Íslendingur


Íslendingur - 14.08.1964, Blaðsíða 5

Íslendingur - 14.08.1964, Blaðsíða 5
Frá Laxárvirkjun. UM MARGAR LEIÐIR AÐ VELJA - til að bæta úr raforkuþörfiimi Úr álitsgerð Sigurðar Thoroddsen, verkfr. STJÓRN Laxárvirkjunar fór fram á það fyrir 4 árum við raforku- málastjóra, að hann veitti aðstoð við álitsgerð um fullvirkjun Lax- ár við Brúar, og varð úr, að Sigurður Thoroddsen tók að sér að vinna verkið, en Jarðboranir Ríkisms annaðist nauðsynlegar jarð- vegsrannsóknir. Fullnaðarálit frá Sigurði Thoroddsen barst stjóm Laxárvirkjunar í byrjun júlí í sumar, í tveim vélrituðum bindum, og liefur hún látið blaðinu í té eftirfarandi útdrátt, sem liún hefir látið gera úr álitinu: Nú nýverið hefir Sigurður Thoroddsen verkfræðingur skil- að áætlun um fullvirkjun Lax- ár í Suður-Þingeyjarsýslu við Brúar. Alls nær skýrslan yfir áætlunargerðir um 10 mismun- andi virkjanir og til Suðurár- veitu. Ennfremur er gerð grein fyrir flutnirigsvirkjun vegna hinna ýmsu tilhagana, spenni- stöðvum við virkjanirnar, há- spennulínu til Akureyrar og spennistöð þar. Þess skal getið, að í öllum til- högununum er gert ráð fyrir að veita Suðurá í Laxá, en það eykur orkuvinnslugetuna við Brúar um 30—40% og ennfrem- ur er gert ráð fyrir að gera háa stíflu í Laxárgljúfrum í því skyni að skapa miðlun og rekst- ursöryggi og aukna fallhæð. Allt bendir til þess að 30 metra há stífla sé hin hagvæmasta. Ennfremur skal þess getið að þessar áætlanir eru miðaðar við það að virkjað sé til almennings- Varastöðin stækkuð EINS og áður hefir verið frá skýrt, hefir rafveitustjórn sam- þykkt að auka orku varastöðv- arinnar á Oddeyri um helming. Hefir rafveitustjóri tjáð blað- inu, að vélarinnar, sem til þessa var pöntuð, sé von upp úr n. k. mánaðamótum, og muni þá verða hafizt handa um að koma henni fyrir við hlið þeirra, sem fyrir eru. fSÍ ENDINGUR nota og uppsett afl miðað við það. Fara hér á eftir hinar 4 til- haganir að virkjun fallsins við Brúar. Auk þessa er sá möguleiki fyrir hendi að virkja Laxá sam- kvæmt tilhögun 4 en sem grunn aflstöð (fyrir stórt veitusvæði) með 50.000 kw. uppsettu afli. Heildarkostnaður lauslega áætl- aður um 627 millj. kr. og verð á uppsett kw. um 8.200,00 kr. Verð á hverja kwst. við stöðvar- hússvegg yrði með 8% árlegum kostnaði um 8,1 eyrir og á Ak- ureyri um 12,3 aurar. Orkuverð á Akureyri sam- kvæmt tilhögun 2 yrði með 8% árlegum kostnaði um 18 aur/ kwst. og samkvæmt tilhögun 3 og sömu forsendum um 17,5 ■aur/kwst. Verðið samkvæmt til- högun 4 yrði aftur á móti um 16 aur/kwst. Það er álit Sigurð- ar Thoroddsen að ef- virkjað verður í áföngum á 20—30 ár- um, þá verði 2. og 3. tilhögun ódýrastar miðað vii§ núgildi stofnfjárins í upphafi heildar- virkjunar. Enn hafa ekki verið gerðar endanlegar tillögur til lausnar á raforkuþörf Norður- og Austur- lands, en eftirfarandi 3 mögu- leikar eru teknir til meðferðar í skýrslu Sigurðar Thoroddsen: 1. Laxársvæðið. Sama orku- veitusvæði og nú er. 2. Norðurland. Hrútafjörður — Þórshöfn. Orkuveitusvæðið stækkað með veitu vestur til Skagafjarðar, norður til Siglu- fjarðar og austur til Þórshafnar. 