Íslendingur


Íslendingur - 16.06.1961, Síða 4

Íslendingur - 16.06.1961, Síða 4
4 ÍSLENDINGUR Föstudagur 16. júní 1961 Kemur út hvern föstudag. § Útgefandi: Útgáfufélag ís- I lendings. — Ritstjóri og § | ábyrgðarmaður: Jakob Ó. Pétursson, Fjólugötu 1, Sími 1375. 1 I Fréttir og auglýsingar: Stefán E. Sigurðsson, Krabbastíg 2, = = sími 1947. Skrifstofa og afgreiðsla í Hafnarstræti 81 (neðsta I i hæð), sími 1354. Opin kl. 10—12 og 13.30—17.30. Á laugardög- i | um kl. 10—12. — Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri. i SKEMMDARVERKAMENN Á KREIKI ENNÞÁ, meðan þetta er ritað, eru verkföll í algleymingi, hart- nær 10 þúsund þátttakendur að sögn. Fyrirferðarmest eru þau að sjálfsögðu í Reykjavík, en víðar mun þeirra gæta. Hér á Akureyri verður þess ekki tiltakanlega vart, og hefur hið daglega líf í bænum ekki breytzt tiltakanlega. Framsóknarflokkurinn tók að sér forustu í því, að koma á samn ingum um verulegar kauphækk- anir og hleypa verðbólguóvætt- inni lausri. í helzta Framsóknar- hreiðri landsins, Suður-Þingeyj- arsýslu, var fyrst hafizt handa um að reyna að kollvarpa efna- hagskerfinu, sem hafði mót von Framsóknar sýnt nokkra yfir- burði við önnur eldri. Var það gert með þeim hætti, að Karl Kristjánsson alþingismaður, for- seti bæjarstjórnar Húsavíkur og formaður Kaupfélags Þingeyinga fékk samþykkt í bæjarstjórn staðarins, að þegar í stað yrði samið við verklýðsfélög þar á staðnum um verulega kauphækk un, og í kjölfar K. K. synti síðan stjórn og framkvæmdastjóri Kaupfélags Eyfirðinga. Hvar sem unnt var að brjóta skörð í þann trausta múr, er núverandi ríkis- stjóm hafði hlaðið til að bjarga íslenzkum gjaldmiðli og fjárhags legu trausti þjóðarinnar út á við, safnaðist lið Framsóknar að með sprengjur sínar og varð all-vel ágengt í skemmdastarfinu. Ekki verður í fljótu bragði séð, hvaða markmiðum „samvinnu- menn“ eru að þjóna á Húsavík og Akureyri með forgöngu sinni um að rífa niður það, sem byggt hef- ur verið upp í efnahagsmálunum síðustu tvö árin, og munu þó margir ætla, að sjúkleg komm- únistaþjónkun búi á bak við. Og þau kynni hefur þjóðin haft af Framsóknarflokknum síðustu mánuði, að hún mun ekki reikna með honum sem ábyrgum til eins eða neins. Hin sjúklega valdafýsn hans hefur svo umhverft honum, að hann getur með köldu blóði tekið sér stöðu vinstra megin við kommúnista, ef þurfa þykir. Hvaðan Framsókn hefur komið sú vizka, að íslenzkir atvinnuveg ir geti í dag bætt á sig allt að 15% launahækkunum, er ekki vitað. En hafi samvinnufélögin haft svo góða afkomu sl. ár, að þau geti tekið á sig þessa launa- hækkun, hví reyndu þau þá ekki að bæta kjör viðskiptamanna sinna með lægra vöruverði? Enginn ágreiningur er um það, að 4 þús. kr. mánaðartekjur eru ónógar til að framfleyta fjöl- skylduheimili. Það er heldur eng inn ágreiningur um það, að af- koma útflutningsatvinnuveganna sl. ár var með hörmulegasta móti vegna aflabrests og lækkaðs verðs á erlendum mörkuðum. Og þjóðin á nú einu sinni ekki öðru að skipta sér'til framfæris en tekjum sínum á hverjum tíma, ef vel á að ráðast. Framsóknarflokkurinn hefur nú í sumar sýnt fádæma ábyrgð- arleysi, enda kemur æ betur í ljós með hverju ári, að uppistaða hans er hópur tækifærissinnaðra manna, sem vilja eitt í dag og annað á morgun, allt eftir því, hvort hann er í stjórn eða stjórn- arandstöðu. Hann er samansettur af rosknum ævintýramönnum, valdagírugum og hrokafullum annarsvegar, en að öðru leyti byggður upp af ungkommúnist- um, sem troðizt hafa inn í félags- skap ungra Framsóknarmanna. Eina markmið hans í dag er að reyna að eyðileggja núverandi efnahagskerfi, og til þess skal öllu kostað. Samvinnufélögin eru notuð til þeirra skemmdarverka, og er auðsætt, að vegur þeirra og virðing hlýtur að setja ofan með- al annarra þjóða, er fylgjast með efnahagsmálum okkar. Takist skemmdaverkaliði Fram sóknar og kommúnista að sprengja þann varnargarð, er reistur hafði verið umhverfis gjaldmiðil okkar, svo að leiði til nýrrar verðbólgu og nýrrar skráningar