Íslendingur


Íslendingur - 21.10.1959, Blaðsíða 4

Íslendingur - 21.10.1959, Blaðsíða 4
4 ÍSLENDINGUR MicJvikudagur 21. október 1959 Kemur út hvem föstudag. Útgefandi: Útgáfufélag íslendings. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jakob Ó. Pétursson, Fjólugötu 1, sími 1375. Skrifstofa og afgreiðsla í Hafnarstræti 81 (neðsta hæð), sími 1354. — Opin kl. 10—12 og 13.30—17.30. Á laugardögum kl. 10—12. PrentsmiSja Björns Jónssonar h.f. Sterk þjóðmálaforusta brýn nauðsyn Enn gengur íslenzka þjóðin til kosninga á sunnudaginn kemur. Ekki eru liðnir nema 4 mánuðir síðan hún gekk að kjörborðinu, og má því segja, að undirbúning- ur að fyrirhuguðum kosningum hafi tekið óvenjuskamman tíma og minni „harka“ hafi færzt í við- ureign flokka og blaða en löngum áður. Sumir hafa jafnvel haft á orði, að áhugaleysi geri vart við sig hjá kjósendum, og er alls ekki ólíklega til getið, að minna beri á deilum um stjórnmálin vegna þess, hve skammt er liðið frá síð- ustu kosningum. Því mun þó fjarri fara, að kjósendur láti sér á sama standa, hverjir fari með stjórn landsins á hverjum tíma. Það snertir hvern einasta þjóðfé- lagsþegn of mikið til þess, að hann telj.i sér málið ekki viðkom- andi. íslenzk stjórnmál hafa verið alltof festulítil á undanförnum ár- um. Enginn einn flokkur hefir haft hreinan meirihluta á Alþingi, er skapaði honum skilyrði til stjórnarmyndunar á eigin ábyrgð. Því höfum v.ið orðið að húa við samstjórn 2ja eða fleiri flokka, þar sem þingstyrkur sumra þeirra var mjög jafn. Af þessu hefir leitt, að flokkarnir hafa orðið að semja um sameiginlega stjórnarstefnu og þá jafnframt slaka í einhverju til á sinni eigin. Einn þessara flokka, Framsóknarflokkur.inn, hefir oftast verið aðili að slíkri samstjórn, þar sem hann hefir haft meiri þingstyrk en kjörfylgi, og ætti ekki að þurfa frekari skýr- ingar á því. Með nýju kjördæma- skipaninni hefir tekizt að færa þingstyrkinn til nokkurs samræm- is við kjörfylgið, og mætti því ætla, að meiri festa fáist innan tíðar í íslenzk stjórnmál. Hvik- lyndi sumra forustumanna Fram- sóknarflokksins hefir valdið því, að sumar samstjórnirnar hafa orðið skammlífari en til hafði verið ætlazt, því að eigi sjaldnar en þrívegis á einum áratug hefir Framsókn rofið samstarf um rík- isstjórn, fyrst við Sjálfstæðis- flokkinn og Alþýðuflokkinn 1949, — við Sjálfstæðisflokkinn 1956 og loks við Alþýðuflokkinn og kommúnista haustið 1958, er Hermann Jónasson haðst lausnar fyrir „vinstri stjórnina“, þar sem engin samstaða um lausn efna- hagsmálanna væri finnanleg inn- an ríkisstjórnarinnar. Það má því með sönnu segja, að við búum við lítið öryggi um starfhæfar ríkisstjórnir og stjórn- arstefnan sé venjulegast harla laus í reipum, þó að fyrst kastaði tólf- unum á valdaárum V.-stjórnarinn- ar, er ekkert tókst, eða hirti um, að efna af gefnum loforðum. En margt bendir til, að enn verði reynt að fitja upp á slíkr.i stjórn á ný eftir næstu kosningar, ef kjósendur haga atkvæðum sínum á þann veg, að sú aðstaða skapist. Þurfa því kjósendur þeir, sem ekki vilja fá yfir sig nýja hörm- ungarstjórn í líki gömlu V.