Íslendingur


Íslendingur - 16.05.1958, Page 4

Íslendingur - 16.05.1958, Page 4
4 ÍSLENDINGUR Föstudagur 16. maí 1953 Kemur út hvern föstudag. Útgefandi: Útgáfujélag íslendings. Rit8tjóri og ábyrgðarmaður: Jakob Ó. Pétursson, Fjólug. 1. Sími 1375. Skrifstofa og afgreiðsla í Gránufélagsgötu 4. Sími 1354. Opin kl. 10—-12, 1—3 og 4—6, á laugardögum 10—12. Prentsmiðja Björns Jónssonar h.j. Osamhent ríkissljórn hverfur enn frá stefnu Um nær þriðjung aldar hefir ríkisstjórn á Islandi verið sam- stjórn tveggja eða fleiri stjórn- málaflokka að stuttu tímabili und- anskildu. Flokkarnir hafa, áður en stjórnin var mynduð, komið sér saman um heildarstefnu í hin- um einstöku málum, og hafa þá gjarna orðið að hvika lítið eitt frá stefnu sinni, til þess að unnt væri að mynda slíka heildar- stefnu stjórnarinnar. Oft hafa þó flokkarnir Idaupizt frá stefnunni síðar, ef þeir hafa talið fram- kvæmd hennar með öðrum liætli en þeir væntu. Alþýðuflokkurinu „dró“ ráðherra sinn út úr ríkis- stjórn fyrir um 20 árum, komm- únistar yfirgáfu nýsköpunar- stjórnina vegna ágreinings um ut- anrikismál og Framsóknarflokk- urinn hefir nokkrum sinnum rof- ið stjórnarsamvinnu við Sjálf- stæðisflokkinn á ofanverðu kjör- tímabili í von um að geta fengið með því hagstæðari kosningar, þólt það dæmi reyndist oftast rangt reiknað. Engin ríkisstjórn mun þó hafa reynzt ósamhentari og sundurleit- ari en sú, er nú situr að völdum. Virðist hún ekki eiga sameigiu- legt nema það eitt, að vera við völd, hverju sem tautar og hvern- ig sem samkomulagið er, og veld- ur þar e. t. v. mestu um sameigin- legur ótti hennar allrar við nýjar kosningar. Sá ótti er að sjálf- sögðu eðlilegur, þegar fyrsta verk Hræðslubandalagsins að síðustu kosningum loknum var að bregð- ast því heiti forustumanna þess, að aldrei skyldi unnið með komm- únistum, og síðan að falla frá stærsta baráttumáli allra stjórnar- flokkanna: Brottför varnarliðsins. Og enn fleira kemur hér til greina. Er ríkisstjórnin tók við völdum tilkynnti hún, að í samráði við verkalýðssamtökin og bændastétt landsins yrði gert mikið átak í efnahagsmálunum og verðbólgan stöðvuð. Tillögur í efnahagsmál- unum áttu fyrst að koma fram fyrir jól síðastliðinn vetur, — síðan í hverjum mánuði og síðast einhvern næstu daga. Og loks þeg- ar tillögur ríkisstjórnarinnar koma til athugunar hjá trúnaðar- mönnum verklýðshreyfingarinn- ar, er svohljóðandi ályktun borin fram: „Greinilegt er, að þessar ráð- stafanir í efnahagsmálunurn munu leiða til frekari verð- bólguþróunar og eru því frá- hvarf frá þeirri stefnu, er 25. þing ASÍ fagnaði og lýsti fylgi sínu við og efnahagsmálanefnd og miðstjórn ASÍ síðan hafa ítrekað, þ. e. að stöðva verð- þensluna. Ráðstafanirnar brjóta því í bága við þá stöðv- unarstefnu er verklýðssamtök- in og ríkisstjórnin þá tók höndum saman um.“ Ályktun þessi var að vísu felld með óverulegum atkvæðamun og fylgi við stjórnartillögurnar sam- þykkt með eins atkvæðismun, en eigi að síður er ljóst, að veruleg- ur hluti verklýðssamtakanna telur ríkisstjórnina hafa enn einu sinni gripið til „fráhvarfs“ frá stefnu sinni, þ. e. stöðvunarstefnunni, sem stjórnin hefir svo oft hrósað sér af. *____ Tunguniar tvær Hvenær, sem blöð Sjálfstæðis- manna ympra á skattfríðindum samvinnufélaganna, rjúka Fram- sóknarblöðin upp til handa og fóta og hrópa: Árás, árás! Þau svara öllum uppástungum um jöfnuð allra einstaklinga og fé- laga í skatt- og útsvarsgreiðslum með því einu, að uppástungurnar séu sprottnar af fjandskap vondra manna gegn samvinnufélögunum. Fyrir Alþingi hefir undanfarið legið frumvarp frá fjármálaráð- herra um þá breytingu á sam- vinnulögunum gömlu, að kaupfé- lögin séu undanskilin ákvæðinu um, að þeim beri að leggja 1% af sölu