Íslendingur - 14.12.1962, Side 4
ÍSLENDINGUR
Kemur út hvern iöstudag. Útgeíandi: Útgáíufélag íslendings. — Ritstjóri og
ábyrgðarmaður: JAKOB Ó. PÉTURSSON, Fjólugötu 1« sími 1375. Fréttir og aug-
lýsingar: STEFÁN E. SIGURÐSSON, Krabbastíg 2, uími 1947. Skrifstofa og af-
greiðsla í Haínarstræti 81 (neðsta hæð), sími 1354. Opin lcl. 10—12 og 13.30—
17.30. Á laugardögum kl. 10—12. — Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri.
Og enn sökk skip
Eins og blöðin hafa birt fregnir um, sökk síldveiðibátur
frá Vestmannaeyjum skyndilega undir Jökli í sæmilegu
veðri á dögunum. Nokkur „ylgja“ var í sjó, er að reið
straumhnútur, er lagði skipið á hliðina, og var sokkið eftir
ca. 5 mínútur, að því er skipverjar ætla. Farmurinn var ný-
veidd síld, áætluð um 800 tunnur, þar af 200 uppi en aðal-
rnagnið í lest. Stærð skipsins um 77 brúttólestir.
Þótt hér væri lítið svigrúm til björgunar, tókst formanni
bátsins að kalla nálæga báta upp í talstöðinni og öðrum
skipverjum að koma gúmbátnum út. Aðeins formaðurinn
varð að fara í sjóinn til að ná bátnum.
Engum getum þarf að því að leiða, að þarna hefðu 11
rnenn horfið skyndilega í djúp sjávar, ef gúmbátsins hefði
ekki notið við, því þótt skip bæri að slysstað eftir stundar-
fjórðung er mjög óvíst, að nokkur hefði bjargazt, og þar
að auki virðist hafa verið nokkurri tilviljun háð, að neyðar-
kall skipstjórans í talstöðina skyldi heyrast. Gúmbáturinn,
sem nú er fyrirskipaður á öllum fleytum yfir tiltekinni lág-
marksstærð, er því eina björgunartækið, sem til greina kem-
ur, þegar slík fyrirvaralaus sjóslys verða, sem hér er að vikið.
En þetta slys er síður en svo einstætt. Það rná miklu frem-
ur segja, að faraldur sé orðinn að skipsköðum, sem gera ekki
nema nokkurra mínútna boð á undan sér, og það stundum
í veðri, sem ekki er einu sinni talið válynt eða viðsjált. Þetta
er mjög umtalað mál og veldur eðlilega áhyggjum. Meðan
svo að segja engin öryggistæki voru til í skipunum, engin
talstöð, engir björgunarbátar, hvorki úr tré, stáli né gúmi,
óttuðust sjómannskonur ekki um menn sína eða syni, nema
að nokkurn veðurham gerði. En hin síðari ár hverfa nýlegir
'bátar í djúpið í blíðskaparveðri á nokkrum mínútum. Og
hversu margir mundu hafa farizt í sjó síðustu 5—6 árin, ef
'hins nýja björgunartækis, — gúmbátsins, hefði ekki notið
við?
Hér er ekki allt með felldu. Leita verður tafarlaust orsaka
á þessum síendurteknu sjóslysum, — sem fram fara í veður-
lagi, sem ekki hefur hingað til verið talið hættulegt, — til
að fá svar við þeirri eðlilegu, áleitnu spurningu: HVAÐ
OLLI ÞVÍ, AÐ SKIPIÐ VALT OG SÖKK?