-stjórn- arinnar að vera vel á verði í kosn- ingunum á sunnudaginn. Orugg og traust stjórnarforusta er þjóðinni nauðsynlcg. Greiðasta leiðin til að skapa hana, er að kjósa frambjóðendur Sjólfstæðis- flokksins ■ hverju kjördæmi og stuðla að þvi, að hann nói hrcin- um meirihluta á Alþingi. Til þcss þarf ekki mikið ótak. Hér í Norðurlandskjördæmi eystra benda vorkosningarnar til þess, að kjörnir verði 3 Fram- sóknarmenn, 2 Sjálfstæðismenn og 1 Alþýðubandalagsmaður. •— Miklar breytingar þurfa að verða á kosningum í kjördæminu, ef úr- slit ættu að verða önnur. Dagur hefir öðru hverju verið að bolla- leggja um möguleika fyrir Fram- sókn að fá 4 menn kjörna í kjör- dæminu og sá, sem í fjórða sæti hefir verið settur telur sig hafa rökstuddar vonir. Þessu fer mjög fjarri. Vegna þess, að Framsókn áskotnuðust all-mörg atkvæð.i í vor hér í kjördæminu vegna áróð- urs flokksins um eyðingu hyggða og hrun bændamenningar m. m., fœkkar atkvæðum hennar við kosningarnar á sunnudaginn í stað þess að fjölga. Jafnframt má telja fullvíst, að atkvæði, sem Framsókn hlýtur fram yfir það, sem þarf til að koma að 3 mönn- um, verffa henni ónýt, en mundu hins vegar geta tryggt 3. manni Sj álfstæðisflokksins uppbótarsæti og kjördæmið þar með hljóta 7. þingmanninn, ef þau atkvæði féllu á D-listann. Þetta allt er kjósend- um í Norðurlandskjördæmi eystra hollt að hugleiða fram að helg- inni. Kjósendur í Norðurlandskjör- dæmi eystra geta með atkvæði sinu ó sunnudaginn gert tvennt í senn. Tryggt kjördæminu 7 þing- menn og þjóðinni styrka stjórnar- forustu. Og það geta þeir þó að- eins gcrt með þvi að kjósa D-list- onn. Gjaldfallin skuldabréf ÍO ára áætlunar verða að Srreiðast Tíu ára áætlunin kom sveitunum eins og vorþeyr eftir langan snjóavetur Nokkru fyrir 1930 fæddist sá stórhugur á landi hér að raflýsa allt ísland með vatnsafli. Það var í huga Jóns Þorlákssonar. Um þessa hugmynd minnir mig segja Keldhverfing- bæja? Hvað ar, sem er næsta sveit við Tjör- nesið. Hvað segja Norður-Þing- eyingar yfirleitt um sinn hlut? En fyrir þá hefur ekkert verið gert í að Tíminn segði, að Jón ætlaði að þessu efni, ekki nokkur skapaður raflýsa fátæktina. Þessi napurlegu orð hafa setið | lilutur, svo ég viti. Hvað segja Aðaldælir um fram- kvæmd þessara mála? Þar eru um 60 býli, og 12 hafa verið nídd út- úr samíélagi sveitunga sinna um raforkuna vegna furðulegs fram- í huga mínum síðan eins og ryðg- aður nagli í spýtu. Arið 1953 gengu 2 sterkir flokkar til samstarfs í ríkisstjórn, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn- kvæmdafyrirkomulags, mann- arflokkur, og sömdu þá um það,' mörg býli með 94 heimilismenn sem kölluð hefur verið 10 ára á- af 396 í öllum hreppnum. Og þó ætlun um rafvæðingu dreifbýlis- er innan við 1 km. vegalengd ins. Þá var þó draumur Jóns Þor- milli allra býla í hreppnum til lákssonar þegar kominn mjög vel jafnaðar. Þetta er í sjálfri heim- á veg að rætast, að því er snerti ilissveit Laxárvirkjunar. Og þeg- mest allt þéttbýli og sum byggð- ar um þetta er kvartað við þing- Ræða Bjartmars Guðmundssonar á Sandi við úfvarpsumræðurnar. arlög í sveitum, og miklar raflín- ur komnar víða út frá Sogi, Anda- kíl og Laxárvirkjun. Með tilkomu 10 ára áætlunar- innar fór fagnaðaralda um sveit- irnar eins og vorþeyr eftir langan snjóavetur, því sveitir okkar höfðu setið mjög í myrkri og kulda, síðan á dögum Náttfara í Reykjadal. Þetta var sterk ríkisstjórn að þingfylgi og hafði hún þó nokk- uð fé handa á milli eða gat haft til að gera stóra hluti, sem