Íslendingur

Útgáva

Íslendingur - 30.05.1956, Síða 4

Íslendingur - 30.05.1956, Síða 4
4 ÍSLENDINGUR Miðvikudagur 30. mai 1956 Útgefandi: Úlgáíujclag Islendingi. Ritstjórí og ábyrgðannaíJur: JAKOB Ó. PÉTURSSON, Fjólugötu 1. Sími 1375. Skrifstofa og afgreiðsla f Gránufélagsgötu 4. Simi 1354. Skrifstofutimi: KL 10—12, 1—3 og 4—6, á laugardögum aðeini 10—12. PrenlsmiSja Bjömi Jónssorutr hj. Fagnaðarboðskapur Hræðslubanda- lagsins Það heíir mjög einkennt málflutning Hræðslubandalagsmanna á fundum þeirra víðs vegar um land undanfarið og þá jafnframt blaða þeirra, að reynt er að forðast að nefna á nafn hinar stór- felldu framfarir síðustu 15 ára og hina stórbættu afkomu og lífs- kjör almennings í landinu. Hins vegar hefir verið reynt að koma þeirri skoðun inn hjá kjósendum, að fólkinu í landinu hafi liðið bezt við atvinnuleysi, skort á nauðsynjum og verzlunarhöft, og stefni Hræðslubandalagið nú að því að geta veitt þjóðinni stjóm- arfar það, sem hér var ríkjandi á árunum 1934.—39. Allir, sem muna þá daga, vita, að þá bjó allur landslýður við þær mestu þrengingar, er yfir hann hafa komið á 20. öldinni. Bændur buðu þá jarðir sínar ríkinu til kaups í von um að geta set- ið þær sem leiguliðar, en atvinnulausir verkamenn gengu fjöl- mennir á fundi bæjarstjórna, slógu hring um þær til að freista að knýja þær til samþykkta á auknum atvinnuframkvæmdum, svo að sulti og klæðleysi væri bægt frá dyrum atvinnuleysingjanna. Þann- ig voru þeir „blómatímar“, sem Alþýðuflokkurinn lætur sér svo tíðrætt um og Hræðslubandalagið biður mn kjörfylgi til að leiða á nýjan leik yfir þjóðina. Við skulum þó ekki ætla, að blöð þess braskfyrirtækis umgang- ist staðreyndirnar, þegar þau lýsa „dýrðinni“ á samstjórnarárum Framsóknar og Alþýðuflokksins. Það er eins og þau lifi í þeirri trú og von, að þeir timar séu öllum gleymdir sem lifðu þá, og nú er reynt að segja yngstu kjósendunum falleg ævintýri í Þúsund og einnar nætur-stíl. Látum svo Tímann 24. maí hafa orðið: „Nú er ekki ósvipað um að litast í efnahagsmálum þjóðar- innar og var, þegar samstjórn þessara flokka (þ. e. Fram- sóknar og Alþýðuflokksins) tók við á árunum milli 1930— 40. Allri þjóðinni er kunnugt, hvernig sú stjórn reisti efna- hagslífið úr rústum, hvernig hún hélt gróða sérhagsmuna- mannanna í skefjum og skapaði allri alþýðu manna bætt lífs- kjör og lagði grundvöll að stórfelldum umbótum í atvinnu- og félagsmálum. Slík stjórn er enn ein fær að reisa úr rúst- um. Þannig hljóðar ævintýrið í raddsetningu Tímans. En fyrir full- orðnu og rosknu fólki hefir það annan blæ. í stað þess að reisa efnahagslífið úr rústum, hélt ríkisstjórnin þannig á spilunum, að þ'ótt fjármálaráðherra ríkisstjómarinnar færi land úr landi að leita lánsfjár, kom hann hvarvetna bónleiður til búðar, því að svo var efnahagslífinu komið í lök „blómaskeiðsins“, að lánstraust þjóðarinnar var gjör-þrotið erlendis, og varð ríkisstjórnin nauðug viljug að leita ásjár Sj álfstæðísflokksins til þátttöku í ríkisstjórn- inni ,til þess að þurfa ekki að standa yfir „rústum“ efnahagslífsins ráðþrota og bjargarvana. Gróða sérhagsmunamannanna hélt hún ekki eingöngu í skefjum, heldur og möguleikum hvers einasta þegns til sjálfbjargar. Hún hélt ýmsu í skefjum, og skal það ekki af henni haft. Innflutningi nauðsynjavara hélt hún í skefjum og atvinnu verkamannsins. Hvers konar