Íslendingur - 13.07.1955, Blaðsíða 8
Messað í Akureyrarkirkju næstkom-
andi sunnudag kl. 10.30. Sálmar 29,
336, 324, 429 og 683. (K. R.)
DánardœguT. Nýlega er látinn hér í
sjúkrahúsinu Halldór Stefánsson fyrr-
verandi vatnsveitustjóri, Fjólugötu 13.
Hann var 83 ára gamall.
100 ára varð 6. þ.m. Þorbjörg Iljalta-
dóttir frá Ilellu í Steingrímsfi.ði, nú
vlstkona á Elliheimilinu í Skjaldarvík.
Hefir hin tíræða kona ennþá daglega
fótavist.
Fimmtugur varð 6. þ. m. Árni Ás
r
bjarnarson bóndi í Kaupangi.
/ dag eru 50 ár liðln síðan Arthur
Gook steig fyrst á land hér á íslandi.
í tilefni af því fiytur hann íyrirle tur
á Sjónarhæð á sunnudag 17. þ. m. kl.
5: „Trúfesti Guðs um 50 ár“. Allir vel-
komnir.
Kvennadeild Slysavarnafélagsins fer
skemmtiferð í Skagafjörð og Ólafs-
fjörð um aðra helgi, ef næg þátttaka
fæ t. Lagt af stað kl. 2 e. h. laugardag-
inn 23. þ. m. Félagskonur, vinsamleg-
ast ritið nöfn ykkar á þátttökulista í
Skóverzlun Hvannbergsbræðra, fyrir
þriðjudagskvöld 19. þ. m.
Meictaramót íslands í handknattleik
kvenna verður liáð á Akureyri 23. júlí.
BorgargoljiS opið þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 5—7 og 8—10. Laug-
ar- og sunnudaga kl. 2—7 og 8—10.
Hjálprœðisherinn. Sunnudag kl. 8.30
verður kveðjusamkoma fyrir kaptein
Ernst Orsson og Margrethe Hcetman.
Kapteinn Guðfinna Jóhannesdóttir og
liðsmenn taka þátt í samkomunni. Ver-
ið velkomin.
Gjajir til Elliheimilisins í Skjaldar-
vík. Frá nokkrum vinum Kristínar sál.
Sigurðardóttur frá Grænhól (við jarð-
arför hennar) kr. 350,00. Frá Jónasi
Ilálfdánarsyni kr. 200,00 og frá A og
S kr. 500,00. Hjartans þakkir. Stefán
Jónsson.
Kristilegt mót verður að Löngumýri
í Skagafirði um næstu helgi. Mótið
verður sett á iaugardagskvöld og stend-
ur til sunnudagskvölds. Verða þarna
ýmsir ræðumenn, þ. á. m. séra Sigur-
jón Þ. Árnason og cand. theol. Gunnar
Sigurjónsson, báðir frá Reykjavík,
Steingrímur Benedikt:son kennari Lá
Vestmannaeyjum, sem starfaði við
Sumarskólann á Löngumýri um tíma i
fyrra, og nokkrir fleiri. Greiðasala
verður á staðnum yfir mótstímann og
gisting í skólanum, meðan húsrúm
leyfir, en einnig verður leyft að tjalda
á staðnum. — Nánari upplýsingar á
Löngumýri og hjá Björgvin Jörgens-
syni, sími 1698, Akureyri.
Skemmtiferð á Strandir.
Esja fer skemmtiferð vestur á
Strandir um næstu helgi. Farið
verður frá Akureyri kl. 6 á laug-
ardag og dvalið á Siglufirði um
kvöldið. Síðan siglt um Skaga-
fjörð og Húnaflóa til Hólmavík-
ur. Komið iil baka á sunnudags-
kvöld. Ef veður verður gott, gefst
mönnum tækifæri að skreppa í
land í Drangey.
Farmiðar seldir á skipaaf-
greiðslunni.
•Iarðsíiní lagður
yíir Búrfjall
M5' Sporðaköst í hverjum hyl í Hofsá.
-7
Sérstök öndvegistíð hefir verið
iiér undaniarna aaga og mikn
.aða verið hrrt. Siattur byrjaði
ekki aimennt fyrri en upp úr s. i.
mánaðamótum, enda var vorið
rnjög þuirt og fremur kalt og
spratt því í seinna lagi. Góö
sprettuiíð er hinsvegar síðustu
dagana.
Margir bændur eru nú hálfn-
aðir með iúnaslátt eða meira, og
pornar taðan jafnóðum. Tveir
oændur eru að koma sér upp súg-
purrkun í sumar, en áður var
xiún aðeins á tveim heimilum.
