Íslendingur


Íslendingur - 26.10.1962, Side 2

Íslendingur - 26.10.1962, Side 2
11 j R GRENNDINNI I '"llllllllllllllllMIMllllllllMMItMIIMII Kornrækt og Mjólkur- samsala Vopnafirði í gær: Veðrátta hef- ur verið fremur góð í haust, þar til að í fyrrinótt gekk í all- hvassa austanátt með snjó- komu, og cru það snögg við- brigði frá 17 stiga hita tveim dögum áður. Bændur munu lóga með meira móti af sauðfé, eða um 17 þúsund, vegna hrak- inna og lítilla heyja, en slátur- tíð lýkur í dag. Fleiri nautgripir verða settir á en áður vegna væntanlegrar mjólkursamsölu með vorinu. Þá er talsverður áhugi fyrir korn- rækt, og hafa bændur myndað með sér félagsskap í því skyni. Hafa verið brotnir 15 ha. lands í haust, 10 í Hrappstaðalandi og 5 í Fremra-Nýps landi, og verð- ur sáð í landið með vorinu. Kaupa bændurnir jafnframt í félagi sláttu- og þreskivél. Mikið liggur hér enn af salt- síld en saltendur langt komnir að búa síldina til útflutnings: Aískipunar er þó ekki von á næstunni. Von er á 4 skipum um helgina til að taka afurðir frá síldarverksmiðjunni, 3 taka lýsi en 1 síldarmjöl. Vegagerð hefur verið með minnsta móti í sumar. Vonir stóðu til, að jeppafært yrði yfir Hellisheiði, en framkvæmdum seinkaði vegna votviðra. Ekkert hefur verið unnið að ráði við veginn út á Hauksstaðaheiði í mörg ár, og er hann nú verri en nokkru sinni. Þrír lækir sem bólgna upp á haustin og eru þá hinn versti vegartálmi, fást enn ekki brúaðir, og er það ófært ástand, að ekki skuli unnið bet- ur að aðalsamgönguleiðinni á landi héðan. Sj. Laugaskóli tekinn til starfa Aðaldal 23. okt. Héraðsskólinn á Laugum var settur 16. þ. m. Hófst athöfnin með prcdikun, er séra Pétur Sigurgeirsson flutti, en síðan flutti settur slcólastjóri, séra Sigurður Guðmundsson ó Grenjaðarstað, skólasetningarræðu, en hann gegnir í vetur starfi Sigurðar Kristjánssonar skólastjóra, í ársleyfi, er honum var veitt vegna vanheilsu. Þær breytingar urðu á kenn- araliði, að Lilja Kristjánsdóttir hvarf frá skólanum og gerðist forstöðukona við Löngumýrar- skólann í Skagafirði. Við starfi hennar tekur frú Guðrún Þórð- ardóttir, og maður hennar, séra Þórarinn Þórarinsson sóknar- prestur í Þóroddsstaðapresta- .kalli við stundakennslu. Ráðskona í eldhúsi verður Sigríður Karlsdóttir frá Mýri, en bryti verður áfram Helgi Sigurgeirsson í Stafni. í skólanum verða 114 nem., 61 piltur og 53 stúlkur, flest úr Suður-Þingeyjarsýslu, en ann- ars víðsvegar af að landinu. í skólanum starfa þrjár bekkjar- deildir og sérstök smíðadeild. Sláturtíð lýkur í dag á Húsa- vík. Fé þykir heldur með rýr- ara móti í dölunum. í byggingu er barnaskóli að Litlu-Laugum, sem fyrst um sinn verður heimangönguskóli, en síðar heimavistarskóli, þegar byggingin verður fullbúin. Fréttaritari. Eftirleit úr lofti OFT hefur það borið við á haustin, að fé hefur vantað i ýmsum sveitum hér Norðan- lands. Hafa þá bændur, einkum í nágrenni Eyjafjarðar, fengið flugvélar til að leita um afdali og öræfi, og hefur það