framkvæmdum hélt hún líka í skefjum — yfirleitt öllu, nema skuldasöfnun ríkisins. Og grundvöllurinn, sem hún er sögð hafa lagt að „stórfelldum umbótum í atvinnumálum“ fólst m. a. í því, að lögsækja og sekta eina útgerðarmanninn, sem leyfði sér að flytja inn eina síipið, sem kom til landsins á valdaárum hennar, fyrir að gera slíka óhæfu án leyfis stjórnarvalda! Einn af forustumönnum Framsóknarflokksins kvað eitt sinn svo að orði, er hann deildi við forustumann úr liði Krata, að stefna Al- þýðuflokksins væri „stefna hinna tómu búða“. Hinn svaraði því til, að stefna Framsóknarflokksins væri þá „stefna hinnar tómu pyngju“. Báðir hafa þeir mikið til síns máls. Og nú á að slengj i saman þessum tveim stefnum og marka sameiginlega stefnu til að bjarga efnahagslífinu í landinu. Þessi stefna, sem nú er í senn stefna hinna tómu búða og hinnar tómu pyngju, er nú boðuð af miklum krafti á „glæsilegum" kjósendafundum út til stranda og upp til dala. En þar er jafnframt forðast að minnast á framkvæmdirnar, »Tíminn« heldur dfram að skamma Eystein Jónsson Hvers á maðurinn að gjalda, sem verið heíir íjármálaráðheira Framsóknar í sjö ár Þeim fyrrverandi kjósendum Framsóknarflokksins fjölgar frá degi til dags, sem gefast upp við að skilja „pólitíkina“ í Tímanum. Skrif blaðsins virðast nú miða einna helzt að því að rífa allt nið- ur til grunna, sem blaðið hefir áður haldið fram varðandi lands- málin. í nær því hverju einasta tölublaði er lesendum boðið upp á slíkan málflutning, að ekki er öðru líkt en að ritstjórarnir séu báðir, þótt undarlegt megi virð- ast, ráðnir í að forða öllum greindari hluta þjóðarinnar frá því að kjósa Framsóknarmad- dömuna eða vinnumann hennar, við næstu kosningar. Sérhagsmunamaður „Tímans". Á undanförnum árum hefir „Tíminn“ verið í hinum mestu vandræðum með að finna nógu hástemmd lýsingarorð til þess að hrósa fjármálaspeki Eysteins Jónssonar og stjórn hans á fjár- málum landsins. Góð afkoma rík- issjóðs á undanförnum árum á að vera Eysteini Jónssyni einum að þakka. í því sambandi hefir „Tím inn“ slegið striki yfir allan inn- flutninginn og hinar miklu fram- kvæmdir í landinu, sem hafa veitt ríkissjóði tekjurnar. Nei, á það má ekki minnast. Það er Eysteinn Jónsson, sem hefir búið til allar milljónirnar, því hafa lesendur „Tímans“ átt að trúa. En nú kveður við annan tón í blessuðum „Tímanum“. Það er ekki lengur skrifað um blómlegan fjárhag — heldur fjárhagslegt hrun og fjármálaöngþveiti. Það má ekki lengur minna á tekjuaf- ganginn og allar milljónirnar, sem atvinnuvegirnir hafa fengið til uppbyggingar. í forsíðugrein 24. maí fjallar blaðið um nauð- syn þess að koma á vinstri stjórn: en knésetja um leið sérhags- munamennina, sem ráðið hafa efnahagsmálum þjóðarinnar uin langt skeið með þeim afleiðing- um, sem nú blasa við hvers manns auga.“ Þá er aumingja Eysteinn allt í einu orðinn sérhagsmunamaður, einn allra frómasti maður Fram- sóknarflokksins. Hvað skyldi þá verða sagt um aðra framámenn flokksins eins og Hermann og Vilhjálm Þór? Eða vill blaðið halda því fram, að sá maðurinn, sem gegnt hefir óslitið embætti fjármálaráðherra siðustu sjö árin hafi ekki átt einn allra drýgsta þáttinn í að marka stefnuna í efnahagsmálunum. Hvaða maður annarr skyldi fremur hafa gert það? Oll skrif „,Tímans um fjár- hagslegt hrun og efnahagslegt öngþveiti ákœra engan mann frekar en Eystein Jónsson, for- mann þingflokks Framsóknar- manna, sem gegnt hejir fjár- málaráðherraembœtti síðustu sjo ann. .