búnir voru að dragast alltof lengi. Að vísu fannst okkur í sveit- .inni þessi áætlun tæplega nógu ljóslega fyrir okkur lögð og mað- ur spurði mann sem svo: Hvenær kemur Hali í Suðursveit inn á þessa áætlun, Holtakot á Strönd- um og Garðshorn á Melrakka- sléttu? En allir vonuðu þó, að málið yrði leyst með einhverju móti á næstu 10 árum. Og byrjunin fyrstu 2—3 árin spáði góðu. En áður en 3 ár voru liðin komu fyrir hjónabandsvandræði á stjórnarheimilinu. Frúna, þ. e. Framsókn, fór að langa til að hafa framhjá manninum sínum. Þessu lauk með skilnaði árið 1956. Með stj órnarslitunum gliðnaði 10 ára áætlunin. Eða að minnsta kosti fór svo að því er snerti byggðarlög, er rafmagn áttu að fá út frá Laxárvirkjun. Hvað segja Reykdælir t. d. og Mývetningar um það að enn sér ekki til hinna minnstu byrjunar- framkvæmda Mývatnsveitu, sem átti að koma inn árið 1958? Sýn- ist nú einboðið að henni hljóti að seinka um 3—4 ár, og öðrum hinum viðlíka að minnsta kosti, sem koma áttu á eftir. Hvað segja Laxdælir um þessa hluti, er búa á sjálfum Laxár- bakka skammt innan við rafstöð- ina? Hvað segja Tjörnesingar með um 1 km. vegalengd milli mann, segir hann: Það er ófram- kvæmanlegt að leiðrétta þetta. Ég er sveitamaður og þykist vita, hvernig klukkan slær í sveit- inni. Engar framkvæmdir eru þar nú eins aðkallandi og rafvæðing- in í einhverju formi. Heimilisstöð við læk er líklegast ódýrast og bezt, þar sem það er hægt. Þær eru þegar víða komnar. Þar næst kjósa menn heimtaug frá stærra orkuveri, ef engan nothæfan læk er að fá, sem víðast er. Þetta hef- ur verið talinn viðráðanlegur kostnaður fyrir ríki og einstakl- inga, ef vegalengd er ekki mjög mikil milli bæja. Svo verður að viðurkenna, að það miklar geta þær orðið á milli bæja í strjál- Bjartmar Guðmundsson. býli, að leysa verði nauðsyn slíkra staða með olíustöðvum. Við það verður ekki unað öllu lengur en orð.ið er, að stór hluti sveitafólks í þessu landi sitji það afsíðis við önnur börn þjóðarinn- ar, að það nái ekki í hin hvítu ljós og orkuna, sem knýr tækin. Við karlmenn getum máske un- að þessu um sinn fyrir sjálfa okk- ur. En konurnar geta ekki unað því. Og þá getum við það þá ekki heldur þeirra vegna. Á konum hvílir allt heimilis- hald fyrir innan stokk. Og svo eru heimilin aftur undirstaða að öllu þjóðfélaginu. Við komust ekki hjá að gera kröfu um að skuldabréf 10-ára á- ætlunar, sem eru gjaldfallin, verði greidd og verkefni, er á eftir þeim áttu að koma tekin inn á rétt an stað. Svo þarf vafalaust að endurskoða þessa áætlun, ef hún er þá lengur til. Við sveitamenn verðum að knýja á. Eg veit að þjóð.in í heild láir okkur það ekki. Eða hver mundi sú kona t. d. vera í alupp- lýstum bæ eða borg, er gæti ann- að en látið sér til rifja renna hlut- skipti systur sinnar í sveitinni, Framhald á 6. síðu. Með tilkomu bátakvíarinnar á Oddeyrartanga norðanverðum voru mörgum athafnasömum borgurum þessa bœjar sköpuð skilyrði til að hafa báta sína í góðu vari, og með byggingu verbúðanna var þeim gert kleift að geyma veiðarfœri sín á öruggum stað. Fjölmargir bœj- arbúar stunda nú sjósókn á litlum bátum, sumir þeirra í atvinnuskyni en aðrir sem tómstundaiðju. — Mynd þessi er nýlega tekin við ver- búðirnar, þar sem bátarnir hafa uppsátur.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.