Íslendingur - 14.12.1962, Side 8
Friðrik Ólafsson si
ursæll iim lielgina
SL. SUNNUD AGSKV ÖLD
tefldi Friðrik Ólafsson stórmeist
ari á 37 borðum hér í Lands-
bankasalnum. Vann hann á 31
Þingeyingar stofna
áttíiagafélag á Ak.
ÞINGEYINGAR, sem búsettir
eru hér í bænum, stofnuðu sl.
sunnudag félag, sem nefnist
Þingeyingafélagið á Akureyri,
og er það átthagafélag með líku
sniði og tíðkast í Reykjavík, en
hér eru fyrir nokkur átthagafé-
lög, svo sem Austfirðingafélag,
Ólafsfirðingafélag, Skagfirð-
ingafélag og Húnvetningafélag.
Stofnendur voru um 90, og lík-
legt að við þá tölu bætist, þar
sem allir þeir, er skrá sig í fé-
lagið til ársloka teljast til stofn-
enda.
Fyrstu stjórn félagsins skipa:
Marteinn Sigurðsson formaður,
Einar Kristjánsson rithöf. ritari
og Indriði Ulfsson kennari
gjaldkeri. Meðstjórnendur frúrn
ar Ólöf Jónasdóttir og Þórhild-
ur Skax-phéðinsdóttir.
borði, gerði.4 jafntefli, en tapaði
fyrir Ólafi Kristjánssyni og
Gísla Jóhanrissyni, Á mánudags
kvöldið tefldi hann eftir klukku
við 10 meistaraflokksmenn og
eina blindskák.’ 'Vann hann 10
skákir að meðtalinni blindskák-
inni og gerði eitt jafntefli. Er
það hinn prýðilegasti árangur.
Á þriðjudagskvöldið tefldi
Friðrik við 18 nemendur M. A.
Vann hann á 13 borðum, gerði
4 jafntefli og tapaði fyrir Jóni
Þ. Þór. Höfðu skókmenn hér í
bæ og nágrenni mikla ánægju
af komu meistarans.
Jóla-hraðskákmót verður hald
ið á vegum Skákfélags Akur-
eyrar 27. des., og er öllum heim
il þátttaka í því.
STAL 6 ÞÚSUND KR.
NÝLEGA varð 14 ára piltur hér
í bæ uppvís að því að hafa stol-
ið 6 þúsund krónum úr mann-
lausri íbúð. Voru peningarnir í
lokaðri hirzlu en lykill að henni
auðfundinn. Drengur þessi hef-
ur ekki áður „komizt undir
manna hendur.“
íslenzkt 130 tonna stálskip
SNEMMA í vikunni var sjósett-
ur nýr 130 lesta stálbátur, smíð-
aður hjá Stálsmiðjunni í Reykja
vík.
Þetta mun vera stærsti fiski-
bótur, sem smíðaður er úr stáli
hérlendis. Báturinn heitir Am-
ames. Til nýjunga í þessum bát
má telja, að lestin er öll klædd
innan með plasti til varnar því,
að grútur komist að súðum
JÓLABLAÐ
ÍSLENDINGS
kemur út n. k. Þriðjudag, 18.
des., en síðasta blað fyrir jól
(og væntanlega á árinu) föstu-
daginn 21. des.
Brúðhjónin Erla Elva MöJler og
Kolbeinn Kristjánsson jámsm.
skipsins. Eigandi bátsins er ís-
hús Hafnarfjarðar.
Tekur við embætti
ÞÓRHALLUR ÁSGEIRSSON,
sem undanfarin 4 ár hefur starf-
að sem fulltrúi Norðurlanda í
stj órn Alþj óðagj aldeyrissj óðsins
í Washington, hefur á ný tekið
við starfi ráðuneytisstjóra í við-
skiptamálaráðuneytinu.
Dr. Oddur Guðjónsson, sem
gegnt hefur störfum ráðuneytis-
stjóra í viðskiptamálaráðuneyt-
inu síðastliðið ár, hefur verið
skipaður viðskiptaráðunautur
ríkisstjórnarinnar og mun hann
einkum fjalla um viðskipta-
samninga og mál, er þá varða.