vara og afurða í varasjóð. Sýnt hefir verið fram á, að með samþykkt þessarar breytingar mundu samvinnufélögin verða svo að segja skattlaus til ríkissjóðs í fleslum tilfellum, en Tíminn held- ur því fram, að breytingin miði að því, að samvinnufélög eitji um skattgreiðslur við sama borð og hlutafélög og sameignarfélög. Og í framhaldi af þessari kenningu segir Tíminn 29. apríl: Það er stefna Framsóknar- manna, að samvinnufélögin njóti sem líkastrar aðstöðu og einkareksturinn. Þeir telja, að sérstök hlunnindi séu sam- vinnuhreyfingunni ekki hag- kvæm, þegar til lengdar lætur, heldur geti dregið úr árvekni hennar og framtaki. Jafnréttis- staðan sé henni bezt. Á þeim grundvelli geti hún skapað einkarekslrinum hollt aðhald og hann henni, og almenningi þannig tryggð hin bezta þjón- usta.“ Þetta er vel mælt, enda er hér Notið meiri ost Undanfarin ár hefir ostur ver- ið auglýstur mikið og mikið reynt til þess að fá almenning til þess að neyta hans meira en gert hefir verið, og hefir það sennilega bor- ið einhvern árangur. En þrátt fyr- ir það notum við enn of lítið af ostum í hinu daglega fæði. Ostur er sérstaklega verðmæt fæðuteg- und vegna þess hve hann inniheld- ur mikið af eggjahvítuefnum, kalki, fosfor, A og B1 vítamínum. Sérstaklega hafa öil þessi efni mikil áhrif á vöxt og þroska barna og unglinga. Umhyggjusöm hús- móðir lætur því aldrei vanta ost á morgunverðar og kveldborðið, og hún sér um að væn heilhveiti- eða rúgbrauðssneið með osti sé í hverjum nestispakka, sem hún sendir frá sér. í 100 gr. af osti getum við fengið rýmlega eins dagsþörf af kalki og hálfs dags- þörf af fosfor. Það er tiltölulega meira af kalki og fosfor í ostin- um eftir því sem hann er magr- ari en aftur á móti meira af A um að ræða stefnu Sjálfstæðis- manna en ekki Framsóknar, — stefnu, sem hingað íil hefir verið talin fjandsamleg samvinnuhreyf- ingunni og árás á hana. En sé nú Framsókn komin á þessa skoðun, er Tíminn túlkar svo, sem hér hef- ir sýnt verið, því stígur hún þá ekki sporið fullt og krefst gagn- gerðrar endurskoðunar á sam- vinnulögunum í heild? Og hví tekur hún þá ekki undir með kaup- staðaráðstefnunum á Austur-, Norður- og Vesturlandi og. krefst þess, að samvinnufélög greiði veltuútsvar til bæja- og sveitafé- laga á sama hátt og einstaklingar og hlutafélög? Hvað viðkemur skoðun Fram- sóknar á betri þjónustu, þar sem samkeppni ríkir milli kaupfélaga j og einstaklinga í verzluninni, þá er það mál öllum augljóst. Ilver vill t. d. skipta á þjónustu KEA hér á Akureyri við neytendur í þessum verHunarbæ eða þjónustu kaupfélaganna á Norð-auslur og Austurlandi, þar sem kaupfélögin eru ein um hituna og neytendur hafa ekki í önnur hús að leita um vörukaup? Nægja mun að spyrja fólkið á þessum stöðum verzlun- areinokunarinnar. Eins og sjó mó af þeim orðum, er hér aS framon hafa verið íekin upp úr forustugrein Timans hinn fyrsta þriðjudcg í sumri, talar honn tveim tungum, er samvinnu- félögin og einkareksturinn ber á góma. Varlega skyldi því treyst, að blaðið toli fyrir munn forustu- manno samvinnufélagonno, cr þoð telur kaupfélögunum fyrir beztu, að þau búi við sömu skatta- og útsvarsgreiðslur og aðrir þeir, er reka verzlun og iðn- oð í landinu, og að samkeppni við einstoklinga eða verzlunarfé- lög sé þeim heilsusamlegust og líklegust til vaxtar og þrifa. vítamíni því feitari sem hann er. Það sem meint er með feitum eða mögrum osti er hversu mikill hluti af þurrefni hans er fita. Magur ostur er auðmeltari en feitur. Sennilega munu fáar húsmæður nota ost öðruvísi en ofan á brauð, en hann er hægt að nota á fleiri vegu við matargerðina. Lag af rifnum osti ofan á grænmetis- eða fiskbaksturinn (gratínið) gerir mjög bragðgóða og Ijúffenga skorpu, það er