I sumar verður lagður jarð-
sími yfir Búrfjali við Vopnafjörð,
en þar hafa s.mabilanir verið
.íðar á vetrum en erfitt um við-
gerðir. Innansveitarsima á að
æggja í haust á bæina austan
Jtfoisár, frá Krossavík að Egils-
slöðum, og verður þá kominn
sími um alla sveitina að undan-
teknum Hramifellsdal og nokkr-
um bæjum milli Vesturárdals og
Selárdals.
Fjögur nýbýli í sveitinni eru í
byggingu, þrjú þeirra byggð út
úr jörðum, sem eru í ábúð, og
endurbygglng fer fram á einni
jörð. Mjög víða er verið að
byggja peningshús og hlöður.
Nokkur íbúðarhús eru í smíðum
í kauptúninu og myndarlegt fé-
lagsheimili, er öll félög í sveitinni
og kauptúninu standa að. Er leik
sviðið þegar tekið í notkun til
fundahalda og samkomuhalda,
þar eð geunla 6amkomuhúsið var
rifið og notað til innréttinga í
hið nýja. Auk leiksviðs og bún-
ingsherbergja verða í húsinu
rúmgóður samkomusalur, minni
fundasalur, kaffistofa og eldhús,
bókasafn, lesstofa o. fl. Loks er
Hví'asunnusöfnuðurinn að byggja
kirkju með viðbyggðri íbúð.
Á s. 1. ári var Ieitt rafmagn um
kauptúnið frá dieselstöð, og næg-
ir það fullkomlega til ljósa og
suðu. Vatnsskortur er mikill í
kauptúninu, en nú s'endur til að
leggja þangað vatnsveitu. Hefir
nokkurt lánsfé verið útvegað og
hluti af efni til hennar keypt, en
framkvæmdir eru ekki hafnar. Þá
var í fyrra breikkaður bryggju-
hausinn um 15 metra, svo að nú
geta skip eins og „Fellin“ lagst að
bryggjunni.
Fjórir dekkbátar og tvær trill-
ur eru gerðar út héðan, en afli
hefir verið mjög tregur að und-
anförnu. Undirbúningur er haf-
inn til að taka á móti síld til sölt-
unar eins og undanfarin ár. Eng-
in síld hefir þó borizt enn og þess
vart að vænta, fyrr en hún veiðis.
við Langanes eða aus'.an þess.
Það háir síldarverkun hér, að
ekki skuli vera hér lítil sildar-
bræðsla til að nýta úrganginn
eða þá síld, sem ekki telzt söltun-
arhæf. Tvö félög, Hafblik og
Drangey, reka söltunars'.öðina
sameiginlega.
Laxveiðitíminn er ekki byrjað-
ur, en í gær var farið með Hofsá
ofanverðri, og sáust þar sporða-
köst og slökk í hverjum hyl. Tel-
ur Metúsalem á Burstarfelli, að
óvenju mikill lax muni vera í
ánni, en enn mun hún ekki leigð
nema fáa daga í ágúst.
S.
Álagningarreglur
óbreyttar
Þar sem marga útsvarsgj ald-
endur fýsir að vita, eftir hvaða
reglum niðurjöfnunarnefnd legg-
ur útsvör á borgarana, hefir blað-
ið aflað sér upplýsinga um það
atriði, en reglur nefndarinnar eru
óbreyttar frá því í fyrra að öðru
leyti en því, að lágmarkstekj ur,
sem útsvar er lagt á, eru nú 14
þús. kr. í stað 13 þús. í fyrra. Að
öðru leyti eru reglurnar þessar:
Tekju- og eignaútsvör álögð
eftir stiga þeim, er birtur var í
síðas!a blaði að viðbættu 10% á-
lagi. Utsvarsskyldar tekjur eru
þær sömu og nettótekjur til skatts,
útreiknaður af skattstofunni. Út-
svarsskyld eign er skuldlaus eign
að viðbæltu þreföldu fasteigna-
matsverði, en frádregin hlutafjár-
eign, sem er útsvarslögð hjá við
komandi hlutafélögum og arður
af hlutafé einnig.
Relcstursútsvör: Smásala, hótel-
rekstur, umboðslaunatekjur, kvik-
myndahúsarekstur, olíusala og
síldarsöltun 0,75%.
Iðnaður, flutningar, afgreiðsla
0,5%.
Útgerð, heildverzlun, kolasala,
kaffibrennsla 0,4%.
Bætt er við 10% álagi eins og
á tekju- og eignaútsvör.
Nefndin vék frá stiganum til
lœkkunar, þar sem um sérstakar
ástæður var að ræða, svo sem
vegna verulegs veikindakostnaðar
eða annarra líkra ástæðna. Enn-
fremur var þeim, sem keypt höfðu
fæði vegna atvinnu u’anbæjar
veittur frádráttur kr. 18,00 á dag
fyrir karlmenn og kr. 15,00 íyrir
konur.
Ef foreldrar kosta börn sín til
framhaldsnáms utanbæjar og cf
hjón vinna bæði utan heimilis.