*___ GÓÐIR TÓNLISTAR- GESTIR VÆNTANLEGIR TIL BÆJARINS UM NÆSTU HELGI Um næstu helgi eru 11 tónlist- armenn úr Symfóníuhljómsveit Bostonar væntanlegir hingað til bæjarins, en nefnd hljómsveit er talin önnur af tveimur beztu symfóníuhljómsveitum Bandaríkj anna. Eru ellefumenningarnir all- ir þekktir og færir meðlimir hennar. Er þetta kvintett á blást- urshljóðfæri og strengjakvartett auk píanó- og klarinettleikara, sem hvort tveggja eru einleikar ar. Hljómsveit þessi mun leika hér n. k. mánudagskvöld fyrir styrkt armeðlimi Tónlistarfélags Akur- eyrar, en síðan hyggst hún leika á Húsavík og Siglufirði, ef kring- umstæður leyfa, og væntanlega í Hafnarfirði. _________ Það er ómannúðlegt og varðar við lög að skjóta fugl, sem sil- ur uppi í fugtabjörgum. . Dýraverndunarfél. íslands. Það varðar sektum að þeyta hljóðpípur skipa við fuglabjörg um varptímann. , Dýraverndnnarfél. íslands. síðan valdaferli þessara „tómthúsmanna“ lauk, því að þær hefjast fyrst með tilkomu Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn. Boðskapur Hræðslubandalagsins er því þessi í dag: Nú er nóg komið með framfarirnar. Hingað og ekki lengra, drengir mínir. Hverfum nú aftur í tímann og beitum aðferðum okkar frá árunum 1934—39 til að „leysa efnahagsmálin" og leiða þjóð vora inn í þá Paradís, er íún þá varð að yfirgefa um skeið. Hvílíkur fagnaðarboðskapur og fyrirheit! Sjötugur: Nrarínn Rr. Edjdrn bóndi að Tjörn í Svarfaðardal varð sjötugur s. 1. laugardag, 26. maí. Hann er borinn og barnfæddur að Tjörn, sonur Kristjáns Eld- járns Þórarinssonar prests og konu hans Petrínu Hjörleifsdótt- ur, og hefir alið þar aldur sinn allan, nema meðan hann stundaði nám í Gagnfræðaskóla Akureyr- ar og á lýðháskólanum í Voss. Jafnframt því sem Þórarinn bjó myndarbúi að Tjöm var hann barnakennari héraðsins full 40 ár, hreppstjóri og sýslunefndar- maður, og gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum öðrum fyrir Svarfdælinga. Hann hefir setið í stjórn Kaupfélags Eyfirðinga um nær tvo tugi ára, og er nú for- maður stjórnarinnar. Þá hefir hann verið í framboði til Alþing- is á lista Framsóknarflokksins i Eyj afj arðarsýslu. Þórarinn á Tjörn hefir ætið not ið trausts og vinsælda í sinni ætt- arbyggð og langt út fyrir hana. Oll störf sín hefir hann unnið af skyldurækni og trúmennsku, og í kennslustarfi sínu hefir hann kom- ið íjölmörgum ungmennum til menningar og þroska. Hann hefir aldrei sótzt eftir mannvirðingum, en menntar hans og mannkosta hefir hérað hans samt sem áður notið í ríkum mæli heima og heiman. Borgarbíó mun taka til sýningar f þessari viku stórinyndina OrSið eftir leikriti Kaj Munks. Leikstjóri er Carl Th. Drayer. Fólki er bent á að draga ekki að sjá þessa mynd, sem taiin er stórkostlegt listaverk. Blaðaummæli um hana eru þannig: „Maður verður hljóð- ur af aðdáun og lotningu andspænis öðru eins listaverki og þessu.“ (Aften- bladet.) „Áhrifamesta, trúarleg áróð- ursmynd, sem sýnd hefir verið, mynd á heimsmælikvarða.“ (Politiken.) „Full- komið listaverk, sem ekki er liáð tíma nó rúmi.“ (Jyllands Posten.) íslenzkur Bkýringatexti er á myndinni og gefur henni aukið gildi fyrir okkur. Auglýsið í íslendingi

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.