Íslendingur


Íslendingur - 21.09.1955, Side 8

Íslendingur - 21.09.1955, Side 8
Kirkjan: Messað í Akureyrarkirkju n. k. sunnudag kl. 2 e. h. Sálmar: 573, 194, 226, 222 og 451. — (K. R.) l.O.O.F. 2 — 137923814 — Áttrœður varð 1. þ. m. Pálmi Jó- hannesson fyrrum bóndi í Kálfagerði, nú til heimilis að Munkaþverárstr. 16. Sjötugur varð 15. þ. m. Pá'.mi Kristj- ánsson fyrrum barnakennari í Saur- bæjarhreppi. Hjúskapur. — Ungfrú Ragnheiður Brynjólf dóttlr (Sveinssonar mennta- skólakennara) og Jón Jósteinn Níels- son læknanemi frá Húsey í Hróars- tungu. Ungfrú Lilja Sigurðardóttir kennari og Sigtirður Jónasson smiður í Hróars- dal, Skagafirði. Vallarráð hefir ákveðið að leyfa ekki notkun grasvallarins á íþróttaleikvang- inum lengur í sumar. Umferð um völl- inn er einnig bönnuð og er þess vænst, að íþróttamenn og aðrir bæjarbúar láti sér annt um að verja þenna blett og hlífa honum við óþarfa átroðnlngi. Happdrœtti Landgrœðslusjóðs. Þe:sa dagana er verið að selja happdrættis- mlða Landgræðslusjóðs. Kostar mið inn kr. 100,00 og er vinningur Merce des-Benz fólksbifreið af gerð 220. •— Gefnlr eru út 6. þús. miðar og verður dregið 22. okt. Landgræðslusjóður á að vera undir- staða þess eta.fs að gera landið feg- urra og frjórra, gróðurinn meiri og verðmætari. Allir íslendingar þurfa að veita þvi máli þann stuðning, sem þeir geta. Happdrættismiðarnir fást á Akureyri hjá stjórn skógræktarfélags Eyfirðinga, einnig á B.S.A., B.S.O. og Litlu-Bila- stöðinni. Blaðið hefir verið beðið að vekja at- hygli fullnaðarprófsbarna frá I vor, sem enn hafa ekki mætt til skrásetn ingar í Gagnfræðaskólanum, á því, að það má ekki dragast, að þau eða for ráðamenn þeirra hafi tal af skóla:tjór- anum. Kvikmyndasýning. Athygli skal vak- in á kvikmyndasýningu íslenzk-ame- ríska félagsins á föstudagskvöldið, s.b. augiýsingu í blaðinu. Mlðvikudagur 21. sept. 1955 Fuiidiii* 8jálfsMisfcIag:aHiiii n.k. suiiiiudag* Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra, mætir á fundinum Sjálfstæðisfélögin á Akureyri boða til almenns stjórnmálafund- ar í Samkomuhúsi bæjarins n. k. sunnudag, 25. september kl. 4 e.h. Ræðumenn á fundinum verða Bjarni Benediktsson dómsmála- ráðherra og Jónas G. Rafnar alþm. Öllum er heimill aðgangur að fundinum, meðan húsrúm leyfir. Bjarni Benediktsson dómsmála ráðherra mun ræða stjórnmála- viðhorfið og s’jórnmálasamslarf- ið, og mun mörgum leika hugur á að heyra álit hans á þeim mál- um, auk þess sem Bjarni Bene- diklsson er einn snjallasti ræðu- maður í hópi íslenzkra stjórn- málamanna og livergi myrkur . máli. Eru stuðningsmenn Sjálf- stæðisflokksins í bæ og nágrenni sérslaklega hvattir til að sækja fundinn. ' v'- VV* T'Jí ■4 . ' , .' • • Sþróítir BÁÐIR LÆRLEGGIR BROTNUÐU Það slys varð í síðastliðinni viku um borð í vélbátnum Draupni á Hauganesi, að ungl- ingspiltur, Þorvaldur Baldvinsson, einn af bátverjum, lenti í spili bálsins með þeim afleiðingum, að báðir lærleggir brotnuðu. Önnur meiðsli ekki 'eljandi. Þorvaldur liggur síðan í Fjórðungssjúkra- húsinu, og mun líðan hans eftir atvikum. ITA Norðurlands- meistari Um helgina