Íslendingur - 15.05.1959, Side 4
4
ÍSLENDINGUR
Föstudagur 15. maí 1959
iftetiuiiiMpr
KrJnur ót
hvern föatndaf.
Útgefandi: Útgá/ufélag ítUndingt.
Riutjórí og ábyrgðarmaður: Jakob Ó. Péturtson, Fjólng. L Sími 1375.
Skrifstofa og afgreiðsla í Hafnarstræti 67. Sími 1354.
Opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13.30—17.30, aðra daga kl. 10—12
og 13.30—17.30. Laugardaga kl. 10—12.
PrentsmiSja Bjöms Jónssonar h.f.
Hvar eiga unglingarnir að staría?
Eitt helzta vandamál hinna vax-
andi bæja síðari árin er sumar-
starf handa unglingunum, sem
sitja við skyldunám í skólunum
allan veturinn.
Meðan bæirnir voru minni og
mestöll landbúnaðarvinna var
unnin með frumstæðum tækjum
og þurfti því margar hendur við,
var venjan að ráða unglinga bæj-
anna í sveit. En eftir því sem véla-
kosturinn til heyöflunar jókst í
sveitunum en unglingunum í bæj-
unum fjölgaði, hefir reynzt örð-
ugra að fá atvinnu handa þeim yf-
ir sumarmánuðina.
Akureyri á nú við þetta vanda-
mál að stríða. Reynt hefir verið
að halda hér uppi vinnuskóla fyr-
ir unglinga yfir sumarmánuðina,
en sú starfsemi hefir gengið frem-
ur erfiðlega vegna skorts á hent-
ugu verkefni fyrir börnin. Margir
foreldrar óska eftir, að börn
þeirra fái að læra nytsöm störf, og
þá ekki sízt framleiðslustörf til
sjávar og sveita. En nú eru sveit-
irnar að lokast fyrir þeim, bæði
vegna fækkunar húa og stórauk-
innar vélvæðingar, og á togarana
og önnur fiskiskip er ekki óskað
eftir óvönu starfsliði.
Til úrbóta á þessu vandræðaá-
standi hefir nú komið fram hér í
bænum sú hugmynd, að halda í
sumar úti skipi til fiskveiða, er
mannað yrði 15—16 unglingum
auk yfirmanna. Yrði þetta eins
konar skólaskip, þar sem ungling-
arnir lærðu sjóvinnu, en slík út-
gerð hlyti óhjákvæmilega að
verða rekin með tapi.
Bæjorstjórn hefir nú samþykkt
að leggja fram fé að hólfu til að
standa undir rekstri skólaskipsins,
en Útgcrðarfélag Akureyringa og
Útgerðarfélag KEA að öðru (eyti.
Mó telja, að hér sé stigið mark-
vcrt spor í óttina til að draga úr
atvinnuþörf unglinga i bænum og
nauðsyn þeirra ó því, að búa sig
undir störf við framleiðsiuna.
Margt bar þar á góma
Fróðlegt var að hlýða á út-
varpsumræðurnar frá Alþingi nú
í vikunni, enda bar þar margt á
góma, svo sem venja er til við
slíkar umræður. Þótt fulltrúar
gömlu stjórnarflokkanna hafi ekki
verið á einu máli um, hver þeirra
átti sök á uppgjöfinni í hyrjun
desember sl. og engin ákveðin
niðurstaða fengist þar um, varð
þó öllum ljóst, að samkomulagið
innan hennar hefir ekki verið á
marga fiska. Kenndi þar hver öðr-
um um svikin á loforðum „vinstri
stjórnarinnar“, og var þó á sum-
um ræðumönnum að heyra, að
uppgjöfin hafi alls ekki verið
stjórninni að kenna, heldur
stjórnarandstöðunni, þessum 43%
þjóðarinnar, sem stjórnin hafði
komið sér saman um að „víkja til
hliðar1!
Aðalmálin, sem á góma bar,
voru efnahagsmálin, kjördæma-
málið og landhelgismálið. Var
málflutningur sumra ræðumanna
í því síðastnefnda með miklum
endemum, þar sem þeir gáfu jafn-
vel í skyn, að nær helmingur
þjóðarinnar hefði verið mótfall-
inn útfærslu landhelginnar. Þarf
ekki að draga í efa, að slíkar stað-
hæfingar hafa verið Bretum
' hvatning til ofbeldisaðgerða
þeirra innan landhelginnar, því
að reynsla þeirra mun vera sú, að
I
léttara sé að koma vilja sínum
fram við sundraða þjóð en sam-
huga.
