Íslendingur - 14.08.1964, Page 1
„Systur.“
— Ljósmyndir: K. Hjaltason.
Listaverk sett upp í hmm
UNDANFARNA DAGA hefir
tveim standmyndum verið kom-
ið fyrir á almannafæri hér í
bænum, en það eru , ,Systur“
Ásmundar Sveinssonar, er
Reykjavíkurborg gaf Akureyri
í afmælisgjöf í hitteðfyrra, og
„Litli fiskimaðurinn,“ er Ála-
sundsbær færði bænum við
sama tækifæri.
krafti. Höfum við nú afkasta-
meiri ýtur en áður, en mann-
skapur er svipaður og í fyrra
við vélstjórn og sprengingar.
Verkstjóri er Sveinn Brynjólfs-
son frá Efstalandskoti sem áður.
SAUÐÁ BRÚUÐ.
— Hvað liður fullvinnslu á
þessum vegi hérna megin?
— Vegurinn frá Dalvík er að
mestu fullunninn út að Sauðá,
að undanskildum kaflanum út
að Karlsá. Þó er eftir að bæta
möl í hann á nokkrum kafla.
Fyrirhugað er að brúa Sauðá á
þessu sumri. Verður til þess
notaður stálhólkur af sérstakri
ge.rð, sem er nýleg aðferð til að
brúa minni vatnsföll. Mun þó
hafa verið notuð á tveim stöð-
um í Strákavegi og í eitt gil á
Tjörnesi.
Afkastamiklar ýtur vinna að Iagningu Múlavegar.
MIKLAR SPRENGINGAR.
— Hversu langt er enn eftir
að ryðja?
— Milli ruddra enda nú
(Framhald á blaðsíðu 7).
m
4 stórvirkar gröfur og ýtur eru þar að verki
BLAÐIÐ talaði í vikunni við Guðmund Benediktsson yfirverk-
stjóra hjá Vegagerð ríkisins og spurði hann frá framkvæmdum í
Múlavegi í sumar, en svo er vegurinn, sem unnið er í milli Dal-
víkur og Olafsfjarðar nefndur í daglegu tali.
STÆRRI VÉLAR. hve mikið fé fengist, segir Guð-
— Við fórum hægt af stað í mundur, — en fyrir nokkru var
vor, enda lá þá ekki ljóst fyrir, tekið til við veginn af fullum
„Litli fiskimaðurinn.“
„Systurnar“ eru staðsettar í
Grófargili, rétt ofan við gatna-
mót Kaupvangsstrætis og Laug-
argötu, en „Litli fiskimaðurinn“
á graseynni í Geislagötu sunnan
við Búnaðarbankann, og horfir
hann fránum sjónum inn á Ráð-
hústorgið.
Nauðsynlegar breytingar á útsvars- og
skattamáluni þegar í undirbúningi
Opinber gjöld verði innlieimt jafnóðum af launum manna
RÍKISSTJORNIN samþykkti
s.l. miðvikudag ályktun um
útsvars og skattamál, þar
sem m. a. er lögð áherzla á
eftirfarandi:
Ríkisstjórnin mun beita
sér fyrir því, að þeir gjald-
endur, sem greiða opinber
gjöld reglulega af launum
sinum og þess óska, megi
greiða eftirstöðvar gjaldanna
nú á sex mánuðum í stað
fjögurra, en hin greiddu út-
svör verði frádráttarbær eigi
að síður.
Ríkisskattstjóra hefir ver-
ið falið að undirbúa nauðsyn-
legar breytingar á útsvars-
og skattalögum.
Svo fljótt sem auðið er
verði því greiðslufyrirkomu-
lagi komið á, að opinber
gjöld verði innheimt jafnóð-
um af launum.
Ályktun ríkisstjórnarinnar
fer hér á eftir:
RÍKISSTJÓRNIN hefur í dag gert svohljóðandi ályktun út
af erindum, sem lienni hafa horizt varðandi skattamál frá
stjóm Framsóknarflokksins og framkvæmdanefnd miðstjórn-
ar Sameiningarflokks Alþýðu — Sósíalistaflokksins:
J EKKERT hefur komið fram, sem hendir til þess, að
álagning opinherra gjalda á þessu ári hafi ekki farið fram
lögum samkvæmt. Ráðstafanir til almennrar endurskoðunar
eða endurmats gjaldanna yrðu því tilefnislausar. Einstakir
gjaldendur, sem telja rétti sínum hallað, hafa samkvæmt
gildandi lögum aðstöðu til þess að fá gjaldaálagninguna
leiðrétta með kæru, ef efni standa til.
^ FRESTUN á innheimtu gjaldanna almennt er ófram-
kvæmanleg, þar sein hún mundi lama starfsemi og stöðva
framkvæmdir, einkum hjá sveitarfélögum. Á hinn bóginn
hefur ríkisstjórnin ákveðið að beita sér fyrir því, að þeir
gjaldendur, sem greiða opinber gjöld reglulega af launum
sínum og þess óska, megi greiða eftirstöðvar gjaldanna nú
á sex mánuðum í stað fjögurra, en hin greiddu útsvör verði
frádráttarbær engu að síður.
Q VEGNA liinnar miklu aukningar, sem á árunum 1!)83 og
1964 hefur orðið og fyrirsjáanlega mun verða á tekjum
manna, hefur ríkisskattstjóra þegar verið falið að undirbúa
nauðsynlegar breytingar á útsvars- og skattalögum.
J RÍKISSTJÓRNIN VILL, svo fljótt sem auðið er, koma
á því grelðslufyrirkomulagi, að opinber gjöld verði inn-
lieimt jafnóðum af launum. Hefur ríkisskattstjóri að fyrir-
lagi fjármálaráðherra unnið á annað ár að þeim undirbún-
ingi, sem er mjög umfangsmikill og tímafrekur.
P í SAMRÆMI við lagabreytingu á síðasta Alþingi hefur
verið stofnuð sérstök rannsóknardeild við embætti ríkis-
skattstjóra. Verður að því unnið að tryggja rétt framtöl og
þeir, sem sekir gerast um skattsvik, verði látnir sæta
ábyrgð.
ISLENDINGUR
R I, A1) SJÁLFSTÆÐISMANNA í NO RÐU R L A N D SK J Ö K D Æ M I EYSTRA
50. ÁRGANGUR . FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1964 . 33. TÖLUBLAÐ
Um 1 km. milli „endanna" á Múlavegi