fór fram hér á í- þrót'asvæðinu Norðurlandsmót í knattspyrnu í meistaraflokki, þar sem keppt er um meistaratitil árs- ins fyrir Norðurland. Var KA Norðurlandsmeis'ari í fyrra og varði titilinn nú með sóma, þólt liðið vantaði 3 af meisturunum. sem meiðst hafa í leikjum fyrr í sumar. Auk Akureyrarfélaganna tók Knattspyrnufélag Siglufjarðar þátt í mótinu. Léku Siglfirðing arnir við KA á Iaugardaginn, en þann leik vann KA með 10 mörk- um gegn 1. Á sunnudag léku KA og Þór, og vann KA með 3 : 1 (öll mörkin í síðari hálfleik). Síðasti leikurinn, milli Þórs og KS, fór svo fram í fyrrakvöld, og vann Þór þann leik með 6 : 2. Hafði gert 4 mörk í fyrri hálfleik, en í síðari hálfleik gerði hvort Iiðið 2 mörk. Alla dagana var votviðri og gekk á með regnskúrum. Var því knötturinn blautur og þungur og völlurinn sleipur. — Dómari var Hannes Sigurðsson úr Reykjavík. Tveir íslendingar í keppni við Balkanlönd. Dagana 15.—16. október n. k. fer fram keppni i frjálsum íþrótt- Marlcmaður KA, Einar Helgason, íþróttakennari gegnir ábyrgðarmiklu starji í hinu sigursœla liði og hejir vak.ð a'.hygli jyrir góða staðsetningu og úthlaup á réttum augnablikum. — KAUPENDUR BLAÐSINS í næstu sveitum, sem skulda !vo síðustu árganga, eru vinsam- legast beðnir að greiða skuld sína nú í haustkauptíðinni. — Þeim kaupendum, sem fjær búa, verða sendar póstkröfur fyr- ir áskriftargjaldinu. Árgjaldið 1954 var kr. 40,00, en fyrir yfirstandandi ár kr. 50,00. — A'hygli kaupenda skal vakin á þv', að áskriftarverð blaðsins hefir aðeins fjórfaldast síðan fyrir stríð (miðað við stærð þess), en laun manna og fram- leiðsluvörur 12—15 faldast. um í Aþenu milli Norðurlanda og Balkanlanda. Hafa 2 Islendingar verið valdir í keppnina og 1 til vara. Eru það Hallgrímur Jóns- son, er keppir í kringlukasíi, og Vilhjálmur Einarsson í þrístökki. Guðmundur Hermannsson er til- nefndur sem varamaður í kúlu- varpi. Þrír menn keppa í hverri grein frá hvorum aðila, en alls fara 53 íþróllamenn frá Norðurlöndum í þessa suðurreisu. Finnar eru þar fjölmennastir (22), Svíar 18, Norðmenn 10, íslendingar 2 og 1 Dani, Áður hafði verið búizt við, að Þórir Þorsteinsson yrði til- nefndur í 400 metra hlaupið, en svo hefir ekki orðið. Jóhann Hajstein. FERTUGUR: Jóhann Haístein banlcasljóri og alþingismaður varð ferlugur í fyrradag. Hann er fæddur hér á Akureyri 19. september 1915, sonur hjónanna frú Þórunnar og Júl usar Hav- sleen sýslumanns. Aðeins 18 ára gamall lauk hann stúdentsprófi frá Menn’askólanum á Akureyri og 4 árum síðar lögfræðiprófi við Iláskólann. Stundaöi næs'a vetur nám í alþjóðarétti við Uni- versily of London. Árið eftir geiðist hann erind- reki Sjálfs'æðisflokksins og síðar framkvæmdas'jóri lians. Frá ár- ’nu 1946 hefir hann verið einn af þingmönnum Reykjavíkurbæjar og síðustu árin bankastjóri við Utvegsbankann. Ymsum öðrum cpinberum tiúnaðarstörfum hefir hann gegnt og meira en áratug s aðið í fylkingarbrjósli í félags- málum Sjáifslæðisflokksins. Jóhann er ölull maður og starf- samur, gæddur fossandi mælsku og farsælum gáfum, drengur hinn bezli og ljúfur í kynningu. Hefir það