Skyldur, en engin rétfindi
í bæjarblöðunum birtist um þessar mundir tilkynning frá
stjórn Sjúkrasjóðs Verkamannafél. Akureyrarkaupstaðar, þar
sem segir að verkamenn, er ekki hafi full félagsréttindi í
V. A. hafi ekki rétt til úthlutunar fjár úr sjúkrasjóði félags-
ins. Síðar segir í tilkynningunni:
„Nokkur brögð virðast vera að því, að starfandi verka-
menn séu ekki félagsmenn Verkamannafélagsins, heldur
greiði því svonefnd vinnuréttindagjöjd, sem veitir þeim
aðeins rétt til að stunda verkamannavinnu óákveðinn
tíma en ekki rétt til bóta úr sjúkrasjóði NÉ HELDUR
ÖNNUR FÉLAGSRÉTTINDI. .. .“
Hvað felst í þessum orðum? Flestir munu skilja þau svo,
að verulegur hópur verkamanna greiði lelagsgjöld til Verka-
mannafélagsins fyrir að fá að vinna óáreittir á félagssvæðinu,
en haii þar engin önnur réttindi, svo sem atkvæðisrétt og
kjörgengi né heldur iinnur réttindi, sem svonefndir fullgild-
ir félagsmenn njóta. Enda hefur það orð legið á, að í þeim
félögum, er kommúnistar ráða, sé „vafasömum" mönnum
haldið utan réttinda í félaginu og komist því ekki á kjörskrá.
Ef svo er hér í bæ, þarf engan að furða, þótt fundir í Verka-
mannafélagi Akureyrarkaupstaðar geti fengið uppsögn
kjarasamninga samþykkta með 20—30 atkvæðum.
SJOTUGUR:
Olafur Tliorarensen
fyrrv. bankastjóri
SL. LAUGARDAG (8. þ. m.)
átti Olafur Thorarensen fyrrver
andi bankastjóri, einn af þekkt
ViSNA
BÁLKUR
Vestur-Skaftfellsk ljóð (ný-
lega útkomin og mér send).
Gott þeir eiga gæfuþol
gæddir kostum slyngum,
það er ekkert víl né vol
í Vestur-Skaftfellingum.
Bjartsýnir eru þeir eystra,
yrkja í jötunmóð
þótt hið Unga ísland
sé einkum fyrir stóð.
En ekkert fyrir andann
né orðsins fornu list,
fyrir slíkt gefur fjandann
fólkið dollaraþyrst.
Kjarkaðir eru þeir eystra
að yrkja og gefa út ljóð,
án þess að geta ávísað
öllu á ríkissjóð.
Enn er stakan til og tæk
tökin rétt og glíma,
fyrir austan Fúlalæk
fást þeir við að ríma.
—o—
Höfuðstafir, stuðlafar,
staðið við orð og gerðir,
íslenzkt mál og meiningar,
minna um skýjaferðir.
Þó að mörg sé syðra seld
sæmd og þrjóti móðinn,
heyrast kveðin austur við ELD
ennþá stuðluð ljóðin.
Þar er ekkert atómvæl,
engin stuðlakreppa,
ekki menn sem hopa á hæl
og höfuðstöfum sleppa.
Augun gömlu opin ríf,
upp sig skottið hringar,
yrkja um hesta, vín og víf
Vestur-Skaftfellingar.
Austri.
í síðasta bálki voru birtar
tvær vísur (hestlýsingar), er
sagðar voru eftir óvissan höf-
und. Svo er þó ekki. Vísurnar
eru úr Hestavísum Sigurbjarn-
ar Jóhannssonar og prentaðar í
„Ljóðmælum“ hans, er út komu
í Winnipeg 1902. Vísurnar eru
3. og 7. vísan í samfelldu kvæði
og þannig gerðar:
Stutt með bak og breitt að sjá,
brúnir svakalegar,
augu vakin, eyru smá
einatt hrakin til og frá.
Leggjanettur, liðasver,
lag sé rétt á liófum,
liarður, sléttur, kúptur, kver,
kjóstu þetta handa mér.
ustu og virtustu borgurum bæj-
arins, sjötugsafmæli. Hann er
eyfirzkur í báðar ættir og fædd
ur hér á Akureyri, og hóf að
fermingu lokinni störf við úti-
bú Landsbankans hér í bæ. Síð-
ar dvaldi hann 12—13 ár í
Reykjavík og var fulltrúi við að
albankann þar. Árið 1931 var
hann ráðinn bankastjóri við úti
búið hér í bæ og gegndi því
starfi óslitið um 30 ára skeið,
eða þar til hann fyrir IV2 ári
hvarf frá störfum að eigin ósk
eftir 53 ára samfellda þjónustu
við eina og sömu stofnun.
