Íslendingur


Íslendingur - 21.10.1959, Síða 1

Íslendingur - 21.10.1959, Síða 1
Gísli Jónsson Bjartmar Guðmundsson Björn Þórarinsson. ,nús Jónsson. 'nar Báldur Kristjánsson. Páll I}ór Kristinsson rni Jónsson. Vésteinn Guðmundsson nmsson. Baldur Jónsson. I Kjósendur í sveitum! Látið ykkur ekki henda að draga kosningu til mánudags, ef þið getið mætt á kjörstað á sunnudaginn, því að þið eigið ekki víst, að kosningu verði haldið áfram. (Sjá ákvæði úr kosningal. á 5. dálki). Sigur Sjálístæðisflokksins þýðir sjö þingrmenii í |ies§u kjördæini Allar kosningar geta orðið örlagaríkar fyrir einstök kjördæmi og þjóðina alla. Kosningarnar á sunnudaginn kemur eru þar engin undantekning. — Þá getur kjósandinn valið um, hvort hann kýs þjóðinni sterka stjórnarforustu, með því að stuðla að sigri Sjálfstæðisflokksins, eða velur endurnýjun vinstri stjórnar, sem lofar þjóðinni miklu en vanefnir jafn mikið. — Eins og komið hefir fram í blöðunum, hefir Alþýðubandalagið (kommúnistar) leitað eftir því við Framsóknarflokkinn, að þessir tveir flokkar stæðu að sameiginlegri kosningastefnuskrá fyrir haustkosningarnar með tilliti til þess, að flokkarnir tækju upp stjórnarsamvinnu að loknum kosningum. Framsóknarflokkurinn hefir ekki tjáð sig fúsan til slíks fyrir kosningar og heldur því opinni leið til þess að taka upp að nýju samstarf við kommúnista eftir kosningar. Sjálfur er hann eini flokkurinn, sem enga stefnuskrá hefir gefið út. Rétt er að benda á, að Sjálfstæðisflokkurinn hefir ekki vissu fyrir kjöri nema tveggja efstu frambjóðendanna á D-listanum. Hinsvegar nýtist hvert atkvæði Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra, þar sem þriðji frambjóðandi listans Bjartmar bóndi á Sandi er öruggur með uppbótar- þingsæti, svo framarlega, sem kjósendur sýna með atkvæði sínu, að þeir óski 7 þingmanna fyrir kjördæmið. Um önnur uppbótarsæti í þessu kjördæmi er varla að ræða. Kjósendur! Það er engin vissa fyrir því, að kosningar í kjördæminu standi yfir í tvo daga. Kjósið því allir á sunnudaginn og mætið snemma á kjörstað. Jóhannes Laxdal. Kjósendur athugið! í bráðabirgðaákvæSum, er fylgja hinum nýju kosningalögum, segir svo: „I kosningum þeim, er fram fara næst á eftir gildistöku þess- ara laga, skulu vera tveir kjör- dagar, þó ekki í þeim kjördæmum, sem eru að öllu leyti innan kaup- staðar eða kauptúns." Og siðar: „Hofi 80% eða fleiri í kjör- dcildinni kosið-----NÆGIR EINRÓMA SAMÞYKKI KJÖR- STJÓRNAR TIL SLÍKRAR Á- KVÖRÐUNAR." (Þ. e. að hafa einn kjördag).

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.