Jónas H. Haralz, forstjóri
Efnahagsstofnunarinnar, sem
undanfarið hefur starfað sem
ráðunautur ríkisstjórnarinnar í
markaðsmálum Evrópu, lætur
nú af því starfi.
(Frétt frá ríkisstjóminni).
Gamalmenni slasaðist
Á MÁNUDAG var Tryggvi
Helgason kvaddur til Kópa-
skers á sjúkraflugvélinni, en
þar hafði níræð kona lærbrotn-
að. Tryggvi sótti konuna og
flutti í Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri.
FRIÐRIK OLAFSSON
snjallasti skákmaður
íslendinga í dag.
Frá fulltrúafundi búnaðar-
sambandssljórna í Rvlk
UM MIÐJAN nóvember var
haldinn í Reykjavík fundur bún
aðarsambandsstjórna um end-
urskoðun afurðasölulaganna.
Boðendur fundarins voru Bún-
aðarsarrib. Austurlands og Bún-
aðarsamb. S.-Þingeyinga. Fram-
sögu af hálfu boðenda hafði
Þorsteinn Sigfússon á Sand- '
brekku, form. B. S. Austur-
lands.. Á öðrum fundardegi var
Jón Austmar skip-
stjóri á Mærks Line
SJÓMANNABLAÐIÐ Víkirigur
(jólablað 1962) segir svo frá:
„f nóvember tók Jón Austmar
skipstjóri við skipstjórn á 40
þús. lesta olíuflutningaskipi,
eign A. P. Möller, sem er eitt
af 3 stærstu skipum nefnds fé-
lags. Jón Austmar hefur starfað
um alllangt skeið hjá þessu risa
stóra félagi, sem nú á 85 skip
og er stærsta skipafélag á Norð-
urlöndum. Hann varð skipstjóri
7. marz 1957 á Nelly Mærks, þá
Alexander Mærks 21 þús. lestir,
síðan Emma Mærks 30 þús. lest-
ir og nú Katrine Mærks 40 þús.
lestir. Það er öllum íslendingum
gleðiefni, er landinn brýtur sér
braut á erlendum vettvangi og
kemst í æðstu trúnaðarstöður,
á hvaða sviði sem er. íslenzkir
farmenn fagna þessum frama,
er Jón Austmar hefur hlotið, er
honum er falin stjórn á Katrine
Frá Bridgefélagi Ak.
I. FLOKKS KEPPNIN:
Urslit 9. umferðar:
Soffía vann Ásbjörn 6:0
Magni vann Hjört 6:0
Aðalsteinn vann Guðmund 6:0
Jónas vann Zophónías 6:0
Björn vann Óla 6:0
Hallgrímur vann Sigurjón 6:0.
Albert sat yfir.
Lokið er einnig leik Alberts
og Jónasar, sem var frestað.
Jónas vann 6:0.
Úrslit 10. umferðar:
Jónas v. Soffíu......... 6:0
Aðalsteinn v. Zophonías .. 6:0
Hallgrímur v. Magna .... 6:0
Óli v. Sigurjón......... 6:0
Albert v. Björn......... 5:1
Hjörtur jafn Guðmundi .. 3:3
Ásbjörn sat yfir.
Röð sveitanna er nú þessi:
1. Jónas Stef. 57 st. (10 1.)
2. —3. Aðalst. Tóm. 48 st. (9 1.)
2.—3. Hallgr. Bened. 48 st (9 1.)
4. Soffía Guðm. 47 st. (9 1.)
11. umferð verður spiluð 8.
jan. 1963.
Mærks, og senda honum beztu
árnaðaróskir. . .. “
Síðan er rakin nánasta ætt og
uppruni Jóns og starfsferill, en
svo sem Akureyringum er kunn
ugt, ólst Jón upp hér á Akur-
eyri frá því hann var lítið barn,
þar til hann réðst í siglingar á
skipum Eimskipafélagsins.
