Íslendingur


Íslendingur - 06.06.1958, Page 2

Íslendingur - 06.06.1958, Page 2
Föstudagur 6. júní 1958 Um Oræfaleiðir Sæluhiis í Herðubreiðarlindum Blaðinu hefir borizt tímaritið „Ferðir“, er Ferðafélag Akureyr- ar gefur árlega út. Er þar jafnað- arlega birt ferðaáætlun félagsins yfir sumarið, og vísast til hennar á öðrum stað hér í blaðinu. En markverðasta efni þessa heftis er greinin Oræfaleiðir eftir Sigurjón Rist vatnamælingamann, en henni fylgir uppdráttur af rúmlega 40 bifreiðaleiðum um öræfi landsins og nokkur iýsing á hverri ein- stakri leið. Hér er aðeins um ó- ruddar slóðir að ræða, sem aðeins eru færar bílum með drifi á öllum hjólum, en Sigurjón er flestum eða öllum kunnugri á öræfum Iandsins, þar sem hann hefir ferð- ast árum saman vegna starfs síns, en var áður einn af ötulustu ferða- mönnum Ferðafélags Akureyrar um óbyggðir og torfærjir. Er ör- æfaförum verulegur fengur af þessari leiðalýsingu hans. Annað efni ritsins er ávarp frá félagsstjórn og reikningar félags- ins. Stærsta verkefni þess í næstu framtíð er bygging sæluhúss í Herðubreiðarlindum, og hefir fé- lagið keypt skíðaskála Barnaskóla Akureyrar við Miðhúsaklappir, sem nú er verið að rífa. Verður sæluhúsið síðan smíðað úr efninu hér í bænum að verulegu leyti og að því búnu sett saman í Herðu- breiðarlindum. Hvort verkið get- ur unnizt til fulls á þessu sumri er vafasamt, þar sem svo seint hefir vorað, að enn hefir ekki verið komizt inn í Herðubreiðarlindir á bifreiðum, auk þess sem gangur verksins er mjög kominn undir sjálfboðavinnu félaga F. A. og annarra, er áhuga hafa fyrir fram- gangi þess. Stjórn Ferðafélags Akureyrar skipa: Kári Sigurjónsson form., Tryggvi Horsteinsson varaform., Jón Sigurgeirsson gjaldkeri, Karl Magnússon ritari og Karl Hjalta- son meðstjórnandi. — I ferða- nefnd eru: Jón D. Ármannsson form., Björg Olafsdóttir, Björn Baldursson, Björn Þórðarson og Ólafur Jónsson- — í ritnefnd Ferða eru Björn Bessason, Björn Þórðarson og Þormóður Sveins- son. Þeir utanfélagsmenn, sem vildu eignast þetta hefti af „Ferðum“, geta fengið það keypt hjá stjórn félagsins, en ritið kostar aðeins 15.00 krónur. JOÖGÖÖÖimöööG ÖOÍÖÖOQÖÖÍ CHARSTEN HAUCH: 6rot úr Iöoqu kvicði Tímans vötn, sem falla í dags hvers draumi, duna um veruleikans myrka svið. í skuggalandsins höll, frá höfgum straumi heyri eg óm af lífsins strengjaklið. Gegnum rökkurhraun og holurð blakka hringa iður flaum um bleikan skóg. Úti í fjarlægð röstin brýtur bakka bjarmalands. í djúpan gleymskusjó. Á tímans unn mörg frægð í gleymsku fellur, fyrnist glæsivald og hreystiþor. Yfir lífheim skapahrönnin skellur, sköflum grefur hrós og sigurspor. Ef una viltu efst á þroskans tindum og eignast mikla vizku og sálarró, verður þú að bergja á beiskum lindum böls og auðnar lands, án sorgar þó. Sig. Draumland íslenzkaði. ÍSLENDINGUR Golífréttir Hermann Ingimarsson vann Stigabikarinn. Golfklúbbur Akureyrar hefir nú hafið sumarstarfsemi sína, og fór fyrsti kappleikur ársins fram dag- ana 31. maí til 1. júní. Var það keppni um Stigabikarinn. Kapp- leikanefnd tekur nú upp þann hátt, að afhenda verðlaun að lok- inni hverri keppni, og verður að þessu sinni gefinn bikar til cignar fyrir hverja bikarkeppni. Þátttaka í þessari fyrstu keppni ársins var góð. Voru 17 kylfingar skráðir til keppninnar, en 13 luku keppni. Var fyrri hluti hennar vel leikinn og spennandi. Einkum bar þar af leikur Hermanns Ingimars- sonar, en hann lék seinni hring- inn í 34 höggum, sem mun vera lægsti höggafjöldi, sem náðst hef- ir á vellinum fram til þessa- Ann- ar varð Gunnar Konráðsson og þriðji Hafliði Guðmundsson. Léku þeir báðir vel, og var lengi tvísýnt, hvor þeirra hreppti 2. sæt- ið, en Hermann sigraði örugglega í 157 höggum. Veður var gott, sólskin og sunnangola. Fimm efstu menn í keppninni urðu: //ögg Hermann Ingimarsson 157 Gunnar Konráðsson 162 Hafliði Guðmundsson 163 Sigtryggur Júlíusson 169 Jóhann Þorkelsson 170 I fyrri umferð var Hafliði í 2. sæti, en Gunnar náði yfirhöndinni í síðasta hring. I fyrrakvöld hófst keppnin um Gunnarsbikarinn. Leiknar verða 72 holur og keppt með fullri