oft gefið góða raun. S.l. mánudag fengu bændur í Eyjafirði Tryggva Helgason flugmann til að fara í eina slíka leit, og voru með honum-í vélinni kunnugir menn á öræfum og í afdölum. Þeir félagar fundu nokkrar kindur, m. a. fimm á Garðsárdal og fjórar á Þverái-dal. Einnig sáu þeir félagar mergð rjúpna, en Tryggvi segir, að nákvæm staðarákvörðun á þeim verði ekki gefin. Jafnan má búast við, að eitthvað af fé verði eftir í síðustu göngum, og hefur oft komið fyrir, að það fé hefui' gengið veturinn af og komið fyrir næsta ár í beztu holdum. Fulltrúaráð Sjálf- stæðisfélaganna á Akureyri hélt fyrsta fúnd sirtn á haustinu s.l. mánudag í Lands bankasalnum, og mættu þar flestir fulltrúaráðsmenn. For- maður ráðsins, Árni Jónsson bæjarfullti-úi, setti fundinn og stjórnaði honum. Fyrst var vetrarstarfið til umræðu og það skipulagt í stórum dráttum. Síð- an flutti Jón H. Þorvaldsson bæjarfulltrúi stutta frásögn af helztu framkvæmdum, sem fram hefðu farið á vegum bæj- arins á árinu og um fyrirætlan- ir á næstunni. Ræddi liann einlc- um um stofnun og byggingu Elliheimilisins, gatnafram- kvæmdir við Eyrarlandsveg og Þingvallastræti, byggingar skól- anna og loks stofnun og hlut- verk Æskulýðsráðs. Tóku marg- ir til máls um þessi efni. Orðsending fil húsntæðra á Ak. Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI 2. þ. m. var samþykkt svohljóð- andi tillaga: „Bæjarstjóm samþykkir, að bærinn seíji á stofn vinnumiðlun í þágu húsmæðra. Bæjarstjórn felur bæjarráði að setja — eða skipa nefnd til að setja — reglugerð um vinnumiðlun þessa, og það án verulegra tafa, svo að unnt sé sem fyrst að auglýsa eftir stúlkum til staría, svo og eftir umsóknum húsmæðra um starfsstúlkur.“ Samkvæmt þessari samþykkt skipaði bæjarráð undirrituð í nefnd til þess að gera tillögur um fyrirkomulag þessarar vinnumiðlunar, og hóf nefndin störf 19. þ. m. Fyrir nefndinni vakir að ráða stúlkur til heimilisstarfa, sem gengju milli liúsa til aðstoðar húsmæðrum. Gætu þá húsmæð ur fengið vinnu þeirra ákveðna daga vikunnar eða hluta úr degi, eftir því sem hægt væri að samræma óskir þeirra þeim starfskrafti, sem fengist. Slík störf verða að sjálfsögðu að vera vel launuð, og meðan þessi starfsemi er enn á tilrauna stigi, verður að gera ráð fyrir því, að lieimilin þurfi að borga þessa vinnu fullu verði, eða allt að 25 krónum á tímann. Hins vegar verður að telja eðlilegt. að þegar föst skipan er lcomin á vinnumiðlun þessa, þá leggi hið opinbera fram fé til að greiða kostnaðinn niður, svo að sem flest heimili geti orðið HELGI VALTYSSON hálfníræður ÞESSI UNGI maður á mynd- inni varð 85 ára í gær. Varla svona unglegur í sjón í dag, en þó ungur í spori og anda. Heit- ir Helgi Valtýsson, fæddur aust ur í Loðmundai-firði, en hleypti snemma heimdraganum, stund- aði kennslu og blaðamennsku í Noregi á ungum aldri og síðar heima á íslandi. Var einn af þeim, er stóðu í brjóstfylkingu ungmennafélagshreyfingarinnar á sínum tíma, orti ljóö, skrifaði skáldsögur og