krónunnar, verðum við að sjálfsögðu að taka afleið- ingunum. Ríkisstjórnin mun ekki hvika frá sinni stefnu: að treysta efnahagskerfið og þar með traust þjóðarinnar út á við, stöðva kapp hlaupið milli verðlags og kaup- gjalds og skrá gengi gjaldmiðils okkar á hverjum tíma á raunhæf an hátt. Til þess fylgir meirihluti þjóðarinnar stjórninni og fer æ vaxandi. Sr. Friðrik A. Friðriksson prófasfur KIRKJUÞINGMAÐUR Norður- landskjördæmis eystra og pró- fastur Suður-Þingeyjarprófasts- dæmis, séra Friðrik A. Friðriks- son, er 65 ára 17. júní n. k. — Hann hefur um tugi ára verið í fylkingarbrjósti kirkjunnar manna, helgað krafta sína og ó- venju fjölþætta hæfileika trú- og menningarmálum hinnar ís- lenzku þjóðar. Honum er árnað heilla á merkum tímamótum æv- innar með þakklæti margra vina og samstarfsmanna. Séra Friðrik Aðalsteinn er fæddur í Reykjavík 17. júní 1896. Foreldrar hans voru hjónin Frið- rik Ólafsson, er síðast var dyra- vörður í íslandsbanka og Ketil- ríður Sigurbjörg Friðgeirsdóttir bónda í Hvammi og síðar Refs- stöðum í Húnavatnssýslu. Hann gekk í Menntaskólann í Reykja- vík og útskrifaðist þaðan 1916. — Þá fór hann í guðfræðideild Há- skóla íslands og lauk kandidats- prófi 1921. Hann var vígður 9. okt. 1921 og gerðist prestur hjá Vestur-íslendingum í Vatna- byggðum í Saskatchewan í Kan- ada og búsettur í Winyard. Þá varð hann prestur frjálslynda ísl. safnaðarins í Blaine í Washing- ton í Bandan'kjunum frá 1930— 1933. Honum var veitt Húsavík 1933, frá 1. júní. Hann varð pró- fastur í Suður-Þingeyjarprófasts dæmi 29. maí 1936, og af hálfu presta í Norðurlandskjördæmi eystra var hann kosinn þingmað- ur á kirkjuþing hinnar íslenzku þjóðkirkju. Það yrði of langt mál í stuttri blaðagrein, að telja upp öll þau störf, sem séra Friðrik hefur unn ið. Hann hefur verið mikilvirkur og lagt mörgu góðu málefni lið. Hann fór til framhaldsnáms í kirkjusögu, trúarsálarfræði og prédikunarfræðum við guðfræði- skóla í Chicago 1928—1929. Á- samt prestsstarfinu hefur hann stundað kennslustörf, verið kenn ari við barnaskólann og unglinga skólann á Húsavík og skólastjóri iðnskólans þar var hann 1944— 1953. í skólanefnd og barnavernd arnefnd var hann 1934—1949 og formaður frá 1947. Þá var hann einnig í skólanefnd gagnfræða- skólans 1944—1949 og formaður fræðsluráðs frá 1950. Hann hefur verið formaður Barnaverndarfé- lags Húsavíkur frá stofnun þess. Söngmálum, bæði utan kirkju og innan, hefur hann lagt mikið liðsinni. Hann hefur verið söng- stjóri kirkjukórsins og um langt timabil söngstjóri karlakórsins „Þryrnur". Sjálfur hefur hann samið bæði ljóð og lög, sem kór- arnir hafa sungið. í „Tíðindum“ prestafélags hins forna Hólastift- is er prentað mikið kórverk, sem hann hefur samið. Eru tónsmíðar séra Friðriks, ljóð hans og sálm- ar, fagur vottur um listræna hæfileika hans og sterka trú. Séra Friðrik hefur verið lífið og sálin í félagsmálum. Vil ég m. a. nefna þar til rótaryklúbbinn á Húsavík. Auk þess hefur hann verið umdæmisstjóri rótaryklúbb anna á íslandi og sótt erlend þing á vegum þeirra, sem fulltrúi hins íslenzka umdæmis. Við séra Friðrik höfum átt mikið og ánægjulegt samstarf í barna- og æskulýðsstarfinu, sem ég vil hér með þakka honum sér- staklega. f mörg ár hefur hann haft sunnudagaskóla á Húsavík og nú hefur hann einnig byrjað æskulýðsstarf með fermingar- börnum. Það er uppörvandi að starfa með honum, finna áhugann og fórnarviljann. Hann gefur út safnaðarblað, sem ekki er gert nema á fáum stöðum hér á landi. Þar í liggur mikið starf, sem ég hef fengið að kynnast. Blaðið er í senn skemmtilegt og fróðlegt, að því er snertir kirkju og safn- aðarlíf. Fyrir nokkrum dögum var hann á æskulýðsmóti, þar sem saman var kominn mikill fjöldi æskufólks. Þegar hann ávarpaði börnin var auðfundið, hve þau hlustuðu á hann með mikilli á- nægju. Hann kann þá list, að tala um alvarlegt efni í „léttum tón“, svo að börnin skilja. Hið al varlega má ekki losna úr tengsl- (Framhald á bls. 5.)

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.