3. Norður- og Austurland. Fyrrnefnt svæði (2) að við- bættu Austurlandi, .allt suður fyrir Hornafjörð. í skýrslunni eru línurit er > sýna aflspá fram til ársins 1986 fyrir ofangreind svæði, og eru virkjunarstigin við Brúar, sem henta hverju sinni felld að línu- ritunum. Gert er ráð fyrir að aflþörfinni .verði fullnægt með vatnsafli yfirleitt, en fram til ársins 1968 verði aflþörfinni fullnægt á annan hátt, en talið er að fyrr verði ekki lokið hin- um fyrsta áfanga virkjunar við Brúar. Lauslegar athuganir benda til þess að byggingartími þeirra virkjunarstiga, sem til greina koma sem 1. áfangi sé um 3 ár. Verði orkuveitusvæðið hið sama óg nú er, Laxársvæðið, eru virkjunarþrepin samkvæmt 2. og 3. tilhögun nokkuð stór. Með 1. tilhögun fengist auðveld- ari byrjun, en heildarvirkjunin verður dýrari. Svipað er að segja um 2. orkuveitusvæðið. Fyrir 3. orkuveitusvæðið, Norður- og Austurland, vex afl- þörfin örast. Fyrir þetta svæði mundi henta vel að virkja sam- kvæmt 2. og 3. tilhögun í áætl- un Sigurðar Thoroddsen. Með 3. tilhögun mundu tvö fyrstu virkjunarstigin verða fullnýtt á um 5 árum hvort, hið 3. á um 4 árum og hið 4. og síðasta á um 4 árum. Heildarvirkjun Laxár við Brúar yrði þannig fullnýtt á árunum 1985—1990. Af framansögðu sést að heild- arvirkjun Laxár við Brúar mundi henta bezt fyrir orku- veitusvæði, sem nær yfir Norð- urland og Austurland. Telur Sigurður Thoroddsen ólíklegt að hægt verði að fullnægja orku þörf þessa orkuveitusvæðis- (Framhald af blaðsíðu 8). prýdd myndum af íslenzkum listavérkum. BYRJAÐI UNGUR. — Hvenær byrjuðuð þér að handleika pensilinn? — Ég var þá ekki nema 16 ára. Árið eftir sigldi ég til Hafn- ar og var þar eitt ár við nám. Síðan var ég 12 ár í Bandaríkj- unum, og eyddi nokkru af þeim tíma í að stunda málaralist, höggmyndalist og tónlist. Og margt fleira ber á góma. Við komumst að raun um, að Magnús hefur gefið út söng- lagasafn eftir sjálfan sig, að hann hefir skrifað í blöð og tímarit heima og heiman um íslenzka list og listamenn, að hann er ljóðskáld og Ijóðaþýð- ari. Við könnumst við þýðingar hans á Ljóðfómum og Farfugl- um eftir indverska spekinginn Tagore, og hann fræðir okkur á því að í prentun séu ljóðaþýð- ingar á ensku eftir liann, þar sem þýdd séu ljóð 30 íslenzkra skálda og koma samtímis út á íslandi (Menningarsjóður) og í ódýrar með virkjunum annars staðar en við Brúar, ef virkjað er fyrir almenningsnotkun ein- göngu. Áætlun um flutningsvirkin sem þarf til stækkunar orku- veitUsvæðanna hefir að vísu ekki verið gerð og þar af leið- andi ekki heldur kostnaðar- eða hagkvæmnissamanburður, á þessum þremur