ævintýr, þýddi fjölda úrvalsbóka, safnaði til stórra ritverka og ski-ifaði fjclda tímarits- cg blaðagreina (og gerir raunar enn í dag). Megi honum sem lengst endast æskan og áhuginn. J. hennar aðnjótandi, þó efnahag- ur sé mismunandi, enda sé þá vissum skilyrðum fullnægt, t. d. um fjölskyldustærð. Þá .vill nefndin og leita fyrir sér um unglingsstúlkur til barn gæzlu og léttra heimilisstarfa hluta úr degi. Nefndin þarf nú í upphafi að vita sem bezt um eftirspurn eft- ir stúlkum til heimilisstarfa með þeim hætti, sem áður greinir. Fyrir því beinir hún þeirri áskorun til allra þeirra hús- mæðra, er þessu vildu sinna, að senda sem allra fyrst umscknir til frú Soffíu Thorarensen, Strandgötu 25, bréflega eða í síma, og greina þar hvaða viku daga og dagshluta þær vildu fá stúlkur, og þá einnig sérstak- lega, ef um unglingsstúlkur til barngæzlu væri að ræða. Enn er auðvitað óreynt, hvort hægt verður að sinna þeim umsókn- um. Það skal að lokum tekið fram að Heimilishjálpin starfar áfram með óbreyttu sniði og mun gera það, þó þessi vinnu- miðlun komist á. Akureyri, 21. okt. 1962. Gísli Jónsson. Jón Ingimarsson. Soffía Thorarensen. KVÖLDSALA. Við lestur stöku í síðasta Verkamanni: Sumum þykir lífið leitt, ef Ipkað er kvöldsölunum. Benzínsalar brosa gleitt við bæjarfulltrúunum. Pi. Sumaraukmn búinn ER MENN litu út snemma að rnorgni sl. miðvikudags, varð þeim Ijést, að sumaraukinn var allur á bak og burt, en Vetur konungur tekinn við völdum, því jörð var alhvít frá fjalls- brún að fjöruborði. Að vísu var þetta aðeins föl, en þó greinileg umskipti frá því, sem verið hef- ur. Það mun hafa verið einhver lirollur í mönnum, er þeir gengu til vinnu þennan morgun, en hinsvegar var sýnilegt, að börnin voru ánægð og skemmtu sér konunglega. „Gaman gaman nú er snjórinn kominn“, heyrði maður frá þessum litlu, úlpu- klæddu hnoðrum, er þeir streitt ust í storminum áleiðis í skól- ann. Annars hefur eins og oft áð- ur verið hlýviðri að undanförnu einkum á Norður- og Vestur- landi, en jafnframt miklar úr- komur, og hefur rigningin ver- ið svo mikil, að skaða hefur valdið. Á nokkrum stöðum hafa fallið aurskriður á vegi og teppt þá um lengri eða skemmri tíma. í Eyjafirði hefur lítið borið á skriðum. Þó féil ein á suðurleið ina á Oxnadalsheiði, en olli þó ekki töfum svo teljandi sé. Þá má geta þess, að við hina nýju brú á Oxnadalsá urðu nokkur spjöll, er áin gróf sig bak við annan stöpulinn, svo að skarð varð í veginn. Varð því að fara gömlu brúna í tvo daga. PLASTGLOS Mannshöfuð með hreyf- anlegum augum, sem mjólkurglös. Sérkennileg. Tómstundabúðin Strandgötu 17, Akureyri ÚTSALA Mánudagiim 29. október, hefst útsala í VERZLUNARMANNAFÉLAGSHÚSINU Opið frá kl. 1 til 6 e. h. MARGSKONAR VÖRUR. LÁGT VERÐ. VERZLUNIN ÁSBYRG! ADALFUNDUR Flugbjörgunarsveitar Akureyrar verður haldinn í Geúlagötu 5 (lesstofu Ísl.-ameríska félagsins) föstudaginn 26. þ. p. kl. 8.30 e. h. STJÓRNIN. ÍSLENUINGUR

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.