verið Sjálfstæðlsflokknum mikill styikur að njóta slarfs- kraf a hans og óbilandi áhuga. _________________ TVÖ AKUREYRARSKIP Á TOGVEIÐUM Akureyrarskipin Snæfell og Súlan stunda nú togveiðar. Hefir Súlan nýlega lagt upp afla sinn hér á Akureyri, ogf fer hann í herzlu. Bálarnir Garðar og Gylfi eru á reknelaveiðum syðra en Akraborg fyrir Austurlandi. Auð- ur llggur -hér við bryggju. Annáll Islendings Þungum peningaskáp stolið að næt- urlagi úr Steypustöðinni við Elliðaár í Reykjav k. Sömu nótt stolið logsuðu- tækjum á öðrum stað. Skápurinn finnst síðar í b'rgðaskemmu við Rauðavatn. Hafði verlð opnaður með logsuðutækj- unum og peningar hirtir. —o— Kýr í Markaskarði í Hvolhreppi læt- ur 4 kálfum. Er fjórkelfd kýr nær ein- stælt fyrirbæri hér á landi. —o— Ví itala framfærslukostnaðar fyrir september reynist 165 stig. Jón Hjaltalín Sigurðsson prófessor andast í Reykjavík 76 ára að aldri. Ríkisstjórnin samþykklr að fresta sctningu framhaldsskólanna til 15. okt. ;egna óþurrkanna á Suður- og Vestur- andi, samkvæmt óskum aðalfundar Stéttarsambands bænda. —o— Á íþróttaþingi Í.S.Í., höldnu að Hlé- garði í Mosfellssveit, var Benedikt G. Waage endurkjö-inn forseti ÍSÍ. —o— Vélbáturin Halkion frá Vestmanna- eyjum sekkur á heiinleið af reknetja- veiðum. Kom skyndilega leki að bátn- um, og kölluðu bátverjar á aðstoð um talstöð. Lltlu áður en hjá pin barst, fór áhöfnin, 7 menn, í gúmm bát, og björg- uðust allir. ÍSLENDINGUR fæst í lausasölu í Bókaverzlun P.O.B., Bókabúð Rikku, Bóka- verzlun Eddu og Blaða- og sælgætissölunni vlð Ráðhús- torg. Farnir á þing S Þ í gær var 10 þing Sameinuðu Jijóðanna selt i New York. Auk aðalfulltrúa íslands, Thors sendi- herra, sækja það þrír íslendingar að heiman: Dr. Kristinn Guð- mundsson ulanríkisráðherra og aiþ.no-ismennirmr Elr Ingi- mundarson og Hermann Jónas- son. Flugu þeir veslur í fyrradag. Verður íllrmninoi seð stret>woð«ltstur frestað! Blöðin skýrðu frá þvi í sumar, að bæjarstjórn hefði ákveðið að gera tilraun með strætisvagna- rekslur hér í bænum 2—4 vikur á þessu hausti. Á fundi bæjarráðs 8. ]). m. skýrðl bæjarstóri svo frá, að for- sljóri S'rætisvagna Reykjavíkur hefði tilkynnt sér að af ófyrir- sjáanlegum ástæðum væri sér ekki unnt að lána vagn hingað til Akureyrar í haust eins og gert hafði verið ráð fyrir. Taldi bæj- arráð ekki fært að gera slíka til- raun nema að hafa ráð á vagni, sem beint væri til þess gerður, og gerði því ráð fyrir, að fresta yrði hinni ráðgerðu tilraun iil næsta Hlutu verðlaun fyrir hátíðaljóð Nefnd sú er undirbýr Skál- hollshátiðina á næsla ári, efndi í sumar til samkeppni um hátíðar- ljóð meðal íslenzkra skálda. Hef- ir nú verið unnið úr þelm 18 ljóðaflokkum, er nefndinni bár- ust, og hlaut séra Sigurður Ein- arsson í Holti I. verðlaun, sem eru 15 Jdús. kr. II. verðlaun, 5 þús. kr., hlaut Þorsleinn Hall- dórsson Reykjavík, og III. verð- laun, 2 þús. kr., Þorgeir Svein- bjarnarson Reykjavík. ■ í dómnefnd voru: Dr. Magnús Jónsson prófessor, dr. Steingrím- ur J. Þorsleinsson og séra Sveinn Víkingur rilari biskups.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.