Þá var málflutningur Fram-
sóknarmanna í kjördæmamálinu
Jhinn aumasti. Karl Kristjánsson
taldi kjördæmabreytinguna ein-
göngu miðaða við að færa allt
vald í landinu í hendur Reykvík-
inga og bæri fólki í dreifbýlinu
að vera vel á verði, ef þéttbýlið
vildi rélta því bróðurhönd! Verst,
að Framsókn skyldi bera fram til-
(lögu um jafnmikla fjölgun þing-
manna í þéttbýlinu eins og frum-
varpið gérir ráð fyrir!
Þá héldu þeir Karl og Bernharð
Stefánsson því fram, að með sam-
þykkt kjördæmafrumvarpsins
mundu sveitirnar tæmast að fólki,
en vinstri stjórninni hefði tekizt
að stöðva fólksfjölgun í Reykja-
vík og nágrenni.
Sigurður Bjarnason upplýsti þó,
oð fólksfjölgun í Reykjavík hefði
verið í hómarki órið 1957, en síð-
ara valdaór vinstri stjórnarinnar,
órið 1958, hefði hún farið fram úr
því og orðið ó 3. þúsund.
------------□----------
Barniskólim bœjorins slitið
Barnaskóla Akureyrar var slit-
ið laugardaginn 9. maí sl. að v,ið-
stöddum mörgum gestum. Skóla-
stjóri, Hannes J. Magnússon, flutti
ræðu og gaf yfirlit um störf skól-
ans á skólaárinu.
í skólanum voru 768 börn, er
skiptust í 29 deildir. 8 börn gátu
ekki sótt skóla vegna vanheilsu.
Björgvin Jörgensson forfallaðist
alveg frá kennslu vegna slysfara.
í upphafi ræðu sinnar minntist
skólastjór.i frú Soffíu Stefánsdótt-
ur, hjúkrunarkonu, sem lézt á
skólaárinu og verið hafði hjúkr-
son, skógfræð.ingur, Gísli Ólafs-
son, lögregluþjónn og Gunnar
Dal, rithöfundur.
Danskennsla var nú í fyrsta
drengja og stúlkna, og var keppt
skipti tekin upp í skólanum, og
nutu hennar öll börn í 6. bekk.
Auk þess var haldið dansnám-
skeið á vegum Heiðars Astvalds-
sonar, og nutu hennar um 300
börn.
Lúðrasveit og fiðlusveit.
Þá var á síðastliðnu hausti
stofnuð lúðrasveit drengja, og
Sigurvcgarar í fimleikakeppni Barnaskólans. Ljósm.: P. Gunnarsson.
unarkona við skólann í 20 ár,
einnig sr. Friðriks J. Rafnar, sem
lézt fyrir skömmu, en hann hafði
um fjölda ára verið í skólanefnd
og fræðsluráði, svo og prófdóm-
ari við skólann langt árabil.
Einnig minntist hann 12 ára
stúlku, Unu Hjaltadóttur, sem var
nemandi í 6. belck skólans, en lézt
seint í vetur. Þá minntist hann
loks tvíburanna Kristófers og
Guðmundar Bjarnasona, sem lét-
ust báðir í maíbyrjun. Þeir höfðu
að vísu ekki sótt skólann vegna
vanheilsu, en nutu kennslu þaðan.
Skólastjóri bað menn rísa úr sæt-
um í virðingarskyni við þessa
látnu vin,i skólans.
Heilsufar.
Heilsufar í skólanum var gott
fyrri hluta árs, en fremur illt síð-
ari hluta vetrar, einkum af völd-
um mislinga og inflúenzu. Öll
skólabörn fengu vítamíntöflur, og
rúm 100 börn nutu ljósbaða. Eklci
fannst lús í nokkru barni þennan
vetur, og mun það vera í fyrsta
skipti í sögu skólans.
Sparimerki seldust fyrir krón-
ur 27.890.00 og er það nokkru
minna en að undanförnu.