Bankastjórastarf hefur aldrei
verið álitið líklegt til almennra
vinsælda. þess, er með fer, en
þar hefur Ólafur sloppið heill
af hólmi. Um það segir einn af
kunningjum hans hér í blaðinu
fyrir 10 árum:
„Hollt es heima hvat“ segir í
fornum fræðum, og er ekki
hvað sízt mikils um vert, að
rúm Ólafs fylli maður, sem er
gagnkunnugur byggðarlaginu
og íbúum þess. Það er ekki öll-
um hent að veita forstöðu
stærsta bankaútibúi í smákaup-
stað — heimahögum kunnings-
skaparins — án þess að bíða
tjón á vinsældum sínum og
virðingu. Það gera traustir
skapfestumenn einir, með ríka
(Framhald af blaðsíðu 1)
við slíku. Rekinn fer minnk-
andi, því færri skip farast nú
en fyrrum (sem betur fer), eng-
inn nennir að hreinsa dún, enda
óþrifaverk, og hver nennir að
standa yfir rollum í krafstri
uppi í fjalli? Nei, þróunin er
eðlileg og engu stjórnarfari að
kenna, heldur framvindunni. Og
enginn spornar við henni.
Fjölbýli.
— Telur þú þéttbýli æski-
legt?
— Já, og ekki. Þar sem svo
hagar til, að unnt er að rækta
hundruð eða þúsundir hektara
lands á einu bretti, er eðlilegt
að þar myndist eins konar
sveitaþorp eða fjölbýli. Þjóð-
hagslega séð er það miklu á-
kjósanlegra en að byggðinni sé
dreift um allar jarðir.
— Hugsar þú þér þá sam-
yrkjubúskap á þessu landi?
— Nei, síður en svo. Ég
mundi gera úr þessu sjálfstæða
reiti fyrir hvern búþegn, rétt
eins og lóðum er úthlutað við
götur bæjanna. Aðalvandinn
ábyrgðartilfinningu, sem vilja
velja og hafna, á ákveðnum for
sendum, án manngreinarálits að
öðru leyti. Hygg ég, að Ólafur
rísi undir“.
Ólafur Thorarensen virti sjálf
ur starf sitt mikils, og sá er virð
ir starfið, vanrækir það ekki né
hefur „framhjá11 því, sem kallað
er. Því var Ólafur jafnan tregur
til opinberra starfa. Sat þó eitt
kjörtímabil í bæjarstjórn en ó-
fáanlegur til að halda því áfram.
Þá var hann um skeið í stjórn
sjúkrahússins og Húsmæðra-
skólans og endurskoðandi bæjar
reikninga. Af helztu áhugamál-
um hans má nefna skógræktina,
en þar hefur hann verið drjúgur
liðsmaður.
Þótt Ólafur Thorarensen kysi
að hverfa frá starfi sínu eftir
meira en hálfrar aldar þjónustu,
er hann enn í fullu fjöri og get-
ur því snúið sér að eigin hugð-
arefnum eftir langan og giftu-
saman starfsdag.
myndi þá sennilega vera við
skiptingu eða sameign bithag-
ans, en hann er allsstaðar óhjá-
kvæmilegur, þar sem kvikfjár-
rækt er stunduð.
Frj^Jsasta starfið.
—r Hefur þú stundað búnað-
arnám?
— Nei, en ég gekk í farskól-
ann í minni sveit á sínum tíma.
Það var nokkru áður en þeii'
komu með skyldunámið. En ég
hef síðan mikið lagt mig eftir
því að læra af umhverfinu, vitr-
um bændum og glöggum ráða-
nautum, og mér er engin laun-
ung á því, að landbúnaðurinn
er ákjósanlegasta og frjálsasta
starf sem völ er á, — að vísu
áhættusamt á sinn hátt, þar sem
eitt einasta tilvik getur ráðið
úrslitum um, hvort maður synd
ir ofan á eða fer í kaf, — en það
er undir árferði komið á hverj-
um tíma, — ekki ríkjandi
stjórn, enda hafa þær yfirleitt
skilið þýðingu landbúnaðarins í
þjóðarframleiðslunni, og núver-
andi stjórn þó fremur en sumar •
hinna fyrri. J.
í SLENDIN GUR
- ÁRFERÐI RÆÐUR MEIRA UM AFKOMUNA