Íslendingur - 25.05.1955, Side 8
Me-sað kl. 2 e. h. í Akureyrarkirkju
á annan í hvítasunnu. — P. S.
Messað í Lögmannshlíðarkirkju kl.
2 á Hvítasunnudag. Börnin eru beðin
um að hafa með sér biblíumyndabæk-
urnar. — P. S.
Hátíðamessa í Akureyrarkirkju á
hvítasunnudag kl. 2 e. h. — Sálmar:
249, 248, 233, 234. — K. R.
Messa i Barnaskóla Glerárþorps 2.
hvítasunnudag kl. 2 e. h. Sálmar: 244,
240, 234, 241. — K. R.
I.O.O.F. — Rb. 2 — 1045258V& —
Gróðursetningarlerð verður farin n.
k. laugardag kl. 4 að Miðhálsstöðura
með þátttöku frá Akureyri og norðan
Akureyrar. Ferðin í M.ðhálsstaði er
Þorsteinsdagur.
Frá Leik/élagi Akureyrar. „Skóli fyr-
ir skattgreiðendur" sýndur í kvöld og
annað kvöld. Almenningur er minntur
á, að sýningum er hraðað vegna að-
komuleikarans, svo að þeir, sem ætla
að sjá leikinn, ættu að gera það hið
fyrsta.
Áheit á Elliheimilið Skjaldarvík frá
G. S. H. kr. 500,00. Hjartans þakkir.
Stefán Jónsson.
Hjónaefni. Ungfrú Guðbjörg Ásta
Jónsdóttir Norðurgötu 48 Akureyri og
Jón Ó. ÓJafsson kennari Akureyri.
Ungf.ú Ásta Baldvinsdóttir Dæli i
Sæmundarhlíð og Þorsleinn Hallfreðs-
son Gránufélagsgötu 28 Ak.
Jarð.kjáljtakippur fannst hér í bæ
og víða um Norðurland kl. 3,10 aðfara-
nótt uppstigningardags. Hrökk fólk
víða upp af svefni við htæringuna. —
Einna snarpastur virðist kippurinn
hafa verið í Mývatnssveit og Húsavík
og eyjunum Grímsey og Flatey. Fannst
hann nálega í hverju héraði um Eyja-
fjarðar- og Þingeyjarsýslur og kom
fram á jarðskjálftamælum hér og í
Reykjavík.
í Varðborg verður samkoma á hvíta-
sunnudag kl. 4,30 e. h. Ræður og söng-
ur. Allir hjartanlega velkcmnir.
Sjóna.hæðarstarfið.
Templarar. Næstk. laugardag kemur
hingað Svíinn Ka:l Wennberg á vegum
Stór túku íslands. Stúkurnar ísafotd
og Brynja hafa ákveðið að bjóða hon-
um til kaffidrykkju í Skjaldborg kl.
3,30 á laugardag og er öllum templur-
um heimil þátttaka. Á eftir verður svo
sameiginlegur fundur stúknanna í
Skjaldborgarsalnum. Fundurinn hefst
kl. 4,30. Skorað er á alla templara að
mæta. — Æðstutemplarar.
Húnvetningaljóð nefnist nýútkomin
bók, er hefir að geyma sýnishorn af
ljóðagerð 66 núlifandi Húnvetninga.
Er hún af svipaðri stærð og „Aldrci
gleymist Austurland“, safn austfirzkra
ljóða, er út kom fyrir nokkrum árum.
Utgefendur húnvetmku ljóðanna eru
Jón Rögnvaldsson og Rósberg G.
Snædal. Verður bókarinnar nánar get-
ið hér síðar.
Sextugur varð s. 1. laugardag Finn-
bogi Bjarnason afgrm. Brekkug. 29.
Öndvegistíð hefir verið undanfarna
daga. Brá til suðlægrar áttar í lok síð-
ustu viku, og hlýnaði þá mjög í veðri.
Miðvikudagur 25. maí 1955
Karlakórinn Vísir, Siglufirði.
Karlakórinn »Vísirx syngur hér á Hvítasunnudag
Karlakórinn Vísir á Sigluíirði
fer nú um hv.tasunnuna í söngför
um Norður- og Suðuiland. Held-
ur hann fyrsia samsönginn í Nýja
liíó á Akureyri á hvítasunnudag
kl. 4. Kemur kórinn í bifreiðum
frá Sauðárkróki væntanlega milli
kl. 12 og 1 þann dag, og taka
karlakórar bæjarins á móti hon-
um með söng við Hótel KEA.
Söngstjóri Vísis er Haukur
Guðlaugsson, en einsöngvarar
verða Daníel Þórhallsson og Sig-
urjón Sæmundsson, og er hinn
síðarnefndi formaður kórsins.
Meðal verka á söngskrá kórsins
Snjó hefir tekið ört upp og tré í gö:ð-
um laufgast óðfluga. í fyrradag var
mjög heitt hér á Akureyri og heita.t á
landinu, 18 stig. Næstmestur hiti var
14 stig á Grímsstöðum á Fjöilum.
Fíladeljía, Lundargötu 12. Opinber
samkoma á Hvítasunnudag kl. 8,30 e.h.
Ræðumaður: Guðmundur Markússon.
— Á annan í hvítasunnu vitnisburðar-
samkoma kl. 8,30 e. h. Söngur i.g
hljóðfærasláttur. — Verið velkomin!
Nœsta gróðursetningarjerð Skógrækt
arfélags Akureyrar í Kjarnaland verð-
ur annað kvöld kl. 7.30 fra Hótel KEA.
Framvegis verður farið þangað á sama
tíma á þr.ðjudags- og fimmtudags-
kvöldum.