for- gjöf. I fyrrakvöld voru leiknar 18 holur, aðrar 18 verða leiknar á morgun og síðan 36 á sunnudag. Eftir 18 fyrstu holurnar er Ragnar Sigurðsson efstur, ungur og efnilegur kylfingur, sem mik- ils má vænta af, ef hann æfir vel. Annars er keppnin afarhörð, sem hezt má sjá á því, að 8 efstu menn eru undir 80 höggum en 5 næstu með 80, sem er talinn prýðilegur árangur. Urslit eftir fyrsta kvöldið: Ragnar Sigurðsson 76 högg Sigtryggur Júlíusson 77 — Jón Guðmundsson 77 — Ragnar Steinbergsson 77 — Gestur Magnússon 78 — Þátttaka var mikil og veður gott til keppni. NÝJA-BÍÓ Sími 1285 Föstudagskvöld kl. 9: KAPPAKSTURS- HETJURNAR Ainerísk mynd. Þetta er frægasta og mest spennandi kvikmynd, sem gerð hefir verið um bifreiðakapp- akstur. Leikurinn- fer fram í París, Róm, Monte Carlo, Nissa og svissnesku Ölpunum. Aðalhlutverk: KIRK DOUGLAS og BELLA DARVI. i Laugardag kl. 5: KAMELÍU FRÚIN Hin heimsfræga ínynd samin eft- ir skáldsögu og leikriti eftir Alex- andre Dumas. — Með leik sínum í Jiessari mynd gerði Greta Garbo myndina að sígildri kvikmynd. — Aðalhlutverk: GRETA GARBO og ROBERT TAYLOR. Síðasta sinn. Um helgina: l PARÍSARHJÓLINU Afar skemmlileg, ný, amerísk gamanmynd með hinum óviðjafn- anlegu grínleikurum BUD ABBOTT og LOU COSTELLO. VÍKINGAPRINSINN (Prins Valient) Stórfengleg litmynd i CINEMASCOPE Myndin gerist í Bretlandi á víkingatímunum. Aðalhlulverk: Jarnes Mason — Janet Leight Hoberl Wagner. Bönnuð innan 12 ára. Synti inniii! um hóhorlo í íimm tð holjo hlst. Snemma í vor vildi það til í carabiska hafinu, að 43 ára gam- all danskur sjómaður féll fyrir borð af norsku olíuskipi, án þess að eftir væri tekið, og var hans ekki saknað, fyrri en skipið kom til Itafnar. Eftir að sjómaðurinn, Vagn Astrup, hafði synt um cara- biska hafið, sem er fullt af hákörl- um, í 5klukkustund, komu menn á Panamaskipi auga á liann, þar sem hann var syndandi 14 sjómílur undan landi. Var bátur þegar settur á flot og maðurinn fluttur á næsta sjúkrahús í landi, þar sem hann náði sér fljótt eftir erfiðið. Talið er, að það hafi létt Astrup hið langa volk í carabiska hafinu, að sjórinn er þar bæði ldýr og saltur. Sjálfur er hann sagður mjög æðrulaus og viljasterkur. | Hann fór í siglingar til að búa sig BORGARBÍÓ Slmi 1500 í kvöld kl. 9: HEIMA5ÆTURNAR Á HOFI _______________ (Die Madels from Immenhof) Bráðskemmtileg, þýzk litmynd, er gjörist á undurfögrum stað í Þýzkalandi. Aðalhlutverk: HEIDI BRÍÍHL ANGELIKA MEISSNER- VOELKNER. Þetta er fyrsta kvikmyndin, sem íslenzkir hestar taka veru- legan þátt í. En í myndinni sjá- ið þið Blesa frá Skörðugili, Sóla frá Skuggabjörgum, Jarp frá Víðidalstungu, Grana frá Utanverðunesi og Rökkva frá Laugarvatni. Eftir þessari mynd var beðið með óþreyju í Reykjavík og eftirvæntingin er sömuleiðis mikil á Akureyri og við Eyja- íj örð. Frestið ekki að sjá þessa fögru mynd. Flýta þarf sýningum vegna endursendingar myndar- innar til útlanda. Togararnir Kaldbakur veiðir í salt við Veslur-Grænland. Svalbakur var vænlanlegur af veiðuin í jnorgun. Harðbakur kom af veiðum s.l. mánudagsmorgun. Landaði í frystihúsið ca. 270 tonnum. Fór aflur á veiðar s.l. iniðvikudag. Sléttbakur er á veiðum. Vænt- anlegur eflir helgi. Tiaktor; r í Svíþjóð I árslok 1957 er talið að trakt- oraeign Svía væri 143.913 trakt- orar. Mest er af sænskum Volvo- traktorum eða 33.681, næsl kem- ur Ferguson 33.331 traktor, núm- er þrjú að tölu til er Fordson 24,311. Á árunum 1956 og 1957 seldust í Svíjrjóð: Ferguson 6.582 traktorar. Volvo 5.463 traktorar. Bolinder Munktell 5.631 trakt- orar. Fordson 2.350 traktorar. En alls seldust 12.457 traktor- ar í Svíjrjóð á þessum tveimur ár- um. 12. maí 1958. Á. G. E. undir verklegt gjóvinnunám með það fyrir augum að öðlast stýri- manna- og skipstjóraréltindi. Frá Jjví áformi hefir hann ekki hvik- að, jrrátt fyrir þenna atburð. Astrup er ættaður frá Skive, og er einhleypur. Kunnur farmaður, sem frétti af atburði þessum, lét þau orð falla, að carabiska hafið væri ekki æski- legur staður fyrir slík ævintýri. Þar væri sá mýgrútur af hákörl- um.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.