Íslendingur


Íslendingur - 14.12.1962, Síða 1

Íslendingur - 14.12.1962, Síða 1
tSLENDINGUR XLVIII. ARGANGUR FOSTUDAGUR 14. DESEMBER 1962 47. TOLUBLAÐ ÁrferSi ræður meira um afkomuna en stjórnarfarið í landinu Það lögmál gildir til sjós og lands Hraðsamtal við miðaldra bónda TT’inlivemveginn bar svo til í byrjun vikunnar, að við hittum ^ góðbónda að máli, er við þekktum lítillega, og barst tal okkar að búskaparháttum og búskaparhorfum. Fer þetta skyndisamtal okkar hér á eftir: — Þeir segja, að stjórnar- stefnan sé að drepa ykkur bænd urna. — Ekki segja þeir það nú beinum orðum, en mig minnir að flestar stjórnir eftir síðari heimsstyrjöld hafi átt að gera það. — En hvað um þitt álit? Ekki sama hvernig árar. — Mitt álit er, að stjórnar- farið hafi tiltölulega lítil áhrif á búskapinn, heldur sé það ár- ferðið, sem mestu ræður. Engin ríkisstjórn getur komið í veg fyrir óþurrka að sumrinu, hefur heldur engin áhrif á sprettu né getur haft í hendi sér, hvort ær láta fóstri eða ekki. Heldur get- ur engin ríkisstjórn ráðið um síldargöngur, né hvort bátur afl- ar þúsund mál eða tíu þúsund á vertíðinni. Landbúnaður og sjáv arútvegur hafa það sameigin- legt, að verða ýmist fyrir höpp- um eða sköðum, og það vita allir þeir, sem leggja á sig aci stunda framleiðsluatvinnuvegi hér til lands. Ég get meira að segja sagt þér, að í kartöflu- ræktinni hef ég fengið fjórfalda uppskeru og annað ár tólffalda. Það er ekki sama, hvernig árar. Hvað er ekki dýrt? — Sagt er, að enginn ungur maður geti stofnað til búskapar vegna féleysis. — Það kann að vera, og er mikið vandamál. Til nútíma bú- reksturs með öllum nauðsynleg- asta vélakosti þarf mikinn pen- HEIÐURSMERKI HINN T. desember sæmdi for- seti íslands 8 menn heiðurs merki hinnar íslenzku Fálka- orðu. Meðal þeirra, er þannig voru heiðraðir, eru sr. Sigurður Stefánsson vígslubiskup á Möðruvöllum og Jón G. Sólnes bankastjóri. ing. Og taki ungur maður við jörð að erfð og þurfi að svara systkinum sínum hluta þeirra, þá er það mikið átak og hlýtur að valda honum erfiðleikum, verða nánast sagt dragbítur á allar framkvæmdir hans í bú- rekstrinum. En hvað er það, sem ekki er dýrt? Hvað kostar til dæmis miðlungsíbúð í henni Reykjavík? — Heyrðu, nú ert þú farinn að spyrja, en það var ekki mein- ingin. Hvað segir þú um sam- drátt byggðarinnar, þar sem heilir hreppar verða mannlaus- ir, eins og á Vestfjörðum? Það er framvindan. — Ég veit nú varla, hvað segja skal. Það veldur alltaf nokkrum sársauka að sjá byggð fara í auðn, hvort sem hún er úti við sjávarströnd eða uppi til heiða. En ég held þetta sé eðli- leg þróun. Nú vill enginn búa í einangrun þeirri, er afar okkar og ömmur undu við. Nú þurfa allir rafmagn og síma, helzt malbikaðan veg eða flugbraut framan við hlaðbrekkuna. En höfum við efni á því? Ég efast um það. Áður voru strandjarð- irnar eftirsóttar vegna reka, veiði, æðarvarps og annarra hlunninda, en heiðajarðir vegna vetrarbeitar. Nú lítur enginn (Framhald á blaðsíðu 4). BANASLYS S.L. ÞRIÐJUDAG varð dauða- slys hér í bænum og skeði það við bát í Slippstöðinni h.f. Slys- ið varð með þeim hætti að skip- stjórinn á mb Særúnu frá Siglu firði, Jón Jóhannsson, var á leið upp í skip sitt, þar sem það stóð í dráttarbrautinni. Er Jón var kominn uppundir borðstokk í um 4Vz meters hæð, féll hann aftui'yfir sig og til jarðar. Mun Jón hafa komið niður á höfuð og herðar í frosna jörð. Menn voru þarna viðstaddir og var Jón þegar fluttur í sjúkrahús, en er þangað kom var hann lát- inn. Mun Jón hafa látizt strax við fallið. Jón var á sextugsaldri og átti fjölskyldu á Siglufirði. Skólafólk fær afslátt FLUGFÉLAG ÍSLANDS mun nú í ár, eins og að undanförnu, veita afslátt á fargjöldum fyrir skólafólk, sem óskar að ferðast með flugvélum félagsins í jóla- fríinu, eða á tímabilinu frá 15. desember 1962 til 15. janúar 1963, og nemur afslátturinn 25% frá núverandi tvímiðafargjaldi. Gildir þetta á öllum flugleiðum íélagsins innanlands. Afsláttur þessi er háður eftir- farandi skilyrðum: 1. Að keyptur sé tvímiði og hann notaður báðar leiðir. 