Vorþing Umdæmisstúku Norðurlands
var sett og haldið á Akureyri, laugard.
21. maí s. 1. Umdæmistemplar Hannes
J. Magnússon setti þingið og flutti
skýrslu um starfsemi Umdæmis túk-
unnar á síðastl. ári. Unnið var að
regluboðun með nokkrum útbreiðslu-
fundum og einnig heimsóttu erindrek-
ar frá Umdæmis6túkunni nokkrar af
undirslúkunum. Ein undi.stúka bætt-
ist við á árinu; stúkan „Þingey" á
Húsavík, er telur 82 félaga. Umdæmis-
stúkan telur nú 2291 félaga, þar af eru
í barnastúkum 1665. — Rætt var um
áfengi málin og félagss!arfsemina og
nokkrar ályktanir og tillögur sam-
þykktar. — Stjórn Umdæmisstúkunnar
var endurkjörin.
að þessu sinni eru Pílagríinskór
Wagners, Hermannakór úr Faust
og Hirðingjar eftir Schuman.
Að konsertinum hér loknum
heldur kórinn strax vestur á bóg-
inn og mun í leiðinni syngja á
Sauðárkróki.
Mörg ár eru llðin, síðan Vísir
hefir látið til s'n heyra hér í bæ,
og munu söngvinir hvegja gott til
komu hans og fjölmenna á þenna
eina samsöng hans hér á hvíta-
sunnudag.
Forsetahjónin í IVoregsíör
Síðastliðinn laugardag hófst forselavaldið Ólafur Thors for-
hin opinbera heimsókn forseta ís- sætisráðherra, Jörur.dur Brynj-
Iands til Noregs. Var lagt af stað ólfsson forseti Alþingis og Þórð-
með „Gullfossi“ kl. 12 á hádegi. ur Eyjólfsson forseti Hæstaré tar.
1 fylgd með forse’ahjónunum eru
dr. Kristinn Guðmundsson utan-
Sýning d hnndiðnnði
var haldin í samkomusalnum í
Varðborg s.l. sunnudag, og voru
þar sýndir munir, unnir á nám-
skeiðum Æskulýðsheimilisins
Varðborgar s.l. tvo ve’ur.
Námskeið þessi hafa verið í út-
varpsvirkjun, flugmódelsmíði,
leirmótun, tréskurði, bast- og
tágavinnu, föndri og til undir-
búnings radio-amatöiprófs.
Merkilegustu smíðlsgripirnar,
sem þarna var að sjá. voru við-
tækin. Einn nemand.nn haíði
smíðað 5 lampa tæki, annar vasa-
læki, sem komið er fyrir í vindl-
ingahylki og þarfnasl ekki raf-
magns, og aðrir tæki af ýmsum
geiðum þar í mllli. Þá gaf þar að
líta litlar vélflugur og svifflugur,
standmyndlr og veggskildi úr Ieir
og gipsi, fagurlega gerðar hillur,
skr.nur, borðplötur og marga
gagnlega muni gerða úr tágum
og bas’i. Þá voru og sýnd þar
vinnuborð námskeiðanna og
hvernig munirnir eru unnir stig
af s’.igi.
Allmargt fólk skoðaði sýning-
una, einkum unglingar, sem á-
huga hafa fyrir verktækni í hin-
um ólíkustu iðngreinum.
ríkisráðherra, Hendrik Sv. Björns
son forsetaritari og frú, Guð-
mundur Vilhjálmsson framkv.-
sljóri Eimskipafélagsins og frú og
Bjarni Guðmundsson blaðafull-
tiúi.
Hin opinbera heimsókn í Nor-
egi hefst í dag og stendur yfir til
28. maí, og verða forse’ahjónin
gestir Hákonar konungs þessa
daga. Að því loknu fara þau í
ferðalag um Norður-Noreg í boði
norsku ríkisstjórnarinnar, cn
koma heim með flugvél frá Stav-
angri 11. júní.
í fjarveru forsetans fara með
Fimm Islendingar í nóms- og kynnisför
í Bandaríkjunum.
Verðhshhun d fljengi
Fyrir nokkrum dögum, eða 18.
þ. m. hækkaði ríkiss’jórnin verð
á áfengi um 10—20%, en verðið
hefir verið óbreylt síðan 1950.
Kostar nú innlenda blandan, sem
„dauði“ hefir verið nefnd, 100
krónur flaskan (áður 85 kr.), en
hinar dýrari tegundir, svo sem
koniak og whisky, hafa hækkað
um 20—30 kr. flaskan.
Fjármálaráðherra hefir gert
þá grein fyrir hækkuninni, að
henni sé ætlað að mæta þeim
auknu útgjöldum ríkissjóðs, er
stafi af afnámi vísi'öluskerðingar
á laun opinberra starfsmanna.
Fimm íslendingar dvelja nú í Richmond í Bandaríkjunura við
vinnu og nám hjá Virginia Tractor Company. Þeir komu til JMew
York 14. marz síðastliðinn, og fóru síðan til New-London og Con-
necticut í kynnisför. Þeir kynna sér öryggisreglur við meðferð
stórra vinnuvéla við byggingar, vegagerðir og jarðrækt. Þeir félag-
ar vinna 5 daga vikunnar frá kl. 8 til 16.30, en um helgar heim-
sækja þeir ýmsa staði í Richmond og víðar í Virginiu. Á meðfylgj-
andi mynd sitja þeir félagar að snæðingi, en þeir eru, talið frá
vinstri: Kjartan Runólfsson, Magnús Einarsson, Ólafur Lárusson.
Guðjón Jónsson, allir frá Reykjavík, og Tryggvi Jónsson frá Akur-
eyri.