum manna til að létta
á þeim byrðunum. Vinnur hann
þannig á mó'i tengdaföður sín-
um, og fer því ekki sem bezt á
með þeim um skeið. Allt fellur
þó í ljúfa löð milli þeirra, áður
en leiknum Iýkur.
Stærsta hlulverkið er skólastjór
inn eða skrifstofustjórinn, Gaston
Val'ier, en hann leikur Júlíus
Júlíusson frá Siglufirði sem gest-
ur. Hefir hann áður sett þenna
leik á svið á Siglufirði og leikið
hlutverklð þar og því æfðari á
sviðlnu en meðleikendur hans.
Gerlr Júl.us hlutverkinu prýðileg
skil. Leikur hann af festu og
myndugleik með fullkonmu ör-
yggi í hreyfingum og hátterni.
Framsögn hans er einnig skýr og
meitluð. Konu hans, liina lé'túð-
ugu Juliette, leikur Brynhildur
Sleingrímsdóttir. Fer hún einkar
vel með hlutverkið, og er sam-
leikur þeirra lijóna snurðulaus og
eðlilegur. Jón Norðjjörð sýnir
skemmtilega persónu í hlutverki
yfirska'tstjórans, hvort sem hann
er bólginn af vonzku, beitir hinu
nístandi háði eða lælur hugfallast
við embættismissinn.
Fulltrúa skatts'jórans og síðar
tengdasonar hans, vonbiðil Juli-
ette, leikur Páll Halldórsson. Hann
er hæfilega undirgefinn og rolu-
legur í fyrsta þætti en mæ'.ti rétta
nokkuð úr kútnum síðar, er hann
verður meðeigandi í lilnu ábata-
sama fyrirtæki, skattgreiðenda-
skólanum. Jóhann Ogmundsson
leikur roskinn milljónung, sem
er óhemju ástfanginn af Julie'te.
Sýnir hann þar alveg nýja per-
sónu, skringilega og um margt
skemmtilega, en vait að sama
skapi sanna.
væri gengið í berhögg við ré'tar-
meðvitund þorra marma og gæfi
óþolandi fordæmi í framtíðlnni,
að vegfarendur séu rændir og
farangur þeirra skoðaður af
mönnum, sem engan rétt hafa að
lögum til þess.
Með smærri hlutverk fara:
Vjgnir Guðmundsson, Jónas Jón-
asson, frú Sigríður P. Jónsdóttir,
Halldór Helgason, frú Pálína
Gunnlaugsdóttir og Bára Björg-
vinsdó’tir. Flest eru þau hlutverk
sómasamlega leyst af hendi, en
bezta skemmtun vekja þar Sigríð-
ur P. Jónsdóllir í hlutverki Betty-
ar og Jónas Jónasson í hlutverki
skáldslns. Sá síðarnefndi er nýr á
leikfjölum Akureyrar en þó eng-
inn nýliði í listinni, því að áður
hefir hann sviðsett leikrit fyrir
félög og skóla í Reykjavík og
starfað í Leikfélagi Reykjavíkur.
Virðist hann ge'a valdlð stærri
verkefnum en honum var þarna
falið.
Jón Norðfjörð hefir æft leik
þenna og sett á svið, og má liann
vel við una, hversu lekizt hefir.
Gamanyrðin eru flest vængjuð í
snilldarhöndum þýðandans, og
falla því ekki dauð til jarðar,
þegar þau eru sögð á viðhlítandi
há't. Leiktjöldln, sem Þorgeir
Pálsson hefir málað, gefa um-
hverfinu birtu og hlýju.
Frumsýningunni á fimmtudags
kvöldið var mjög fagnað með
lófataki í lok flestra atriða, og að
leikslokum voru aðalleikari og
leikstjóri hylltir og færðir blóm-
vendir.
íslendingar ó Alþjóða-
skákmóti í Lyon
Nýlega er lokið alþjóðlegu
skákmóti í Lyon á Frakklandi, er
13 þjóðir tóku þátt í. Var þar
telft í 4ra manna sveitum. Höfn-
uðu íslendingar þar í 6. sæli, og
má það teljast mjög ákjósanleg
frammislaða. Guðmundur Pálma
son tefldi á 1. borði fyrir íslend-
inga og vakti mikla ef'.irtekt.
Vann hann eða gerði jafntefli við
þekkta meislara stórþjóðanna. Á
mólmu urðu Rússar efstir með
41 vinning, en næstir Júgóslavar
með 33. íslendingar hlutu 26
vinninga og voru langhæstir af
Norðurlandaþjóðunum, en þær
tóku allar þátt í mótinu nema
Danir.
FRIÐSAMLEGAR PREST-
KOSNINGAR
Nýlega er útrunninn umsóknar
frestur um þrjú prestaköll: Hofs-
ósprestakall, Hálspres'akall f S.-
Þing. og Vatnsendaprestakall í
sama prófastdæmi. Umsóknir
bárust um öll þessi prestaköll, en
aðeins eitt um hvert þeirra. Má
því væn'a friðsamlegra prest-
kosninga í þessum prestaköllum.
Um Hofsós sækir sr. Árni Sig-
urðsson, um Háls Sigurður Hauk
ur Guðjónsson cand. theol. og
um Vatnsenda Stefán Lárusson
cand. theol.