2. Vottorð frá Skólastjóra, er staðfestir að viðkomandi stundi nám við skólann. 3. Gildistími farseðilsins er, eins og áður greinir, frá 15. des. 1962 til 15. jan. 1963. Það skólafólk, sem hugsar sér að notfæra sér þessi hlunnindi, ætti að panta sér sæti með góð- um fyrirvara, því búast má við að síðustu ferðir fyrir jól verði fljótt fullskipaðar. Séð að kvöldlagi norður Hafnarstræti (París t. h., KEA t. v.). Ljósmynd: Kr. Ilallgr. Fögur jólaskreyting í bænum UNDANFARNA daga hafa menn verið önnum kafnir við að setja upp marglitar Ijósa- skreytingar í aðalhverfum og við helztu umferðagötur bæjar- ins. Fyrst komu upp hinar þekktu ljósaskreytingar, sem einkum hafa sett svip á bæinn undanfarin ár, svo sem Amaró- stjarnan og KEA-stjaman og bjallan. Síðan hafa nýjar ljósa- skreytingar daglega bætzt við hjá verzlunum, og ber þar einna mest á krossgötunum við Gler- árgötu og Gránufélagsgötu, þar sem herradeild JMJ og Kjörver hafa komið upp mikilli ljósa- dýrð þvert yfir götur. Slíkar skreytingar þvert yfir götur eru einnig í verzlunarþyrping- unni við Skipagötu og í Hafnar- stræti frá gatnamótum Kaup- vangsstrætis norður eftir stræt- inu. Þá er Ráðhústorg skraut- lýst og ýmsir fleiri staðir, sem of langt yrði að telja. Er sér- staklega fagurt að horfa frá Landsbankahorninu við Brekku götu inn Hafnarstræti, þaðan sem jafnframt sér yfir Ráðhús- torg og inn í Skipagötu. I gær var byi-jað að reisa jóla tré Fegrunarfélagsins á þeim stöðum, sem þau hafa verið til augnayndis um undanfarin jól. Stöðuveitingar á Ak. NÝLEGA var auglýst hér eftir rafveitustjóra, skrifstofustjóra hjá Rafveitunni og fram- kvæmdastjóra Æskulýðsráðs og íþróttaráðs. Umsækjandi var aðeins einn um stöðu rafveitustjóra, Knútur Otterstedt rafmagnsfræðingur, en tveir sóttu um skrifstofu- stjói'astarfið, þeir Sigurður Hall dórsson bókari hjá Rafveitunni Esja fer utan til viðgerðar og Sigmundur Björnsson deild- arstjóri. Um framkvæmdastjóra starf „ráðanna" bárust þrjár umsóknir, og hlutu tveir um- sækjenda, Hermann Sigtryggs- son og Höskuldur Goði Karls- son jöfn atkvæði á sameiginleg- um fundi Æskulýðsráðs og í- þróttaráðs. Báðir hafa þeir starf að mikið að íþrótta- og æsku- lýðsmálum. Væntanlega verður skorið úr um ráðningu í öll störfin á næsta bæjarstjórnar- fundi. ENGIN fullnægjandi skýring virðist enn hafa fengizt við sjó- próf á strandi Esju hér á firð- inura nýlega. Helzt er svo að skilja, að strandið hafi stafað af misheyrn þess, er við stýrið var, hafi heyrzt stýrimaður á vaktinni nefna 330 gráður í stað 30. Þá hefur skipstjóri Esju vé- fengt þörf á þeirri aðstoð, er Stapáfell veitti samkvæmt beiðni tryggingarfélags. Myndi Esja hafa losnað á næsta flóði með eigin vélarkrafti, þegar botntankar hennar voru tæmd- ir. Miklar skemmdir urðu á botni Esju við strand þetta, og átti að bæta þær í Reykjavík, en vegna skorts á vinnuafli var horfið að því ráði að senda hana til Álaborgar til viðgerðar, en þar var hún byggð. Er ekki búizt við að því verki verði lokið fyrri en undir janúarlok. Veldur þetta óhapp miklu tjóni fyrir félagið og röskun á öllum áætlunum í innanlandsflutning- Hekla tekur niðri. Þá varð það óhapp austur á Fáskrúðsfirði á miðvikudags- nótt, er Hekla var að sigla þang að inn í vondu veðri, að hún tók niðri á sandgrynningu. Losnaði hún þó fljótlega af sjálfsdáðum án teljandi skemmda. RAFMAGNSTRUFLUN VARÐ Á AKUREYRI SL. ÞRIÐJUDAG RAFMAGNSLAUST varð á Ak ureyri sl. þriðjudag í nokkrum hluta bæjarins og stafaði það af bilun, sem varð í legu í stærri túrbínu stöðvarinnar við Laxá. Rafmagnsskorturinn var- aði í 2Vz klukkustund og sátu sumir bæjarbúar við kerta- eða lampaljós á þeim tíma. Sá hluti bæjarins, sem hafði rafmagn fékk það frá minni stöðinni við Laxá og toppstöðinni á Akur- eyri.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.