Mlýtnr stjrrh til ndms við
Hdskólo íslonds
Nefnd sú, sem skipuð var til að
úthluta námsstyrk íslenzku ríkis
stjórnarinnar, er auglýstur var
hér í blaðinu fyrir skömmu, hefir
tilkynnt, að styrkurinn hafi verið
veittur Lilju Eylands, er lauk B.A.
prófi við Manitobaháskóla nú í
vor. Styrkurinn nemur cem kunn-
ugt er 12.500 íslenzkum krónum
og er veittur til náms í íslenzkri
Lungu, bókmenntum og sögu við
Háskóla íslands í Reykjavlk vet-
urinn 1955—56. Lilja hefir num-
ð íslenzku við Manitobaháskóla
undanfarin þrjú ár.
Lilja er yngsta dóttir dr. Valdi-
mars J. Eylands og Lilju konu
hans.
(Lögberg.)
Minnisvarði
Bólu-Hjálmars
aíhjúpaður
24. júlí
Sunnudaginn 24. júli verður
afhjúpaður minnisvarði um
Hjáhnar Jónsson skáld frá Bólu í
Skagafirði á 80. ártíð hans.
Skagfirðingafélagið á Akureyri
hefir reizt þennan varða, og létu
þeir Bólu-feðgar, Valdimar Guð-
mundsson og Guðmundur sonur
hans, félaginu í té ókeypis land-
spildu undir minnisvarðann. Hef-
ir land þelta nú verið girt og í
það plantað trjágróðri, og þegar
límar líða, mun þarna vaxa upp
trjálundur umhverfis varðann.
Að lokinni afhjúpun varðans,
mun hann svo ásamt lundinum af-
hentur Skagafjarðarsýslu til eign-
ar og umsjár, og hefst sú athöfn
að Bólu kl. 15 síðdegls. Verða
þar fluttar ræður og ávörp og
kvæði flu’t.
Um kvöldið verður evo sam-
koma í Varmahlíð, er Skagfirð-
ingafélagið á Akureyri gengst
fyrir.
Dagskrá samkomu þessarar
verður nánar auglýst síðar.
AnnáU Islendings
»o»»oopoo»oooo»»oooooo«
Rússnesk og tékknesk vörusýning
haldnar í Reykjavík.
40 ára afmælis Hafnarfjarðarkirkju
minnst veglega með guðsþjónustu og
nýtt pfpuorgeí vígt vlð það tækifæri.
Við prestko.ningu að Fellsmúla
hlaut Hannes Guðmundsson cand.
theoL flest atkvæði (72) en náði ekki
lögmætri kosningu. Tveir aðrir voru í
kjöri.
Sveinn I. Sveinsson bóndi á Sveins-
stöðum í Álftaneshreppi á Mýrum
verður ’bráðkvaddur í fjárrekstri inni
á afrétt. Helicopterílugvél fengin til að
sækja hann, og flytur hún lík hans til
Reykjavíkur til krufningar.
Belgiskur togari, Van Dyck, staðinn
að velðum í landhelgi undan Ingólfs-
höfða. Reyndi Jiann undankomu, en
varð kipið Þór náði honum með aðstoð
flttgvéla. Þetta er þriðja landhelgisbrot
hins sama togara.
Dönsk kona, frú Spreckelsen, gefur
Þjóðminjasafninu merkan kirkjugrip,
ofinn altarisdúk úr Sandakirkju í
Dýrafirði, er komizt hafði í eigu móð-
ur hennar um aldamótin, er þá átti
lteinta í Dýrafirði.
27 svín kafna í eldsvoða í Hafnar-
firði og 50 hænsni brenna inni í clds-
voða í hænsnahúsi í Reykjavík.
Finnbogi Bjarnason
sextugur
A nú aflhugi
ára sex tugi,
gœlinn lífsglaður
góðlundaður,
hlýr í hugstöðvum,
harður í vöðvum,
skýr í skapslúnum,
skarpur í brúnum.
Frænda Finnboga
flétti eg Ijóðtoga,
heiðursdreng hylli
hlaðinn snilli,
kœrri með konu
og kjarnmikla sonu. -
Gœfa og gengi
þeim gefist lengi.
J. Ö. J.
Framkvæmdir við
togarabryggjuna
hafnar
Á fundi hafnarnefndar var ný-
lega samþykkt að ganga að til-
boði Hólmsteins Egilssonar um
flu'ning á 5000 teningsmetrum af
uppfyllingu í togarabryggj una á
Oddeýri, en tvö tilboð höfðu bor-
izt.
Þá fól nefndin bæjarverkfræð-
ingi að hefja flutning á grjóti í
bryggjugarðinn svo fljótt sem
unnt er og hraða verkinu og full-
Ijúka því á sem stytztum tíma.
Kristján Nói Kristjánsson
sk.’pasmíðameistari hefir tekið að
sér umsjón með byggingu bryggj-
* unnar.