gott að láta rifinn ost út í tómatsúpuna, áður en hún er tekin af eldinum. Smurt ostkex með tómat eða gúrkusneið ofan á er mjög Ijúffengt. í allt þetta er hægt að notfæra sér afganga af osti, sem eru annað hvort orðnir þurrir eða of litlir til þess að láta á borðið. Ileilhveiti- eða fransk- brauðsneið með þykku lagi af rifnum osti, sem síðan er brugðið inn í vel heitan ofn, þar til ostur- inn er orðinn gulbrúnn og farinn að bráðna, er bæði fljótlegt, bragðgott og vinsælt af heimilis- fólki og gestum. Á sumrin og haustin, þegar nóg fæst af græn- meti, er fljótlegt að smyrja nokkr- ar sneiðar með osti og Ieggja ofan á hann tómat eða gúrkusneiðar, radísur, saxaða steinselju eða karsa. Það brauð er gott, fallegt og síðast en ekki sízt mjög bæti- efnarikt og hollt. Ostinn er bezt að geyma í plastpoka, en það þarf að muna að þvo pokann oft, ann- ars geymist osturinn ekki vel. Bezt er að hafa tvo poka og skipta dag- lega og þvo pokann og þurrka. Ef keypt er stórt stykki, sem geymast .á um tíma, er gott að leggja al- uminium-pappír yfir sárið. Ef liann er ekki til, er sárið sinurt vel með smjöri eða smjörlíki. Þegar ostur er keyptur í smábitum til nokkurra daga, ætti alltaf að athuga að hann sé skorinn um leið og hann er keyptur. Ostur, sem búið er að skera í bita, pakka inn í smjörpappír eða sellophan og liggur svo í afgreiðsluborði verzlunarinnar, er strax farinn að þorna. Þó það sé sjálfsagt til mikilla þæginda fyrir afgreiðslu- fólk að hafa ostinn þannig tilbú- inn til afgreiðslu, eru það áreið- anlega ekki hagsmunir kaupend- anna. LJÚFFENG SÚKKULAÐIKAKA 2—3 egg, 2 dl. sykur, 2 dl. hveiti, 2 msk. kakó, 2 tsk. lyíti- duft, 1 bolli rjómi eða mjólk. Egg og sykur þeytt vel, hveiti, lyftiduft og kako sigtað saman við, vælt með rjóma eða mjólk. Bakað í tveim til þrem lagköku- mótum. Þegar kakan er köld, er hún lögð saman með þeyttum rjóma á milli laganna og skreytt ofan með súkkulaði-glassúr. Þessi kaka er einnig góð með smjör- kremi eða súkkulaðikremi. Kolfinna. ___*____ Vísnabálknr Úr syrpu Braga frá Hoftúnum. VERÖLDIN. Veröldin er vonzkufull, vill hún margan buga. I'að er ekkert gamangull að ganga um liana og duga. Munu það segja menn og fljóð, má samt veginn livata. Yfir langa lífsins slóð liggur krókótt gata. Ef við hærum á það skyn, enginn fyndist kvíði. Gott er að eiga valinn vin veraldar í stríði. Jón Olafsson frá Einarslóni, d. 1956. VEÐURVÍSA. Voru æði veður há vikuna fyrir jólin. Titruðu svæðin til og frá títt sem þræði léku á. Gömul, Okunnur höf. UM STÚLKU. Sú er fjörug seimagná, sverðabör ef fyndi. Leikur hjörum auðgrund á cins og stör í vindi. Benjamín Magnússon. UM MJÓAFJÖRÐ. Ilér við óar hugur manns harður þó sé gjörður. Öskustóin and.... er hann Mjóifjörður. Jón I>orsteinsson, Norðí. KVEÐJA. Eg hið að heilsa heilögum — hina læt ég vera. Það er að segja sannkristnum, sent að dyggðir bera. Gamall húsgangur. KAFFIÐ. Kaffi hátt skal hrósið' veitt heims unt áttir kunnar. IJað hefir máttug rétt til reitt ríklund náttúrunnar. Hreinsar blóðið, hita ljær, hroll frá þjóðum rekur, svalar móðum, svita út slær, sálir hljóðar vekur. Júlíana Jónsdóttir. GÁTA UM MANNSNAFN. Holdið losnar seint við sál, sjáið nafn í felum. Föðurheitið fremst á nál, fæddur í tveimur pelum. (Ojeigur Oddsson í Mörk.) Ókunnur höf. FJÓRLEMD ÆR SI. laugardagsnótt bar ein af ám Einars G. Jónassonar hrepp- sljóra að Laugalandi á Þelamörk tveim lömbutn. Var hún sett í sér- staka kró í heyhlöðu, og var ekki annað fjár í hlöðunni. Tveim sól- arhringunt síðar var hún með 4 lömb, og hafði því borið tveim á ný. Oll Voru lömbin vænleg og jöfn að vexti. Lifa þau öll, en að- eins tvö verða látin ganga undir móðurinni.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.