Íslendingur


Íslendingur - 16.06.1961, Side 1

Íslendingur - 16.06.1961, Side 1
UMBÆTUR ILYSTIGARÐINUM í grasgarðinuin eru nú nær 1500 plöntur LYSTIGARÐURINN var opnað- ur fyrir almenning í gær, en í fyrradag heimsóttu fréttamenn umsjónarmann garðsins, Jón Rögnvaidsson garðyrkjuráðu- naut, er gekk með þeim um garð- inn og sýndi þeim breytingar og viðbætur. Garðurinn ilmaði af nýsleginni töðu, er lá í síbreiðu á grasflötunum, en sunnangola lék í laufi trjánna. Hlýnandi veð- ur, sögðum við hver við annan. Tjarnir og lækur. Síðan í fyrra hefur umsjónar- maður Lystigarðsins látið gera tvær tjarnir í garðinum, en á milli þeirra rennur lítill lækur í steyptri rennu, og er lítill gos- brunnur í efri tjörninni. I lækn- um er lítill foss, sem fellur af stalli. Allt er þetta smækkuð mynd af íslenzkri náttúru, sem börn munu hafa yndi af, er garð- inn heimsækja, —- og jafnvel full orðnir líka. Grasgarðurinn í vexti. Eins og kunnugt er, keypti Lystigarðurinn vísi að grasgarði, er Jón Rögnvaldsson hafði komið upp í Fífilgerði í Kaupangssveit, og hefur síðan verið bætt við hann, eftir því sem kostur er. í honum eru nú um 1100 erlendar plöntutegundir og 380 íslenzkar, og vantar þá aðeins 50 plöntur samkvæmt Flóru íslands. Sagði Jón, að við mættum minna fólk, sem ferðast út um land, á þessa vöntun, ef það kynni að rekast á sjaidgæfar jurtategundir. Allt slíkt yrði með heilum þökkum þegið. Umgengnin mætti katna. Jón kvað umgengni í garðinum vera verri en skyldi, einkum vegna þess, að börn væru látin inn í garðinn eftirlitslaus, áður en þau hefðu aldur og þroska til að skiija umgengnishætti á slík- um stað. Fullorðið fólk gengi yf- irleitt vei um, þótt út af gæti brugðið. Þá lét hann okkur í té nokkrar reglur og fyrirmæli, sem óskað er eftir að gestir garðsins taki til velviljaðrar athugunar, en þær eru þessar: Dvöl á grasblettunum aðeins leyfð, þar sem gras er lítið og ný- lega slegið. — Traðkið ekki á jöðrunum meðfram gangstígum eða blóma- og trjábeðum. — Hlíf ið grasinu, notið gangstígana og garðbekkina. — Takmarkið not- kun teppa og rúmfata í garðin- um. — Valdið ekki hávaða eða ónæði. — Hendið ekki rusli eða bréfum í garðinn, setjið það í næstu ruslaskrínu. — Allir hóp- leikir og hlaup um garðinn er stranglega bannað. — Hendið ekki peningum í tjarnir eða gos- brunna. — Bannað er að vaða eða FREGNIR bárust um það í gær, að Akureyrartogarinn Harðbakur hafi í fyx-rinótt komið dönsku kaupskipi, Stellu Danielsen, til hjálpar nálægt Selskei’i á Húna- flóa. Hafði ski-úfa eða skrúfuöx- ull bilað. Kl. 3 um nóttina hafði Hai-ðbakur komið dráttai-taug í hið danska skip, og var á leið með það til Reykjavíkur. Þetta er önnur bjöi-gunin, sem togarar U.A. framkvæma á stuttum tíma. Ollum er í fersku minni björgun GLÆSILEG FRAMMI- STAÐA FRIÐRIKS FRIÐRIK ÓLAFSSON stói-meist ari okkar í skák var nýlega þátt- takandi í alþjóðaskákmóti í Moskvu. Var frammistaða hans þar með miklum ágætum. Fyrr- vei’andi heimsmeistari, Smysloff og Moskvumeistarinn Vasjukoff urðu hæstir og jafnir með 7% vinning, en Friðrik í 3. sæti með 7 vinninga. Tapaði hann aðeins einni skák, vann 4 og náði 6 jafn- teflum. Mun þetta vera einhver glæsilegasti árangur, er Friðrik hefur náð. sulla í tjörnunum og læknum. — Það er ekki hættulaust fyrir smá börn að vern ein á fei-ð í gai'ðin- um eða með ófullnægjandi leið- sögn, og því heimilast að vísa þeim út úr garðinum. — Sýnið góða umgengni og hjálpið til að aði-ir gei-i það. Svo mörg voru þau orð. Og telja vei-ður tilmælunum um um- gengni í gai-ðinum stillt í hóf. Garðurinn er stolt okkar. Margir fex-ðamenn skoða hann á hverju ári, og stundum er til hans vitnað sem hins merkileg- asta frá heimsókn til Akureyi-ar. Því vei-ðum við bæjai-búar að vaka yfir honum og leggjast á eitt um að hann megi verða bæn um til sóma í fegui’ð sinni og mennilegri umgengni. M/S Goðafoss á Ólafsfirði í vet- ur. Skipstjói-i á Harðbak er Vil- helm Þoi-steinsson. 150 ár frá fæðingu Jóns forseta Á MORGUN eru liðin 150 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar for- seta og 17 ár frá því að ísland vai'ð lýðveldi. Verður dagurinn haldinn sérstaklega hátíðlegur á fæðingai-stað forsetans, Rafns- eyiá vestra, og verður foi-seti Is- lands þar viðstaddur. SLYS Á HJALTEYRI SL. FÖSTUDAG vildi svo ó- heppilega til, að „rammbúkka“- lóð féll á hægri hönd Jóhannesar Bjöi-nssonar smiðs, og tók af þrjá fingur og skaddaði þann fjórða. Slysið varð með þeim hætti, að Jóhannes var að koma fyrir bryggjustaur, en á Hjalteyri fer nú fx-am endux-bót á einni af bryggjum vei-ksmiðjunnar. Hafði Jóhannes stutt hægri hendi á staui-endann, en rétt í því féll hið þunga lóð á hönd hans. Jó- hannes var þegar fluttur í sjúkra hús, og gert að sárum hans. I gær var liðan hans fremur slæm. FYRSTA SILDIN A SUMRINU I KROSSANES Sl. miðvikudag landaði Ólafur Magnússon fyrsiu síldinni í Krossa- nesi. Voru það tæp 400 mál, og var síldin veidd 26 mílur austur a£ Horni. Það mun vera íyrsta síldin, sem berst á land á þessu sumri. Harðbakur bjargar kaupskipi Önnur björgun togara Ú. A. á skömmum tíma

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.