möguleikum, enda kemur þar einnig til samanburðar við aðra virkjun- armöguleika. Að lokum segir svo í álitsgerð Sigurðar Thoroddsen: „Að öllu athuguðu verður ekki annað sagt en að virkjun- arstaðurinn við Brúar sé heppi- legur. Tæknileg vandamál í sambandi við framkvæmdir fá, og ekki umfram það, sem eðli- legt má teljast á góðum virkjun- arstöðum og virkjunarkostnað- ur tiltölulega mjög vægur. Þar er nægt afl og orku að fá fyrir orkuveitusvæði, er nær yfir Norður- og Austurland, næstu ■tvo áratugi, auk þess að annað eins má virkja ofar við Laxá, Mývatnsvirkjanir, væntanlega á líku verði.“ Það er álit Laxárvirkjunar- stjórnar að þessar virkjanir við Laxá þoli fyllilega samanburð við aðrar þær virkjanir sem til greina koma í dag, og að taka beri fullt tillit til hinna miklu möguleika sem Laxá í Suður- Þingeyjarsýslu hefir i sambandi við orkuöflun fyrir Norðurland, og jafnvel Austurland og Suður- land áður en ákvörðun er tekin um aðrar hugsanlegar leiðir. Bretlandi. Og hann sýnir okkur all-mikið kvæði um Jökulsá á Fjöllum, er hann orti í útilegu sinni í sumar austur við Hljóða- kletta, þegar rigningin buldi á tjaldsúðinni og ekki var unnt að mála undir berum himni. KYNNTUST Á ÞINGVÖLL- UM. Kvæntur er Magnús Barböru Moray Williams, þekktri mynd- listarkonu, og svarar að því spurður, að hann hafi fyrst kynnzt henni á Þingvöllum, þar sem bæði voru samtímis með málaragrindina og léreftið. Frú- in málar enn, og ferðast þau hjón mikið saman innan lands og útan og lengstum með pensil- inn í hendinni, ef svo má segja. Af framansögðu má sjá, að hér er á ferðinni einn af okkar fjölhæfustu listamönnum, sem vakið hefir athygli í flestum listgreinum, svo sem tveim greinum myndlistar, ljóðlist og ritlist, og hamingjan má vita, nema þær greinir séu fleiri, þótt ekki komi beinlínis fram í þess- ari stuttu viðræðu, er við áttum við listamanninn. J. 1. Tilhögun. Fallið nýtt í 3 þrepum. Laxárvirkjun 1 lögð niður. Uppsett afl 86.300 kw. Orkuvinnsla á ári 395 millj. kwst. Heildarkostnaður 1005,9 millj. kr. Verð á uppsett kw. við stöðvarhússvegg um 8.300,00 kr. 2. Tilhögun. Fallið nýtt í 3 þrepum. Laxárvirkjun 1 lögð niður. Uppsett afl 85.400 kw. Orkuvinnsla á ári 391 millj. kwst. Heildarkostnaður 882,9 millj. kr. Verð á uppsett kw. við stöðvarhússvegg um 7.400,00 kr. 3. Tilhögun. Fallið nýtt með samsíða virkjunum í einu og tveimur þrepum. Laxárvirkjun 1 lögð niður. Uppsett afl 84.700 kw. Orkuvinnsla á ári 386 millj. kwst. Heildarkostnaður 843,4 millj. kr. Verð á uppsett kw. við stöðvarhússvegg um 7.135,00 kr. 4. Titiiögun. Fallið nýtt í einu þrepi. Núverandi virkjanir lagðar niður. Uppsett afl 90.000 kw. Orkuvinnsla á ári 404 millj. kwst. Heildarkostnaður 805,2 millj kr. Verð á uppsett kw. við stöðvarhússvegg um 6.540,00 kr. - Fjölhæfur listamaður opnar sýningu á Ak.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.