Þessir gestir komu í skólann og
fluttu erindi: Benedikt Tómasson,
skólayfirlæknir, Snorri Sigurðs-
voru í henni 23 drengir. Kennari
var Jakob Tryggvason skólastjóri,
og komu drengirnir fram á árs-
skemmtun skólans í marz.
Þá starfaði einnig við skólann
fiðlusveit undir stjórn Gígju Jó-
hannsdóttur, og voru í henni 14
börn. Sú sveit kom einnig fram á
ársskemmtun skólans.
Stofnaðir voru tveir minninga-
sjóðir v.ið skólann: Jólagjafa-
sjóður frú Soffíu Stefánsdóttur,
er skal hafa það hlutverk að út-
hluta gjöfum til fátækra skóla-
barna fyrir hver jól, og Minning-
arsjóður Unu Hjaltadóttur, en úr
honum skal veita verðlaun þeim
börnum í 6. bekk, er bera af í
háttvísi og prúðmennsku.
Skólanum bárust nokkrar gjaf-
ir. Meðal annars eftirprentanir af
íslenzkum listaverkum frá Ragn-
ari Jónssyni bókaútgefanda og
Jóni Gunnlaugssyni kennara, 500
kr. í Árdalssjóð frá frú Laufeyju
Pálsdóttur og systkinum hennar,
og stórt jólatré frá skipverjum á
HvassafelLi, en það er „vinaskip“
Barnaskóla Akureyrar og hefir
verið síðan 1953.
í sambandi við Júlí- og Her-
móðsslysið söfnuðu nemendur
skólans 22 þúsund krónum, er
verja skyldi til að styrkja og
gleðja börn, er misstu feður sína
í sjóinn. Sjóðurinn var afhentur
biskupsskrifstofunni.
Bókaverðlaun frá Bókaforlagi
Odds Björnssonar fyrir beztu rit-
gerðir við barnapróf hlutu þessi
börn: Jóna Lísa Þorsteinsdóttir,
Margrét Valgeirsdóttir og Björn
Sigurðsson.
Verðlaun fyrir beztar teikning-
ar hlaut Sigríður Sigurðardóttir.
Ágætiseinkunn við barnapróf
hlutu 11 börn, 72 fengu 1. eink-
unn og 17 2. einkunn.
Sýning á skólavinnu barnanna
var á uppstigningardag, og sótti
hana fjöldi fólks.
260 nemendur í Oddeyrar-
skólanum
Oddeyrarskólanum á Akureyri
var slitið 9. maí sl. Eiríkur Sig-
urðsson, skólastjóri, skýrði frá
skólastarfinu á árinu.
Sú breyting varð á kennaraliði
á síðastliðnu hausti, að Sigrún
Björgvinsdóttir kom að skólanum
í stað Eiríks Stefánssonar og
Jakobs Tryggvason var ráðinn
söngkennari við skólann. Ný
hjúkrunarkona, frú Guðríður
Þorsteinsdóttir, var ráðin við
skólann í haust.
í skólanum voru i vetur 260
börn í 11 deildum. Fastir kennar-
ar voru 7 með skólastjóra og tveir
stundakennarar. Þrír foreldra-
fundir voru haldnir á vetrinum.
Sparifjársöfnun fór fram í öll-
um deildum skólans og voru seld
sparimerki fyrir rúmlega 15000.00
; krónur. Er það svipað og síðast-
liðið ár.
Heilsufar var gott framan af
vetr.i, en síðari hluta vetrar gengu
í skólanum bæði mislingar og in-
flúenza og hafði það mikil áhrif
á skólasókn barnanna. Börnin
fengu vítamíntöflur daglega.
Ýmsar gjafir bárust skólanum
frá velunnurum sínum.
Vegna hinna miklu sjóslysa í
febrúarmánuði gáfu skólabörnin
5100 krónur í hjálparsjóðinn.
Barnaprófi luku 40 börn. Hæstu
einkunnir á barnaprófi hlutu Jó-
hanna Antonsdóttir 9.24, Rebekka
Árnadóttir 9.13 og Sigurlína Þor-
steinsdóttir 9.10.
Kvöldvökuútgáfan á Akureyri
sýndi skólanum þá vinsemd að
gefa fjórar af útgáfubókum sínum
til verðlauna við barnapróf.
Sýning á skólavinnu barnanna
var í kennslustofum skólans við
skólaslit og einnig daginn eftir,
sunnudaginn 10. maí. Sýningin
var mjög vel sótt.