MALSHÖFÐUN Á
PRÓF, DUNGAL
Eftir að áhangendur spirit-
ismans og efnishyggjumenn
leiddu saman hesta sína í út-
varpinu í þætti Sigurðar Magn
ússonar nýlega, hófust blaða-
skrif og opinberar deilur þriggja
þátttakendanna: Sveins Vík-
ings, Sigurjóns sálfræðings
Björnsonar og próf. Níelsar
Dungal. í grein, er próf. Dungal
skrifaði í eitt dagblaðanna réðst
hann óviðurkvæmilega að Láru
Ágústsdóttur miðli og vanda-
mönnum hennar, og hefur nú
eiginmaður Láru, Steingrímur:
Sigursteinsson, skýrt blöðum
frá því, að hann muni fyrir
hönd konu sinnar hefja meið-
yrðamálsókn á hendur prófess-
ornum og jafnvel fleirum, er
ritað hafa meiðandi um frú
Láru eftir nefndan fund eða í
sambandi við útkomu bókar sr.
Sveins Víkings um ævi hennar
og störf.
HEIMA ER BEZT
jólahefti, flytur jólasögu
(Klukknahljóð) eftir Gestum-
blinda, Sálfarir e. Kristján Hall-
dórsson Stóru-Tjörnum, mynd-
umprýdda grein um Huldu
skáldkonu e. Aðalbjörgu Bene-
diktsdóttur, Sýnir Gúðríðar
Guðbrandsdóttur e. Jóhannes
Ásgeirsson, Klukkan er að
verða fjögur (niðurl.) e. Alex-
ander Jóhannsson, Upphaf á
nýrri framhaldssögu e. Magneu
frá Kleifum, framhald á sögunni
Eftir Eld, unglingaþátt o. m. fl.
svohljóðandi ályktun samþykkt
með atkvæðum allra fulltrúa:
„Fulltrúaráðsfundur búnaðar
sambandsstjórna, • haldinn í
Reykjavík 14. og 15. nóv. 1962
til þess að ræða hugsanlegar
breytingar á afurðasölulöggjöf-
inni,. lýsir ánægju sinni yfir
Ákvorðun aðalfundar Stéttar-
sambands bænda um endurskoð
un Framleiðsluráðslaga og skor-
ar á stjórn Stéttarsambandsins
og nefnd þá, er síðasta Búnað-
arþing kaus til endurskoðunar
laganna, að hraða störfum.
Verði sá möguleiki kannaður
til hlítar, hvort frumvarp til
nýrra Framleiðsluráðslaga feng
ist samþykkt á yfirstandandi
Alþingi.
Fundurinn bendir á eftirfar-
andi atriði, sem m. a. þyrfti að
athuga:
1. Hvort fella beri niður ákvæði
laganna um störf sexmanna-
nefndar og yfirdóms og hvað
geti komið í staðinn, sem
betur tryggir rétt bænda.
2. Hvort lögfesta þurfi rétt
bænda til sölustöðvunar.
3. Á hvern hátt verðlagsgrund-
völlurinn verði undii'byggð-
ur með raunhæfum niðurstöð
um búreikninga og Búreikn-
ingaskrifstofa ríkisins endur-
skipulögð í því skyni, eða
sérstök hagdeild stofnuð.
4. Hvernig bændum verði
tryggð hæfileg hlutdeild í
framleiðsluaukningu og
bættri framleiðni.
5. Hvort breyta þurfi tímamörk
um vei'ðlágsársins.
6. Að fjölga beri fulltrúum í
Framleiðsluráði um tvo með
tilliti til þess, að landshlut-
um verði tryggð réttlát hlut-
deild í skipun ráðsins.
(Úr fréttatilkynningu)
Verður borgardómari
KRISTJÁN JÓNSSON fulltrúi
bæjarfógetaembættisins hér hef
ur fengið veitingu fyrir einu af
borgardómaraembættunum í
Reykjavík frá næstu áramótum,
en mun þó gegna starfi sínu
hér framan af næsta ári.